Morgunblaðið - 28.05.1986, Page 27

Morgunblaðið - 28.05.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1986 27 Fuglinn skotinn af hreiðr- unum í Krísuvíkurbergi Þegar Björgunarsveitin Fiskaklettur kom nýlega til eftirlits í Krísuvíkurbjargi var þar Ijót aðkoma. Fuglar lágu eins og hráviði í fjörunni, höfðu verið skotnir niður af hreiðrun- um og á flugi við bjargið. Þarna lágu dauðar ritur og fýll i tugatali og innan um skot- hylkjapakkar og skot eftir þá drápsglöðu gesti sem þarna höfðu verið á ferðinni. En sem kunnugt er, er algjörlega bann- að að skjóta fugl í bjargi og rita og fýll auk þess alfriðuð fram í ágúst. Það voru tveir ungir björgunarsveitarmenn, Sigurður og Dagur, sem fyrstir komu þarna niður við svonefnd- an Ræningjastíg, gamla stíginn frá Tyrkjaráninu sem hægt er að fara niður eftir að festir voru þar hælar og öryggisbönd. Þótti þeim þetta sóðaleg að- koma og tók Dagur meðfylgj- andi myndir á staðnum, en þær sýna aðeins hluta af fuglunum í fjörunni og einnig aðeins lítið af skotpökkunum. Blaðamaður Ieitaði upplýsinga hjá björgunarsveitarmanninum Bjarna Bjömssyni og Guðmundi Siguijóns- syni, eftirlitsmanni Reykjanesfólk- vangs, en Krísuvíkurbjarg er í fólk- vanginum. Björgunarsveitin Fiska- klettur hefur í nokkur ár nitjað bjargið og hefur þar eftirlit um leið. Er í heilan mánuð á vorin komið þar til eftirlits á hverju kvöldi og stund- um legið þar við þegar farið er í bjargið, eins og þeir hafa gert nú að undanfömu. Hafa raunar eftirlit lengur fram eftir vori. Sagði Bjami að þessi aðkoma hefði mætt sveitinni Tóm skothylki og pakkar und- an skothylkjum á bjargbrún- er hún var að koma í undirbúnings- ferð á hvítasunnunni og væri um 4-5 daga þar á undan að ræða, sem skotmennimir hefðu verið á ferðinni. En enginn hefur séð til ferða þeirra nægilega vel til að þekkja bílinn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skotglaðir menn ganga þannig að fuglinum í Krísuvíkurbjargi og skilja hann eftir. í fyrra komu björgunar- sveitarmenn að tveimur mönnum, sem sátu á bjargbrúninni og skutu fuglana á hreiðrum, en þeir komust undan. Og einhver brögð eru að því á hveiju ári, þótt í minna mæli sé. Spurður að því hvort þama væri um sömu menn að ræða, sagðist Bjami eiga erfitt með að trúa því að hópur manna stæði að því að skjóta fuglana niður í algeru til- gangsleysi. Guðmundur Siguijónsson kom í hitteðfyrra á eftirlitsferð ( fólkvang- Guðmundur Siguijónsson eftirlitsmaður Reykjanesfólkvangs og Bjarni Björnsson úr Björgunarsveitinni Fiskakletti. inum að klettum nálægt Núpshlíð- inni þar sem fuglar höfðu verið skotnir á hreiðrunum og lágu eins og hráviði fyrir neðan. Þá hafði sést til manna með byssur á Krísuvíkur- bjargi skömmu áður. Eins sagði Svona var umhorfs eftir að skotmennirnir höfðu unnið níðingsverkin I Krísuvíkurbjargi. hann að byssumenn fæm um og skytu niður skilti ! fólkvanginum. A bjarginu gæti þetta verið hættulegt fólki, því þama koma hópar til að skoða fuglana, einkum á vorín og ekki síst á þessu vori þar sem þurrt hefur verið og vel fært niður eftir. Bjami sagði að björgunarsveitar- menn fæm mjög varlega í bjarginu, hefðu alltaf hjálma og losuðu sig aldrei úr böndunum. Eins gæta þeir þess vel að fara til eggjatöku á rétt- um tíma, nægilega snemma til þess að fuglinn verpi aftur. Höfðu þeir fengið um 4000 egg í ár. Skotmennimir, sem á þessu vori gengu svona til verks í Krísuvíkur- bjarginu um varptímann, hafa skotið úr haglabyssu nr. 12. Pakki sem þama Iá eftir þá var með mjög sterk- um skotum Magnum nr. 12, en þeir hafa ekki sparað skotfærín því tómir pakkamir og skothylkin af venju- legri gerð lágu um allt, og einhvetju skolar sjórínn út strax. Einnig hafa þeir verið með haglabyssu. Útgerðin til þessa þokkaverks er því greinilega æði kostnaðarsöm. f hveijum pakka eru 10 og 25 skot. Málið hefur verið kært. tj j | 1 l ** I "JtSSSm [ ' fW ÍH > m 15% afsláttur í tilefni kosninganna og sjómanna- dagsins veitum við 15% afslátt af öllum jakkafötum og stökum jökkum. Austurstræti snni: 27211 Snorrabraut s. 13505 Glæsibæ s. 34350

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.