Morgunblaðið - 12.06.1986, Síða 16

Morgunblaðið - 12.06.1986, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. JÚNl 1986 HUGLEIÐINGAR UM FERSKAN FISK eftír Ásmund R. Richardsson íslenskur ferskfiskur hefur nú í nokkur ár verið sendur utan á er- lenda uppboðsmarkaði, aðallega í Englandi. Um allmikið magn er að ræða og hefur þessi útflutningur aukist verulega, sérstaklega sl. ár, á sama tíma og ísfiskur úr skipi seldur erlendis hefur nokkum veg- inn staðið í stað í magni. Svokallaður gámafískur, sem að vemlegu leyti kemur frá minni bát- um sem að öllu jöfnu hafa ekki haft tækifæri til að nýta sér erlenda uppboðsmarkaði, hefur að sögn út- flytjenda mikið farið í 1. og 2. gæðaflokk. Nú er vitað að flutning- ur þessa fisks hefur verið í óein- angmðum og/eða illa einangmðum gámum alla vega á litinn, m.a. blá- um og rauðum, en þessir litir draga til sín hita. Fiskurinn er víðsvegar að af landinu og er ansi gamall „ferskur fískur" þegar á markað er komið, en siglingartími frá Reykjavík til Englands er um um 4 dagar. Ef fiskurinn kemur frá landshlutum, t.d. Austflörðum, Norðurlandi eða Vestfjörðum, getur það komið fyrir að fiskur hafi verið í gám í allt að 6 daga áður en hann kemst um borð í skip til Englands. „Ferski fiskurinn" sem seldur er erlendis er þá 5—14 daga gamall þegar hann kemur á uppboð. Fyrir kemur að fiskur úr einum gám sé ekki allur seldur á sama uppboði, heldur taki það 2—3 daga að selja fískinn vegna lélegra gæða og er jafnvel einhveiju hent. Síðan þessi útflutningur hófst hafa menn verið að læra rétt vinnu- ÁsmundurR. Richardsson „Það er einlæg trú mín að ef menn almennt hættu að hugsa í magni og byrjuðu að hugsa um gæði fengist betra verð en nú fæst á uppboðs- mörkuðum.“ brögð varðandi alla meðferð og frá- gang, um borð í veiðiskipi og í gám, og má segja að menn séu smátt og smátt að átta sig á þeirri stað- reynd að það er ekki bara fiskur sem verið er að setja í gám, heldur fullunnin matvara. Verðmæti sem þarf að fara vel með. Sést þetta best á því að einstaka menn hafa alltaf toppsölur utan og hafa þeir þá aðlagað sig betur en aðrir að þeim kröfum sem markað- amir gera, svo og að þeim tækjum og leiðum sem standa opnar í þess- um útflutningi. Einnig má í þessu sambandi benda á sérhannaða gáma, vel ein- angraða og hvíta á litinn sem Eimskipafélag íslands hefur nýlega tekið í notkun og bætir það mikið úr hvað flutning varðar og gefur mönnum betra tækifæri en áður að skila gæðafisk á markaði. Það má kannski segja að lágt verð á fiski hér innanlands hafi brenglað verðmætamat manna og tafið fyrir þeirri þróun að litið sé á fisk sem verðmæti sem fara á var- lega með. Hér á landi hefur meira verið hugsað um hann sem hráefni til frekari vinnslu en viðkvæma matvöru og má hugsa sér það sé afleiðing lítillar samkeppni hér innanlands samanborið við þá samkeppni sem menn búa við er- lendis. Meðal skilaverð erlendis hefur verið á bilinu kr. 30—50 per kg. samanborið við kr. 15—20 per kg. hér heima. En verðið hérlendis hækkaði með nýju fiskverði og breytingu á sjóðakerfí nú nýlega, og er lfklega á milii kr. 20—30 per kg. í dag. Ruslfiskur svokallaður, þ.e. tegundir sem frystihúsin hér vilja ekki fá, er seldur fyrir ágætan pening erlendis í talsverðum mæli og lengir útiverutíma bátanna, þar sem hann er utan kvóta. Hitt er annað, að markaðir er- lendis eru mjög mismunandi og kröfur þeirra til frágangs mismikl- ar. Fram að þessu hefur aðalmark- aður fyrir „gámafisk" verið í Eng- landi, en físks er neytt víðar í Evrópu og ótaldir möguleikar á sölum ókannaðir. Til þess að vinna nýja markaði þarf að kynna sér þær kröfur sem þar eru gerðar, áður en farið er af stað, því ef slæmt orð fer af íslenskum fiski á nýjum markaði í byijun, getur reynst erfitt að breyta því áliti. Á þessu sviði, eins og á öllum öðrum, ætti það að vera hlutverk útflytjandans, tengiliðar sjómanns- ins við markaðina, að leiðbeina með frágang og tegundarval inn á hina mismunandi markaði. Einungis með góðri samvinnu þessara aðila, svo og flutningsaðila, er hægt að fá hæsta mögulegt verð, sem eðli málsins samkvæmt ætti að vera hagur allra aðila. Því miður virðist þessu ábótavant í dag ef marka má fréttir bæði frá Englandi nú nýlega og Þýskalandi fyrr í vetur, þar sem íslenski fiskur- inn fær almennt ekki háar einkunn- ir né gott verð miðað