Morgunblaðið - 28.05.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1986
Flautað tílsamþykkis
Morgunblaðiö/RAX
Sjálfstædismenn voru í gærkvöldi með nýstárlega kynningu í kosningabaráttunni. Þeir stillu sér upp með nokkur spjöld við Miklu-
brautina og á síðasta spjaldinu voru ökumenn beðnir um að þeyta bílhornin ef þeir væru samþykkir þvi sem á spjöldunum stóð.
Undirtektir voru mjög góðar og ökumenn flautuðu óspart er þeir óku framhjá.
Ríkisstj órnin ákveður að
hækka ekki bensíngjaldið
„Er algjörlega andvígnr þessari ákvörðun,u segir Matthías
Bjarnason samgönguráðherra. Búist við bensínlækkun í næstu viku
Akranes:
Tímamóta-
samning-
urríkis
og bæjar
— um uppbyggingu
skólahúsnæðis
Akranesi.
SAMNINGUR á milli ríkis og
bæjar um uppbyggingu skólahús-
næðis fyrir grunnskóla á Akra-
nesi hefur verið undirritaður.
Samningurinn gerir ráð fyrir að
á næstu 8 árum verði byggðar
þijár nýjar byggingar við
Grundaskóla og lokið verði við
viðbyggingu Brekkubæjarskóla,
auk þess sem miklar endurbætur
verði gerðar á gamla skólahús-
inu.
Þegar framkvæmdum verður
lokið mun húsnæði Grundaskóla
verða alls 4600 fermetrar, en er í
dag 2200 og húsnæði Brekkubæjar-
skóla 3350 fermetrar en er í dag
tæplega 2000 fermetrar. Auk bygg-
ingar skólahúsnæðis er í samning-
um gert ráð fyrir föstum greiðslum
í búnað og fullnaðarfrágang lóða.
Kostnaður við þessar framkvæmdir
miðað við veiðlag í dag er 168
milljónir.
Samningurinn var undirritaður
26. maí af Sverri Hermannssyni
menntamálaráðherra, Þorsteini
Pálssyni ^ármálaráðherra og Ingi-
mundi Sigurpálssyni bæjarstjóra á
Akranesi. Markar þessi samnings-
gerð tímamót ( samskiptum ríkis
og sveitarfélaga, því þetta er í
fyrsta skipti sem ríkið gerir svo
afdráttarlausan samning við sveit-
arfélag um uppbyggingu skólahús-
næðis.
Málefni grunnskóla hafa verið
mikið hitamál hér í vetur. Meirihluti
bæjarstjómar hefur viljað fara
þessa leið, en minnihlutinn talið að
með því væri verið að tefja málið
og vonlaust að ná slfkum samningi.
J.G.
Segir upp
vegna auglýs-
ingastefnu
Listahátíðar
SIGMUNDUR Emlr Rúnarsson
ritstjómarfulltrúi Helgarpósts-
ins sagði í gær upp störfum sin-
um hjá Sjónvarpinu sem umsjón-
armaður kynningarþátta Lista-
hátíðar.
Sigmundur Emir véfengir í upp-
sagnarbréfi sínu sannieiksgildi op-
inberrar skýringar framkvæmda-
stjómar Listahátíðar á þessari
ákvörðun og segist telja hana til-
komna vegna þess að Hrafn Gunn-
laugsson formaður framkvæmda-
stjómar Listahátíðar og dagskrár-
stjóri Sjónvarps eigi í persónulegri
togstreitu við þann ritstjóra sem
Sigmundur Emir er nú staðgengill
fyrir.
Bendir hann á í bréfi sínu að það
væri óþægileg staða fyrir sig að
auglýsa upp dagskrá Listahátíðar í
Sjónvarpi á sama tíma og hann
gegni starfí ritstjóra Helgarpósts-
ins, sem Listahátíð hafí ákveðið að
hunsa með því að auglýsa ekki f
Helgarpóstinum.
Hrafn Gunnlaugsson var í gær
spurður hvemig hann hygðist
bregðast við uppsögn Sigmundar
Emis: „Mér þykir leiðinlegt að
missa Sigmund Emi úr starfí, en
við tókum þá ákvörðun f fram-
kvæmdastjóm Listahátíðar að aug-
lýsa einungis í dagblöðum. Þessi
ákvörðun var tekin einróma í fram-
kvæmdastjóm, í samráði við fram-
kvæmdastjóra Listahátíðar."
Hrafn sagði: “Þumalskrúfa sem
þessi sem sett er á mig sem dag-
skrárstjóra breytir engu um störf
mín innan Listahátíðar. Þau eru
Sjónvarpinu óviðkomandi."
Á ríkisstjóraarfundi f gær-
morgun var ákveðið að hækka
ekki bensingjald. Eins og kunn-
ugt er gerði Matthías Bjamason
samgönguráðherra það að til-
lögu sinni að fallið yrði frá því
að lækka bensfnverð í byijun
næsta mánaðar um þijár krónur
Utrann, en hækka bensíngjaldið
sem þvf nemur og nýta það fjár-
magn sem þannig fengist til
varanlegrar vegagerðar. Sverrir
Hermannsson menntamálaráð-
herra lýsti sfðan stuðningi sínum
við þessa tillögu samgönguráð-
herra. Á rfkisstjóraarfundi f
gærmorgun var hins vegar
ákveðið að hafna þessari tillögu,
þannig að f upphafi næsta mán-
aðar má búast við að bensfnUtr-
inn lækki um þijár krónur.
