Morgunblaðið - 28.05.1986, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 28.05.1986, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAI1986 „Bg ska.1 \jzta. olvzg hre-inslcilinn p'ig- petta crek\ö öhcrsta. plánebzn ! olheiminu/n." áster... ... að njóta gleðinnar TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rlghts reserved «1985 Los Angeles Times Syndicate Eigum við ekki fyrst að herja á þá með eldi og vopn- um og kristna síðan! HÖGNI HREKKVlSI z/HANK ER VANUK-AD |=Á SÉR SNARl 'a /MeBAN. 'A SýM/NGUNNI STENJPUR." Nokkrir hafa hringt vegna bréfs frá Björgu Bogadóttur til Velvak- anda sl. miðvikudag, 21. maí, um dularfulla hjálparbeiðni frá Filipps- eyjum. Hafa þeir sömu sögu að segja og Björg, bréfin hafa verið frá konu sem segist vera bágstödd, en engin staðfesting hefur fylgt um sannleiksgildi bréfanna. Leikur þeim, sem hringdu, forvitni á, hvemig nöfn þeirra og heimilisföng hafa borist til Filippseyja og hvort einhvetjir fleiri hafa fengið bréf sem þessi, og jafnframt hvort einhver veit hver stendur fyrir þessum bréfaskriftum. Dyraverði á Hlemm? Eldri kona hringdi: „Hvað er að gerast í biðskýlinu við Hlemm? Var það byggt fyrir drykkjumenn og unglinga, sem hvergi virðast eiga heima annars staðar en þama og em þar daglega frá morgni til kvölds í miður góðum félagsskap? Og alltaf virðast nýir bætast í hópinn. Mér hefur oft orðið hugsað til foreldra þessara bama. Hvers vegna dvelja þau þama? Er það vegna heimilisástæðna eða hvað er að gerast? Ég skora á alla þá, sem eitthvað hafa yfir þessu biðskýli að segja, að gera eitthvað til að bæta menninguna þama. Svo langar mig til að minnast á, hve margir bekkir hafa verið fjar- lægðir úr biðskýlinu vegna þess, að eigendur verslana hafa kvartað undan því, að drykkjumenn sætu svo nálægt verslunum þeirra. Þetta kemur sér illa fyrir ýmsa þá, sem þurfa að bíða þama inni, oft með þunga pinkla og poka, en þurfa sökum skorts á bekkjum að bíða standandi og leggja pinklana frá sér á gólfið. Ég hef kvartað undan þessu við ráðamenn hjá SVR og verið lofað öllu fögm, en ekkert hefur breyst. Ég vona, að tekið verði á þessum málum, þvf þama er svo sannarlega þörf á að breyta til batnaðar. Hvemig væri t.d. að fá dyraverði á Hlemrn?" Unglinga- skemmtistað- urinn tilbúinn en skemmt- analeyfið ekki fengið Baldur Sigurðsson hringdi: „Vegna fyrirspumar í Velvak- anda um daginn um unglinga- skemmtistað við Armúla vil ég segja eftirfarandi um málið: Unglinga- skemmtistaðurinn hefur verið til- búinn til opnunar í u.þ.b. einn mán- uð en vegna mótmæla frá forsvars- mönnum verslana og fyrirtækja í næsta nágrenni hefur ekki gengið sem skyldi að fá skemmtanaleyfi. Vonast ég þó til að línumar fari að skýrast einhvem næstu daga. Skemmtistaðurinn er til húsa í Armúla 20, fjarri allri fbúðarbyggð, og komu því áðumefnd mótmæli eins og þmma úr heiðskíru lofti, þar sem svona stað vantar tilfinnan- lega fyrir unglinga í Reykjavík. Þama er búið að fjárfesta í dýmm hljómflutningstækjum, innrétting- um, ljósabúnaði með reykvélum. Fólki er velkomið að leita frekari upplýsinga í síma 688399.“ Ein að vestan hringdi: „Mér þætti gaman að koma á framfæri hvað sumir segja, þegar þeir sjá regnbogann birtast á himn- inum. Ég var á ferð í rútu með 20 manns í fyrra og varð þá að orði, þegar regnboginn birtist í skýjum: „Friður sé á milli guðs og manna." Þetta hafði enginn heyrt, en var gjaman sagt fyrir vestan, þegar móðir mín var ung. Þetta er til komið vegna þess, að regnboginn var tákn frá guði um að syndaflóð- inu væri lokið.