Morgunblaðið - 27.05.1986, Side 50

Morgunblaðið - 27.05.1986, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986 Líney Harðar- dóttir - Minning Fædd 16. október 1963 Dáin 19. maí 1986 „Skjótt hefur guð brugðið gleði, góðvina þinna...“ (Jónas Hallgrímsson) Ekki veit ég hversvegna leiðir mínar lágu til Akureyrar að loknu landsprófi. En í 3. bekk varð einum nemanda það á að brjóta á sér handlegginn. Sá hinn sami hafði yfirgefíð Hrísey eins og ég Reykja- vík. Honum ftindust heimavistar- menn vera eintóm peð. Því gerðist ég heimalningur á heimili foreldra hans og hugðist hróka langt. Þannig kynntist ég Herði Einars- syni, sem í dag, þriðjudaginn 27. maí 1986, ber dóttur sína, Líney Harðardóttur, til moldar. Skólaskák okkar fór oft í bið. Eftir stúdentspróf hófum við báðir nám við sama háskólann í Þýska- landi. Veturinn 1962/63 var mjög harður. Hörður kemur út með konu sína Sigríði Antonsdóttur. Kolaofn- ar glóðu allan veturinn og íslend- ingar sveipuðu sig gæruskinnum úr úlpunum um nætur. En í ágúst 1963 urðu menn að líma blaut dagblöð innan á gluggarúður til að „halda á sér kulda". Sigríður er að kveðja, hún er á leiðinni heim með sitt fyrsta bam, í móðurkviði. Ég sé hana ennþá fyrir mér í ruggu- stólnum við gluggann, bíðandi eftir lestinni norður. Bamið átti að fæðast heima. Ég hitti þær mæðgur aftur í október á Selfossi. Líney hafði lifað af frost og funa. Ég tók af henni fyrstu myndimar. Skákin hélt áfram, fór aftur og aftur í bið. Menn leika af sér, fínna svo bestu vömina eða rata á rétta svarið, í lífí og leik. Lífstaflinu er þó þannig varið, að mótheijinn er óútreiknanlegur, og þegar öllu er á botninn hvolft, verður hann okkur ætíð jrfirsterkari. 011 þessi ár hef ég, og síðar meir við hjónin, orðið þeirrar gæfu aðnjótandi, að upplifa og njóta vináttu þeirra hjóna, Harðar Ein- arssonar og Sigríðar Antonsdóttur. Vináttu, sem einnig bömin þeirra áttu stóran þátt í. Þegar við komum í heimsókn, komu börnin jafnan inn í stofu og vildu eignast hluta í þessari vináttu, tóku þátt í samræð- unum, þótt þau svo síðar drægju sig í hlé og leyfðu gamla fólkinu að blanda geði. Slíkt er sjaldgæft á þessum dögum, sem einkennast af sambandsleysi, jafnvel milli for- eldra og bama. Nú er Líney horfin úr þessum hóp. Líklega hefur enginn okkar gert sér að fullu. grein fyrir því, hvað í henni bjó, enda var beðið átekta á meðan allt lífið virtist ennþá framundan. En þeir sem fylgdust með henni síðustu árin, eru ekki í vafa um það, að hún bjó yfir ákaflega heilsteyptum persónu- leika, enda átti hún ekki langt að sækja það. Það var dásamlegt að fá að fylgjast með skjótum þroska hennar, á örstuttum tíma virtist hún vaxin upp úr sjálfri sér. Og þegar maður spyr, hver ástæða hafí verið, þá er aðeins til eitt svar: ástin unga, en stutta, en ekki síður sú hlýja, umhyggja og ást, sem hún naut á heimili foreldra sinna. A þetta reyndi mest þessar síðustu vikur ogdaga. „Líf vekur von, en undir lokin bara bænir“, segir Matthías. Við vildum ekki trúa því að Líney myndi kveðja okkur hin svo skyndilega, enda var hún svo mikil hetja í sér að hún vildi halda öllum áhyggjum frá okkur. Hún gaf litlu stúlkunni sinni litlu alla krafta sína og orku, þótt hún væri sjálf að þrotum komin. Ast hennar til mannanna og lífsins mun lifa áfram í