Morgunblaðið - 27.05.1986, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986
Það hefur verið
f iktað við hemla-
stillingarnar
— segirSverrir
Sveinsson veitu-
stjóri Hitaveitu
Siglufjarðar
„VIÐ VORUM í hærri kant-
inum með gjaldskrá hita-
veitunnar og því er ekki að
leyna að fólk hefur fiktað
við hemlastillingarnar,"
sagði Sverrir Sveinsson
veitustjóri Hitaveitu Siglu-
fjarðar þar sem vart hefur
orðið við óleyfilega vatns-
töku nokkurra viðskipta-
vina.
í bókun á fundi veitunefndar á
Siglufírði 13. maí sl. segir: „Á
fundi veitunefndar 17. og 25.
mars sl. ákvað veitunefnd að fela
veitustjóra að senda út reikninga
fyrir oftekið vatn, reiknað sex
mánuði aftur í tímann. Á fundi
veitunefndar dags. 25. mars
samþykkti nefndin að auglýsa
reglugerðarákvæði hitaveitunnar
varðandi óleyfílega vatnstöku og
fleira og hefur það verið gert.
Framvegis verður þeim, er reynast
hafa oftekið heita vatnið, sendir
reikningar, reiknaðir tólf mánuði
aftur í tímann fyrir það vatn sem
Biblíulestur í
Grensáskirkju
GRENSÁSKIRKJA hefur haft bibl-
íulestra á þriðjudögum í safnaðar-
heimilinu og hefjast þeir klukkan
20.30. í kvöld verður efnið „Var
Jesús Kristur raunverulega til?“
Sóknarpresturinn Halldór S. Grön-
dal flytur fyrirlestur um þetta efni.
Umræður og kaffi á eftir.
(Fréttatilkynning.)
ofreiknað er, eða frá þeim tíma
sem síðasta skoðun starfsmanna
hitaveitunnar fór fram á viðkom-
andi húsveitu, ef skemmri tími er
liðinn."
Sverrir sagði að hitaveitunni
bæri skylda til að sjá til þess að
greitt væri fyrir það vatn sem
væri notað og því hefði verið grip-
ið til þessara aðgerða. „Taki
maður ólöglega vatn frá hitaveitu
þá á að fara með það sem lög-
reglumál. Því ákvæði hefur ekki
verið beitt, heldur tökum við mild-
ara á málinu með að senda þeim
sem hafa gerst brotlegir, reikning
fyrir síðustu sex mánuði," sagði
Sverrir. Hann sagði að þeir reikn-
ingar sem sendir hefðu verið út
væru hvorki háir né margir og
taldi að Siglfírðingar væru ekki
einir um að fíkta við hemlastilling-
ar á heita vatninu.
Ingibjörg Guðjónsdóttir
David Knowles
Tónleikar á Höfn
og Egilsstöðum
INGIBJÖRG Guðjónsdóttir
sópran og David Knowles
píanóleikari halda tvenna tón-
leika úti á landi á næstunni.
Fyrri tónleikarnir verða í Egils-
staðakirkju þriðjudaginn 27. maí.
Síðari tónleikamir verða í Hafnar-
kirkju á Höfn í Homafirði föstu-
daginn 30. maí. Báðir tónleikamir
helastkl. 20.30.
(Fréttatilkynning)
Skoðanakönnun Dags
á Akureyri:
Alþýðuflokkur
og Framsókn
bæta við sig
mönnum
Akureyri.
Samkvæmt könnun sem Dagur
á Akureyri birti í gær, og unnin
var frá miðvikudegi til föstudags
í síðustu viku, bæta Framsóknar-
flokkur og Alþýðuflokkur við sig
einum manni i kosningum á laug-
ardaginn.
Kvennaframboðið hefur haft tvo
bæjarfulltrúa á yfirstandandi kjör-
tímabili og um þau sæti er því sleg-
ist. Skv. könnun Dags fá Framsókn-
arflokkur og Sjálfstæðisflokkur 4
fulltrúa hvor, Alþýðuflokkur 2,
Alþýðubandalag 1 en Flokkur
mannsins engan.
Reiknistofnun Háskólans vann
700 manna úrtak fyrir Dag. Alls
náðist í 508 manns eða 72,6% af
úrtakinu. Af þeim 508 sem náðist
í sögðust 164 vera óákveðnir eða
32,3%, 51 neitaði að svara eða 10%,
og 57 sögðust ekki ætla að kjósa
eða 11,2%. Þeir sem tóku afstöðu
í þessari könnun em um 2,6% kjós-
enda á Akureyri.
