Morgunblaðið - 10.06.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10.JÚNÍ 1986
37
Akureyri:
aldarafmælí KEA
KAUPFÉLAG Eyfirðinga á 100 ára afmæli 19. þessa mánaðar
en það var stofnað 19. júní 1886 að Grund í Eyjafirði af nokkrum
bændum. Starfsemin var smá i sniðum í upphafi en stofnun
fyrstu samvinnuslubúðarinnar árið 1906 lagði grundvöllinn að
framtíðinni. KEA er nú öflugasta og umsvifamesta kaupfélag
landsins og veitir yfir 1000 manns atvinnu. Nú rekur KEA tvo
tugi verslana á Akureyri og öðrum byggðum Eyjafjarðar og félag-
ið sinnir einnig vinnslu og sölu landbúnaðar- og sjávarafurða,
útgerð, ýmiss konar iðnaði og þjónustu.
Mikið verður um að vera á Aðalfundur KEA verður haldinn
vera
Akureyri í kringum aldarafmælið
og þess má geta að vinna verður
felld niður hjá KEA á afmælis-
daginn. „Það taka sér allir fri sem
eiga hundrað ára afmæli - það
er augljóst!" sagði Valur Am-
þórsson, kaupfélagsstjóri, á blaða-
mannafundi þar sem dagskrá
vegna afmælisins var kynnt.
Píanótónleikar
á Akureyrí 1 kvöld:
Martin
Berkofsky
og Anna
Málfríð-
ur leika
Akureyri,
Píanóleikaramir Martin
Berkofsky og Anna Málfríður
Sigurðardóttir halda tónleika í
sal Tónlistarskólans í kvöld og
hefjast þeir kl. 20.30.
A fyrri hluta tónleikanna leika
þau píanóverk fyrir fjórar hendur
eftir Franz Schubert og á meðal
þeirra er „fantasía" sem Schubert
samdi 13 ára að aldri og er það
fyrsta verkið sem hann samdi
fyrir fjórar hendur.
Eftir hlé lekur Martin Berkof-
sky eitt stórbrotnasta og um leið
fegursta verk sem samið hefur
verið fyrir píanó, en það er h-moll
sónatan eftir Franz Liszt.
Anna Málfríður kenndi píanó-
leik við Tónlistarskólann á Akur-
eyri um árabil og hefur leikið á
fjölmörgum. tónleikum, bæði sem
einleikari og í samleik með öðrum.
Martin Berkofsky er tónlistarunn-
endum að góðu kunnur og hefur
hann haldið tónleika við mikla
hrifningu og lofsamlega dóma
víða um heim. Hann hefur veið
leiðbeinandi á sumamámskeiðum
við Tónlistarskólann á Akureyri,
og stendur einmit eitt slíkt jrfír
þessa dagana, með þátttöku
píanónemenda víða af landinu.
Tónleikamir í kvöld eru haldnir
til Qáröflunar fyrir píanónám-
skeiðið.
18. júní í Samkomuhúsi bæjarins
og stendur í einn dag. Hann hefur
venjulega verið í maí en var seink-
að vegna afmælisins. Hátíðar-
fundur verður svo þann 19. júní
við Mjólkursamlag KEA og hefst
hann kl. 13.30. Að lokinni setn-
ingu fundarins verður helgiathöfn
í umsjá Sigurðar Guðmundssonar
vígslubiskups, en þá mun Hjörtur
E. Þórarinsson, stjómarformaður
KEA, flytja hátíðarræðu. Nokkur
ávörp verða flutt og ýmiss
skemmtiatriði. Á þessum fundi
verður stærsta listaverk landsins,
Auðhumla og mjaltastúlkan eftir
Ragnar Kjartansson, afhjúpað. í
lok fundarins verður öllum við-
stöddum boðið upp á léttar veit-
ingar í móttökusal Mjólkursam-
lagsins. Hátíðarfundurinn er öll-
um opinn.
Til að minnast afmælisins hafa
forráðamenn KEA ákveðið að
bjóða öllum starfsmönnum félags-
ins og mökum þeirra til veislu í
íþróttahöllinni. Einnig hefur verið
boðið þangað aðalfundarfulltrúum
KEA ásamt mökum auk annarra
gesta. Þá hefur ellilífeyrisþegum,
fyrrnrn starfsmönnum KEÁ, verið
boðið í veisluna ásamt mökum.
Sökum mikils fjölda reyndist
nauðsynlegt að skipta kvöldverð-
argestum í tvo hópa. Sá fyrri
kemur í höllina að kvöldi 19. júní
en sá seinni kvöldið eftir. Gert er
ráð fyrir að alls verði um- 100
gestir í höllinni hvort kvöld. Ýmis-
legt verður þar til skemmtunar.
Páll Jóhannesson syngur við
undirleik Ólafs Vignis Álbertsson-
ar, strengjasveit úr Tónlistarskól-
anum skemmtir og karlakór syng-
ur. Hótel KEA annast veitingar
en starfsmenn félagsins hafa að
öllu ieyti séð um undirbúning
afmælisins.
Að kvöldi 21. júní verða svo
tónleikar í Iþróttahöllinni fyrir
ungu kynslóðina. Þar leikur
hljómsveitin Rikshaw.
Formaður afmælisnefndar
KEA er Sigurður Jóhannesson
aðalfulltrúi.
