Morgunblaðið - 03.05.1986, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 3. MAÍ1986
• Zico gat svo sannarlega
fagnað eftir leikinn gegn
Júgoslavíu á miðvikudaginn
þar sem hann skoraði
þrennu.
Zico með
þrennu
— Brasilía sigraði
Júgóslavíu 4—2
BRASILÍA vann góðan sigur
á Júgóslavíu, 4:2, í æfingaleik
í knattspyrnu á miðvikudags-
kvöld i Brasilíu.
Zico átti stórleik og skoraði
þrennu fyrir Brasilíu. Fyrst
skoraði hann á 20. mínútu,
síðan á 62. mínútu og loks á
75. mínútu. Fjórða markið
gerði Careca á 87. mínútu.
Mörk Júgóslavíu gerðu Gracan
á 40. mínútu og Jankovic á 53.
mínútu.
Brasilíumenn sýndu það í
þessum ieik að þeir geta verið
hættulegir í Mexíkó í heims-
meistarakeppninni.
Víðavangs-
hlaupá
Klambra-
túninu
VÍÐVANGSHLAUP íslands
verður haidið á Miklatúni
(Klambratúni) í Reykjavík á
morgun, sunnudag. Keppnin
hefst klukkan 14 og verða 7
flokkar ræstir á rúmri kiukku-
stund, svo iftið hlé verður á
hlaupum í garðinum í tvær
stundir. Byrjað er á keppni
yngstu flokka en karlar leggja
síðast af stað. Keppnislengd-
ir eru frá 1,5—8 km.
Víöavangshlaupið er ís-
landsmeistaramót og sigur-
vegari í hverjum flokki íslands-
meistari þetta árið í víða-
vangshlaupi. Hlaupið er í
umsjá frjálsíþróttadeildar ÍR.
Búningsaðstaða verður í
íþróttahúsi Kennaraháskólans
við Háteigsveg og verður það
opnað kl. 12.30. Keppnisnúm-
er verða afhent við Kjarvals-
staði frá kl. 13. Verðlaunaaf-
hending verður upp úr kl. 16
á Kjarvalsstöðum.
Ég á ekki í neinum
fyrirtækjum á íslandi
— segir Ásgeir Sigurvinsson sem f dag leikur með Stuttgart gegn
Bayern Miinchen í úrslitaleik vestur-þýsku bikarkeppninnar
„UNDANFARNAR vikur hafa ver-
ið mjög ánægjulegur tími. Ég er
búinn að ná mér eftir rifbeinsbrot
og liðið hefur leikið vel. Svo er óg
búinn að gera nýjan samning við
féiagið og fjölskyldu minni líður
vel. Þetta er allt eins og það á
að vera,“ sagði Ásgeir Sigurvins-
son í samtali við Morgunblaðið.
í dag leikur Ásgeir einn mikilvæg-
asta leik ferils síns, úrslitaieik
vestur-þýsku bikarkeppninnar í
Berlín, milli Stuttgart og Bayern
Munchen.
„Þetta verður erfiður leikur en
vonandi skemmtilegur," sagði Ás-
geir. „Bæði lið koma til hans af-
slöppuð, þeir eru orðnir meistarar
og við erum þar með komnir í
Evrópukeppni bikarhafa, svo það
er ekkert í húfi nema titillinn sjálfur.
Ég tel að liðin eigi nokkuð jafna
möguleika fyrirfram, enda þótt
enginn vafi sé á því að Bayern
hefur sterkasta 20 manna hópinn
hér í Þýskalandi. Þeir eiga að
minnsta kosti 20 leikmenn sem
myndu fara í hvaða lið annað sem
er. Hjá okkur, eins og öðrum liöum
hér, er breiddin minni. En þegar
allir okkar bestu menn eru heilir,
þá tel ég liðin svipuð að getu.“
Ásgeir Sigurvinsson hefur nú
verið atvinnumaður í knattspyrnu
í 14 ár. Hann hóf feril sinn hjá
belgíska liðinu Standard Liege, fór
eftir 9 ár þar til Bayern Miinchen,
þar sem hann stóð aðeins við í
eitt ár, og hefur nú verið hjá Stutt-
gart í 4 ár. Hann fór að heiman
sem óharðnaður unglingur, og
hefur verið búsettur erlendis öll
sín fullorðinsár. „En ég verð alltaf
íslendingur," sagði hann. „Við
tölum alltaf íslensku heima, hugs-
um eins og íslendingar og eigum
áreiðanlega eftir að snúa heim
aftur þegar knattspyrnuferillinn er
búinn. Við fáum blöðin send og
fylgjumst með því helsta sem
gerist."
