Morgunblaðið - 27.05.1986, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986
Menntaskólanum á ísafirði slitið:
Mæðgur hæst-
ar og jafnar á
stúdentsprófi
ísafirði.
MENNTASKÓLANUM á ísafirði var slitið með viðhafnarsamkomu
í Alþýðuhúsinu á ísafirði sl. laugardag. Hófst samkoman með þvi
að dux skólans, Hulda Bragadóttir, lék tvö lög á píanó, en hún er
þrátt fyrir ungan aldur orðin þekktur pianóleikari hér vestra. Björn
Teitsson skólameistari flutti ræðu og gat helstu þátta skólastarfsins.
169 nemendur stunduðu nám í skólanum í vestur, þar af 23 í öldunga-
deild. 60% nemenda voru konur.
A skólaárinu útskrifuðust 39
stúdentar þ.e. 32 nú og 7 úr öld-
ungadeild um síðustu áramót. Er
það hæsta tala stúdenta á einu ári
til þessa.
Hæstar og jafnar á stúdentspórfi
voru mæðgumar Bára Einarsdóttir
og Hulda Bragadóttir með meðal-
einkunn 8,01, en meðaleinkunn á
stúdentsprófi við Menntaskólann á
ísafirði er meðaleinkunn alls
menntaskólanámsins. Bára var við
nám í öldungadeild, en Hulda var
í hefðbundnu námi, auk þess sem
hún stundaði önnur tveggja nám á
tónlistarbraut, en það er ný náms-
braut við skólann. Hún útskrifaðist
af tveim námsbrautum samtímis og
skilaði 172 námseiningum, en
venjulegur fjöldi er 144.
Þá var það til nýlundu í skólanum
á liðnu námsári að tekið var upp
svokallað skíðaval, en þá stunda
nemendur skíðanám og þjálfun
samfara venjulegu bóklegu námi.
Þetta námssvið er unnið í samstarfi
við Skíðasamband íslands og er
gert ráð fyrir að haldið verði áfram
á þeirri braut. Byggingarfram-
kvæmdir við skólahúsið hafa að
mestu legið niðri á sl. ári, en nú
er gert ráð fyrir að hafist verið
handa aftur og þá með það fyrir
augum að iðnskólinn geti fengið
inni á neðri hæð skólahússins jafn-
vel á næsta hausti. Bjöm Teitsson
Ljósm./Úlfar Ágústsson
Þessir 32 nemendur MÍ ásamt 7 nemendum úr öldungadeild skólans sem útskrifuðust um síðustu ára-
mót, mynda mesta fjölda stúdenta sem brautskráðst hefur frá skólanum á einu starfsári. Óvenju fáir
nemendur hurfu úr námi við skólann í vetur og taldi skólameistari að því mætti m.a. þakka, að enginn
nýliði kenndi við skólann.
gat þess sérstaklega að góð sam-
vinna væri milli skólanna, en óráð-
legt væri þó að sameina þá án
undangenginnar góðrar athugunar.
Hann ræddi um að verkmenntaskóli
mundi líklega rísa í nágrenninu á
næstu árum og taldi hann þá e.t.v.
álitlegra að sameina skólana e.t.v.
í því formi _ þjóðskóla sem fyrsti
þingmaður Isfírðinga eftir endur-
reisn Alþingis Jón Sigurðsson,
skrifar um í ritgerð sem birtist eftir
hann 1842. Árið 1992, 150 árum
eftir að ritgerðin birtist væri e.t.v.
rétt að stofna skóla Jóns Sigurðs-
sonar á ísafírði.
Skólameistari afhenti stúdentum
prófskírteini þeirra og afhenti verð-
laun til þeirra sem skarað höfðu
fram úr í námi. Jónas Guðmundsson
flutti ávarp f.h. 10 ára nemenda.
