Morgunblaðið - 28.05.1986, Síða 20
20
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1986
Tveir umrenningar í Beverly Hills, Nolte og Kerouack.
Inn og út í Beverly-hæðum
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Út og suður í Beverly Hilis —
Down and Out in Beverly Hills
★ ★ ★
Leikstjóri og framleiðandi
Paul Mazursky.
Handrit Marzursky og Leon
Capetanos.
Kvikmyndataka Donald McAlp-
ine.
Tónlist Andi Summers.
Aðalleikendur Nick Nolte, Ric-
hard Dreyfuss, Bette Midler,
Little Richard, Elizabeth Pena,
Evan Richard og síðast en ekki
síst, hundurinn Mike.
Touchstone Filoms-Buena Vista
1985.
Öðru vísi mér áður brá gæti
Disney sálugi hugsað með sér ef
hann fengi tækifæri til að sjá Down
and Out In Beverly Hills, eina
vinsælustu mynd síns gamla fyrir-
tækis um árabil. Hér skemmtir
nefnilega enginn Mikki mús, Andr-
és önd, Lukkubfll né Mary Poppins,
heldur er söguhetjan lassaróni sem
fíflar heila fjölskyldu á einn eða
annan hátt. Ráðamenn Touchstone
Ars-risafyrirtækisins fylgjist mjög
vel með þörfum eldri aldurshópanna
á markaðnum og hafa varpað
gömlum hefðum fyrir róða með
athyglisverðum árangri. Skemmt-
anagildið á sinn hátt er síst lakara
en í gömlu góðu fjölskyldumyndun-
um — sem fyrirtækið rækir enn
með prýði.
VEKIU Á UNDAN
VAXUUÆKKUNH
::'£&RFlSra i
SMIRISKfKIE^H
RÍKISSIÓÐS NUNA
E<nn gefst þér tækifæri til að kaupa spariskírteini
ríkissjóðs á háu vöxtunum. Á undanfömum mán-
uðum hafa vextir lækkað á óverðtryggðum banka-
reikningum. Óhjákvæmilegt er að innan tíðar
fylgi spariskírteini ríkissjóðs í kjölfarið.
En þú ert ekki búin(n) að missa af lestinni ennþá.
Hefðbundin spariskírteini ríkissjóðs fást enn með
allt að 9% ársvöxtum umfram verðtryggingu,
föstum a.m.k. næstu 6 árin.
Þessu öryggi verður ekki hnekkt þótt aðrir vextir
breytist. Að þessu leyti hafa spariskírteini ríkis-
sjóðs sérstöðu.
Með þessum vöxtum tvöfaldast höfuðstóllinn á
aðeins liðlega átta árum. Spariskfrteini rfkissjóðs
eru þvf bæði mjög örugg og arðbær fjárfesting.
Þér gefst ekki betra tækifæri en einmitt nú að
tryggja þér góða ávöxtun á sparifé þitt til langs
tfma.
Sölustaðir era Seðlabanki íslands, viðskiptabank-
amir, sparisjóðir, nokkrir verðbréfasalar og póst-
hús um land allt.
RÍKÍS SJÓÐÚRTS IAN DS
D&OIBH er fislétt gamanmynd,
meinhæðin undir niðri, um rónann
Jerry Baskin (Nolte), er hyggst
enda skrautlega ævi á sundlaugar-
botni við auðsmannsvillu í Beverly
Hills. Tilraunin tekst ekki betur en
svo að karl er vakinn til lífsins af
eigandanum, Dave Whiteman
(Dreyfuss), og áður en varir er búið
að afmá af honum öll ræfílsdóms-
einkenni — fyrir utan þvaglát í
blómabeðin og svo gott sem búið
að munstra hann í fjölskyduna og
fatahengjafyrirtækið sem er auðs-
uppsprettan.
En þá fer f verra er hann fer að
beita fjölskylduna amorsbrögðum
og um tfma er staða flækingsins
fyrrverandi ærið tvísýn á heimilinu.
Hver er Jerry Baskin? Lffsgeðin
og hamingjan sem þeir verða af sem
eru hálfkæfðir frá morgni til kvölds
í leit að lífsfuUnægingu er þeir telja
sig finna í fleiri þrælum, fínni
klúbbum, vænni innistæðum, „rétt-
um“ félagsskap og vörumerkjum.
Barbara (Bette Midler) og Dave
Whiteman eru í rauninni ágætis-
fólk, en eru því miður búin að hálf-
drekkja sér f innantómu allsnægta-
lffí, orðin andlaus og náttúrulaus
af heimspekilágkúru og heilsufæði.
Þá kemur lausnarinn og bjargar
þeim úr prísundinni. Þau fara að
meta raunverulegt gildi hlutanna
og gefa vindinum frí.
En myndin er fyrst og fremst til
afþreyingar og tekst það vel. Hand-
rit Mazurkys er oftast bráðfyndið
og ekki skaðar kaldhæðnin sem
löngum er örgrunnt á undir yfír-
borðinu. Nolte er fæddur í hlutverk
slúbbertsins, Midler hefur ekki í
aðra tíð verið betri á tjaldinu, en
Dreyfuss fær mitt atkvæði sem
bestur þeirra leikara sem teljast
homo sapiens. Hann hefur lagt á
hilluna nefnammið sitt og kominn
í sitt gamla, góða form. Senuþjófur
myndarinnar ér þó hundkvikindið
Mike, sem hér ber hið virðulega
listamannsnafn Matisse (annar
seppi sem kemur við sögu og er á
vergangi eins og eigandinn, heitir
náttúrlega (Jack) Kerouac!). Leik-
hæfíleikar rakkans eru með ólíkind-
um. Rin Tin Tin mundi leggja leik-
listina á hilluna ef hann sæi til hans!
Það er svo sannarlega ánægju-
legt að sjá að þeir Mazursky og
Dreyfuss eru komnir í gott lag að
nýju enda er Down and Out________
með fyndnari og skarpari gaman-
myndum, ættuðum frá Hollywood,
um árabil. En Mazursky skyldi þó
aldrei hafa séð Teorema?
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
s JflflírpjjiMafoifo
GOTT FÓLK / SÍA