Morgunblaðið - 12.06.1986, Page 4

Morgunblaðið - 12.06.1986, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMÍlTUDAGUR 12. JÚNÍ1986 Þjóðhagsstofnun um atvinnuástandið: Verulega minní eftir- spurn eftir verkafólki DREGIÐ hefur úr þenslu á vinnumarkaðinum frá því í fyrra og- þá einkum i Reykjavík og nágrenni, að því er fram kemur í könnun Þjóðhagsstofnunar á fyrri helmingi þessa árs og horf- um á síðari hluta þess. Einkum hefur eftirspum eftir verkafólki minnkað verulega og í Reykjavík og nágrenni virðast fyrirtæki fremur vilja fækka verkafólki en bæta við, samkvæmt könnun- inni. Eftirspura eftir iðnaðar- mönnum er svipuð og í fyrra og óverulegur skortur virðist á afgreiðsiu- og skrifstofufólki. I greinargerð Þjóðhagsstofnunar með könnuninni kemur fram að líkt og í fyrri könnunum megi rekja þann skort á verkafólki sem könn- unin nú leiði í ljós, að stærstum hluta til fískvinnslu. Þær breytingar hafa þó orðið á frá í fyrra að skort- ur á fólki til fískvinnslu er nú nær eingöngu utan Reykjavíkur. Varð- andi eftirspum eftir iðnaðarmönn- um leiðir könnunin í ljós að hún er mest innan málm- og skipasmíða, sem Þjóðhagsstofnun segir að gefí til kynna vaxandi umsvif í þeirri grein, ólíkt því sem var sl. haust, þegar vart hafí orðið verkefna- skorts. Þjóðhagsstofnun segir að vís- bendingar frá fyrirtækjum um fjölda starfsmanna í sumar og haust séu líkar því sem við er að búast á þessum árstíma og að ekki sé að sjá að umtalsverðar breytingar verði á vinnumarkaði á næstunni. Fram kemur að bæði nú og í fyrra hafí á þessum tíma verið að jaftiaði um 800 manns skráðir atvinnulaus- ir á landinu öllu. Morgunblaðið/Einar Falur Páll Sigurðsson dósent, Sigmundur Guðbjaraarson háskólarektor og Þórir Kr. Þórðarson prófessor. Háskóli íslands 75 ára á þjóðhátíðardaginn: Hátíðarhöld og kynning á starfi Háskólans í haust Lánasjóður íslenzkra námsmanna: Samkomulag á milli ráðherra og fyrrum framkvæmdastj óra SAMKOMULAG hefur náðst milli menntamálaráðuneytísins og Sigur- jóns Valdimarssonar um bætur til handa Siguijóni, en honum var vikið úr starfi framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenzkra námsmanna í upphafi þessa árs. Ekki kemur til málshöfðunar á hendur ríkissjóði vegna þessa eins og boðað hafði verið, segir í frétt frá menntamála- ráðuneytinu, sem birtíst í heild hér á eftir: Að undanfömu hafa farið fram viðræður milli Siguijóns Valdimars- sonar, fyrrom framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna annars vegar og fulltrúa mennta- málaráðherra og fjármálaráðherra hins vegar vegna brottvikningar Siguijóns úr starfí hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna í janúar sl. Samkomulag hefur náðst milli aðila um bætur til handa Siguijóni og mun því ekki koma til málshöfðunar á hendur ríkissjóði af þessum sök- um svo sem boðað hafði verið. Við ákvörðun bóta hefur verið höfð hliðsjón af niðurstöðu dómstóla í málum sem áður hafa gengið vegna brottvikningar ríkisstarfsmanns úr starfí. Menntamálaráðherra hefur áður lýst yfír þeim vilja sínum að þetta mál beri að leysa með samkomulagi. Með hliðsjón af því hefur verið talið rétt að ganga til samkomulags í málinu, þótt aðilar séu eftir sem áður ósammála um það, hvort bóta- skylda sé fyrir hendi að lögum, ef á það mjmdi reyna fyrir dómstólum. Af hálfu menntamálaráðherra er það hins vegar áréttað, að í ummæl- um hans um störf Siguijóns Vald- imarssonar hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna hafí ekki falist nein ásökun um að Siguijón hafí ekki gætt heiðarleika í embættisfærslu sinni. Jafnframt er Ijóst að starfs- menn Lánasjóðsins hafa að mörgu leyti unnið við erfíðar aðstæður á síðustu