Áhugamenn um húsnæðismál á Suðureyri og Flateyri;
Nauðungaruppboð verði stöðv-
uð og stofnaður viðlagasjóður
AÐ nauðungaruppboð verði
stöðvuð þegar í stað og komið
verði á fót sérstökum viðlaga-
sjóði er meðal ályktana sem
samþykktar voru á fjölmennum
fundum á vegum Áhugamanna
um. úrbætur í húsnæðismálum
bæði á Flateyri og Suðureyri um
helgina.
Ályktanimar eru svohljóðandi:
1. Nauðungaruppboð verði stöðv-
uð þegar í stað. Það er vítavert að
bjóða upp eignir fólks, á meðan það
ástand ríkir tímabundiðj að eignir
eru nánast verðlausar. I stað þess
veitist fólki kostur á að endurfíár-
magna húsnæðið með láni úr Bygg-
ingasjóði verkamanna.
2. Lán sem fólk hefur tekið til
öflunar húsnæðis, verði leiðrétt í
gegnum skattakerfíð með veruleg-
um skattaafslætti eða beinum end-
urgreiðslum. Vegna hávaxtastefnu
og misgengis lána og launa, hafa
lán hækkað mun meira en eðlilegt
getur talist. Þetta hafa ráðamenn
margoft viðurkennt og heitið úr-
bótum og leiðréttingum en þau
loforð jafnan verið svikin.
3. Komið verði á fót sérstökum
viðlagasjóði. Ríkisstjórnin komi
þegar í stað á fót viðlagasjóði til
þess að aðstoða sveitarfélög, þar
sem fólk á í miklum erfiðleikum
vegna húsnæðisskulda og sveitarfé-
lög þurfa óhjákvæmilega að taka á
sig skuldbindingar til þess að rétta
við fasteignamarkaðinn. I þessu
sambandi skal vakin athygli á því,
að eins og nú stefnir munu lífeyris-
sjóðir Vestfirðinga verða lagðir í
almenna sjóði landsmanna, á meðan
fólk íjárfestir ekki í húsnæði í
þessum landshluta.
4. Fólk sem hefur aflað húsnæðis
á síðustu árum, eigi rétt á að ganga
inn í nýtt húsnæðislánakerfi.
Þetta er skemmtilegt
starf ef vel gengur
— segir Þráinn Guðmundsson nýkjörinn forseti Skáksambands íslands
ÞRÁINN Guðmundsson var kjörinn forseti Skáksambands íslands
á aðalfundi sambandsins sem haldinn var síðastliðinn laugardag.
Þorsteinn Þorsteinsson sem verið hefur forseti Skáksambandsins
undanfarin tvö ár gaf ekki kost á sér.
Með Þráni í stjóm Skáksam-
bandsins voru kjömir þeir Jón
Rögnvaldsson, Ámi Björn Jónas-
son, Áskell Öm Kárason, Ólafur
Ásgrímsson, Guðbjartur Guð-
mundsson og Georg Páll Skúla-
son. Varamenn eru Ólafur H. Ól-
afsson, Margeir Pétursson, Guð-
laug Þorsteinsdóttir og Guðmund-
ur Guðjónsson.
Þráinn Guðmundsson tók fyrst
sæti í stjóm Skáksambandsins
árið 1968. Blaðamaður Morgun-
blaðsins ræddi við Þráinn og var
hann fyrst spurður hvað væri
eftirminnilegast frá þessum tíma.
„Eftirminnilegasti atburðurinn
er án efa einvígi þeirra Fishers
og Spasskys sém haldið var hér
á landi árið 1972,“ sagði Þráinn.
„Það var mikið að gera allt árið
við undirbúning einvígisins en
jafnframt mjög gaman að taka
þátt íþessu."
— Verða einhverjar breytingar
á störfum Skáksambandsins undir
þinni stjórn?