baminu hennar, sem hún gaf unnusta sín- um, foreldrum, systkinum og jafn- vel okkur hinum, því að við munum halda áfram að fylgjast með því eins og henni. Við hjónin þökkum Líney sameig- inlegar stundir og kveðjum hana núna um stundarsakir. Jafnframt vottum við unnusta hennar, foreldrum, systkinum og hinum mörgu vandamönnum og ástvinum okkar dýpstu samúð. Coletta Biirling og Kjartan R. Gíslason Fátt hryggir meir en þegar ungt og efnilegt fólk í blóma lífsins er kallað á brott. Okkur var því illa brugðið þann 19. maí sl. þegar við fréttum andlát Líneyjar Harðar- dóttur, hjúkrunarfræðinema. Þó við vissum að hún væri mikið veik og lítið eða ekkert hægt að hjálpa henni er alltaf haldið í vonina, ef til vill sem betur fer. Líney var dóttir okkar bestu vina, þeirra Harðar Einarssonar tann- læknis og Sigríðar Antonsdóttur hjúkrunarfræðings, en vegna þeirr- ar góðu vináttu og sambands, sem milli heimilanna er, höfum við fylgst með Líneyju allt frá fæðingu. Sem bam var hún óvenjulega skýr og hress, þuldi þá gjaman vísur og spakmæli sem hún lærði af föður sínum, viðstöddum til óblandinnar kátínu. Minnumst við margra glaðra stunda frá þeim árum, bæði heima og í útilegum, og alltaf fór Líney fremst í flokki. Árin liðu og við sáum Líneyju þroskast í unga og hamingjusama konu, sátta við lífíð og tilveruna. Hún kaus að starfa að heilbrigðis- málum, eins og foreldrarnir, hóf nám í hjúkrunarfræði, stóð sig þar með sóma eins og vænta mátti, og átti að útskrifast nú í júní sem hjúkrunarfræðingur. Hún kynntist ungum manni, Eggerti Sigurbergs- syni, og hófu þau búskap saman. Framtíðin brosti við þeim og von á erfíngja, en með veikindum Líneyjar dró ský fyrir sólu. Baráttan við sjúkdóminn varð stutt, en Líney sýndi mikinn þroska og kjark og hjá henni gekk velferð barnsins ófædda fyrir öllu. Þann 14. maí sl. fæddist svo lítil stúlka, sem vermir nú aðstandendur eins og sólargeisli í sorg þeirra. Eggerti og vinum okkar í Faxa- túni 9 sendum við innilegar samúð- arkveðjur. Við kveðjum Lineyju Harðardóttur og þökkum henni samfylgdina. Blessuð sé minning hennar. Elva og Birgir Hátt ég kalla, hæðir fjalla, hrópið með til Drottins halla. Mínum rómi, ljóssins ljómi, lyft þú upp að Herrans dómi. Eg vil kvaka, ég vil vaka, allt til þess þúviltmigtaka. Til þín hljóður, Guð minn góður, græt ég eins og bam til móður. (Matth. Joch. Vers þetta hefur ekki úr huga mér horfíð síðan ég frétti lát elsku- legrar bróðurdóttur minnar, Líneyj- ar. Ég get ekkert sagt, ekkert gert, þó langar mig svo að þakka föður hennar og móður þá hjálp og hlýju, sem þau sýndu mér er ég varð fyrir þeim ástvinamissi sem aldrei gleymist. Élsku Sigga og Hörður, ég stend hér og get ekki annað, orðvana en með bæn í hjarta. Eddi minn. Sá sólargeisli sem hún skildi eftir sig og lagði líf sitt í sölurnar fyrir, eins og þú orðaðir svo fallega, hann á vonandi eftir að lýsa þér um ókomna framtíð. Guð blessi ykkur öll og vaki yfír ykkur í þessari þungbæru sorg. Hugurinn er heima þó ég geti ekki verið við útförina, en ég þakka elsku frænku minni fyrir dásamleg kynni. Guð geymi hana og ástvini hennar og veiti þeim styrk í þessari raun. Guðný Lífið erfljótt, líkterþaðelding semglamparumnótt, ljósi sem tindrar á tárum titrarábárum. (M.Joch.) í dag verður gerð frá Dómkirkj- unni