Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1986
HANN vissi ekki fyrr en rétt fyrir leikinn að hann ætti að vera í marki
íslands- og bikarmeistaranna. Hann er 22 ára og búinn að vera vara-
markvörður nokkuð lengi hjá félaginu og því orðinn þyrstur í að fá
að reyna sig. Maðurinn heitir Finnur Thorlacius og var hetja Víking-
anna í þessum úrslitaleik, varði mjög vel allan tímann og oft úr
dauðafærum. Hann vann leikinn þó alls ekki einn því fyrir framan
hann var geysilega sterk vörn þar sem leikreynslan spilaði ekki svo
lítið hlutverk, en engu að síður stóð Finnur sig mjög vel og mun
betur en flestir hefðu búist við þegar svo ungur markvörður kemur
svo skyndilega inn í þettta þýðingarmikinn leik. Úrslitin í þessum
skemmtilega leik urðu þau að Víkingur vann með 19 mörkum gegn
17 og urðu því bikarmeistarar fjórða árið í röð og í ár unnu þeir
tvöfalt, urðu bikar- og íslandsmeistarar, frábær árangur hjá Víkingum
og vel við hæfi að varðveita þessa tvo bikara í Reykjavík á 200 ára
afmæli borgarinnar.
Það má segja að leikur þessi
hafi verið leikur hinna sterku varna.
Varnir beggja liðanna voru sterkar
og að auki vörðu bæði Finnur og
Brynjar Kvaran mjög vel í markinu
þannig að það er engin furða þó
ekki hafi verið skorað mjög mikið.
Engu að síður höfðu þeirfjölmörgu
áhorfendur sem í Höllinni voru
mjög gaman af leiknum. Hann var
hraður og vel leikinn allan tímann
og umfram allt mjög spennandi.
Stjarnan byrjar vel
Stjömumenn komu Víkingum
greinilega talsvert á óvart strax í
upphafi með því að taka Steinar
Birgisson úr umferð frá fyrstu mín-
útu. Magnús Teitsson sá um það
og fórst honum það vel úr hendi.
Stjörnumenn komust strax yfir í
leiknum þó svo munurinn væri
ekki mikill. Þeir komust í 2:0 og
3:1 en síðan var jafnt 4:4 og þegar
leikið hafði verið í 24 mínútur
komust Vikingar yfir, 7:6, í fyrsta
Víkingur—Stjarnan
19:17
sinn í leiknum. Staðan í leikhléi var
10:7 fyrir Víking.
Sömu mennirnir
Það vakti athygli í þessum leik
hve lítið var skipt inná hjá báðum
liðum. Það voru sömu 14 leik-
mennirnir sem léku allan fyrri hálf-
leikinn og fyrstu skiptinguna gerðu
Stjörnumenn ekki fyrr en 11 mínút-
ur voru liðnar af síðari hálfleik og
skömmu síðar skiptu Víkingar
einnig um leikmenn.
Víkingar juku forystu sína í
FinnurThorlacius:
Stórkostleg
tilfinning
„ÞETTA er stórkostleg til-
finning og þú getur alls ekki
gert þér grein fyrir hversu
dásamleg hún er,“ var þaö
fyrsta sem Finnur Thorlacius
markvörður Víkings sagði
eftir leikinn.
„Ég er búinn að bíöa lengi eftir
því að fá tækifæri til að spreyta
mig og ég átti satt að segja
ekki von á því að fá tækifærið
í þessum leik en þegar Ijóst
var að Kristján gæti ekki leikið,
um tveimur mínútum fyrir leik-
inn, þá varð ég bæði feginn
og stressaður. Ég fann mig
alls ekki fyrst í leiknum en eftir
að ég varði fyrsta skotið þá
small þetta allt saman hjá mér.
Þetta var alveg frábært," sagði
hetja Víkinga, Finnur Thorlac-
ius.
Hannes Leifsson:
Grátlegt
„ÞAÐ er grátlegt að tapa
þessu, alveg grátlegt. Þetta
var mjög erfiður leikur og ég
held að hann hafi verið
skemmtilegur fyrir áhorfend-
ur,“ sagði Hannes Leifsson
úr Stjörnunni.