„Við lýstum því yfír á aðalfund-
inum að ætlunin væri að halda
sömu stefnu og verið hefur síðustu
árin undir stjórn Þorstein Þor-
steinssonar. Þetta er nánast sama
stjómin þannig að það var búið
að marka stefnu sem ég tel mjög
gott að halda áfram. Við munum
leggja áherslu á að byggja upp
unglingastarfið innan skákhreyf-
ingarinnar. Við viljum halda
áfram góðu samstarfi við okkar
sterkustu menn og styðja við
bakið á þeim. Einnig viljum við
efla deildarkeppnina og skákina
úti á landi. Þá ætlum við að reyna
að efla kvennaskák. Það gengur
ákaflega illa að fá konur til að
tefla. Helst væri að reyna það í
gegnum skólaskákina. Nú er svo
komið að við getum tæplega náð
saman Ólympíuliðí kvenna."
— Hver em helstu verkefnin á
þessu ári?
„Það er ýmislegt að gerast á
þessu ári. Fyrsta verkefnið verður
að fara með íslenska unglinga-
landsliðið til Bandaríkjanna í júlí,
þar sem teflt verður við svokallað-
an Collins-hóp. Þá má nefna að
frestað var keppni í landsliðsflokki
Islandsmótsins fram á næsta
haust. Svo hefst deildarkeppnin
aftur í haust. Stærsta verkefnið
og það lang dýrasta er þátttaka
íslenskra skákmanna í Ólympíu-
skákmótinu sem haldið verður í
Dubai í Arabísku furstadæmunum
í nóvemer. Mikið hefur verið deilt
um þetta mót og ætlunin var að
taka ekki þátt í því í mótmæla-
skyni vegna þess að ísraelsmönn-
um var meinuð meinuð þátttaka.
En nú hafa ísraelsmenn hvatt
menn til að tefla ' a mótinu og
hafa Bandaríkjamenn og flestar
hinna 26 Evrópuþjóða sem ekki
ætluðu að taka þátt ákveðið að
vera með. Danir, Svíar og Norð-
menn hafa enn ekki ákveðið hvort
þeir verði með. Við höfum tekið
þátt í þessu móti frá því árið 1930
og að þessu sinni sendum við tvær
sveitir á mótið og tel ég að Island
eigi góða möguleika.
Að lokum má geta þess að
hugsanlega kemur Kasparov komi
hingað til lands eftir heimsmeist-
Þráinn Guðmundsson
araeinvígið. Það yrði gífurlegur
viðburður."
— Hvernig leggst það í þig að
taka við stöðu forseta Skáksam-
bandsins?
„Þetta er skemmtilegt ef vel
gengur," sagði Þráinn. „En við
eigum við mikinn fjárhagsvanda
að etja og því er starfið mjög
erfitt peningalega séð. En skákin
nýtur velvilja margra og að öðru
leyti leggst starfíð vel í mig. Þetta
eru vanir og góðir menn sem
starfa með mér,“ sagði Þráinn að
lokum.
Tónleikar
„Hálft í hvoru“
á Hótel Borg
HLJÓMSVEITIN „Hálft í hvoru“
heldur tónleika á Hotel Borg
miðvikudaginn 28. maí og hefjast
þeir kl. 21.30. Tilefni tónleikanna
er útkoma nýrrar hljómplötu
sem nefnist Götumynd.
Hljómsveitina skipa þau Gísli
Helgason, Herdís Hallvarðsdóttir,
Guðmundur Benediktsson og Hann-
es Jón Hannesson og er þetta í
fyrsta sinn sem Hannes Jón kemur
fram með hljómsveitinni á tónleik-
um.
Á ónleikunum flytur „Hálft í
hvoru“ einnig nokkur lög af gull-
plötu Gísla Helgasonar „Ástaijátn-
ingu“.
Hljómsveitin áformar að fara í
tónleikaferðir um landið nú í sumar.
(Fréttatilkynning.)
Stúdentafagn-
aður Nemenda-
sambands MR
ÁRLEGUR stúdentafagnaður
Nemendasambands Menntaskól-
ans í Reykjavík, verður haldinn
að Hótel Sögu föstudaginn 30.
maí, daginn eftir skólauppsögn.
í ár eru liðin 40 ár fíá stofnun
Nemendasambandsins og 140 ár
frá starfsrækslu Menntaskólans í
Reykjavík. Nýstúdentar og nem-
endur úr afmælisárgöngum hafa
forgang að þátttöku á Súdenta-
fagnaðinum. Nemendur afmælisár-
ganga eru því beðnir að tilkynna
miðapantanir til forsvarsmanna ár-
ganga hið fyrsta.