Morgunblaðið - 12.06.1986, Síða 51

Morgunblaðið - 12.06.1986, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12.JUNI1986 51 Frá reynsluakstrinum á Sardiníu. Að ofan: Flaggskipið, Lancia Thema ie turbo, sem varð til í samvinnu við Saab og er mjög svipað- ur Saab 9000. Að neðan: Lancia Delta grandskoðuð. Það eru þeir Björn Arnar frá Mazda-umboðinu og Sigurður Hreiðar frá DV, sem þarna eru að verki. Lancia Delta HF Turbo Vél: 4ra strokka, þverstæð að framan, með forþjöppu, 1.585 rúmsm, 140 ha. við 5.500 snúninga á mín. Drif að framan. Sjálfstæð gormafjöðrun á hverju hjóli (McPherson). Lengd: 3,89 m Breidd: 1,62 m Þyngd: 1.020 kg Viðbragð 0—100 km á klst: 8,7 sek. Hámarkshraði: 203 km á klst. Verð á íslandi: Um 535 þús. Lancia Delta GT i.e. Vél: 4ra strokka, þverstæð að framan, 1.585 rúmsm, 108 ha við 5.900 snúninga á mínútu. Rafeindastýrð, bein innspýting (Weber). Sjálfstæð gormafjöðrun. Lengd: 3,89 m Breidd: 1,62 m Þyngd: 995 kg Viðbragð 0-100 km á klst: 10,0 sek. Hámarkshraði: 185 km á klst. Verð á íslandi: Frá 450 þús. Lancia Delta HF Turbo Kostir: Framúrskarandi aksturseiginleikar. Kraftmikil en spameytin vél. Gott stýri og hemlar. Rúmgóður að innan. Ágætur frágangur. Gallar: Stýri skyggir aðeins á hraðamæli nema það sé stillt hátt. Sverir afturpóstar hindra útsýni Htið eitt. „Eins og ný kærasta“ Áður en ekið var af stað, vorum við áminntir um að fara nú að öllu með gát og reyna ekki áð ná öllu hugsanlegu út úr bflnum á fyrstu 200 metrunum. „Maður á að haga sér við bflinn eins og nýja kærustu," sagði einn af þeim Lancia-mönnum og meinti, að maður byrjar ekki við allra fyrstu kjmni á því að koma henni rakleiðis í rúmið. Nei, ekki samkvæmt ítalskri kokkabók í ró- mantík, — fyrst koma rólegar gönguferðir þar sem haldizt er í henduro.s.frv. Ekki segi ég að fyrsti spölurinn hjá okkur hafí minnt á rómantíska gönguferð í tunglsljósi, því það var á andartaki augljóst mál, að Delta HF turbo var viljugur í meira lagi og hvetur til hraðaksturs. Fjöðrunin var stinn án þess að bfllinn væri hastur og minnti til dæmis á fjöðrun í BMW og fleiri þýzkum bflum. Við gervalla gerð þessa bíls virðist hafa verið tekið meira mið af þýzkum bflum en öðrum; að minnsta kosti virðist hann mun skyldari þeim en landa sínum Fiat. Bæði með turbo-gerðinni og þeim aldrifna er hægt að fá recaro-sæti, sem eru eins konar sportbflasæti, stinn viðkomu, en halda afar vel utan að manni. Ekki er því að neita, að þessi sæti setja mjög sportlegan svip á bflinn að innan og segja manni ótvírætt, að hér sé enginn meðaljón á ferð. Það má sjá langar leiðir, að ítalir hafa hannað mælaborðið. Því er skipað niður á þijá aðskilda fleti og mælar eru þar fyrir hvaðeina, sem hægt er að ímynda sér að ökumaður þurfi að vita. En það er galli á gjöf Njarðar, að í venjulegri stöðu skyggir stýrið alveg á hraða- mæli og snúningshraðamæli. Það vill til að Delta er með veltistýri og hafi maður styrið í hæstu stöðu, sést vel á mælana. Mér líkaði það vel en ekki er víst að allir kunni vel við þá stöðu. í annan stað er lítið eitt óþægilegt, að sá hluti mælaborðsins, sem nær niður á drifskaftsstokkinn, er óþarflega breiður og vill verða í vegi fyrir hægra fæti í akstri. Við innrétting- una hef ég ekki annað að athuga, nema hvað aftursætið í aldrifsbfln- um er ekki þægilegt til lengdar. í turbo gerðinni er aftur á móti ágætt að sitja aftur í og eins í Delta GT i.e. (með beinu innspýtingunni). Áhrifamikið að kitla pinnann Sá maður getur enga ánægju haft af þvf að aka góðum bfl, sem ekki fær dálítinn fíðring undir stýri á Delta turbo, — að ekki sé nú talað um Delta HF 4WD, nefnileg;a al- drifsbílinn. Ég geri ráð fyrir að breiðu dekkin frá Michelin hafi átt sinn þátt í því að bíllinn liggur svo vel á vegi. Það gefur sérstaka öryggiskennd, sem kannski er vafa- söm, því hún hvetur mjög til hrað- aksturs. Þessi öryggistilfinning, hvort sem hún er fölsk eða ekki, verður til þess að ökumaður þreytist mun minna; hann slappar