Morgunblaðið - 03.05.1986, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1986
Smálaukar
Saga
rokkara
- Pálmi Gunnarsson
leggur spilin á boröið
PAY1M13S
KÚLNAHRÍD..
UM KVÖLD
OG HELGAR
verður dreift í verslanir í dag!
Einkaviðtal við Pálma Gunnarsson,
söngvara lcy, sem í kvöld keppa fyrir ísland í Eurovision-keppninni!
MANNLÍF — METSÖLUTÍMARIT. ÁSKRIFTARSÍMI: 687474.
Ekki var langt liðið á þennan milda vetur þegar
fyrst sáust tákn um vaknandi vor, þorri vart
genginn úr garði þegar fyrstu smálaukamir fóm
að sýna blóm. Smálaukar nefnast jafnan einu nafni
laukjurtir, 10—15 sm háar. Þeir em lagðir i mold
að hausti og bregða vetrarblundi mun fyrr en
almennt gerist um jurtir. Vissulega er það ómaks-
ins vert að eiga svolítið safn af slíkum laukum í
garðinum sínum, fylgjast með þeim vakna til nýs
lífs og færa okkur heim sanninn um það að brátt
fari að styttast til sumars. Ef nefna ætti einhveijar
sérstakar tegundir af þessum smálaukum, myndi
ég hiklaust velja vorliljuna (Bulbocodium vemum)
efst á blað, svo vel hefur hún reynst mér um langt
árabil og með sínum sterka ljósfjólubláa lit lýst
upp sinugrátt umhverfið. Oft ég hef undrast hve
harðger og frostþolin hún er. í fullum blóma hefur
hún margt vorið lent í allt að 12° frosti og komist
óskemmd úr þeirri hörðu baráttu. Ýmsar tegundir
af dýrlega fallegum villikrókusum em á ferðinni
um svipað leyti og vorliljan, einnig vorboði og
vetrargosi, gamalreyndir hér. Síðan tekur hvað við
af öðm: snæstjama, vorstjömulilja, stjömulilja svo
eitthvað sé nefnt og ekki má skógarsóleyjamar
vanta í þá upptalningu. Allir njóta þessir smálaukar
sín best margir saman í þyrpingum, helst í breiðu
t.d. undir tijám. Þá fyrst em þeir vemlega til
augnayndis. Þeir eiga það sammerkt að vera
harðgerir, auðveldir í meðfömm og fjölga sér fljótt.
Um það leyti sem blómgun lýkur fara blöðin heldur
betur að vaxa og breiða út sér og er okkur kennt
að þau skuli ekki fjarlælgja því gegnum þau tekur
laukurinn til sín næringu. Heyrst hefur kvartað
undan fyrirferð þessara blaða og vissulega er lítið
skraut í þeim hálfvisnuðum og útflöttum ofan á
blómabeðum, en það er ekki ýkjamikil fyrirhöfn
að knippa þau saman og koma þannig fyrir að
þau séu ekki til umtalsverðrar óprýði.
Vorið er tilvalinn tími til að kíkja í garða og
sjá sem flestar tegundir í blóma og félagar í GI
em hvattir til að kynna sér vel haustlaukalistann
strax og hann berst þeim í hendur. Ums.
Maf 1980
3. tbl. 3. árg.
Vtrt kr. 239
Húllumhæí ^ 4
Hull og Grimsby
Ástir
aðstoðarráðherra
Þau elska
bæði kynin
Kiddi Finnboga
snyraftur
MlAlR