Morgunblaðið - 27.05.1986, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986
t
Móðir mín,
GUÐRÚN EGILSDÓTTIR,
Furugrund 4, Kópavogi,
lóst í Landspítalanum föstudaginn 23. maí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Dóra Guðleifsdóttir.
Móðir okkar, t KRISTÍN NÍELSDÓTTIR BREIÐFJÖRÐ
frá Sellátri,
er látin. Dagbjört Höskuldsdóttir, Höskuldur Höskuldsson, Jón Höskuldsson.
t
Móðirokkar,
HJÁLMFRÍÐUR EYJÓLFSDÓTTIR,
Austurbrún 4,
lést í Landspítalanum að kvöldi 24. maí.
Sólborg Jónsdóttir,
Eyjólfur Jónsson,
Hákon Jónsson.
t
Amma mín,
ÁSLAUG HJÁLMSDÓTTIR,
lést aö Dropiaugarstöðum föstudaginn 16. maí. Ég vil færa starfs-
fólki á Droplaugarstööum innilegar umhyggjuþakkir og þakka
vinum og ættingjum fyrir hlýhug, og þá sérstaklega sr. Árelíusi
Níelssyni fyrir frábæra hjálpsemi.
Ásgeir Ragnar Bragason.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
GRÍMA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Akureyri,
lést 2. maí sl. Útförin var gerð frá Akureyrarkirkju 13. maí sl.
Þökkum auðsýnda samúð.
Rósa Arnaldsdóttir, Þorgrimur Sigurðsson,
Örn Smári Arnaldsson, Rósa Hjaltadóttir,
Guðmundur Arnaldsson, Auðbjörg Guðjónsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KARÓLÍNA ÓLÖF GUÐBRANDSDÓTTIR,
Hringbraut 97,
andaðist í Landakotsspítala 15. maí sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigurður Gíslason,
Steingrímur Gíslason, Ingibjörg Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
LEIFUR GUÐMUNDSSON,
fyrrverandi forstjóri Mjólkurfélags Reykjavíkur,
lést í hjartadeild Landspitalans að morgni 25. maí.
Ragnheiður Guðbrandsdóttir,
Hlif Leifsdóttir, Theódór Þorvaldsson,
Guðmundur Leifsson, Helga Gunnþórsdóttir,
Valdimar Leifsson, Bryndis Kristjánsdóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, tengdasonur, faðir, tengdafaðir og afi,
EINAR TÖNSBERG,
framkvæmdastjóri,
Glæsibæ 13,
Reykjavík,
léstföstudaginn 23. maí.
Ingibjörg Tönsberg, Sigríður Bjarnadóttir,
Hermann Tönsberg, Kristín Arnardóttir
og barnabörn.
Minning:
Vigfús L. Friðriks
son ljósmyndari
Fæddur 19. október 1899
Dáinn 18. maí 1986
í dag er til moldar borinn afi
okkar og góður vinur, Vigfús L.
Friðriksson ljósmyndari, en hann
andaðist að Hrafnistu í Hafnarfírði
á hvítasunnudag.
Hann var fæddur að Bjarghúsum
í V-Húnavatnssýslu 19. október
1899. Foreldrar hans voru Ingibjörg
Vigfúsdóttir og Friðrik Magnússon
smiður. Vigfús fluttist ungur að
árum með foreldrum sínum til
Akureyrar þar sem hann ólst upp
ásamt bróður sínum, Axel, sem nú
er látinn. Þeir bræður voru mjög
samrýndir. Um fermingaraldur
veiktist Vigfús af berklum, sem þá
voru landlægir. Hann háði harða
baráttu gegn sjúkdómnum, en þó
með hléum, öll sín ungdómsár.
Dvaldist hann m.a. eitt ár á Vífíls-
stöðum og náði loks fullum bata. Á
þessum árum beið erfíðisvinna
flestra ungra manna og fyrir ungan
mann nýstiginn upp úr ströngum
og langvinnum veikindum var valið
vandasamt. En Vigfús var svo lán-
samur að vera gæddur ágætum
listrænum hæfíleikum auk þess að
vera mikill nákvæmnismaður og
samviskusamur. Hann hóf nám í
ijósmyndun hjá Guðmundi Tijá-
mannssyni og gerði hana að lífs-
starfí sínu. Að námi loknu 1927
stofnaði hann myndastofu á Akur-
eyri í félagi við Jón Sigurðsson.