Ávarp Dux Scholae flutti Hulda
Bragadóttir, en að lokum söng
Bjamey Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
einsögn við undirleik Margrétar
Gunnarsdóttur. Bjamey Ingibjörg
stundaði nám á tónlistarbraut eins
og Hulda og var það auðheyrt af
fagnaðalátum áheyrenda að þær
stöllur höfðu náð góðum árangri í
tónlistamáminu.
Úlfar.
Akureyri:
Ný geðdeild formlega opnuð
á Fjórðungssjúkrahúsinu
Séð inn í eitt tveggja manna herbergið.
„Enn einum mikilvægum
áfanga í framþróun FSA er
nú náð og við fögnum því,“
sagði Gunnar Ragnars, stjóm-
arformaður Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri meðal
annars á föstudag er ný geð-
deild var formlega opnuð á
sjúkrahúsinu að viðstöddu
fjölmenni, þ.á m. Ragnhildi
Helgadóttur, heilbrigðisráð-
herra.
Deildin er í tengiálmu og hefur
590 fermetra til ráðstöfynar fyrir
legu- og göngudeild. Á deildinni
geta dvalið allt að 10 sjúklingar í
sólarhringsvistun og 1 í dagvistun.
Geðdeildin kostar um 18 milljónir
króna fullbúin.
Yfírlæknir á geðdeildinni er Sig-
mundur Sigfússon en Hafdís
Rúnarsdóttir er hjúkrunardeilar-
stjóri.
Ragnhildur Helgadóttir sagði m.a.
í ræðu sinni að í dag fögnuðu
menn merkum tímamótum í ís-
lenskri sjúkrahússögu „þegar
formlega er opnuð fyrsta fullbúna
geðdeildin utan Reykjavíkur. Þetta
er einnig merkur áfangi í sjúkra-
hússögu Akureyrar því sýnt hefur
verið hversu mikilvægt er að sinna
öllum sviðum læknisþjónustunn-
ar.“
Það var í janúar 1984 sem hafist
var handa um hönnun deildarinnar.
Teiknistofa Gunnars og Gauta sá
um bygginganefndarteikningar en
embætti Húsameistara ríkisins og
Verkfræðiskrifstofa Sigurðar
Thoroddsen á Akureyri og Verk-
fræðiskrifstofa Jóhanns Indriða-
sonar í Reykjavík sáu um vinnu-
teikningar. Hönnun var lokið í
nóvember sama ár og verkið þá
boðið út. Gengið var til samninga
við lægstbjóðanda, Híbýli hf á
Akureyri, sem var aðalverktaki.
Frá því í desember á síðasta ári
og fram í febrúar, er deildin tók
til starfa í nýja húsnæðinu, fór
starfsemi geðdeildarinnar fram á
handlækningadeild. Á þessu tíma-
bili voru útskrifaðir 53 sjúklingar
af deildinni. Þess má geta til
gamans að Tómas Helgason, yfir-
læknir á Landspítalanum í Reykja-
vík, sagði í ræðu á föstudag að
það væri örugglega einsdæmi í
sögunni að geðdeild fengi inni
tímabundið á handlæknisdeild. „Ég
þekki víða til en hef hvergi mætt
Gunnar Ragnars, formaður
stjómar Fjórðungssjúkrahúss-
ins, ávarpar viðstadda.
eins miklum skilningi á þessu og
hér. Kolleger Gauta (Amþórsson-
ar, yfírlæknis á handlæknisdeild -
innsk. blm.) hefðu örugglega sums
staðar alls ekki viljað geðlækning-
ar í sama húsi. Þetta er sérstök
rausn," sagði Tómas.
Setustofa geðdeildarinnar er björt og fögur.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrlmsson
Ragnhildur Helgadóttir, heilbrigðisráðherra, skoðar nýju geðdeildina í fylgd Sig-
mundar Sigfússonar yfirlæknis. í baksýn eru alþingismennimir Ami Johnsen og
Kolbrún Jónsdóttir.