útför Líneyjar Harðardóttur, hjúkrunamema. Foreldrar hennar eru hjónin Sigríður Antonsdóttir, hjúkrunarfræðingur, og Hörður Einarsson, tannlæknir. Hún hóf nám í hjúkrunarfræði við Hjúkrunarskóla Islands í sept- ember 1983. Fljótlega kom í ljós að Líney var gædd góðum og eftir- sóknarverðum hæfíleikum, sem birtust í einurð hennar, samvisku- semi, hógværð og hlýju. Það var aðdáunarvert hvemig hún tókst á við hjúkrunamámið þegar vitað var hve alvarleg veik- indi hennar voru, sem á einstakan hátt lýstu persónuleika hennar. Hún hefði lokið hjúkrunarnámi og brautskráðst frá skólanum í næsta mánuði, ef óskir okkar hefðu fengið að rætast og heilsa hennar leyft. Tómleiki og harmur fylltu huga okkar þriðjudagsmorguninn 20. maí þegar nemendur mættust í anddyri skólans árla morguns. Andlát Líneyjar var kaldur vem- leiki. Við vissum að hún hafði átt við alvarleg veikindi að stríða undan- fama mánuði, en engan óraði fyrir hve alvarleg þau voru. Af æðruleysi og festu mætti hún þessum erfíð- leikum og með sínu einstaka hlýja brosi vildi hún mæta hinu ókomna. Við sem samfylgdar Líneyjar nutum, þökkum góðar minningar og vottum unnusta hennar og ný- fæddri dóttur svo og foreldrum og systkinum dýpstu hluttekningu. Núgengurhún Florence litla íbjartarstofurinn með hvíta kappann sinn, strunsarum áléttum skóm með bros á kinn. „Allt í einu breytisthún efeitthvaðerað verðuraftur lítil stúlka með dökkleitt sjal lýsirmeðlampannsinn, lampann þinn og minn.“ (Guðrún P. Helgad.) Sigríður Jóhanns- dóttir, skólastjóri. Ferðþínerhafin. Fjarlægjast heimatún. Núfylgirþúvötnum sem falla til nýrra staða ogsjónhringarnýir sindraþérfyriraugum. En alnýjum degi færþúaldreikynnst. I lind reynslunnar fellur ljós hverrar stundar ogbirtistþar slungið blikandi speglun allsþesseráðurvar. (Hannes Pétursson, Framtíð.) Sú harmafregn barst að kvöldi 19. maí síðastliðins að bekkjarsystir okkar, hún Líney, væri látin. Þegar slíkar fregnir berast neitar maður að trúa þeim. Aðdragandi þessa andláts var stuttur. Við trú- um því ekki að hún, sem fyrir skömmu gekk með okkur til náms og starfa, komi ekki aftur. Við þekktum Líneyju orðið vel eftir braðum 3ja ára samvistir í Hjúkr- unarskóla Islands, hún var okkur öllum góður félagi. Brátt ljúkum við okkar námi og brautskráumst innan tíðar. Við út- skriftina verður góðs félaga sárt saknað. Líney lætur eftir sig unnusta og dóttur, er fæddist tæpri viku fyrir andlátið. Megi góður Guð styðja og styrkja þau feðginin nú og í framtíð- inni. Við sendum þér, Eggert, svo og foreldrum, systkinum og öðrum ástvinum Líneyjar okkar dýpstu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Bekkjarsystur úr Hjúkrun- arskóla íslands 1983—1986. Það líf er ekki lengst semlengsthefurvarað. Sá hefur lifað lengst er nýtir lífið best. Sáerekkiríkastur semmesthefursparað. Nei, sá er ríkastur sem hefurgefiðmest. (Naima Jakobsson), lauslega þýttúrsænsku. í starfi hjúkrunarfræðinga er dauðinn oft nálægur. Hjá mörgum er dauðinn kærkomin hvíld eftir langan ævidag, þegar heilsan er farin að gefa sig. Stundum fínnst okkur dauðinn vera ótímabær, sérstaklega þegar böm eða ungt fólk á í hlut. Fregnin um lát Líneyjar Harð- ardóttur, nemanda okkar í Hjúkr- unarskóla íslands, kom því eins og reiðarslag. Við vissum að vísu að hún hafði átt við