„Miðað við baráttuna sem
var í þessum leik fannst mér
að við ættum meira skilið.
Þeir höfðu meistaraheppnina
með sér og hirtu þrjú sókn-
arfráköst á lokamínútunni,
sem gerði útslagið. Við erum
með ungt og óreynt lið og ég
held að við þurfum ekki að
örvænta með þennan mann-
skap næstu árin.“
Morgunblaðið/RAX
• Guðmundur Guðmundsson, fyrirliði Víkings, hampar hér bikarnum. Frá vinstri: Bjarki Sigurðsson,
Guðmundur Albertsson og Guðmundur. Víkingar gátu svo sannarlega glaðst eftir að hafa unnið bikarinn
fjórða árið í röð. Þeir urðu einnig íslandsmeistarar i nýafstöðnu íslandsmóti og unnu því tvöfalt þetta
áriðeinsog 1983.
Guðmundur Guðmundsson:
Sigur heildarinnar
\Ð er alltaf jafn ánægjuleg til-
ling að taka við bikarnum og
ður verður ekkert leiður á því
kemst þetta upp í vana,“ sagði
ömundur Guðmundsson fyrir-
Vikinga eftir að hann hafði
ið við bikarnum góða úr hendi
garstjórans í Reykjavík, Dav-
Oddssonar, í gærkvöldi.
,Það var geysilegt áfall fyrir
okkur þegar í Ijós kom skömmu
fyrir leik að Kristján Sigmundsson
gæri ekki leikiö með. En það þýðir
ekkert að gefast upp og við ákváð-
um að það væri bara að duga eða
drepast og þjöppuðum okkur
saman um Finn varamarkvörð.
Hann var hreint frábær í þessum
leik og sérstaklega þegar haft er
í huga hve erfitt er að koma inní
svona mikilvægan leik með þeim
hætti sem hann gerði.
Ég held að leikreynslan hafi
haft mjög mikiö aö segja í lokin
hjá okkur. Þessi sigur var fyrst og
fremst sigur liðsheildar. Vörnin var
góð hjá okkur og liðsheildin var
góð,“ sagði Guðmundur og var
þotin til að láta mynda sig.
Víkingur bikarmeistari
fjórða árið í röð
Morgunblaðið/Bjami
• Hetja Vikings í bikarleiknum var markvörðurinn ungi, Finnur
Thorlacius. Hann fær hér flugferð hjá félögum sínum eftir leikinn.
upphafi síðari hálfleiks í 11:7 en
smátt og smátt söxuðu Garð-
bæingar á forskotið og þegar hálf-
leikurinn var tæplega hálfnaður
hafði þeim tekist að jafna 12:12
og síðan komust þeir tveimur
mörkum yfir, 12:14, en Víkingar
jöfnuðu fljótlega og komust aftur
yfir. Það var ekki síst að þakka
því að þeir tóku þá Gylfa og Hann-
es úr umferð um tíma og gaf það
mjög góða raun.
Þegar tvær mínútur voru til
leiksloka jafna Garðbæingar,
17:17, og bjuggust menn við æsi-
spennandi lokamínútum. Svo varð
þó ekki. Víkingar höfðu heppnina
með sér og náðu þrívegis að ná
sóknarfráköstum þannig að þeir
náðu að skora. Ótímabær skot
Garðbæinga fóru í þéttan varnar-
vegg Víkings.
Það sem eftir var leiksins héldu
þeir knettinum og skömmu fyrir
leikslok skoraði Páll Björgvinsson
19. og síðasta mark Víkings á
þessu keppnistímabili með fallegu
gegnumbroti.
Mikil reynsla
Það verður að segjast eins og
er að Víkingar eru án efa með
besta handknattleiksliðið hér á
landi um þessar mundir. í byrjunar-
liðinu eru geysiiega leikreyndir
menn, ef frá er talinn Finnur
Thorlacius, og það skiptir ekki svo
litlu máli í úrslitaleik sem þessum.
Á varamannabekknum sitja leik-
menn eins og Einar Jóhannesson,
Siggeir Magnússon, Sigurður
Ragnarsson og Bjarki Sigurðsson
sem allir hafa leikið vel í vetur.
