Morgunblaðið - 28.05.1986, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1986
IkO
25
ísafjörður -
breytt vinnubrögð
Ólafur Helgi
Kjartansson.
Sjálfstæðisflokkurinn á ísafírði
hefur birt stefnuskrá sína í bæjar-
málum vegna komandi kosninga.
Aðrir flokkar voru mun seinni til
og sumir tala einungis um áherslu-
atriði eða óljósa framtíðarstefnu og
spamað á prenti og pappír í því
sambandi. Svo langt er gengið að
telja að stefnuskrá þjóni litlum sem
engum tilgangi.
Sjálfstæðisflokkurinn var einnig
fyrstur til þess að ganga frá og
birta framboðslista sinn. Það gerði
hann löngu á undan öðrum, að
undangengnu mjög fjölsóttu próf-
kjöri, en þátttakendur voru 427.
Kynning stefnu er
skylda frambjóðenda
Fundahöld annarra hafa engin
verið ef frá er talinn fundur í
Reykjavík sem fáir kjósendur á
ísafírði sóttu. Meira bar á brott-
fluttum ísfírðingum, Jóni Baldvin
Hannibalssyni og fleirum.
Sjálfstæðismenn hafa haldið þijá
almenna fundi til að kynna stefnu-
mál sín auk fundar um húsnæðis-
mál.
Við höfum unnið ötulast að því
að kynna bæjarbúum hugmyndir
og sjónarmið okkar. Þeir hafa
mætt okkur á vel heppnuðum fund-
um og spurt og skipst á skoðunum
við frambjóðendur.
Það er siðferðileg skylda okkar
frambjóðenda að kynna kjósendum
stefnu okkar. Þau mál sem við
munum beita okkur fyrir að nái
fram að ganga skipta meiru en
myndir og stór lýsingarorð á því
sem átti að gera á líðandi kjörtíma-
bili.
Það er ótrúlegt en satt, að enn
hefur nánast ekkert komið fyrir
frá andstæðingum okkar um það
hvemig stjóma skuli bænum næstu
flögur árin.
Litið um öxl
í málefnasamningi vinstri meiri-
hlutans í upphafi þessa lqortímabils,
sem senn er liðið, var lofað fjögurra
ára raunhæfri rekstrar- og fram-
kvæmdaáætlun. Nú fjómm ámm
síðar hefur hún ekki ennþá verið
birt.
Það er eðlilegt að stóm orðin séu
nú spömð um þessi mál.
Sumir andstæðingar Sjálfstæðis-
flokksins drepa aðeins lítillega á
fjármál ísafjarðarkaupstaðar. En
enginn þeirra markar leið að neinu
marki. Alþýðuflokkurinn hefur ekki
fyrir því að minnast á þennan
gmndvallarþátt í starfí bæjarstjóm-
ar.
Til þess að breiða yfír stefnuleysi
sitt í þessu efni, hefur einn fram-
boðslistinn tekið það upp að móta
framkvæmdaáætlun til enn lengri
tíma.
Helstu stefnumál
sjálfstæðismanna
Megin markmiðið næstu fjögur
ár hlýtur að verða það að bæta fjár-
hag bæjarins. Það verður gert m.a.
með eftirfarandi hætti:
1. Greiðslu- og framkvæmdaáætl-
un hvers fjárhagsárs verði lögð
fram í beinu framhaldi af fjár-
hagsáætlun.
2. Á miðju fjárhagsári verði fjár-
hagsáætlun tekin til endurskoð-
unar og gripið til aðhalds ef
nauðsyn krefur.
3. Gerð verði framkvæmdaáætlun
fyrir þau verk sem þegar em
hafin, þannig að ljóst sé hver
framvinda þeirra verður.
4. Þegar í upphafí næsta kjörtíma-
bils verði gerð framkvæmda-
áætlun ísaijarðarkaupstaðar um
næstu fjögur ár.