árom, meðan starfsemi sjóðsins hefur þanist út vegna breyttrar löggjafar sem m.a. hefur leitt til fjölgunar lánþega. HÁSKÓLI íslands á 75 ára af- mæli 17. júní nk., þjóðhátíðar- daginn. Ákveðið hefur verið að minnast þessara tímamóta á ýmsa vegu, er kennsla hefst á ný að haustí komanda. Liður i þvi er hátiðarsamkoma í Há- skólabíói hinn 4. október, þar sem nokkrir heiðursdoktorar verða útnefndir. Sigmundur Guðbjamarson, há- skólarektor, Þórir Kr. Þórðarson, prófessor, formaður afmælisneftid- ar, og Páll Sigurðsson, dósent, sem hefur framkvæmdastjóm afmælis- ins með höndum, kynntu blaða- mönnum hin fyrirhuguðu hátíðar- höld á fundi sl. miðvikudag. Þar kom fram, að aðra helgina í október mun Háskólinn gangast fyrir „opnu húsi“, þ.e. almenningi verður boðið að skoða allar byggingar skólans undir leiðsögn kennara og stúdenta. Af því tilefni verður bryddað á ýmsu í húsakynnunum, s.s. fyrirlestrom og sýningum. Sérstök rit verða gefín út vegna afmælisins eða sem tileinkuð verða þessum tfmamótum í sögu Háskól- ans. Má þar m.a. nefna sérstakt afmælisrit með safni greina um starfsemi stofnunarinnar, sem verða mun fyrsta tölublað nýs tíma- rits, sem Háskólinn mun setja á stofn. Bók verður gefín út um hús- næðis- og byggingarsögu Háskól- ans hina fyrstu áratugi starfsemi hans og Stofnun Áma Magnússon- ar mun væntanlega minnast af- mælisins með sérstökum hætti. Gert er ráð fyrir því, að nokkrir kunnir vísindamenn, íslenskir sem erlendir, muni flytja erindi í tengsl- um við hátíðarhöldin. Háskólinn mun sýna kynnis- og heimilda- myndir, er hann hefur látið gera um núverandi starfsemi Háskólans og um sögu hans og gerður hefur verið sérstakur háskólafáni, sem dreginn verður að húni 4. október nk. Þess má geta, að Háskóli íslands var settur í fyrsta sinn 17. júní 1911 , á aldarafmæli Jóns Sigurðs- sonar forseta. Setningarathöfnin fór fram í sal Neðri deildar Alþingis í Alþingishúsinu. Kennsla hófst um haustið 1911. Nýr ritstjóri á Þjóðviljann: Blaðamenn andvígir ráðningu Svavars — útgáfustjórn tekur ákvörðun á mánudaginn BLAÐAMENN ÞjóðvUjans funda í dag um framtíð sina og blaðs- ins, eða með öðram orðum hvort tíl fjöldauppsagna þeirra kemur, verði niðurstaða fyrsta fundar nýkjörinnar útgáfustjórnar Þjóð- viljans nk. mánudag að ráða Svavar Gestsson formann Alþýðu- bandalagsins sem ritstjóra blaðsins við hlið þeirra Össurar Skarp- héðinssonar og Árna Bergmann. Öruggt er talið að meirihlutí útgáfustjórnar Þjóðviljans geri tillögu um ráðningu formannsins á fundinum. Jafnöruggt er talið að Svavar muni í dag eða á morgun greina útgáfustjórninni til starfans. Mikill hiti hefur verið innan Alþýðubandalagsins síðustu daga, eftir að ljóst varð að sjö af ellefu mönnum í útgáfustjórn Þjóðvilj- ans vilja gera formanninn að rit- stjóra blaðsins. Þeir sem tilheyra þeim hópi ero: Adda Bára Sigfús- dóttir, Álfheiður Ingadóttir, Ragnar Ámason, Helgi Guð- mundsson, Siguijón Pétursson, Úlfar Þormóðsson og að lokum sjálfur formaðurinn Svavar Gests- son. Þessir sjömenningar tilheyra þeim armi Alþýðubandalagsins sem að undanfömu hefur verið kenndur við „flokkseigenduma". Þeir sem andvígir ero ráðningu Svavars, tilheyra þeim armi flokksins sem kenndur er við „lýð- ræðisafl" flokksins. Þeir ero: Olaf- ur Ragnar Grímsson, Kristín Á. Ólafsdóttir, Mörður Ámason og frá þvi að hann sé reiðubúinn Olga Guðrún Amadóttir. Auk þess er talið að þorri ritstjómar Þjóð- viljans sé andvígur slíkri ráðstöf- un. Blaðamenn ráða ráð- um sínum í dag Blaðamenn Þjóðviljans hyggj- ast ráða ráðum sínum f dag, og samræma til hvaða aðgerða þeir grípa, verði af umræddri ráðn- ingu. Heimildir Morgunblaðsins herma að yfírvofandi séu upp- sagnir fjölda ritstjómarmanna, verði Svavar ráðinn sem ritstjóri. Einn blaðamaður Þjóðviljans sagði í samtali við Morgunblaðið í gær: „Við sem höfum unnið að uppbyggingu Þjóðviljans undan- farin ár, getum að sjálfsögðu ekki sætt okkur við að horfíð verði héðinsson Gestsson aftur til fortíðarinnar, hvað rit- stjómarstefnu blaðsins varðar, en það teljum við óumflýjanlegt, verði Svavar ráðinn sem ritstjóri.