SéséT *
■ í
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri og Sigurður Jóhannesson,
formaður afmælisnefndar með 100 ára afmælisfánann á milli sín
fyrir framan aðalskrifstofu KEA. Með þeim er Áskell Þórisson,
blaðafulltrúi KEA, sem er i afmælisnefndinni.
Birkir Skarphéðinsson, formaður Kaupmannafélags Akureyrar:
Höfum óskað rýmri af-
greiðslutíma til reynslu
„VIÐ ERUM búnir að ræða þetta nú í vor í stjóm félagsins. Það
er ljóst að það þarf að hrista upp i bæjarfélaginu en mér líst
ekki á að hafa opið á laugardögum og lokað einhvern annan dag
í staðinn. Ég held að það fengist aldrei samþykkt hjá launþegum,"
sagði Birkir Skarphéðinsson, formaður Kaupamannafélags Akur-
eyrar, er Morgunblaðið bar undir hann hugmyndir Sigfúsar Jóns-
sonar verðandi bæjarstjóra á Akureyri í laugardagsblaðinu.
Sigfús kom með þá hugmynd inu. Hann sagði að í staðinn gætu
að verslanir á Akureyri yrðu opnar
á laugardögum, eins og virka
daga, allt árið um kring þannig
að laugardagur gæti orðið versl-
unardagur - í þeim tilgangi að
laða til bæjarins fólk úr nágrenn-
verslanir hugsanlega haft lokað
einhvem virkan dag.
Birkir Skarphéðinsson sagði að
Kaupmannafélagið hefði ritað
bæjarstjóm bréf á dögunum þar
sem þær hugmyndir voru reifaðar
að opnunartími verslana á laugar-
dögum yrði fymkaður. „Við ósk-
uðum eftir því að fá fijálsari
opnunartíma í eitt ár til reynslu.
Við höfum ekki mótað endanlega
hvemig það yrði en höfum gælt
við að hafa opið lengur á laugar-
dögum og emm þá fyrst og fremst
með sumarið í huga.“
Matvöruverslanir á Akureyri
em lokaðar á laugardögum yflr
sumartímann, frá því snemma í
júní og fram í ágúst. Flestar
smærri verslanir em hins vegar
Kristján
syng-
ur fyrir
KEA-félaga
AJkureyri.
KRISTJÁN Jóhannsson óperu-
söngvari mun halda konsert
fyrir félagsmenn Kaupfélags
Eyf irðinga í haust - væntanlega
í október - í tilefni aldarafmælis
fyrirtækisins 19. þessa mánaðar.
Að sögn Vals Amþórssonar,
kaupfélagsstjóra, var áhugi á að
fá Kristján til að syngja nú en sem
kunnugt er væri hann upptekinn
við störf í New York.
opnar á laugardagsmorgnum og
líkur em á, að sögn Birkis, að
verslanir í miðbænum taki sig
saman og hafí opið til kl. 13 á
laugardögum í sumar í stað 12
áður.
Birkir sagðist vonast til að fá
svar frá bæjarstjóm fljótlega - og
sagðist bjartsýnn á að nýja bæjar-
stjómin myndi leyfa frjálsari
opnunartíma en verið. „Ég veit
að kratamir hafa viðrað hug-
myndir um að Kaupmannafélagið
réði opnunartímanum - að bæjar-
stjóm ætti ekki að vera með
puttana í því máli og því emm
við alveg sammála," sagði Birkir.
Akureyri.
2000. bæjarráðsfundurinn á Akureyri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrfmsson
Bæjarráð Akureyrar hélt sinn
2000. fund frá upphafi á föstu-
dag. Af því tilefni smellti blaða-
maður Morgunblaðsins rnynd
af þeim er sátu fundinn. Þau
eru, frá vinstri: Freyr Ófeigs-
son (A), Sigríður Stefánsdóttir
(Abl.), Valgerður H. Bjarna-
dóttir (Kv.), Hreinn Pálsson
bæjarlögmaður, Valgarður
Baldvinsson bæjarritari, Helgi
M. Bergs bæjarstjóri, Stefán
Stefánsson bæjarverkfræðing-
ur, Sigurður Jóhannesson (F),
Sigurður J. Sigurðsson (S) og
Gunnar Ragnars (S).
Þór-IBV í kvöld:
Leikið
ámöl
LEIKUR Þórs og ÍBV 11. deild-
inni I knattspymu verður ekki
á aðalleikvangi bæjarins i kvöld
eins ogtil stóð.
Völlurinn er orðinn nokkuð góður,
grænn og fallegur eftir gott veður
undanfarið, en 5 gær var mjög
kalt, rigning og meira að segja
hrið um stund, þannig að völlurinn
er ekki í nægilega góðu ástandi.
Allar líkur em á því að i kvöld
verði því leikið á malarvelli Þórs!
Grasvöllur Þórs kom illa undan
vetrinum og er I slæmi ástandi
eftir leikinn við KR á föstudaginn
og verður að fá tíma til að gróa
aftur. Menn verða því að gera sér
mölina að góðu á nýjan leik -
„eini möguleikinn til að svo verði
ekki er að ófært verði frá Vest-
mannaeyjum!" eins og einn Þórs-
arinn sagði í gær.
Mikið um að vera á