Morgunblaðið - 12.06.1986, Page 25

Morgunblaðið - 12.06.1986, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1986 25 Sjómannadagurinn lög- bundinn frídagur sjálfsagt réttlætismál eftirÁrna Johnsen Það er undarleg árátta hjá þing- mönnum Alþýðuflokksins að í hvert skipti sem hreyft er einhverju þjóð- félagsmáli af öðrum en þeim, þá reka þeir upp ramakvein eins og verið sé að stela af þeim ærunni. I Morgunblaðinu 10. júní sl. stekkur Eiður Guðnason alþingismaður eina ferðina enn upp á nef sér og óskap- ast yfír frétt í Morgunblaðinu frá 7. júní sl. þar sem sagt er að undir- ritaður hafi farið þess á leit við Guðjón A. Kristjánsson, formann Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands, og Óskar Vigfússon, formann Sjómannasambands ís- lands, að þeir létu vinna álitsgerð sem gæti verið grunnur að ákvörð- un um lögbundinn frídag sjómanna. Slík beiðni hefur ekki fyrr komið til þessa samtaka, en eini tilgangur minn er að stuðla að því að þetta mál nái höfn: Mér finnst eðlilegast að sjávarútvegsráðherra flytji frumvarp um lögbindingu sjó- mannadagsins sem frídags, en hver sem flytur þetta mál áleiðis til afgreiðslu þá mun álitsgerð sam- taka sjómanna, sem ég hef beðið um, flýta fyrir og stuðla að af- greiðslu málsins. Að sjálfsögðu hafa formenn sjómannasambandanna tekið vel í máialeitan mína, en flikk flakk Eiðs Guðnasonar kemur svo sem ekkert á óvart. Eiður flutti ásamt Karli Steinari Guðnasyni frumvarp um frídag sjó- manna á síðasta þingi, undir lokin, en slík fljótaskrift var á frumvarp- inu að segja má að það hafi verið út í hött. Frumvarpið var hvorki lengra né skemmra en hér skal greint: „1. grein. Fýrsti sunnudagur í júní- mánuði ár hvert skal vera almennur frídagur íslenskra sjómanna. 2. grein. Lög þessi öðlast þegar gildi." í fyrsta lagi þá getur sjómanna- dagurinn ekki alltaf verið fyrsta sunnudag í júní vegna þess að hvíta- Sunnu ber stundum upp á þann dag og það er ekki vilji sjómanna að rekast á hvítasunnuna í sambandi við sinn hátíðisdag. I öðru lagi geta bæjar- og sveitarstjómarkosningar, 2—3 á öld, borið upp á fyrsta sunnu- dag í júní miðað við núgildandi lög og það atriði þarf að skoða, því sjó- menn eiga skilið þá virðingu að hátíðisdagur þeirra verði heill og óskiptur. I þriðja lagi er ekki unnt að lögbinda frídag hjá farmönnum og það undirstrikar aðeins fljóta- skriftina í málflutningi Eiðs að hann gerði sér ekki grein fyrir vand- kvæðum í því sambandi fyrr en honum var bent á það í umræðum í efri deild síðla vetrar. Eða hverjum dettur í hug að það sé hægt að skylda öll íslensku farskipin til þess „Það er góður siður sjó- manna að gá til veðurs áður en lagt er í róður, og það er mikið atriði að mál sem eiga að ná fram séu lögð fram og unnin á þann hátt að hugsað sé til enda.“ að vera í landi á sjómanndaginn? Það er hins vegar hægt hjá flski- skipum og togurum, því það er skipulagsatriði sem hægt er að leysa án þess að það komi niður á eðlilegri vinnslu í landinu eða sjó- sókn. Það er góður siður sjómanna að gá til veðurs áður en lagt er í róður og það er mikið atriði að mál sem eiga að ná fram séu lögð fram og unnin á þann hátt að hugsa sé til enda: Það var ekki í flýtimáli Eiðs og Karls Steinars sl. vetur á Al- þingi. Meiningin var þó góð og það skiptir mestu máli, en að þeir eigi þetta mál eitthvað umfram aðra en undarlegur hugsunarháttur. Hér er um að ræða mál sjómanna og það eru þeir sem eiga þetta mál. Það eina sem skiptir máli er að það náist í gegn, hitt er hégómi að líta á það sem einhvern safngrip í gulla- búi Alþýðuflokksins. Hvort sem ég verð meðflutningsmaður Eiðs í þessu máli eða hann minn, eða hvort sjávarútvegsráðherra flytur málið fyrir hönd ríkisstjómarinnar, sem mér flnnst þó eðlilegast, og ráð- herra hefur gefið í skyn, þá skiptir það eitt máli að ná árangri. Þing- menn Sjálfstæðisflokksins eru samþykkir því að sjómannadagur- inn verði lögbundinn og þar með er kominn hryggur í málið, en ég mun vinna að því að málið verði flutt á næsta þingi að öllu óbreyttu og ekki er verra að eiga Eið Guðna- son vísan liðsmann þegar á hólminn er komið. Mér flnnst hlægilegt þegar Eiður er að klifa á því í grein sinni að þeir Karl Steinar eigi þetta frumvarp, eigi þetta mál. Hér er um að ræða mál sem sjómenn og þjóðin í heild á og ég þekki mæta vel að sjómenn bera mikla virðingu fyrir sjómannadeginum. Þetta er mál sem menn eiga ekki að vera að karpa um, því það er svo sjálf- sagt réttlætismál, nær væri að fagna hveijum liðsmanni sem getur stuðlað að afgreiðslu þess og fylgir því fram með fullum rökum en ekki í flaustri. Höfundur er sdþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn. fYlATÍ vörur - ný sending. Mikið úrval af þessum fallega danska fatnaði á dömur og herra. Margir litir. Ný spennandi getraun: HM GETRAUN MIKLAGARÐS Hvaða lið verða í þremur efstu sætunum á HM í Mexíkó? 1. Verðlaun: Helgarferð til London (Fótboltarispa ef vill). Aukaverðlaun: 4 jogging gallar /S Klippið út hjálagðan getraunaseðil eðafáið seðil í Miklagarði. Fyllið út og skilið/sendið til Miklagarðs. Dregið úr réttum lausnum. Skilafresturtil 20. júní. HM GETRAUN MIKLAGARÐS Getraunaseðill Ég spái úrslitum HM í Mexíkó svona: i 1. Heimsmeistarar ----------- 2. Silfurlið _____----------- 3. Bronslið__________________ Nafn Heimilisfang Sími /MIKUG4RÐUR MIKIÐ FYRIR LI'VÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.