Morgunblaðið - 10.06.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. JÚNÍ 1986
29
Rogers-nefndin lýkur rannsókn
á Challenger-slysinu:
Leggur til gagn-
gerar breytingar
á skipulagi NASA
Washington. AP.
ROGERS-nefndin birti í gær niðurstöður rannsóknar ChaUenger-
slyssins og í skýrslu nefndarinnar til Ronalds Reagan, forseta, eru
lagðar til umfangsmiklar breytingar á skipulagi bandarísku geim-
visindastofnunarinnar, NASA. Niðurstaða nefndarinnar er að orsök
slyssins sé brestur í samskeytum annarrar hliðarflaugar geimfeij-
nnnar.
Nefndin gagnrýnir harðlega
skipulag NASA og einangrun æðstu
manna frá sérfræðingum, sem eru
lægra settir. Hafi skipulag stofnun-
arinnar leitt til þess að boð berast
ekki upp á toppinn og því hafí
æðstu menn stofnunarinnar hvorki
vitað um aðvaranir verk- og tækni-
fræðinga sem lögðust eindregið
gegn geimskoti daginn örlagaríka
né haft vitneskju um álit sérfræð-
inga stofnunarinnar, sem töldu
hönnun hjálparflaugarinnar bjóða
hættum heim.
Nefndin fullyrðir að rangt hafí
verið að skjóta Challenger á loft
og hefði geimskoti eflaust verið
frestað hefðu æðstu menn haft
hugmynd andstöðu eldflaugasér-
fræðinga, sem óttuðust að lítill
lofthiti kynni að hafa áhrif á sam-
skeyti hjálparflauganna.
í skýrslu nefndarinnar segir að
hvorki hafi áhöfn feijunnar eða
þeir sem fylgdust með gangi mála
í stjórnstöð haft minnstu hugmynd
um hvert stefndi. Engar aðvaranir
hafi birst í stjómborðum feijunnar
eða á jörðu niðri og því ekki verið
nein leið til að afstýra stórslysinu.
Nefndin segir að öryggiseftirliti
NASA sé ábótavant og hafí talsverð
slökun átt sér stað í þeim efnum
frá því í Ápollo-áætluninni. Verst
væri ástandið í Marshall-stjómstöð-
inni, sem sinnir áætlun um hjálpar-
flaugamar.
Ein tillaga nefndarinnar er að
hönnun hjálparflaugarinnar verði
breytt og gerðar ítarlegar tilraunir
að endursmíði lokinni, sem hefði í
för með sér að geimfeijan færi
ekki á loft fyrr en eftir jafnvel
nokkur ár. NASA hefur sett sér það
markmið að koma feijunum í gag-
Veður
víða um heim
Lœgst Hœst
Akureyri 3 rigning
Amsterdam 13 21 skýjaö
Aþena 20 31 skýjað
Barcelona 21 mistur
Berlfn 9 20 skýjað
Brussel 10 22 heiðskfrt
Chicago 18 24 skýjað
Dublin 9 17 skýjað
Feneyjar 21 heiðskirt
Frankfurt 8 18 skýjað
Genf 6 19 helðskírt
Helsinki 13 22 heiðskfrt
Hong Kong 24 26 skýjað
Jerúsalem 17 30 heiðskfrt
Kaupmannah. 9 12 skýjað
Las Palmas vantar
Lissabon 14 25 heiðskfrt
London 11 19 skýjað
Los Angeles 16 26 haiðskirt
Lúxemborg 18 skýjað
Malaga 23 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Miami 23 28 rigning
Montreal 18 27 skýjað
Moskva 17 28 skýjað
New York 18 29 heiðskfrt
Osló 8 14 skýjað
Parfs 10 23 heiðskirt
Peking 20 33 heiðskirt
Reykjavík 4 skúr
Rió de Janeiro 13 29 heiðskírt
Rómaborg 10 22 heiðskírt
Stokkhólmur 11 16 skýjað
Sydney vantar
Tókýó 17 27 heiðskírt
Vínarborg 9 17 skýjað
Þórshöfn 8 skýjað
nið á ný í júlí 1987. Leggur nefndin
til að skipuð verði óháð nefnd til
að fylgjast með endurhönnuninni.
Þá leggur nefndin til að yfir-
manni geimfeijuáætlunarinnar,
sem nú er Arnold Aldrich, fái meiri
völd og að stofnuð verði sérstök
öryggisnefnd, sem m.a. sitji í geim-
farar. Einnig verði sett á laggimar
ný öryggisstofnun NASA. Jafn-
framt verði farið ítarlega yfir alla
mikilvægustu og krítfsku þætti og
hluti geimfeijunnar. Loks er lagt
til að hönnun geimfeijunnar verði
endurskoðuð með tilliti til þess að
áhöfnin eigi möguleika á að forða
sér frá borði ef aðstæður krefjast.
Gengi gjaldmiðla
London. AP.
Bandaríkjadollar hækkaði í
verði á gjaldeyrismörkuðum í
Evrópu í dag vegna mikilla doll-
arakaupa spákaupmanna. GuU-
verð hækkaði í London en var
óbreytt í Sviss.
Dollarinn lækkaði í Tókýó
fimmta daginn í röð og fengust
fyrir hann 167,40 jen í gær, miðað
við 167,75 á föstudag. í London
kostaði pundið 1,4985 dollara,
miðað við 1,5065 í gær. Gengi
dollars var annars á þá leið að fyrir
hann fengust: 2,2385 vestur-þýzk
mörk (2,2257), 1,8405 svissneskir
frankar (1,8387), 7,1000 franskir
frankar (óbreytt), 2,5130 hollenzk
gyllini (2,5100), 1.530,50 ítalskar
límr (1.526,50) og 1,3928 kanad-
ískir dollarar (1,3937).
I London kostaði gullúnsan
342,40 dollara, miðað við 341,50 á
föstudag, og í Zurich kostaði hún
341,50 dollara.
t»EIR SEM NOTA 2 BRAUÐ A
DAG, FÁ NÚ GULLIÐ TÆKFÆRI
TIL AÐ SPARA 18.068 KR. Á
ÁRI. ÞAÐ EINA SEM ÞARF AÐ
GERA, ER AÐ KAUPA BRAUÐIN
HJÁ OKKUR, MILLI KL. 17-18
ALLA VIRKA DAGA.
OÆMI:
1 STK. VISITOLUBRAUÐ KR. 37.
1 STK. GRÓFT BRAUÐ KR. 62.
OPIÐ MANUD.
OG LAUGARD.
FÖSTUD. KL. 8-18
SUNNUD. KL. 9-16
SAMTALS: KR. 99.
x 365 DAGAR
KR. 36.135.
AFSLÁTTUR 50%
KR. 18.068.
BAKARÍIÐ
KRINGLAN
DALSHRAUNI 13. HAFNARFIROI
SÍMI 53744
ORYGGISVARSIA
STARF FYRIR PIG?
Ert þú 22—40 ára gamall, heilsugóður, reglusamur og nákvæmur.
Getur þú unnið sjálfstætt eftir ströngum starfsreglum.
Hefur þú áhuga á öryggismálum, ábyrgðartilfinningu, skýra hugsun og
lipra framkomu.
Vilt þú framtíðarstarf sem gerir miklar kröfur til þín og gefur laun í
samræmi við það?
Ef svo er viljum við heyra frá þér. Skrifaðu okkur eigin hendi og láttu
sakavottorð fylgja.
m/
VARI ÖRYCGISÞJÓNUSTA
Pósthólf 1101
121 Reykjavik
Alm auglst/SlA