Morgunblaðið - 01.05.1986, Page 84
...MEÐÁ
NOTUNUM...
WJJj J
© lónaóartwnkinn
FIMMTUDAGUR1. MAÍ 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Samkomulag
um gerðardóm
UPP úr miðnætti í nótt tókst
samkomulag í deilu bilstjóra í
Bifreiðastjórafélaginu Sleipni og
viðsemjenda þeirra og var boð-
uðu tveggja daga verkfalli lang-
ferðabílstjóra því aflýst. Sam-
komulag varð um að setja deil-
una í þriggja manna fijálsan
gerðardóm og á hann að hafa
lokið störfum fyrir 1. júní. Samn-
ingafundur stóð yfir í allan
gærdag og fram á nótt. Sam-
komulagið verður borið undir
félagsfund í Sleipni undir helg-
ina.
Bflstjórar hjá Sleipni fóru fram
á að laun þeirra yrðu samræmd
launum bflstjóra á steypubflum, sem
eru á sérstökum samningi við
steypustöðvar. Mánaðarlaun
steypubflstjóra eru 23.825 krónur,
en samkvæmt samningum bflstjóra
innan Sleipnis frá októbermánuði á
síðasta ári, hafa þeir 18.157 krónur
í föst laun á mánuði.
' ^Jew York — Luxemborg:
Flugleiðir bjóða
ferðir á rúmar
átta þús. krónur
FLUGLEIÐIR bjóða nú ný fargjöld á flugleiðinni frá New York til
Luxemborgar, sem eru jafnlág og bandariska flugfélagið People
Express býður, án þess þó að skerða þjónustuna nokkuð. Það eru
svokölluð „Stattu upp og farðu“-gjöid, sem hljóða upp á 149 dali
aðra leiðina, eða 8.250 krónur, og 298 daii fram og tii baka. Boðið
er upp á bókun með 48 tíma fyrirvara.
Að sögn Sigfúsar Erlingssonar
framkvæmdastjóra markaðssviðs
Flugleiða, hafa Flugleiðir áður
boðið svo lág gjöld á þessari flug-
leið, en þau hefur þurft að bóka
innan 24 tíma fyrir brottför. „Við
erum með þessu nýja gjaldi að slá
út tilboð sem belgíska flugfélagið
Sabina hefur verið með undanfarið.
ðabina býður unglingum og eldra
fólki þessi kjör, en hjá okkur gildir
þetta fyrir alla. Samkeppnin á
þessum markaði er hörð og þetta
er ein af mörgum leiðum okkar til
að halda okkar hlut,“ sagði Sigfús.
Sigfús sagði að slík „hopp“-
fargjöld væru að jafnaði aðeins
4-5% af bókunum Flugleiða. Lang-
algengast væri að menn pöntuðu
með lengri fyrirvara og greiddu
fyrir það fullt gjald. Hæsta fargjald
Flugleiða á þessari leið er nú í
kringum 720 dalir, báðar leiðir, en
það eru „Saga-Class“-gjöldin, sem
svo eru nefnd. Farþegar á Saga-
Class fá meira fótaiými og betri
þjónustu. Byijað var að bjóða
Saga-Class-ferðir 1. apríl sl. og
hafa þær reynst vinsælar, að sögn
Sigfúsar. Venjulegur opinn farmiði
kostar í kringum 600 dali fram og
til baka á þessari leið, en dagsett
fargjöld með lengri fyrirvara eru á
um það bil 460 dali. Sigfús sagði
að öll fargjöld Flugleiða myndu
hækka 15. maí nk.
Símamynd/Knut Strand
1
Hér má sjá þau Pálma Gunnarsson, Helgu Möller og Eirík Hauksson
á sviðinu í Grieghöllinni í Bergen þar sem söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva fer fram á laugardaginn. í sviðsmyndinni ráða ríkjum
ískristallar og fjöll og í baksýn sést hljómsveitarstjórinn Gunnar
þórðarson.
Sjá nánar á miðopnu „Gleðibankinn í 6. sæti ... samkvæmt
brezkum spám.“
Víkingur bikarmeistari fjórða árið íröð
Páll Björgvinsson var einn besti leikmaður Víkings og skoraði sex
mörk í gærkvöldi, þegar Víkingur varð bikarmeistari í meistaraflokki
karla í handknattleik fjórða árið í röð. Víkingur sigraði Stjömuna í
jöfnum ogspennandi úrslitaleik, 19:17
Sjá nánar um leikinn á bis. 83.