af, jafnvel á 140 km hraða, ef vegurinn leyfir það. Við komumst að þeirri niður- stöðu, að á góðum vegi eða hrað- braut væri hægt að halda 140 km hraða á Delta HF turbo sem góðum og þægilegum ferðahraða. Við ók- um að vísu mun hraðar á köflum, en þá hætti það að vera þægilegt. Á sama hátt er Delta GT ie góður fyrir 120 km hraða, þótt hann komist mun hraðar. En hann er mýkri á fjöðrum og þess vegna kannski heppilegri fyrir ísland. Um leið er hann lítið eitt „svagari" svo gripið sé til gamallar dönskuslettu og þar með gefur hann ekki þessa pottþéttu tilfinningu, sem Delta turbo og aldrifsbíllinn hafa. Allar eru þessar gerðir ágætar í stýri og bremsumar virðast alltaf vera í fullu samræmi við aflið: Það er jafn lítið mál að snarstoppa eins og að komast á fleygiferð á nokkrum sekúndum. Lancia Delta GT ie — sú gerðin sem hefur beina innspýtingu — höfðar ef til vill meira til hins almenna bflkaupanda. Þar hefur verðið líklega mest að segja, en einnig hitt, að venjulegum öku- manni finnst hann ekki hafa hætis- hót við meira afl áð gera en 108 hestöfl, eða þá 180 km hámarks- hraða, sem einn út af fyrir sig er langt umfram leyfíleg mörk á ís- landi. Þessi gerð er með venjulegum sætum, mjög þokkalegum, sem hægt er að bæta til muna með því að kaupa aukalega gervirúskinns- áklæði. Þessi gerð er annars afar svipuð hinum í akstri, að því undan- skildu, að hún er eins og áður segir mýkri á fjöðrum og maður finnur afskaplega vel, að aflið er minna. Verðmunurinn á turbo-gerðinni er samt ekki slíkur að það má mikið vera ef hún verður ekki ofaná hér. Að minnsta kosti mundi ég hiklaust velja þá gerð; í henni tel ég að kaupandinn fái mest fyrir pening- ana. Lancia Thema Enda þótt tilgangurinn með fyrr- nefndri stefnu suður á Sardiníu væri að kynna Lancia Delta, gafst einnig tækifæri til að prófa lítillega flaggskipið Lancia Thema. Sá bfll hefur orðið til í samstarfí milli Saab og Lancia og raunar Fiat einnig. Saab 9000 hefur verið kynntur hér, en hann er af einhveijum ástæðum mun dýrari en tvíburabróðir hans frá Lancia, sem kostar í ódýrustu útfærslu kr. 620 þús. Smávegis munur er á útlitinu; afturrúðan á Saab 9000 nær til dæmis aftar, en Lancia Thema er með skotti. Hér er um alveg nýja hönnun að ræða, sem tekist hefur vel. Línumar eru allar ávalar og það leynir sér ekki, jafnvel tilsýndar, að þar fer bfll í háum gæðaflokki. Stærðin er mikið til sú sama og á BMW 520, lengdin 4.60. Allur frágangur er til fyrir- myndar, sætin stór og þægileg. Hér er mikill hraðbrautavargur; há- markshraðinn um 220 km á klst, þegar miðað er við 160 ha. vélina; hún var í bflnum sem prófaður var. Hann fer í hundraðið undir 8 sek. og gerir allt með mikilli mýkt og elegans. Með turbo-gerðinni hefur Lancia verulegt tromp á hendi; bfl sem keppir við Saab 9000, Renault 21, BMW 525, Audi 100 og Benz 230. Ég hef reynt þá alla nema Saab 9000 og tel að Lancia Thema standi sig með mikilli prýði í þeim flokki. Af því sem ég sá og reyndi á Sardiníu, má ljóst vera að þessi 80 ára gamla bflaverksmiðja hefur gengið í endumýjun lffdaganna og margir aðrir framleiðendur hljóta svo sannarlega að verða að taka mið af því, sem gerst hefur hjá Lancia. LVORU USGOGN Leggðu Tréborg á mlnnið þegar þú ferð að kaupa barna- eða unglingahúsgögn. Húsgagnaverslun, Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfiröi, s. 54343. Mundu að Tréborg er fjölbreyttasta úrval af barna- og unglingahúsgögnum sem völ er á. Mundu að Tréborg framleiðir og selur íslensk gæðahús- gögn. Mundu að i Tréborg er hagstætt verð og góðir greiðsluskilmálar. Sendum um allt land Opið laugardaga kl.10—12 SENDUM UM ALLT LAND GOODYEAR á hagstceðu verði Hvort sem er í þurru færi eða blautu í lausamöl eða á malbiki á hálku eða í snjó eru: MÝKT, GRIPFESTA OG GÓÐ ENDING aðalsmerki Goodyear-hjólbarðans LEIÐANDI I VEROLD TÆKNIÞROUNNAR HJOLBARÐA GOODfÝEAR hIheklahf jj Laugaveqi 170• 172 Sim. 21240

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.