við aðstæður erlendis. Verðið er hátt miðað við íslenskar aðstæður, en slíkur sam- anburður á sér engan grundvöll í raunveruleikanum. Mín eigin reynsla af þessum málum, samtöl við kaupendur er- lendis og ferðir á markaði, stað- festir því miður þá hryggilegu stað- reynd, að almennt er markaðskönn- un í lágmarki, óskir markaða um frágang ekki virtar né möguleikar til hærra verðs nýttir. Það er einlæg trú mín að ef menn almennt hættu að hugsa í magni og byijuðu að hugsa um gæði, fengist betra verð en nú fæst á uppboðsmörkuðum. Til þess að svo megi verða þurfa menn að hætta að hugsa um fisk sem fisk og byija að hugsa um fisk sem vöru til manneldis, viðkvæma en verðmæta. Höfundur sér um útflutning hjá Ólafi Gíslasyni & Co hf. Hér sérðu tvo vinsæla furustóla — Windsor og og París, sem eru stofuprýði. Hjá okkur sérðu lang- stærsta úrval landsins af furuhús- gögnum á hagstæðu verði. WINDSOR 3.&60 m húsgagna-höllin ini.'Tn'.'IV'l BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410 Morgunblaðið/Einar Falur Olafur Orn Haraldsson aðstoðarforstjóri Útsýnar ásamt Axel Christ- ensen sölustjóri hjá Tjæreborg. Aukið samstarf Út- sýnar og Tjæreborg Ferðaskrifstofan Útsýn hefur undirritað samninga um áfram- haldandi samstarf við dönsku ferðaskrifstofuna Tjæreborg og gerir samningurinn ráð fyrir auknu samstarfi ferðaskrifstofanna. Utsyn getur nú boðið fleiri ferðir með Tjæreborg og meðal nýjunga má nefna samstarf um ferðir seldar frá Kaupmannahöfn til Islands og Grænlands. Axel Christensen sölustjóri hjá Tjæreborg kom hingað til samn- ingaviðræðna og sagði hann að ís- lendingum stæðu nú til boða ferðir með Útsýn-Tjæreborg til íjarlægari staða svo sem Mexíkó, Kenýa, Austurlanda fjær, Afríku og fleiri staða. Samstarfið nær til fleiri landa en Danmerkur, hægt verður að kaupa Tjæreborgarferðir t.d. í Bretlandi. Þá verður samstarf um svokallaðar snjóferðir, skíðaferðir Tjæreborg til Alpannna, og meðal nýjunga má nefna að farþegum býðst ódýrara fargjald með því að ferðast með rútu frá Kaupmanna- höfn. I undirbúningi er samvinna milli Útsýnar og Tjæreborg um Grænlandsferðir, þeir sem kaupa ferð til íslands og Grænlands geta ýmist verið á íslandi eða Grænlandi allan tímann, eða verið hluta ferðar- innar á íslandi og hluta á Græn- landi, og mun Útsýn sjá um innan- landsferðir farþeganna. Þá gerir þessi aukna samvinna ráð fyrir að Útsýn geti selt ódýrar Tj'æreborgar- ferðir, sem selt er í með nokkurra daga fyrirvara ef einhver sæti eru laus í hópferðum, en fram að þessu hafa slíkar ferðir ekki verið seldar hér á landi. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Ármann Reynisson afhendir Mist Þorkelsdóttur, tónskáldi, viður- kenningu sjóðsins, 150 þúsund krónur. Tónlistarsjóður Armanns Reynissonar: Mist Þorkelsdóttir fær viðurkenningu til að semja óperu ÚTHLUTUN ÚR tónlistarsjóði Ármanns Reynissonar fór fram í gær og að þessu sinni hlaut Mist Þorkelsdóttir, tónskáld, viðurkenningu sjóðsins, að upphæð 150 þúsund krónur. Úthlutun viðurkenningarinnar fór fram á heimili Ármanns Reynis- sonar og sagði hann við það tæki- færi að margar umsóknir og snjallar hugmyndir um listræna sköpun hefðu borist sjóðnum að þessu sinni en sjóðurinn hefði ákveðið að út- hluta Mist úr sjóðnum og með því leggja áherslu á gildi frumsköpunar í tónmenningu okkar, en Mist hefur áformað að semja óperu sem ein- göngu verður flutt af bömum. Aðspurð að því hvort hún hefði fengist við að semja ópemr áður sagði Mist að svo væri ekki, en hins vegar hefði hún í námi sínu úti í Bandaríkjunum fengist talsvert við að kynna sér baraaleikhús og hvemig mætti virkja böm til frekari þátttöku I leiklist og tónlist. Sagðist hún hafa fengið hugmyndina að samningu þessarar ópem fyrir um það bil tveimur ámm og væri fyrir- hugað að bamakór Kársnesskóla flytti ópemna þegar þar að kæmi. Mist sagði að verkefni sem þetta gæti verið vel til þess fallið að glæða tónlistaráhuga bama jafnframt því sem uppsetning verka af þessu tagi gæti orðið tónlistarkennslu í skólum til mikillar eflingar og gert hana meira lifandi. Aðspurð um efni ópemnnar sagði Mist að ekki væri gengið út frá neinni vel þekktri sögu en hins vegar væm persónumar tröll og álfar og aðrir þjóðsögulegir vættir sem flestir ættu að kannast við á einhvem hátt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.