Morgunblaðið/RAX
Borgarráð:
Samþykkt að
vinna að til-
lögnm um frá-
gang Tjarn-
arsvæðisins
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt bókun, sem gerð var
í umhverfismálaráði fyrr í
mánuðinum, um að borgar-
skipulagi og garðyrkju-
stjóra borgarinnar verði
falið að gera tillögur um
frágang Tjarnarsvæðisins.
Að sögn Huldu Valtýsdóttur
formanns umhverfismálaráðs
hefur lengi verið rætt um að þörf
væri á að gera við bakka Tjamar-
innar. í þeirri umræðu hefur
einnig komið fram sú skoðun að
betra væri að bíða með allar slík-
ar framkvæmdir þar til skipulag
Kvosarinnar hefur verið sam-
þykkt.
Hulda sagði að á fundi um-
hverfísmálaráðs 16. apríl sl. hefði
verið til umfjöllunar fyrirspum
sem Kristján Benediktsson lagði
fram í borgarstjóm um frágang
og framkvæmdir við bakka
Tjamarinnar í Reykjavík. Eftir
þá umijöllun hefði verið sam-
þykkt eftirfarandi bókun: „I
framhaldi af samþykkt borgar-
stjómar 20. mars sl. samþykkir
umhverfísmálaráð að fela Borg-
arskipulagi í samráði við garð-
yrkjustjóra að vinna að tillögum
um frágang 'Ijamarsvæðisins til
framtíðar og gera tímasetta áætl-
un um framkvæmd verksins.
Jafnframt fer umhverfísmálaráð
fram á að embætti garðyrkju-
stjóra gangi strax í vor fyrir
verulegri hreinsun á Ijöminni
sjálfri og láti strax lagfæra bakk-
ana til bráðabirgðar svo ekki stafí
af þeim slysahætta."
Kjötverð lækkar um 5%:
„Rétt að neytendur
njóti vaxtalækkunar
— segir Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra
VERÐ á dilkakjöti lækkar um
5% frá og með föstudeginum 2.
maí. Þorsteinn Pálsson, fjár-
málaráðherra, hefur ákveðið, að
vaxtamun, sem myndast hefur
hjá vinnslustöðvum landbúnaðar-
ins vegna lækkunar vaxta, verði
varið til að auka niðurgreiðslur
á dilkakjöti í 1. 2. og 3, flokki.
Hér er um 40 milljónir króna að
ræða, sem nýttar verða, þar til
haustslátrun hefst. Talið er, að
þessi verðlækkun stuðli að því,
að vísitala fari ekki yfir það
mark, sem kjarasamningar
byggjast á.
Þorsteinn Pálsson, §ármálaráð-
herra, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að talið hefði verið eðlilegt,
að neytendur nytu góðs af þeirri
vaxtalækkun, sem orðið hefði und-
anfarið. „Okkur þykir rétt, að þessir
fjármunir nýtist almenningi með
þessum hætti,“ sagði ráðherrann.
„Vegna lækkunar vaxta að und-
anfömu," sagði Þorsteinn Pálsson,
„hefur vaxtakostnaður hjá vinnslu-
fyrirtækjum í landbúnaði einnig
lækkað. Þess vegna þurfa þau ekki
að nýta það fé, sem fjárveitinga-
valdið hafði ætlað til að greiða niður
vexti fyrir vinnslustöðvamar. Með
þeirri ákvörðun, sem nú hefur verið
tekin, kemur þetta fé neytendum
til góða, en alls er reiknað með, að
40 milljónir króna fari í þessar
niðurgreiðslur á kjötinu."
Þijú þúsund steikar-
pönnur til Bretlands
Eyrarbakka.
FYRSTA framleiðsla Álpan,
um 3.000 steikarpönnur, fóru
frá Eyrarbakka sl. þriðjudag
til Bretlands.
Framleiðslan er nu að fæ’rast
í það horf sem búist var við og
verður von bráðar auglýst eft.ir
starfsfólki. Óskai