Morgunblaðið - 27.05.1986, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.05.1986, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986 Flensborgarskóla slitið: Fékk A í 41 áfanga Bókasafn Kópavogs tekur nýtt og fullkomið tölvukerfi í notkun Flensborgarskóla var slitið föstudaginn 23. maí sl. og þá voru brautskráðir 57 nemendur með próf frá skólanum, 54 með Útvarpsráð Útvarps Alþýðu- flokksins, rásar-A, hefur boðið eftirtöldum aðilum endurgjaids- laus afnot af rás-A, FM 103, í hálfa klukkustund hverjum og hafa þeir allir þegið boðið: Flokk- ur mannsins, Frjálst framboð, Sjálfstæðisflokkurinn: Útifundur á Lækjartorgi Sjálfstæðisflokkurinn efnir til útifundar á Lækjartorgi næst- komandi fimmtudag kl. 17.15 I tilefni borgarstjórnarkosning- anna á laugardaginn. Ræður flytja Davíð Oddsson, borgar- stjóri, og frambjóðendurnir Katrín Fjeldsted og Árni Sig- fússon. Birgir ísleifur Gunnars- son, alþingismaður, stjórnar fundinum. Á fundinum flytur hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar og söngv- aramir Ellen Kristjánsdóttir, Sig- rún Hjálmtýsdóttir o.fl. Reykjavík- urlög. Helgi Skúlason, leikari, flytur ljóð og hljómsveit undir stjóm Stef- áns Stefánssonar leikur á Lækjar- torgifrákl. 16.45. Fyrir fundinn, milli kl. 16.45 og 17.15, tefla frambjóðendumir Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, Júlíus Hafstein og Haraldur Biöndal á útitaflinu á Lækjargötu. Drög samþykkt að sameiginlegnm vinnumarkaði FUNDUR Ráðherranefndar Norðurlanda, menntamálaráð- herranna, var haldinn í Björgvin 22.-23. þ.m., segir í frétt frá menntamálaráðuneytinu. Á fundinum vom m.a. samþykkt drög að samningi milli Norður- landaríkja um sameiginlegan vinnu- markað fagkennara og sérkennara í gmnnskólum og fagkennara í framhaldsskólum. Ákveðin vom vinnubrögð við undirbúning fram- kvæmdaáætlunar um norrænt samstarf á sviði menningarmála, en á síðasta þingi Norðurlandaráðs var beint til ríkisstjómanna ályktun um gerð slíkrar áætlunar. Ýmis fleiri samstarfsmál vom til með- ferðar á fundi ráðherranna. Sverrir Hermannsson, mennta- málaráðherra, sótti fundinn af ís- lands hálfu og í för með honum var Ámi Gunnarsson, skrifstofustjóri. stúdentspróf, en 3 með próf af öðrum námsbrautum. Stúdentamir deilast þannig á brautir, að 14 em með próf af Hafnarfirði, Kvennalistinn, Óháðir, Hafnarfirði, Sjálfstæðis- flokkurinn, Framsóknarflokkur- inn og AJþýðubandalagið. Dregið var um þann tíma dags, sem hver og einn fær, en ákveðið er að tímamir verði í dag, á morgun og fímmtudag kl. 10.00 og kl. 14.00 og kl. 10.00 nk. föstudag. Sjálf- stæðisflokkurinn byijar kl. 10.00 í dag og Óháðir úr Hafnarfirði verða kl. 14.00. Á morgun verður Flokkur mannsins kl. 10.00 og Framsóknar- flokkur kl. 14.00. Á fímmtudag verður Alþýðubandalag kl. 10.00 og Frjálst ffamboð úr Hafnarfírði kl. 14.00 og að lokum verður Kvennalistinn kl. 10.00 nk. föstu- dag, 30. maí. Skilyrði er að talað orð fari ekki fram yfír 50% af umræddum 90 mínútum. Hver og einn ræður hvemig tímanum er skipt milli byggðarlaga og er óskað eftir því að viðkomandi flokkur sjái alfarið um þann þátt, sem honum er út- hlutað. viðskiptabraut, 11 af félagsfræði- braut, 9 af málabraut, 9 af náttúm- fræðibraut, 7 af eðlisfræðibraut, 3 af heilsugæslubraut, 1 af íþrótta- braut, 1 af tónlistarbraut og 1 af uppeldisbraut. í þessum tölum em tveir tvítaldir, en þeir luku prófí af tveimur brautum í senn, annar af eðlisfræðibraut og náttúmfræði- braut, en hinn af félagsfræðibraut og uppeldisbraut. Bestum námsárangri náði Sigríð- ur Skaftfell, félagsfræðibraut, sem fékk alls 41 sinnum A í einkunn í áfanga, en 2 sinnum B. Aðrir sem vom með ágætiseinkunn vom Halldór Hauksson, tónlistarbraut, Jóhanna Jóhannsdóttir, viðskipta- braut, og Eiríkur Gunnlaugsson, náttúmfræðibraut. Við skólaslitin flutti skólameist- ari, Kristján Bersi Ólafsson, ræðu, afhenti einkunnir og bækur í viður- kenningarskyni fyrir góðan náms- árangur. Nemendur sem luku gagn- fræðaprófí frá skólanum fyrir rétt- um 40 ámm vom margir viðstaddir skólaslitin og afhenti talsmaður þeirra, Bragi Bjömsson, skólanum peningagjöf frá hópnum. Einnig færði fulltrúi 10 ára stúdenta, Halldór Ámi Sveinsson, skólanum gjöf. Við skólaslitin talaði einnig fulltrúi nýstúdenta, Birgir Grétars- son, og Flensborgarskólakórinn söng undir stjóm Hrafnhildar Blomsterberg. BÓKASAFN Kópavogs er nú að gera prófanir með Ijóspenna sem tengdur er tölvu, en þessi tækni- nýjung safnsins hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið. Fyrirtækið