„En þörfin fyrir regluleg sam-
skipti við íslendinga er farin að
minnka. Fyrst eftir að ég kom út
beið ég óþreyjufullur eftir öllum
tækifærum til að komast heim,
leitaði uppi íslendinga og gat varla
hugsað þá hugsun til enda að eiga
eftir að vera að heiman kannski
árum saman. Þetta er allt öðruvísi
núna. Núna eigum við vini hér í
Þýskalandi og í Belgíu — vini sem
við höfum átt árum saman — og
erum orðin ágætlega rótgróin hér
með tilliti til alls; heimilisins, starfs-
ins og daglega lífsins, þannig að
þörfin fyrir ísland og íslendinga er
miklu minni."
Ásgeir hefur nýlega gert nýjan
4 ára samning við Stuttgart, samn-
ing sem gildir til 1990 þegar Ásgeir
verður 35 ára gamall. Þessi nýi
samningur kom til vegna þess að
Morgunblaðiö/GA
Ásgeir framan viö vinnustað sinn; Neckar-leikvanginn í Stuttgart.
nokkur lið höfðu lýst yfir áhuga á
að kaupa hann — nokkuð sem
forráðamenn Stuttgart gátu ekki
hugsað sér. Þeir buðu því Ásgeiri
langan samning, þótt hann ætti
eitt ár eftir af eldri samningi, og
þótt hann sé að komast á þann
aldur að líklegt má telja að hann
fari að dala sem knattspyrnumað-
ur. Sum lið hafa fyrir reglu að gera
aldrei nema eins árs samninga við
leikmenn sem komnir eru yfir þrí-
tugt. En hvað felst í samningum
Leikmenn Stuttgart:
Fá 460 þús. fyrir sigur
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, frótta-
manni Morgunblaðsins í Þýskalandi:
LEIKMENN Stuttgart fá 25 þús-
und mörk, eða 460 þúsund ís-
lenskar krónur á mann ef þeir ná
að sigra í vestur-þýsku bikar-
keppninni í knattspyrnu. Leik-
menn Bayern Miinchen fá 20
þúsund mörk fyrir sigur, að sögn
Kicker, knattspyrnutimaritsins
kunna.
Að sögn blaösins er hinn hái
bónus Stuttgart þó ekki allur þar
sem hann er séður, því leikmenn-
irnir fái aðeins einn þriðja hans
greiddan strax eftir leikinn. Tveir
þriðju hlutar hans koma til út-
borgunar þegar Stuttgart hefur
komist í aðra umferð Evrópu-
keppni bikarhafa næsta keppnis-
tfmabil.
Tveir leikmenn sem taka þátt í
úrslitaleiknum í dag hafa leikið
með andstæðingunum. Dieter
Höness hjá Bayern hóf feril sinn
hjá Stuttgart og Asgeir Sigurvins-
son lék með Bayern í eitt ár. Af
þessu tilefni átti Kicker viðtöl við
leikmennina um úrslitaleikinn.
eins og þessum, er þetta bara
spurning um peninga?
„Nei," sagði Ásgeir, „þetta er
ekki spurning um peninga ein-
göngu. Ef ég hugsaði bara um þá
þá hefði ég beðið í eitt ár, leikið út
fyrrverandi samning minn, því
hann var þannig að ég hafði frjálsa
sölu í lok hans. Þá hefði ég getað
farið til annars félags fyrir nokkra
upphæð og stungið henni allri í
eigin vasa. Þá hefði ég eignast
meira fé en nokkru sinni fyrr á
ferlinum. En við veröum auðvitað
að taka annað með í reikninginn.
Okkur líður vel hér, erum nýbúin
að byggja okkur gott hús 25 kíló-
metra suður af borginni á góðum
stað, dóttir okkar fer bráðum að
byrja í skóla, og það freistar okkar
því ekki að flytja og byrja upp á
nýtt á öðrum stað. Síðan koma inn
í svona samninga allskyns hlutir í
sambandi við stöðu manns hjá
félaginu, til dæmis um frjálsræði,
æfingasókn og fleira. Ég er mjög
ánægður með þennan samning að
öllu leyti."