“ Nokkur óvissa ríkir um það hvað Össur Skarphéðinsson rit- stjóri hyggst gera, verði Svavar ráðinn. Telja heimildarmenn, að honum sé í raun ekki stætt á öðru en segja lausu starfi sínu. Össur hefur engar yfírlýsingar gefíð um hvað hann hyggst gera, né hefur hann reifað sín sjónarmið við starfsmenn ritstjómar. Er talið, að hann vilji ekki hafa nein áhrif á það til hvaða ráðstafana blaðamenn gripa. Ekki tókst í gær að ná sambandi við Össur til þess að spyija hann um hans afstöðu til þessa máls. Sömu sögu er að segja af Svavari Gestssyni, for- manni Alþýðubandalagsins. „ Veit ekki um neinn meirihluta“ Álfheiður Ingadóttir var í gær spurð hvort vilji væri fyrir ráðn- ingu Svavars hjá meirihluta út- gáfustjómar Þjóðviljans: „Það veit ég ekki. Eg veit ekki um þann meirihluta, eða hvort það er einhver meirihluti og minnihluti þar, hvorki í þessu máli né öðrom. Ég tala ekki fyrir hönd eins eða neins. Ég tala bara fyrir sjálfa mig. Ég get fyililega tekið undir orð Úlfars Þormóðssonar, þess efnis að ef Þjóðviljanum stendur til boða að fá slíkan starfskraft sem Svavar Gestsson sem ritstjóra þá fyndist mér það síður en svo fráleitt," sagði Álfheiður. Álfheiður var spurð hvort hún teldi ekki að ráðning flokksfor- mannsins í ritsljórastól Þjóðvilj- ans myndi boða upplausn og uppsagnir á ritstjóm Þjóðviljans: „Það get ég ekki ímyndað mér,“ sagði Alfheiður, „það er ekki eins og verið sé að ráða þama utanað- komandi mann, heldur er þama fyrst og fremst um að ræða fag- mann í blaðamennsku og ritstjóm. Það er það sem skiptir höfuðmáli. Ég sé alveg þörfína fyrir að fjölga á ritstjóm Þjóðviljans og ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar". „Gætir þeirrar við- leitni að vilja fresta framtíðinni“ Óskar Guðmundsson, ritstjóm- arfulltrúi Þjóðviljans var í gær spurður álits á þessu máli: „Meðal nokkurra mjög valdamikilla að- standenda Þjóðviljans hefur gætt þeirrar viðleitni að vilja fresta framtíðinni. Þetta á ekki síst við um afstöðuna til fjölmiðla. Þessa viðhorfs gætir einnig víðar. Fyrst að Kiddi Finnboga og Alfreð Þorsteinsson áttu „come-back“ á Tímanum, hví skyldi Svavar Gestsson ekki eiga „come-back“ á Þjóð’viljanum. Annars held ég að Ásmundur Stefánsson græði ekkert á ritstjómarfulltrúa inni á Þjóðviljanum." Einn talsmaður meirihluta út- gáfustjómarinnar ságði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær að það lægi ljóst fyrir að vilji meirihluta útgáfustjómarinnar væri að ráða Svavar sem ritstjóra að Þjóðviljanum. Það mætti segja að málið væri frágengið, þó svo að enn hefði formlegt svar for- mannsins ekki borist. Hann sagði að rangt væri að líta á þessa ráðn- ingu sem aðför að Össuri, því hér væri einungis verið að fylla það skarð sem myndast hefði, þegar Kjartan Ólafsson hætti sem rit- stjóri fyrir nokkrum misserum. Hér væri fyrst og fremst verið að hugsa um að styrkja þá heild sem héti „flokkur - blað“. Kvaðst hann ekki óttast að Össur myndi hætta sem ritstjóri, þó svo að Svavar væri ráðinn. Slíkt væri af og frá. Hann kvaðst þó telja að einhveijir blaðamenn Þjóðviljans myndu hætta, í kjölfar ráðningar Svavars, en það væro blaðamenn sem hvort eð er hefðu verið famir að hugsa sér til hreyf- ings.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.