veikindi að stríða undanfama mánuði, en engan óraði fyrir hversu alvarlegþau voru. í fámennum skóla eins og Hjúkr- unarskóla íslands verða tengsl nemenda og kennara oft náin. Líney var dagfarsprúð og hafði til að bera hlýju sem ekki er öllum gefín. Hún naut trausts samnem- enda sinna og var kjörin til trúnað- arstarfa fyrir hópinn. I námi hennar í Hjúkrunarskóla Islands komu glögglega í ljós hæfi- leikar hennar til hjúkrunarstarfa. Líney var samviskusöm, ósérhlífín og áhugasamur nemandi. í verklegu námi á hinum ýmsu sjúkradeildum fékk hún alls staðar góðan vitnis- burð. Þrátt fyrir veikindin lagði hún hart að sér síðustu vikurnar í verk- legu námi og lauk verkefnum á tilsettum tíma. Fram undan var lokatakmarkið, að ljúka hjúkrunar- námi hinn 21. júní næstkomandi. Fráfall Líneyjar er staðreynd sem erfítt er að sætta sig við. Við vottum unnusta, nýfæddri dóttur, foreldr- um og systkinum innilega samúð og biðjum Guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg. Kennarar og starfsfólk Hjúkrunarskóla íslands. Kveðja frá vinkonum Þú guð sem gefur og tekur því gerðirðu það svona fljótt. Þú, sem svæfir og vekur, já, svæfir að eilífú rótt. (Höf. ókunnur) Þeir sem guðimir elska deyja ungir. Eins og hún Líney sem var að ljúka við að búa sig undir lífs- starfíð sem hún hafði kosið sér, að hjúkra og hjálpa öðrum. Kynni okkar Líneyjar hófust fyrir tæpum þremur árum, þegar við hófum nám við Hjúkrunarskóla ís- lands. Strax frá upphafi var góður vinskapur á milli okkar þriggja. Þessi ár stefndum við allar að sama markmiði og mikil var tilhlökkun okkar til komandi sumars, þegar langþráðum áfanga lífs okkar, að ljúka hjúkrunamámi, yrði náð. En skyndilega er komið stórt skarð í hópinn þar sem Líney var mjög heilsteyptur persónuleiki, alltaf ró- leg og yfírveguð en hafði samt sínar skoðanir á mönnum og málefnum. Hún reyndi alltaf að miðla málum þegar í brýnu sló á þann hátt að maður bar alltaf virðingu fyrir skoðunum hennar. Líney var frekar dul og bar aldrei líðan sína á torg en var ætíð reiðubúin að hjálpa öðmm. Þessi elskulega stúlka, sem við skólasystur hennar söknum svo sárt, lét eftir sig elskulega litla dóttur, sem hún fæddi í þennan heim skömmu áður en hún sofnaði. Við verðum að trúa því að hún hafi verið kölluð einmitt af því að Guð hafí ætlað henni annað hlut- verk í framtíðinni. Við kveðjum hana með sárum söknuði og biðjum þann sem sagði „minn frið gef ég yður“, að græða sárin og þerra tárin hjá foreldrum, systkinum og unnusta Líneyjar. Guð ble.ssi þau öll og alla vini og vandamenn. Og seinna, þar sem enginn telur ár og aldrei falla nokkur harmatár. Mun herra tímans, hjartans faðir vor, úr hausti tímans gera eilíft vor. (ÓB) Við kveðjum hana með þökk fyrir allt. Elísabet Arietta Geirþrúður Karlsdóttir t Þökkum auösýnda samúö og viröingu viö minningu móöur okkar, DAGMAR JÓNSDÓTTUR, Snorrabraut 75. Sigríður, Ingibjörg, Guörún og Geir. t Við þökkum þann innilega hlýhug sem bæöi fjölskyldan, frændfólk og vinir hafa sýnt okkur viö fráfall míns ástkæra eiginrnanns, sonar, föður, tengdaföður og afa, RAGNARS ALFREÐSSONAR, Mávahlið 1. Ásdís ísleifsdóttir, Teódóra Eyjólfsdóttir, Garðar Kristjánsson, börn, tengdabörn og barnabörn Legsteinar ýmsar gerðir Marmorex Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.