5. Útboð verði notuð til þess að
framkvæmdir bæjarfélagsins
verði eins hagkvæmar og kostur
er.
6. Auk þess verði gætt ítrasta
spamaðar í rekstri.
nokkrir rauðnefjaðir hverfísbúar
vitni að því að þéttvaxinn, hrokkin-
hærður maður vippaði sér upp í
skurðgröfu og keyrði skófluna í
jörðina, sem enn var ekki orðin
freðin. Þetta var upphafíð að hol-
unni miklu.
Heilsugæslustöð Miðbæjar er
stórt nafn sem flaggað er nú í
kosningabaráttunni. Starfseminni
var holað inní Heilsuvemdarstöðina
við Barónsstíg árið 1983. Stöðin er
undirmönnuð, þar starfar einn
læknir, en ættu að vera a.m.k. þrír.
Heilsugæslustöðin á Seltjarnar-
nesi er í upptalningunni um efndim-
ar. Sjálfstæðismenn hafa ekki gerst
svo djarfír að þakka sér framtak
Akureyringa eða Austfirðinga,
enda fá Vesturbæingar í Reykjavík
að njóta ágætrar þjónustu Seltim-
inga. En það er óþarfí fyrir núver-
andi meirihluta borgarstjómar að
hrósa sér af því; þessi samvinna var
komin á fyrir hans tíð.
Þriðja heilsugæslustöð sjálfstæð-
ismanna er í Alftamýrinni. Þar er
einnig að finna skýringuna á úr-
tölum og seinagangi Davfðs. Þama
er nefnilega um að ræða einkafram-
tak nokkurra lækna, en ekki þjón-
ustu á vegum borgar eða ríkis.
Borgin leggur að vísu til einn hjúkr-
unarfræðing og sjúkraliða í hálfu
starfí, og það er ekki lítið sem
þessum starfsmönnum er ætlað.
Ungbamaeftirlit, mæðraskoðun og
heimahjúkmn í hverfum með 7.300
íbúa er þeirra hlutverk!
Fjórða heilsugæslustöðin á af-
rekaskrá sjálfstæðismanna er sú
„Málflutningur Alþýðu-
f lokks er þó undarleg-
astur. Eftir að hafa leitt
samstarf meirihlutans,
þykir talsmönnum best
að þegja yfir verkum
eða verkleysi síðustu
fjögurra ára. Þó verður
að benda á að hann
hyggst sitja lengur en
næsta kjörtímabil, því
að í „stefnunni“ er
ítrekað að hún fjalli
ekki „um hvað flokkur-
inn ætli að gera á næsta
kjörtímabili, heldur
langtímamarkmið“.“
Ólafur Helgi Kjartansson
Málflutningur Alþýðuflokks er
þó undarlegastur. Eftir að hafa leitt
samstarf meirihlutans, þykir tais-
mönnum best að þegja yfír verkum
eða verkleysi síðustu fjögurra ára.
Þó verður að benda á að hann
hyggst sitja lengur en næsta kjör-
tímabil, því að í „stefnunni" er ítrek-
að að hún fjalli ekki „um hvað flokk-
urinn ætli að gera á næsta kjörtíma-
bili, heldur langtímamarkmið".
(Tilv. í stefnuskrá Alþýðuflokksins.)
Það er von að kjósendur standi
agndofa þegar því einu er lofað að
áframhald verði á kjörtímabiiinu.
Til hvers á þá að kjósa?
Við sjálfstæðismenn spyijum
okkur eftirtalinna spuminga:
1. Hvað verðum við að gera?
2. Hvað getum við gert?
3. Hvað viljum við gera?
Stefnuskrá er nauðsjmlegt tæki
til að svara þessum spumingum. í
Vesturlandi eru þau mál rakin ítar-
lega sem Sjálfstæðisflokkurinn mun
beita sér fyrir í næstu bæjarstjóm.