Hugver hefur hannað kerfið í samvinnu við bókasafns- fræðinga á Bókasafni Kópavogs. Cecile Licad Listahátíð: Ungur Filipps- eyingur á opnun- artónleikunum UNGUR upprennandi píanó- leikari,' Cecile Licad frá Filippseyjum, leikur með Sin- fóniuhljómsveit íslands á opn- unartónleikum Listahátíðar sem verða í Háskólabíói laug- ardaginn 31. maí klukkan 17. Stjórnandi verður Jean-Pierre Jacquillat. „Það er tilvalið hjá fólki að hvíla sig frá kosninga- stressinu á þessum tónleikum síðdegis á kosningadag,“ sagði Salvör Nordal framkvæmda- stjóri Listahátíðar í samtali við blaðamann. Licad er 25 ára gömul og hefur frami hennar verið skjótur. Hún er nú einn af eftirsóttustu píanó- leikurum yngstu kynslóðarinnar. Salvör sagði að hún hefði verið fengin hingað meðal annars vegna ábendingar frá Rudolf Serkin sem hefði kennt henni. Hún leikur annan píanókonsert S. Rachmaninoffs. í frétt frá Bókasafni Kópavogs segir m.a. að þessi nýja tækni felist í því að bækur og önnur gögn safns- ins verða númeruð með svonefndu rimlaletri (bar code) og skírteini lánþega einnig. Starfsmenn safns- ins þurfa því aðeins að renna ljós- pennanum yfir þetta letur til þess að tölvan fái upplýsingar um hver fær bækur, plötur eða myndbönd að láni, hvenær hann eigi að skila þeim, geti reiknað út vanskilasektir, sagt til um hvenær skírteini rennur út o.fl. Einnig geymir tölvan upplýs- ingar um hve oft einstakar bækur eru lánaðar út og hve lengi þær eru í láni. Með tilkomu tölvukerfisins getur starfsfólk veitt betri þjónustu, t.d. við leit að bókum og miðlun upplýs inga, því minni tími fer í útlána- starfið og innheimtu. Stefnt er að því að lánþegar og gestir Bókasafns Kópavogs geti sjálfír leitað að bókum, plötum eða öðrum gögnum í tölvunni og notað við það fullkomið orðleitarkerfí. Auk þess er hægt að leita í fundar- gerðum bæjarráðs Kópavogs að umfjöllun og afgreiðslu málaflokka. Þá er hafín skráning á Ólafssafni og plötugjöf Stefáns Guðjónssonar og Valgerðar Guðjónsdóttur. Eldur í sófa Akureyri. NOKKRAR skemmdir urðu í íbúð í fjölbýlishúsi á Akureyri er kviknaði í sófa þar í gærmorgun. íbúðin var mannlaus en nágrann- amir urðu varir við mikla brunalykt og sáu síðan reyk leggja undan hurð og fram á gang. Slökkviliðinu tókst fljótt að slökkva eldinn. Skemmdir urðu aðallega af reyk og vatni. Talið er að kviknað hafí í út frá logandi vindlingi. (Frettatiikynnmg) Bláa lónið við Svartsengi: Baðhús verður byggt í sumar ÁKVEÐIÐ hefur verið að bæta aðstöðu við Bláa lónið við Svarts- engi í sumar. Það verður byggð lágmarksaðstaða til fataskipta og baða auk salerna, auk þess sem lónið verður girt af og af- markaður sérstakur hluti þess til almenningsnota. „Bláa lónið er fyrir löngu orðið landsþekkt, og auk þess hafa birst frásagnir og myndir af því í erlend- um blöðum. Það er hugsanlegur lækningarmáttur lónsins, sem eink- um hefur dregið athyglina að því, enda fer nú fram á vegum land- læknisembættisins könnun á hon- um. Ásókn í lónið hefur stöðugt farið vaxandi á undanfömum árum, og er nú svo komið að ekki verður lengur undan því vikist að mæta þeim vanda, sem af því skapast með ábyrgum aðgerðum," segir í fréttatilkynningu frá Hitaveitu Suðumesja. „Fram að þessu hefur ekkert verið gert fyrir hinn almenna baðgest og engin aðstaða verið til fataskipta eða eðlilegs hreinlætis. Lónið er í eigu hitaveitunnar og afleiðing virkjunarinnar (það er salt afrennslisvatn frá orkuverinu) og telur stjóm því að henni beri að mæta aðsteðjandi vanda í þessu sambandi." Ákveðið hefur verið að girða lónið af og afmarka sérstakan hluta þess til almenningsnota. í lónið rennur 70 stiga heitur sjór og 100 stiga heitt þéttivatn, svo augljóst er að afmörkun baðsvæðis er nauðsynleg ef tryggt á að vera að fólk fari sér ekki að voða. Þá verður byggð lág- marksaðstaða til fataskipta og baða auk salema. Verður byggingin rúm- lega 100 fermetrar, sem skiptist í tvo hluta miðkjama (anddyri og móttöku) og opið rými (föt, steypi- böð). Kostnaðaráætlun byggingar- innar er 2,9 milljónir kr. Stjóm Hitaveitu Suðumesja vonast til að með þessari aðstöðu megi leysa brýnasta vanda þeirra sem sækja lónið. Stefnt er að því að framkvæmd- um ljúki á þessu sumri og mun að þeim loknum verða leitað eftir hentugum rekstraraðila, enda rúm- ast slíkur rekstur vart innan starfs- sviðs hitaveitunnar. E.G. Fyrirhugað baðhús við Bláa Iónið við Svartsengi, sem verður byggt í sumar. Flokkarnir ræða málin á rás-A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.