„Það var ákveðið að hækka ekki
bensínskattinn á þessum fundi,"
sagði Þorsteinn Pálsson fjármála-
ráðherra í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins. Fýármálaráðherra
sagði að ekki hefði verið hægt að
ákveða hækkun bensíngjaldsins
nema með bráðabirgðalögum um
nýja skattheimtu. Hefðu hann og
forsætisráðherra, ásamt fleirum
verið andvígir slfkri bráðabirgða-
lagasetningu.
„Ég er auðvitað algjörlega and-
vígur þessari ákvörðun," sagði
Matthías Bjamason samgönguráð-
herra í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Ég hefði talið að það væri
mikill fengur að því að auka fram-
lög til vegagerðar með þessum
hætti. Við emm búin að fá 20%
lækkun á bensínverði að undan-
fömu, þannig að ég tel að þessa
leið hefði tvímælalaust átt að fara,“
sagði samgönguráðherra.
I Morgunblaðinu sl. sunnudag
var haft eftir Snæbimi Jónssyni
vegamálastjóra, að ef Vegagerðin
fengi þijár krónur af hveijum seld-,
um bensínlítra til viðbótar, jafngilti
það nálægt 400 milljónum króna á
ári. Fyrir þá upphæð mætti leggja
3-400 kílómetra af bundnu slitlagi.
Síðasti dag-
ur fyrir spurt
og svarað
VEGNA borgarstjómarkosning-
anna á laugardag hefur Davfð
Oddsson, borgarstjóri, svarað
spurningum lesenda Morgun-
blaðsins f þættinum Spurt og
svarað. Með það f huga, að svör
fáist við öllum spuraingum, sem
borist hafa, ekki siðar en f blað-
inu á kjördag, er síðasti dagur
til að koma þeim á framfæri á
morgun, fimmtudag. Þeir, sem
hafa hug á að spyija borgarstjór-
ann, geta hringt til Morgunblaðs-
ins milli kl. 11 og 12 f dag og á
sama tfma á morgun.
Átök í kosningastjóm Alþýðubandalag:
Samþykkt með eins
atkvæðis mun að Svav-
ar íengi að halda ræðu
SÍÐUSTU daga hafa staðið hörð
átök innan Alþýðubandalagsins
um það, hvort Svavar Gestsson,
formaður flokksins, ætti að
verða einn af ræðumönnum á
kosningafundi Alþýðubanda-
lagsins f Háskólabíói í kvöld.
Össur Skarphéðinsson, ritstjóri
Þjóðviljans, sem skipar 4. sæti
á framboðslista flokksins við
borgarstjómarkosningaraar í
Reylgavfk nk. laugardag, lagð-
ist gegn því ásamt Skúla Thor-
oddsen að Svavar héldi ræðu á
fundinum. Þessi átök enduðu
með þvf að atkvæðagreiðsla fór
fram um það f kosningastjórn
Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík, hvort flokksformaðurinn
fengi að halda ræðu á fundinum.
Niðurstaða þeirrar atkvæða-
greiðslu varð sú, að samþykkt
var með eins atkvæðis mun, að
Svavar Gestsson yrði f hópi
ræðumanna.
Átökum um ræðuflutning Svav-
ars Gestssonar var ekki lokið með
þessarí atkvæðagreiðslu. Formað-
ur Alþýðubandalagsins óskaði eftir
því að fá að halda lokaræðu fund-
aríns. Sömu aðilar Iögðust gegn
því og stóðu deilur um það í nokkra
6
9(9
þrumandi
baráttuhátíð
listinn gggg—s. aSs--
daga. Að lokum var enn boðaður
fundur í kosningastjóminni og fór
þar fram ný atkvæðagreiðsla um
þennan þátt málsins. Hún fór á_
sama hátt og hin fyrri, að sam-
þykkt var með eins atkvæðis mun
að Svavar Gestsson héldi lokaræðu
fundarins.
Auglýsingar í Þjóðviljanum um
þennan fund hafa vakið athygli.
Laugardaginn 24. maí birtist aug-
lýsing um fundinn og var Svavari
Gestssyni gert þar jafnhátt undir
höfði og öðrum ræðumönnum á
fundinum, þ.e. birt var jafnstór
mynd af honum og öðrum ræðu-
mönnum. Þegar auglýsing birtist
í Þjóðviljanum í gær, þriðjudaginn
27. maí, um þennan fund, hafði
henni verið breytt. Eins og sjá má
á meðfyigjandi myndum er nú birt
stór mynd af fjórum ræðumönnum
á fundinum, sem skipa efstu sæti
á lista Alþýðubandalagsins í
Reykjavík, en lítil mynd er birt af
Svavari Gestssyni, sem er settur í
hóp með skemmtikröftum.
Auglýsing í Þjóðvifjanum sl.
laugardag um kosningafund.
Auglýsing f Þjóðviyanum í gær
um sama kosningaf und