Aukin áhrif hans marka þar nýja
leið. Kjósendum hefur verið kynnt
þetta rækilega.
Við teljum breytt vinnubrögð
algert skilyrði til að hér á ísafírði
verði stefnt til framfara.
Snúa þarf frá stöðugum manna-
skiptum í bæjarráði og árlegum
forsetaskiptum til festu í æðstu
stjóm bæjarins.
Heildarstefnu annarra framboðs-
lista hér í bæ skortir.
Þessu er beint til þín lesandi
góður og fyrst og fremst ertu beð-
inn að hugsa málið sértu kjósandi
á ísafirði.
Viljirðu breytingar á stjóm ísa-
fjarðarbæjar þá er Sjálfstæðisflokk-
urinn kosturinn. Krossirðu við D á
kjördag veitirðu okkur liðsinni til
framfara á ísafírði.
Styrk stjórn og bjartari fram-
tíð bæjarfélagsins okkar er undir
þér komin.
Höfundur er skattstjóri í Vest-
fjarðaumdæmi og efsti maður á
Iista Sjálfstæðisflokksins við bæj-
arstjómarkosningar á tsafirði.
SÍMI 685411
ILAWN-BOYi
Hún slær allt út
og rakar líka
Þú slærð betur með LAWN BOY
Rafeindakveikja tryggir örugga gangsetningu
3.5 HP sjálfsmurð tvígengisvél.
Hún er hljóðlát.
Hún slær út fyrir kanta og upp að vegg.
Auðveldar hæðarstillingar
Fyrirferðalítil, létt og meðfærileg.
eina sem staðið getur undir nafni.
Hún var fyrst opnuð fyrir nokkrum
dögum. Skýringin á því, að starf-
semin hófst ekki fyrr, er meðal
annars offors meirihlutans að koma
henni í hendur einkaframtaksins.
Sjálfstæðismenn voru búnir að
ákveða útboð á rekstri stöðvarinnar
í Drápuhlíð, en urðu að draga í land
þegar ljóst varð að slíkt stangaðist
á við landslög. Ástæða er til að óska
Hlíðabúum til hamingju með heilsu-
gæsluna, þótt efast megi um fram-
kvæmdavit þeirra sem ákváðu að
kaupa húsnæði Hitaveitunnar og
breyta því fyrir 25 milljónir, upp-
hæð sem hefði dugað fyrir nýrri,
sérhannaðri stöð.
Ég læt þessari sorgarsögu um
heilsugæslu í Reykjavík hér með
lokið. Mönnum er að verða æ ljósara
mikilvægi heilsugæslu og fyrir-
byggjandi starfa heilbrigðisstét-
tanna. í umfjöllun ríkisfjölmiðlanna
síðustu daga hafa læknar lýst
áhyggjum sínum yfír ástandi þess-
ara mála í höfuðborginni. Vonandi
verður heilsa Reykvíkinga ekki
áfram látin gjalda fyrir trúarkreddu
fijálshyggjupostulanna.
Að lokum bið ég Reykvíkinga að
hafa allan vara á þegar þeir hlusta
á fulltrúa samhenta og fram-
kvæmdaglaða meirihlutans tíunda
hvemig þeir efndu hvert kosninga-
loforð upp á punkt og prik.
Höfundur skipar 2. sætiáfram-
boðslista Alþýðubandalags við
borgarstjómarkosningar í
Reykjavík.
VEL KLÆDD
I SÍMASKRÁ SIMASKRA alltaf sem ný í kápunní frá Mulalundí Engri bók er flett jafnmikið og símaskránni. Hún þarf því að eiga góða yfirhöfn svo hún losni ekki úr böndunum og verði illa til reika. í hlííðarkápunni frá Múlalundi, vinnustofu SÍBS, er símaskráin vel varin!
Múlalundui 1 r, Hátúni 10 C, Símar: 38450 38401 |