Finnur var, eins og áður segir,
hetja Víkinga, en allir léku leikmenn
liðsins vel. Gamla kempan Páll
Björgvinsson stóð svo sannarlega
fyrir sínu. Skoraði mikið í leiknum
og stóð sig vel í vörninni auk þess
sem hann stjórnar leik liðsins af
röggsemi. Steinar Birgisson lék vel
í vörninni en var tekinn úr umferð
í sókninni. Hann skoraði þó eitt
fallegt mark þrátt fyrir það auk
þeirra sem hann gerði úr vítaköst-
um. Hilmar Sigurgíslason lék stór-
vel í vörninni og hefur hann styrkt
liðið mikið eftir að hann kom inn
í það aftur. Karl Þráinsson lék vel.
Hann skaut að vísu dálítið mikið
en öðruvísi gera menn jú ekki
mörk. Guömundur Guðmundsson
fyrirliði fiskaði mörg vítaköst í
leiknum og lék vel í vörninni og
sömu sögu er að segja af nafna
hans Albertssyni. Einar Jóhannes-
son lék vel í vörninni eftir að hann
kom inná.
Ungir og á réttri leið
Lið Stjörnunnar er ungt og hefur
sýnt það í vetur að það á framtíð-
ina fýrir sér. Það var fyrst og
fremst reynsluleysi sem háði þeim
í lok leiksins þegar mest á reyndi.4
Stjarnan getur þó vel við unað með
afrakstur vetrarins. Liðið varð í 3.
sæti í íslandsmótinu og mun leika
í Evrópukeppni bikarhafa næsta
vetur þar sem Víkingar leika í
Evrópukeppni meistaraliða sem
íslandsmeistarar.
Bestur í liði Stjörnunnar að
þessu sinni var Brynjar Kvaran
sem varði oft og tíðum á hreint
ótrúlegan hátt. Alls varði hann 16
skot og þar af tvö vítaköst. Finnur
varði 14 skot fyrir Víking. Gylfi
Birgisson átti stórleik að þessu
sinni. Skoraði sjö mörk hvert öðru
glæsilegra með uppstökki langt
fyrir utan vörnina. Hannes Leifs-
son leikur sjaldan eða aldrei illa
og að þessu sinni lék hann mjög
vel. Stjórnar liðinu vel bæði í sókn
og vörn. Sigurjón Guðmundsson
stóð vel fyrir sínu í sókninni en var
ekki alveg nógu sannfærandi í
vörninni.
Dómararnir
Dómarar þessa leiks voru þeir
Stefán Arnaldsson og Ólafur Har-
aldsson og stóðu þeir sig þokka-
lega þegar á heildina er litið. Þeir
ætluðu greinilega að taka leikinn
af mikilli festu strax í upphafi og
tókst það vel. Sérstaklega tókst
það vel þegar þeir dæmdu á
Stjörnumenn en því miður er ekki
sömu sögu að segja hinum megi
af vellinum.
Það var sláandi, sérstaklega í
fyrri hálfleik, hve miklu meira varn-
armenn Víkings máttu brjóta af sér
miðað við Stjörnumenn. Ef til vill
stafar þetta af því hversu lymsku-
lega Víkingar brutu af sér. Þeir
voru eldsnöggir að slá á hendur
sóknarmanna Stjörnunnar á með-
an Stjörnumenn héngu meira á
Víkingum í sókninni.
Þrátt fyrir það sem hér á undan
er sagt sluppu dómararnir þokka-
lega frá þessum leik, en ekki voru
þeir samt eins góðir og leikmenn-
irnir.
Mörk Víkings: Póll Björgvinsson 6, Karl
Þráinsson 3, Guömundur Guömundsson 3,
Guömundur Albertsson 3, Steinar Bigisson
3/2, Hilmar Sigurgíslason 1.
Mörk Stjömunnar Gylfi Birgisson 7, Hann-
es Leifsson 5/1, Hermundur Sigmundsson 2,
Sigurjón Guðmundsson 2, Magnús Teitsson
1.
Víkingar voru utan vallar í 12
mínútur en Stjarnan í sex.
- sus