Morgunblaðið - 07.06.1986, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 07.06.1986, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ1986 Morgunblaöiö/AP • Marton Esterhazy (lengst til hægri) gerir fyrra mark Ungverja strax á annarri mfnútu leiksins gegn Kanada. Það eru Randy Samuel, varnarmaður Kanada, og markvörðurinn Tino Lotteri sem reyna að varna skotinu. Osannfærandi sigur Brasilíu gegn Aisír LIÐ Brasilíu varð fyrst til að tryggja sér sæti f 16-liða úrslitum á HM þegar það vann Alsír ósannfærandi, 1:0, f gær. Careca skoraði eina mark leiksins á 67. mínútu og þar með hefur Brasilía skorað 2 mörk í 2 leikjum og er með 4 stig. I upphafi leiksins var Sokrates borinn út af í börum eftir að hafa lent í samstuði við leikmann Alsír, en Sokrates kom fljótlega aftur inn á. Edson meiddist einnig í byrjun leiks og kom Faicao inn á fyrir hann. Fátt markvert gerðist í fyrri hálfleik. Brasilía fékk gott mark- tækifæri á 12. mínútu, en Naas- reddine Drid, markvörður Alsír, varði vel skot frá Careca eftir aukaspyrnu, sem Juniortók. Vörn Alsír gerði ein mistök í leiknum og Careca skoraði. Tveim- ur varnarmönnum mistókst að hreinsa frá markinu tiltölulega hættulausa fyrirgjöf varamannsins Muller, og Careca, sem lúrði fyrir aftan þá, átti auðvelt með að skora. Markið kom eins þruma úr heiðskíru lofti, því Alsírmenn höfðu átt í fullu tré við Brasilíumennina. Vörn Alsír var þétt fyrir allan leikinn og sóknarmenn liðsins áttu ágæt- ar rispur. Hetja þeirra í leiknum var þó markvörðurinn Naasredd- ine Drid, sem varði frábærlega. Brasilíumennirnir ollu vonbrigðum. Lítið fór fyrir léttleika og fjöri í leik þeirra og þeir verða að taka sig á ef þeir ætla að komast í úrslit eða undanúrslit keppninnar. Ungverjar bættu sig UNGVERJAR halda enn í vonina um sæti í 16 liða úrslitunum eftir 2:0-sigur yfir Kanadamönnum i C-riðlinum á HM í gær. Allt annar bragur var á leik liðsins í þessum leik en í 0:6-tapinu gegn Sovét- mönnum á dögunum, og þó Kanadamenn berðust af krafti áttu þeirekki möguleika. Marton Esterhazy gerði fyrra mark Ungverja strax á annarri mín- útu leiksins, og greiddi þannig Kanadamönnum samskonar högg og Ungverjar fengu á móti Sovét- mönnum. Eftir markið var jafnræði með liðunum og Kanadamenn náðu annað slagið aö skapa sér þokkaleg marktækifæri, en gekk illaaðvinna úrþeim. í upphafi siðari hálfleiks munaði engu að Esterhazy endurtæki leik- inn frá þeim fyrri, en skot hans á annarri mínútu fór rétt framhjá kanadíska markinu. En Kanada- menn höfðu ekki gefist upp og fengu þrjú ágæt marktækifæri á fjögurra mínútna kafla um miðjan hálfleikinn. En allt kom fyrir ekki og á 76. mínútu gerðu Ungverjar út um leikinn, þegar hinn ágæti miðvallarleikmaður þeirra, Lajos Detari, skoraði laglega. Eftir markið lögðu Ungverjar áherslu á að halda knettinum, en Kanadamenn reyndu að jafna. Leikurinn var mjög fast spilaður eins og aðrir leikir keppninnar, og eftir að síðara markið var skoraö hljóp í hann mikil harka. Þá braut m.a. Mike Sweeney illa á Gyorgy Bognar og þar sam hann hafði í fyrri hálfleik fengið gula spjaldið fyrir álíka brot, sendi dómarinn hann af leikvelli. Mike Sweeney varð því fyrstur leikmanna i heims- meistarakeppninni 1986 til að fá rauða spjaldið. Ungverjar eiga eftir að leika við Frakka í riðlinum, en Kanadamenn við Sovétmenn. Þessi úrslit tryggja Sovétmönnum sæti í 16 liða úrslit- unum, því þó þeir tapi fyrir Kanada- mönnum, þá duga þau þrjú stig sem þeir hafa núna, og hagstætt markahlutfall þeirra, þeim a.m.k. í annað sætið í riðlinum. Piontek áhyggjufullur Frá Gunnari Gunnarssyni, fréttaritara Morgunblaösins í Danmörku. í VIÐTÖLUM viö Piontek, þjálfara danska liðsins í Mexíkó, kemur fram að hann er mjög áhyggjufull- ur fyrir leikinn gegn Uruguay á sunnudaginn og hann segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með dómarana á HM. „Við verðum að vera við ýmsu búnir, sem viðkemur ekki þeirri knattspyrnu sem við viljum