Morgunblaðið - 12.06.1986, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. JÚNÍ 1986
29
V estur-Þýzkaland:
Ekkí búizt við heim-
sókn Honeckers í bráð
Köln, AP.
VESTUR-ÞÝZKA stjórnin gerir ekki lengnr ráð fyrir þvi, að það
verði af þvi í bráð, að Erich Honecker, forseti Austur-Þýzkalands,
komi í heimsókn til Vestur-Þýzkalands. Skýrði Wolfgang Scháuble,
talsmaður Kohls kanslara, frá þessu í gær.
6
auglýsing
manna
Talsmaðurinn sagði, að austur-
þýzka stjómin hefði ekki komið
fram með neinar ákveðnar tillögur
varðandi slíka heimsókn, þrátt fyrir
það að bollaleggingar hefðu átt sér
stað um hana mánuðum saman í
Qölmiðlum og austur-þýzkir emb-
ættismenn hefðu gefið það í skyn,
að Honecker myndi fara í slíka
heimsókn á þessu ári.
Líkur á heimsókn Honeckers
vom taldar fara vaxandi eftir topp-
fund Bandaríkjannna og Sovétríkj-
anna í nóvember í fyrra, en það var
fyrsti leiðtogafundur þeirra í 6 ár.
Horfumar fóm svo aftur minnk-
andi, eftir að austur-þýzka stjómin
fordæmdi þá ákvörðun vestur-
þýzku stjómarinnar í marz að taka
þátt í geimvamaáætlun Bandaríkja-
manna.
Enginn austur-þýzkur forseti
hefur farið í opinbera heimsókn til
Vestur-Þýzkalands, síðan þýzku
ríkin tvö vom stofnuð 1949. Stjóm-
málafréttaritarar em þó almennt
þeirrar skoðunar, að heimsókn
Honeckers til Vestur-Þýzkalands,
ef til hennar kæmi, yrði vafalítið
mikilvægt skref í þá átt að koma
á eðlilegum samskiptum milli þýzku
ríkjanna.
Honecker hætti við fyrirhugaða
heimsókn til Vestur-Þýzkalands í
september 1984 og var almennt
talið, að þar hefðu Sov^nenn beitt
hann þiýstingi.
l ^
Erich Honecker
Filippseyjar;
Kommúnistar segjast vilja semja
um frið hvað sem það kosti
Manila, AP.
KOMMÚNÍSKIR uppreisnarmenn á Filippseyjum segja að þeir muni
reyna til þrautar að semja um frið, svo að binda megi enda á 17
ára langar eijur þeirra og stjórnvalda. Þeir vara við því að viðræð-
umar kunni að dragast á langinn, en segjast allt vilja tíl vinna, svo
að varanlegur friður komist á.
Fulltrúi skæraliða, Satur Oc-
ampo, sagði I opnu bréfí til frétta-
stofu AP, að viðurkenning forseta
landsins, frú Aquino, á honum sem
lögmætum málsvara uppreisnar-
manna sýndi hinn einlæga vilja
beggja þess að tryggja frið og þjóð-
areiningu.
Ocampo er fulltrúi Lýðræðislegu
þjóðfylkingarinnar, en í henni em
meðal annars Kommúnistaflokkur
Filippseyja, hinn vopnaði armur
flokksins, Nýi þjóðarherinn og fleiri
kommúnískar neðanjarðarhreyfing-
ar.
Ocampo sagði að fylkingin og
hreyfingar tengdar henni myndu
leitast við að koma á friði, bæði við
samningaborðið og annars staðar.
Hann fór ekki nánar út í við hvað
væri átt með orðunum „annars
staðar", en bréfið bar annars með
sér að kommúnistar hefðu tekið
mun hófsamari afstöðu til flestra
mála og að þeir hefðu, í bili a.m.k.,
lagt á hilluna áform um vopnaða
byltingu.
Leki í húsum getur myndast af mörgum ástæöum.
T.d. þegar frýs í þakrennum og niðurföllum, því um
leið og utanaðkomandi vatn kemst ekki venjulega
leið í niðurfall leitar vatn að öðrum leiðum sem getur
leitt til að leki myndist í híbýlum þar sem hans er síst
von.
Við vonum sannarlega að manninum hér að ofan sé
kunnugt um HITASTRENGINA frá Rönning, sem
leggja má í þakrennur og niðurföli, þvi þeir vinna í
þágu húseigenda.
HITASTRENGINA f rá Rönning má einnig leggja í rör,
tröppur, bílskúrsaðkeyslur og gólf. Þú slekkur bara
á sumrin og kveikir aftur þegar frýs.
ítarlegri upplýsingar fást hjá sölumönnum okkar.
Jtf RÖNNING sími 84000