Þeir áttu samstarf allt til ársins
1956 er Vigfús flutti til Hafnar-
íjarðar.
1926 kvæntist Vigfús eftirlifandi
konu sinni, Nýbjörgu Jakobsdóttur.
Nýbjörg er fædd og uppaiin Akur-
eyringur, dóttir hjónanna Jóhönnu
Friðriksdóttur, mikillar dugnaðar-
konu, og Jakobs Jóhannessonar sjó-
manns sem dó ungur að árum frá
konu og fímm börnum. Nýbjörg og
Vigfús eignuðust eina dóttur,
Hönnu Mörtu, móður okkar.
Afi og amma eru flutt suður til
Hafnarfjarðar er við systkinin
munum fyrst eftir þeim. Afí kunni
strax vel við sig í Hafnarfírðinum
þótt hann teldi sig alltaf vera
Akureyring enda hafði hann búið
þar mestan hluta ævi sinnar. Hér
fyrir sunnan sneri hann sér alfarið
að töku skólamynda í nokkrum
heimavistarskólum á Suðurlandi og
á Reykjum í Hrútafírði. Hann kom
sér upp ágætri aðstöðu til framköll-
unar og vinnslu myndannan á heim-
ili sínu og ömmu í Hafnarfírðinum.
Þessu starfí fylgdu ferðalög í skól-
ana en þau voru afa til mikillar
ánægju. Okkar fyrstu bemsku-
minningar um afa tengjast einmitt
slíkum ferðum. Okkur krökkunum
þótt undirbúningurinn fyrir ferðir
þessar afar spennandi. í þessar
ferðir þurfti mikið hafurtask. Setja
þurfti niður í margar kistur alls
konar útbúnað, ljósmyndaplötur,
framköllunartæki og efni, ljósa-
lampa og að ógleymdri myndavél-
inni. Allt var þetta handsmíðað af
afa, aðeins linsan á myndavélinni
var aðkeypt. Síðan þurfti að flytja
þennan útbúnað niður á BSI og að
launum var afí vanur að gefa okkur
Ópalpakka fyrir allt umstangið.
Þessum ferðum lauk yfírleitt fyrir
jól og tók þá við vinnsla myndanna.
Þá var gaman að fylgjast með
störfum afa ímyrkrakompunni, við
daufa skímu frá rauðu perunni. Við
hveija mynd lagði hann sig allan
fram og fór um þær vandvirkum
höndum. Aldrei mátti kasta til
hendinni og var vinnudagurinn því
oft æði langur. Þrátt fyrir breytta
tíma voru handbrögðin ávallt þau
sömu því afí var fastheldinn og
jafnvel íhaldssamur á gamla siði.
Þannig gat tíminn staðið í stað hjá
afa.
Umhyggja hans fyrir okkur
bamabömunum var mikil og sér-
staklega hin seinustu ár var eins
og fátt skipti hann meira máli en
velferð okkar. Hann fylgdist vel
með skólagöngu okkar og gladdist
mikið þegar vel gekk. Eftir á að
hyggja hefur hann eflaust ofdekrað
okkur en það var honum ekki
áhyggjuefni. Fyrir fáeinum árum
fluttust afí og amma til foreldra
okkar í Kópavogi. Þar undi afí sér
vel þrátt fyrir að heilsu hans tók
að hraka. Þar skiptu langafabömin
miklu máli. Á síðastliðnu ári fluttu
afi og amma á Hrafnistu í Hafnar-
fírði og hafa notið þar góðrar
umönnunar.
Með þessum orðum viljum við
kveðja afa, við vitum að hann hvílir
í friði.
Björg, Kjartan og Bjöm Láras
'
Sex eininga Salix hillusamstæða frá VIÐJU á kr. 23.800,
Hvít með bláum eða rauðum skúffum og skápahurðum.
20% UTBORGUM
12 MÁMAÐA QREIÐ5LUKJÖR
HUSGAGNAVERSLUNIN
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
slmi 44444