Morgunblaðið - 04.05.1986, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVÍK
Lausar stöður
Auglýstar eru til umsóknar eftirtaldar stöður
starfsmanna á nýju sambýli fyrir fatlað fólk
í Reykjavík.
1. Þroskaþjálfi. Fullt starf.
2. Meðferðarfulltrúi. Fullt starf.
3. Meðferðarfulltrúi. Hlutastarf.
Ráðgert er að heimilið taki til starfa þann
1. júlí nk. Unnið er á vöktum.
Laun samkvæmt launakjörum opinberra
starfsmanna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist fyrir 15. maí nk.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
Hátúni 10
105 Reykjavík.
Vélvirki
Vélvirki óskar eftir starfi. Mikil starfsreynsla.
íbúðfylgi.
Tilboð sendist augld. Mbl. fyrir 10. maí 1986
merkt: „Vélvirki — 5708“.
!|| LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Er íþér einhver
unglingur?
Langar þig til að starfa með unglingum, fyrir
unglinga og í þeirra hópi? Úti og inni? í gleði
og sorg? Er það?
Þá er útideildin þín deild.
Og svo skemmtilega vill einmitt til að við
ætlum að fara að bæta við starfsmanni. Við
veitum upplýsingar um starfið í síma 621611
alla virka daga frá 13-17. En það má alveg
koma fram strax að auk starfsgleðinnar þarf
umsækjandi að hafa reynslu í unglingastarfi
eða menntun sem tengist því.
Það er bara að skrifa umsókn og leggja hana
inn á starfsmannahald Reykjavíkurborgar,
Pósthússtræti 9, 5. hæð, fyrir 20. maí nk.
Það sakar ekki að sækja um.
Útideildin.
Verslunarstjóri
Rúmlega þrítugur verslunarstjóri óskar eftir
starti á Stór-Reykjavíkursvæðinu sem fyrst.
Upplýsingar í síma 52729.
Rafeindavirki
Ég er 22 ára rafeindavirki, frá Iðnsk. í Rvík.,
með sveinspróf. Er í framhaldsnámi við
Tækniskóla íslands og vantar vinnu í sumar.
Tilboð óskast send auglýsingad. Mbl. merkt:
“R —060“.
REYKJALUNDUR
Læknaritarar
óskast til afleysinga á læknastöð Reykjavíkur
íjúlíog ágúst.
Upplýsingar veitir yfirlæknir í síma 666200.
Reykjalundur, endurhæfingarstöð.
II. vélstjóra
vantar á m/b Albert Ólafsson KE 39.
Upplýsingar í síma 92-2304 og 92-1333.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
fundir — mannfagnaðir
Kiwanismenn
— Kiwanismenn
Fundur verður í Kiwanishúsinu, Brautarholti
26, sunnudaginn 4. maí kl. 15.00.
Kynnt verður endanleg ferðatilhögun á
Evrópuþing í Björgvin.
Undirbúningsnefnd.
húsnæöi öskast
Vesturbær — Reykjavík
Hjón búsett erlendis óska eftir að taka á
leigu í júní og júlí bjarta og fallega íbúð á
góðum stað í Vesturbæ. Upplýsingar í síma
16873.
Einbýlishús eða
raðhús óskast
til leigu í 12-18 mán. handa hjónum með 2
börn. Húsnæðið þarf að hafa a.m.k. 3 svefn-
herbergi, vera á Stór-Reykjavíkursvæðinu og
vera laust eigi síðar en mánaðamótin júlí/
ágúst. Upplýsingar í síma 42249.
*
Ibúð óskast
Reykjalundur óskar eftir að taka íbúð á leigu
í Mosfellssveit eða Árbæjarhverfi sem fyrst
fyrir hjúkrunarfræðing með litla fjölskyldu.
Skilvísum greiðslum og góðri umgengni
heitið. Upplýsingar veittar á skrifstofu
Reykjalundar í síma 666200 (Björn eða Jón).
húsnæöi i boöi
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu gott 80 fm húsnæði á 2. hæð í nýja
húsinu Laugavegi 61-63. Laust strax. Uppl.
í síma 24910 (verslunartíma).
Skrifstofuhúsnæði til leigu
á 2. hæð við Brautarholt. Tilvalið fyrir teikni-
stofur. Stærð 250 fm eða minni einingar.
Upplýsingar í síma 685003.
Til leigu
falleg efri sérhæð við Nýbýlaveg í Kópavogi
til 1 til 2 ára frá 1. júní nk. Hæðin er ca 135
fm með 4 svefnherbergjum, stórri stofu,
geymslu, búri, arni og gestasalerni, bílskúr
fylgir einnig. Tilboð sendist auglýsingad.
Morgunblaðsins merkt: „H — 061“ fyrir 10.
maí nk.
Aðalfundur Iðnþróunar-
félags Kópavogs
verður haldinn fimmtudaginn 29. maí í félags-
heimili Kópavogs, Fannborg 2, kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla starfsstjórnar.
2. Lögfélagsins.
3. Tekju- og greiðsluáætlun fyrir komandi
starfsár.
4. Stjórnarkjör.
5. Önnurmál.
Kópavogsbúar og aðrir þeir sem áhuga hafa j
á málefnum félagsins eru hvattir til að mæta
á fundinn.
Stjórnin.
Aðalfundur Þróunar-
félags Islands hf.
verður haldinn í Átthagasal Hótel Sögu
þriðjudaginn 13. maí 1986. Fundurinn hefst
kl. 14.00.
Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundar-
störf skv. 14. gr. samþykkta félagsins og
tillaga til breytinga á samþykktum félagsins.
Fundarboð ásamt tillögu til breytinga á
samþykktum félagsins hefur verið sent hlut-
höfum í ábyrgðarbréfi. Aðgöngumiðar að
fundinum og atkvæðaseðlar verða afhentir
á fundarstað við upphaf fundarins og á skrif-
stofu félagsins Skipholti 37, 3. hæð frá og
með þriðjudeginum 6. maí nk.
Stjórn Þróunarfél. íslands hf.
Húsnæði óskast
Hjúkrunarfræðingur og rafvirki með 2 börn
óska eftir 3ja-4ra herb., íbúð helst í Hlíðum
eða í vesturbæ fljótlega.
Uppl. ísíma 24519.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Hef verið beðinn að auglýsa eftir 550-800
fm skrifstofuhúsnæði í Reykjavík fyrir opin-
bera stofnun. Húsnæðið þarf að vera mið-
svæðis og hafa góða aðkomu. Leigutími að
minnsta kosti 10 ár.
j Upplýsingar veitir:
Ingileifur Einarsson, lögg. fast.,
Suðurlandsbr. 32, sími 688828.
Húsnæði óskast
Okkur hefur verið falið að útvega húsnæði
til leigu fyrir aðila utan af landi.
Til greina kemur íbúð með minnst þremur
svefnherbergjum, raðhús eða einbýli.
Öruggar greiðslur og góð umgengni.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni í
síma 622040.
Lögfræðistofan sf,
Sigurður G. Guðjónsson.