leika, en ég vona bara að mínir leikmenn láti það ekki fara í taugarnar á sér og fari að svara í sömu rnynt," sagði Piontek. „Við höfum hvorki efni á að fá fleiri meiðsli eða menn í leikbann vegna þess að þeir hafi fengið gult eða rautt spjald." Dagskrá 49. Sjómannadagsins í ReykjavíT7. og 8. júní 1986 Laugardagur 7. júní: Keppni á seglskútum frá Kópavogi til Reykjavíkur. Kl. 13.00 Forkeppni í kapp- róðri í Reykjavíkurhöfn. Margar sveitir keppa í karla- og kvenna- flokkum. Sunnudagur 8. júní: Kl. 8.00 Fánar dregnir að húni á skipum í Reykjavík. Kl. 11.00 Minningarguðs- þjónusta í Dómkirkjunni í Reykja- vík. Sr. Þórir Stephensen dóm- kirkjuprestur minnist drukknaðra sjómanna og þjónar einnig fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, dómorganista. Skemmtisigling um sundin blá: Kl. 12.30 Skemmtisigling með hvalbátum um sundin við Reykjavík fyrir þá sem keypt hafa merki Sjómannadagsins. Börn yngri en 12 ára þurfa þó að vera í fylgd með fullorðnum. Farið verður frá Faxagarði í Reykjavíkurhöfn. Siglingar hefj- ast kl. 12.30 og síðasta ferð verður farin kl. 15.30. Tveir bátar verða í förum. Sérstök athygli fólks er vakin á því að vera í hlýj- um fötum. Ferðirnar geta fallið niður, ef veður verður mjög s|æmt Útihátídarhöld vid Reykjavíkurhöfn: Kl. 13.30 Félagar í sport- klúbbnum Snarfara sigla bátum sínum inn á Reykjavíkurhöfn. Síð- an sigla seglskútur inn á Reykja- víkurhöfn. Fallhlífarsvif verður í Reykjavíkurhöfn milli kl. 13.00 og 14.00. Kl. 13.30 Lúðrasveii Reykja- víkur leikur létt sjómannalög, stjórnandi er Stefán Þ. Step- hensen. Kl. 14.00 Samkoman sett. Þulur og kynnir dagsins er Hann- es Hafstein framkvæmdastjóri SVFÍ. ÁVÖRP: A: Fulltrúi ríkisstjórnarinnar, Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, í fjarveru sjávar- útvegsráðherra. B: Fulltrúi útgerðarmanna, Valdimar Bragason, útgerðar- stjóri, frá Dalvík. C: Fulltrúi sjómanna, Helgi Lax- dal, formaður Vélstjórafélags ís- lands. D: Garðar Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Sjómannadags- ins, heiðrar aldraða sjómann með heiðursmerki Sjómanna- dagsins. Skemmtanir dagsins: Kl. 14.45 Kappróður í Reykja- víkurhöfn, úrslitakeppni karla- og kvennasveita, sem kepptu í for- keppni á laugardag. Björgunarsýningar: Félagar í björgunarsveit SVFÍ Ingólfi í Reykjavík, sýna meðferð björgunartækja. Einnig munu fé- lagar í Ingólfi verða með ýmsar uppákomur í Reykjavíkurhöfn. Koddaslagur fer fram af ekjubrú Akraborgar. Þátttakendur gefi sig fram á staðnum. Veitingar verða til sölu á hafnar- svæðinu á vegum kvenfélaga sjómannskvenna. Elnnig fer fram sala á merkl dagsins og Sjómannadags- blaðinu 1986. Hrafnista Reykjavík: Kl. 13.00 Opnuð sýning og sala á handavinnu vistfólks í föndursal á 4. hæð C-álmu. Kl. 14.30 Leikur Lúðrasveitar Reykjavíkur við Hrafnistu í Reykjavík. Kaffisala í borð- og samkomusal frá kl. 14.30—-17.00. Allur ágóði rennur til velferðarmál heimilismanna á Hrafnistu í Reykjavík. Hrafnísta Hafnarfiröí: Kl. 10.30 Lúðrasveit Hafnar- fjarðar leikur við Hrafnistu Hafn- arfirði. Kl. 11.00 Sjómannamessa í Kapellu Hrafnistu Hafnarfirði, prestur verður séra Sigurður H. Guðmundsson. Kl. 14.30—17.00 Kaffisala í borð- og samkomusal. Jafnframt verður sýning og sala á handa- vinnu vistfólks. Allur ágóði renn- ur til velferðarmála heimilis- manna Hrafnistu í Hafnarfirði. Ný íbúðarhæð á 5. hæð A-álmu með 13 vistrýmum verður til sýn- is á Sjómannadaginn. Athugið Athugið Kl. 16.30 Afhjúpaður minnisvarði um drukknaða sjómenn, höggmyndin „Björg- un“ eftir Ásmund Sveinsson, á gatnamótum Frostaskjóls og Ægisíðu, sem verzlunin 0. Ellingsen gefur Reykjavík- urborg. Sjómenn athugið: Sjómannahóf verður að Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 8. júní og hefst kl. 19.30. Miðasala og borðapantanir verða á Hótel Sögu laugardaginn 7. júní frá kl. 17.00 til kl. 1 9.00. Sjómannadagurinn í Reykjavík «r

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.