“ „Heyrum fréttirnar vel en fátt í út- varpinu sem við njótum“ Gömul kona hringdi: „Mig langaði bæði til að þakka og finna svolítið að. Fyrst vil ég þakka fyrir uppsetninguna á út- varpsfréttunum á kvöldin. Þar hefur orðið ákafiega mikil breyt- ing til góðs fyrir okkur sem emm á tíræðisaldri. Nú heymm við fféttimar mjög vel, og skiljum hvert orð. Hins vegar emm við, ég og vinkona mín sem einnig er komin yfir nírætt, afskaplega óánægðar með hvað það er fátt í útvarpinu, sem fólk á okkar aldri getur notið. Ég man eftir því, að fyrir nokkm las Silja Aðalsteinsdóttir sögu sem heitir Frambard-settið og hún las svo skýrt, að við náðum hveiju orði. Svo finnst mér ekki gott, þegar verið er að lesa langar sögur um tvöleytið á daginn, þegar fáir hlusta nema þeir, sem eiga engra Víkverji skrifar Ahrifa hryðjuverkanna í Evrópu gætir með margvíslegum hætti. Víkveiji átti fyrir skömmu leið um Charles de Gaulle- flugvöll- inn í París og varð það á að skilja tvær ferðatöskur eftir skamma stund skammt frá vegabréfaskoð- un. Þegar að var komið vom tö- skumar horfnar og þessum óvark- ára ferðamanni mátti vera ljóst, hversu fráleitt það var að skilja töskumar við sig. I sömu andrá kom Víkveiji auga á töskumar tvær skammt frá en í kringum þær höfðu safnast 6—5 vopnaðir lögreglu- menn, sem þar að auki höfðu ein- hvers konar leitartæki á sér og könnuðu töskumar með þeim. Þegar eigandi þessa farangurs gaf sig fram fékk hann yfír sig óbóta- skammir á frönsku og var umsvifa- laust sviptur vegabréfí sínu og skip- að að ganga inn á skrifstofu lög- reglunnar á flugvellinum. Viðdvölin þar var að vísu mjög stutt og franska lögreglan sannfærðist um, að þama væri enginn hryðjuverka- maður á ferð. En vissulega vekur svo strangt eftirlit traust manna á vamaraðgerðum gegn hryðjuverka- mönnum þótt Víkveiji hafi orðið fyrir barðinu á því að þessu sinni! XXX Fyrir nokkrum mánuðum var að því vikið í Morgunblaðinu að víða um lönd fengju ferðamenn endurgreiddan virðisaukaskatt eða söluskatt af vörum, sem þeir kaupa. Víkveiji kynntist þessu nýlega í Vínarborg, þar sem ferðamenn eru rækilega minntir á rétt sinn til endurgreiðslu. Hún gengur þannig fyrir sig, að ef einhveijar vörur eru keyptar í verzlun óskar viðskipta- maðurinn eftir endurgreiðslu á skatti. Verzlunin fyllir síðan út ákveðið eyðublað, sem tekur af- greiðslumanninn 2—3 mínútur. Stundum er beðið um vegabréf, stundum ekki. Þessi eyðublöð eru síðan afhent á flugvellinum, sum í banka en önnur á pósthúsi og er Víkveija ekki ljóst, hver munurinn er. Þar fer greiðslan fram og nemur frá 10—30% af kaupverði, yfirleitt um 17—18%. Þetta eru töluverðir peningar. Endurgreiðslan ýtir áreiðanlega undir kaup ferðamanna í þeim löndum, þar sem þessi háttur er á hafður. Er ekki kominn tími til að kanna möguleika á þessu hér? XXX Annað vakti athygli Víkveija í Vínarborg en það voru áminn- ingar til fólks, sem kom í banka, um að vera ekki með nefið ofan í viðskiptum þess, sem afgreiðslu fékk þá stundina. í Bandaríkjunum er þróuð biðraðamenning í bönkum, þannig, að enginn kemur að af- greiðsluborði þá stundina nema sá, sem afgreiðslu fær. Þrátt fyrir það er talið, að ein helzta ástæða fyrir mikilli notkun hraðbanka þar í landi sé sú, að fólk vilji ekki láta af- greiðslufólkið fylgjast með viðskipt- um sínum. Hér á landi er nánast útilokað að stunda bankaviðskipti án þess að gera það fyrir opnum tjöldum vegna þess stóra hóps fólks, sem bíður eftir afgreiðslu og raðar sér fyrir framan afgreiðsluborðið. Þetta er að vísu nokkuð að breyt- ast, t.d. í Landsbankanum vegna nýrra innréttinga. Áminningamar í austurrískum bönkum sýna hins vegar að umtal um þetta er ekki út í hött.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.