Undanfarnar vikur hefur loft
verið lævi blandið í herbúðum
Stuttgart, vegna kyndugrar stöðu
í þjálfaramálum. Sá sem var þjálf-
ari liðsins framan af keppnistíma-
bilinu, Otto Baric, var látinn hætta,
meðal annars vegna óánægju leik-
manna. Við liðinu tók Entenmann,
en sá maður hafði verið aðstoðar-
þjálfari í Stuttgart í 4 ár og er
geysilega vel liðinn. Eftir að hann
tók við liðinu fyrir um tveimur
mánuðum hefur sigurganga þess
verið nánast óslitin. En samt hefur
stjórn félagsins nú þegar ráðiö
aðstoðarþjálfara Bayern Munchen
til að taka við liðinu á næsta keppn-
istímabili og sá hefur lýst yfir að
hann þurfi ekki aðstoðarþjálfara.
Staða Entenmann er því í hættu,
svo ekki sé meira sagt, og það eru
leikmennirnir mjög óánægðir með.
„Við höfum sérstakt leikmannaráð
og ef við leikmennirnir höfum eitt-
hvað að segja þá fer það í gegnum
ráðið. En ég skipti mér lítið af
svona hlutum, og allar stórar
ákvarðanir, eins og kaup á leik-
mönnum eða ráðningu þjálfara
tekur stjórn félagsins upp á eigin
spýtur. Ég er samt alls ekki að
kvarta — ef ég hef eitthvað að
segja þá er hlustað á mig," sagði
Ásgeir.
En hvað gerir maður eins og
Ásgeir Sigurvinsson þegar hann
lýkur ferli sínum sem atvinnuknatt-
spyrnumaður á besta aldri? Er
hann farinn að leggja drög að
öðrum ferli að loknum þessum?
„Nei, ég hef ekki tekið neinar
ákvaröanir í þeim efnum. Enda
kannski of snemmt. Það sem lítur
vel út í dag, þarf ekki að vera jafn
sniöugt eftir 4 ár. En það eru fjöl-
margir möguleikar opnir. Til
dæmis get ég vel hugsað mér að
taka að mér lið heima á íslandi
þegar ég hef hvílt mig á knatt-
spyrnu í nokkur ár. Hér úti get ég
ekki hugsað mér að þjálfa, eins
og stressið og ruglið í kringum
þessa þjálfara er.“
Annar íslenskur atvinnumaður á
undan Ásgeiri, Albert Guðmunds-
son, kom undir sig fótunum í við-
skiptum. Hefur Ásgeir viðskipta-
vit? „Það er hugsanlegur mögu-
leiki að ég fari út í einhverskonar
viðskipti, en það verður ekki viða-
mikið. Ég býst alls ekki við að fara
að reka viðamikið fyrirtæki, það
væri ekki minn stíll. Eg veit að það
eru stöðugt í gangi sögusagnir
heima á íslandi um að ég sé að
leggja fé í fyrirtæki, skemmtistaði,
ferðaskrifstofur og hver veit hvað.
Þetta er allt úr lausu lofti gripið. Ég
á ekki í neinum fyrirtækjum á ís-
landi, eins og ég hef oft sagt áður."
Ásgeir og Ásta kona hans eiga
von á öðru barni sínu eftir um það
bil mánuð, á svipuðum tíma og
íslenska landsliðið á að leika tvo
landsleiki á Laugardalsvellinum við
íra og Tékka. Þá verður Ásgeir
einnig búinn að vera í fríi í mánuð,
eða frá deginum í dag, þannig að
hann mun ekki taka þátt í lands-
leikjunum.
„Sigi Held er gamall atvinnu-
maður héðan ur þýsku deildinni
og hann veit manna best að það
er engum greiði gerður að láta
mann eins og mig taka þátt í lands-
leikjum þegar svona er ástatt hjá
manni. Það er hvorki landsliðinu,
mér né áhorfendum til góðs. Ég
sagði Sigi Held hinsvegar að ég
væri tilbúinn að koma í landsleiki
þegar betur stendur á, og ég vona
svo sannarlega að ég geti leikið
sem allra flesta landsleiki í Evr-
ópukeppninni."
- GA