Morgunblaðið - 27.05.1986, Side 45

Morgunblaðið - 27.05.1986, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAf 1986 45 speki Umsjón: Gunnlaugur Guómundsson Samband tveggja Tvíbura (21. maí- —20. júni.) Ég ætla í dag að fjalla um samand tveggja dæmigerðra Tvíbura. Þegar lesin er um- fjöllun um eitt merki útaf fyrir sig verðum við alltaf að hafa í huga að allir menn eru sam- settir úr nokkrum stjömu- merkjum að aðrir þættir hafa einnig áhrif hjá hvetjum og einum. Tvískiptur Sagt er að Tvíburinn sé tvískipt merki, að í honum búi tveir ólíkir persónuleikar. Tvíbur- amir heita Castor og Pollux og er sagt að annar þeirra sé táknrænn fyrir björtu hlið Tví- burans og hinn fyrir dekkri hlið hans. Útfrá því mætti segja að samband tveggja Tví- bura sé f raun sambandi Qög- urra persónuleika! Það ætti því að vera lifandi og fjörugt. Vormaður Hið mótsagnakennda eðli Tví- burans er sagt birtast þannig að annars vegar er Pollux, opinn, bjartur og vingjamlegur persónuleiki. Hann er sakleys- islegur, hjálpsamur og einlæg- ur, er góðlyndur og þægilegur í allri umgengni. Þetta er fé- lagslyndur og vinsæll maður, ber með sér ferskleika vorsins og morgunsins. Stigamaður Castor er hin hlið Tvíburans. (Nöftiin Castor og Pollux eru komin ffá Griklqum. Pollux birtist í austri og var boðberi ljóssins, morgunstjama, en Castor birtist í vestri að kvöld- lagi, var fylgisveinn myrkurs- ins.) Svo virðist sem ákveðinn órói búi f Tvíburanum, þörf fyrir frelsi, til að slfta sig laus- an frá kvöðum og skyldum. Þegar sú hlið er hvað sterkust á hann til að taka lögin f sfnar eigin hendur. Hann varpar þá allri ábyrgð frá sér og verður að einhvers konar sjálfstæðu lýðveldi úti í hafí. Fylgir ein- ungis sfnum eigin reglum. Þegar myrkurhlið Tvíburans er sterkust á hann það til að lofa öllu fögru, en standa við fátt, og snúa orðum á þann veg sem honum hentar best hveiju sinni. Fjölbreytileiki Ef jákvæðari hlið Tvíburans fær að njóta sín, hjá báðum aðilum, megum við búast við skemmtilegu sambandi. Hinn dæmigerði Tvíburi er fijáls- lyndur og flölhæfur. Samband þeirra einkennist því af ferða- lögum, lifandi félagslffi og flöl- breytilegum athöfnum. Tvíbur- inn er vitsmunalega sinnað merki og hefur áhuga á öllu mögulegu. Því má t.d. búast við að þau eigi margar upp- sláttarbækur og lesi mikið af alls kyns tfmaritum. Heimili þeirra er opið og gestkvæmt. Þau eru ræðin og vingjarnleg, án þess að vera uppáþrengj- andi. Gestum líður því vel og vandræðaleg augnablik verða fá. Skammlíft Ef dekkri hliðin er látin snúa fram má búast við að samband þeirra verði skammlfft. í raun er það helsta hættan sem steðj- ar að þessu sambandi. Ef tveir eirðarlausir og frelsiselskandi persónuleikar búa saman er alltaf hætt við að eitthvað láti undan. Það sem hjálpar Tvf- burum er að þeir eru afslappað- ir og umburðariyndir. Þeir eru lftið fyrir að búa til vandamál og eiga þvl auðvelt með að lynda við annað fólk. X-9 1 lócif A LJUwlVA flD Á *V*TU A Dl V A ^i*ri miaaai UKA 1 I MAu! dLYAN I UKINN - 3D 2 ::::::: FERDINAND ........................................................................................................................................................................................................................................................................:...................................... SMÁFÓLK i'm mad, anp when l'M MAP( l'VE 60TTA KICK SOMETMING! Ég er reið, og þegar ég Mér er sama hvað það er! er reið verð ég að sparka í eitthvað. En það hefði ekki átt að vera baunapoki... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Einhver besti eiginleiki sem bridsspilari getur haft er að vera með 13 fíngur. Ekki er mér kunnugt um nokkum mann sem er svo vel gerður af náttúrunnar hendi með tilliti til bridsiðkunar, svo við verðum líklega öll að læra að telja upp á 13 einhvem veginn öðruvísi en á fíngrunum. Hér er æfíng í að telja upp á 13: Vestur ♦ 109862 VG975 ♦ Á7 ♦ 74 Norður ♦ KG3 ♦ Á642 ♦ 1054 ♦ 1093 Suður ♦ D74 ¥ KD3 ♦ D63 ♦ ÁKD8 Austur ♦ Á5 ¥ 108 ♦ KG982 ♦ G652 Eftir pass austurs opnaði suður á einu grandi, sem norður lyfti í þijú. Vestur hefði getað hnekkt samningnum með því að spila út tígulás og meiri tígli en hann valdi, sem eðlilegt er, að koma út með spaðatfu. 4^. Suður setti gosann upp f blindum og austur drap á áisinn. Austur gerði nú góða tilraun til að bana spilinu með þvf að spila tígulgosa! Ef suður leggur drottninguna á, drepur vestur ásinn og spilar í gegnum tíuna í blindum. En sagnhafí mundi að austur hafði passað í upphafí og því gat hann ekki átt ÁKG í tígli auk spaðaássins. Hann setti því lítið í slaginn. Austur spilaði meiri tígli og vestur skipti síðan aftur spaða inn á tigulá^c Þar með var ljóst að hann átti aðeins tvo tígla. Suður tók nú ás og kóng í laufí og gætti þess vel að henda 109 úr blindum til að glata ekki möguleikunum á að svína fyrir laufgosann. Tók sfðan sfðasta spaðaslaginn sinn og sá um leið að austur átti aðeins tvo. Þá var ekkert annað en prófa hjartað. Þegar fjórliturinn uppiýstist í vestur lá skiptingin kristaltær fyrir. Vestur hafði sýnt fimm spaða, Qögur hjörtu, tvo tfgla og tvö lauf, samtals 13 spil, svo svfningin fyrir laufgosann var hætt að vera 50% og orðin 99%. Ekki 100% því það gat verið vitlaust gefíð. Umsjón Margeir Pétursson í ungversku deildakeppninni f vetur kom þessi staða upp f skál£^ þeirra Barebora, sem hafði hvótt og átti leik, og Somogyi. 23. Hg4!! - Dxf5, 24. Hxg7+ - Kh8 (svartur er fastur í fráskáka- svikamyllu sem kostar mestallt lið hans) 25. Hxf7+ - Kg8, 26. Hg7+ - Kh8, 27. Hg6+ og svartur gafet upp, þvf hann tapar drottningunni til baka og skipta- mun að auki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.