Morgunblaðið - 04.05.1986, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAI1986
55
930 ár liðin frá vígslu fyrsta Skálholtsbiskups:
Hátíðahöld í Skálholti
á uppstigningardag
SUMARIÐ 1956 var haldin vegleg {jjóðhátíð í Skálholti í minningu
þess að liðin voru 900 ár frá vígslu Isleifs Gissurasonar fyrsta bisk-
ups íslensku kirkjunnar. í maí á þessu ári eru liðin 930 ár frá vígsl-
unni og verður þess minnst með hátíðahaldi i Skálholti nú á uppstign-
ingardag 8. maí. Jafnframt er horft til þess að 15. apríl 1785 voru
tvær aldir frá því að konungur undirritaði tilskipun um að Skál-
holtsstóll skyldi fluttur til Reykjavíkur.
Það eru einkum heimamenn sem málastjóri leika á orgel kirkjunnar.
bjóða til þessarar hátíðar, söfnuðir
í Skálholtsprestakalli, biblíufélagið
í Skálholti,i Collegiun musicum í
Skálholti, Skálholtskór og organisti,
svo og kantor kirkjunnar, settur
rektor Skálholtsskóla, staðarráðs-
maður og sóknarprestur í Skálholti.
Hátíðin hefst klukkan 13.30 á
uppstigningardag með klukkna-
hringingu og orgelleik í kirkjunni.
Mun Haukur Guðlaugsson söng-
Nýtt framboð
í Reykjavík
MORGUNBLAÐINU hefur borist
auglýsing um nýtt framboð í
Reykjavík. „Maður með mönnum,
sem hafa áhuga á því að gera
Reykjavík aðlaðandi fyrir hinn
almenna vegfaranda, hyggst
fara fram í kosningum þeim, er
i hönd fara, fáist fylgi við fram-
boð óháð stjórnmálaflokkum,"
segir í auglýsingunni.
Ahersla er m.a. lögð á bætta
umferðarmenningu og lagningu
gangstétta og hjólreiðabrauta í
borginni, eflingu strætisvagnakerf-
isins og að tengsl kjörinna fulltrúa
við embætti og stofnanir verði efld.
Markmiðum þessum á að ná án
þess að breyta þeirri meginstefnu
í menningar- og félagsmálum, sem
nú er við lýði, segir í auglýsingunni.
Reyðarfjörður:
Sérframboð
óánægðra sjálf-
stæðismanna
— „Mótmælum vinnu-
brögðum við val á
framboðslista flokks-
ins,“ segir talsmaður
hópsins
HÓPUR sjálfstæðismanna á
Reyðarfirði hefur ákveðið sér-
framboð fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar hinn 31. maí þessa
mánaðar. Mun framboðslisti
þessa sérframboðs verða ákveð-
inn nú um helgina.
Jóhann P. Halldórsson, talsmað-
ur hópsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hér væri um að
ræða hóp sjálfstæðismanna á Reyð-
arfirði, sem væri óánægður með
hvemig staðað var að vali á fram-
boðslista flokksins. „Það var ólög-
lega boðað til fundar í uppstillingar-
nefnd, þegar framboðslisti flokksins
var ákveðinn, og við viljum með
þessu framboði mótmæla þeim
vinnubrögðum sem þar voru við-
höfð,“ sagði Jóhann. Hann sagði
að ekki væri endanlega gengið frá
framboðslista sérframboðsins, en
listinn myndi væntanlega verða
ákveðinn nú um helgina.
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Þá ganga prestar, prófastar og
biskupar í prósessíu til kirkju og
umhverfis hana ef veður leyfir, eins
og siður var á öldum áður. Fyrir
þeim fer prósessía barna. Klukkan
14.00 hefst messan. Henni stjórnar
biskup íslands, Herra Pétur Sigur-
geirsson, og flytur hátíðargestum
ávarp, en dr. Sigurbjöm Einarsson
biskup prédikar.
Að lokinni messu og messukaffi,
sem öllum hátíðargestum verður
boðið til, hefst svo samkoma í kirkj-
unni. Páll M. Skúlason, formaður
sóknarnefndar Skálholtssafnaðar,
setur samkomuna og stjómar
henni. Þar flytja Margrét Bóas-
dóttir sópransöngkona og lítil
hljómsveit þijá þætti úr kantötu
eftir J.S. Bach undir stjórn Helgu
Ingólfsdóttur semballeikara.
Séra Eiríkur J. Eiríksson fyrmm
prófastur og þjóðgarðsvörður á
Þingvöllum flytur hátíðarræðu, og
séra Guðmundur Óli Ólafsson prest-
ur í Skálholti kveður gesti með fá-
einum orðum.
(Fréttatilkynning frá hátíðanefnd.)
Elías B. Halldórsson við eina af myndum sínum.
Sýnir í Gallerí íslensk list
ELIAS B. Halldórsson, listmálari, opnaði myndlistarsýningu í
Gallerí íslensk list, Vesturgötu 17, laugardaginn 3. maí.
Elías er einn af félögum í List- 55 myndverk, 20 teikningar og
málarafélagi Islands og er þekkt-
ur listmálari. Hann hefir haldið
margar sýningar, bæði hérlendis
og átt verk á sýningum erlendis.
Með þessari sýningu sýnir Elías
35 grafíkmyndir.
Þetta er sölusýning sem stend-
ur til 25. maí og er opin virka
daga kl. 9.00 til 17 og kl.
14.00—18.00 um helgar.
w'"'‘
: # n - m
Töframennirnirfrá Sharp eru samir við sig. Þeirhafa haldið
framleiðslukostnaði þessa frábæra videotækis íalgjöru lágmarki og nú setur
Hljómbær punktinn yfir i-ið og býðurþetta tæki á ævintýralegu tilboðsverði.
En það allra sniðugasta erað geta keypt gæðatæki á þessu hlægilega verði.
Tækiþarsemsaman fara sterkbygging, lipurhönnun og ótrúleggæði.
• Sharp Vision-20% betrimynd• Fjarstýring með Waðgerðum • 14daga
upptökuminni* 93 mm hæð (Slim Line) • 16rásir» SpilarPalkerfiog Secam
(DDR)» Móttaka fyrirkapalkerfi • Kveikirásérsjálfkrafa viðinnkomuspólu•
Ýtir spólu sjálfvirkt útað aflokinni spólun til baka og slekkur ásér• Sjálfvirk
endurtekning þ. e. spilar endalaust eða þangað til það er stoppað •
Myndleitari með mynd á • Leitarsjálft að mynd á 10-földum hraða • Spilar allt
að240mín. spólur• Létt og þægileg stjórnun • Kyrrmynd• Spólarframogtil
baka án myndará 10-földum hraða.
Og verðið, -já, haltu þérfast, tækiðkostaraðeins
36,900.-kK stgK
Hljómbær býður alltaf betur!
HLJÖMBÆR
{§m4
I
...
——i
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Umboðsmenn: Port/'ðAkranesl, BókaskemmanAkranesi, Kaupfélag Borgfirðinga, Sería\safirði, Kaupfélag SkagfirðingaSau$>árkr6W\, /ŒAAkureyri, Radfóver
Húsavík, Skógar Egllsstöðum, Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum, Myndbandaieiga Reyðarfjarðar Reyðarfirði, Ennco Neskaupstað, Djúpið Djúpavogi,
Hornabœr Hornafirði, Kaupfélag Rangœinga Hvolsvelli, M.M. búðin Selfossi, ffósÞorlókshöfn, Fotovo/Keflavík, RafelndaþjónustaÓmars'Vesimannaeyium