Morgunblaðið - 12.06.1986, Síða 59

Morgunblaðið - 12.06.1986, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1986 59 Trén sem talað er um i bréfinu. Þau eru hér um bil dauð, að sögn bréfritara, vegna þess að látið var þjá líða að úða á þau skordýraeitri. Trén drápust vegna þess að ekki var eitrað Til Velvakanda: Það var mikið talað um það og skrifað fyrir rúmlega ári síðan að ekki þyrfti að úða eitri á tré, það væri alveg nóg að skola þau með kðldu vatni og þá næði lúsin sér ekki upp. Ég trúði þessu og lét hjá líða að úða eitri á tréin mín, var fegin að losna við eitrið, og sparaði ekki að skola þau vel og vandlega. Árangurinn sést í myndinni sem tekin var hinn 7. júní síðastliðinn. Brekkuvíðirinn sem þar sést er annað hvort alveg dauður eða hér um bil að drepast eftir ágang trjá- lúsar. Þetta eru 20 ára gömul tré og hafa þau kostað ólitla vinnu f gegnum tíðina. Gaman þætti mér ef einhverjir þessara spekinga sem töluðu sem mest um það í fyrra að ekki þyrfti að eitra kæmu og skoð- uðu tréin mín — þeir gætu þá gengið úr skugga um að ég fer með rétt mál og lært ýmislegt í leiðinni. Garðeigandi sem gefist hefur upp. Þessir hringdu . íslenski boltinn er líka rúllandi, Bjarni G.S. hringdi: „Mig langar að koma á fram- færi athugasemd við íþrótta- fréttamann sjónvarpsins Bjama Felixson. Ég er að vísu ánægð með beinu útsendingamar af heimsmeistarakeppninni. En þú verður að gera þér grein fyrir því Bjami að íslenski boltinn er líka rúllandi, og ekki bara í fyrstu deild. Við viijum líka fá að sjá stöðuna og úrslitin í annarri deild — það dugar ekki að einblína bara á heimsmeistarakeppnina. Og hvað um keppnina um þennan svonefnda Mjólkurbikar — það þyrfti að birta úrslitin þar í ann- arriogþriðju deild. Loks langar mig til að koma því á framfæri við stjómendur Rásar 2 að þar verði spilað meira með Rolling Stones og gömlu hljómsveitunum, en ekki einlægt þetta sama poppgarg eins og verið hefur". Verðlagseftirlit almenuing’s getur skipt sköpum Launþegi hringdi: „Það fer ekki á milli mála að sú stjóm sem nú situr hefur náð miklum árangri í baráttunni við verðbólguna — hvort sem henni verður nú þakkað það eða ekki. Líklegra virðist að einhverjir óreiðu- og ermaloforðamenn verði kosnir í næstu kosningum og þeir hleypi verðbólgunni upp aftur í von um það að halda atkvæðun- um. En annað ætlaði ég reyndar að gera að umtalsefni, og það er verðskyn almennings. Ég held að það sé orðið næsta lítið, og það sem verra er — það þykir ekki fínt að hafa verðskyn. Því er ekki að neita að einstaka vömtegundir hækka þrátt fyrir þá verðstöðvun sem gilda á að hluta. Oftast heyrir maður verslunarfólk bera því við að það sé vegna þess að þetta sé ný sending — en hvemig getur maður gengið úr skugga um það? Þegar svona árar, að verðbólgan hefur náðst vemlega niður, verður almenningur að standa saman í að veita kaup- mönnum sem mest aðhald — hika ekki við að spyijast fyrir vegna verðbreytinga og eins að beina verslun sinni f þær búðir sem bjóða einstakar vömtegundir á lægsta verðinu. Þannig er hægt að drýgja launin nokkuð og ef allir standa saman í þessu gæti það orðið umtalsverð kjarabót." Skapvont starfsfólk Margrét hringdi: „Ég fór með vinkonu minni í Laugardalssundlaugina á dögun- um. Við vomm í besta skapi en starfsfólkið þar virtist vera heldur geðvont og smituðumst við af fylunni í því. Vonum við að fólkið þama verði betra f skapinu fram- vegis, og að það viðmót sem við mættum hafi verið undantekning. T.d. kom vinkona mín af gáleysi inn f klefann á reimuðum skóm meðan ég var að bursta á mér hárið. Þá kemur ein af gæslukon- unum og skipar henni út með þjósti og miklum hávaða. Við vilj- um gjaman hlýðnast öllum regl- um en krefjumst þess jafnframt að við séum ávarpaðar af sæmi- legri kurteisi." Plastpoki með galla- efni Kona hringdi og bað þann sem tók plastpoka með gallaefni í misgripum föstudaginn 6. júnf, en pokann hafði hún lagt frá sér á bekkinn í Lækjargötu þar sem Hafnarfjarðarstrætó stoppar, vin- samlegast að hafa samband í sfma 14878 eða 52901 eftir ki. 18. Lyklar í svörtu hulstri Lyklar fundust á Sogavegi, 7 saman í svörtu hulstri og em dregnir inn í hulstrið. Sá sem lyklana fann býr í Rauðagerði og síminn þarer 688111. :shannon: :datastor: Allt á sínum staö Cf einhver sérstök vörzluvandamál þarf aö leysa biöjum viö viökomandi góðfúslega aö hafa samband viö okkur sem allra fyrst og munum viö fúslega sýna fram á hvernig iHHMNOM skjalaskápur hefur „allt á sínum staö". Útsöiustaöir: REYKJAVlK, Penninn Hallannúla, KEFLAVlK, Bökabuð Kellavikui AKRAHES, Bðkaveisl Andrés Níelsson HF tSAFJÖRÐUR. Bókaverslun Jónasai Tömassonar AKUREYRI, ÐOkaval bóka- og nttangaverslun HÚSAVlK. Bókaverslun Póranns Stelánssonar ESKIFJÖROUR. Elis Guðnason verslun VESTMANNAEYJAR, Bðkabúðin, EGILSSTADIR. Bókabúðin Hlöðum. ÖlAfUR GlSlA-SOM & CO. ílf- SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800 TJARNAR SKÓli EINKASKÓLI VIÐ TJÖRNINA FRlKIRKJUVEGI I - I0l REYK)AVlK- SlMI I6820 Tjamarskóli hefur nú verið starfræktur í einn vetur. Sérstök áhersla var lögð á undirstöðunámsgreinar, tengsl við atvinnulífið og að skólinn væri skapandi og skemmtilegur. Persónuleg samskipti, samfelldur skóladagur og ánægðir nemendur. Á komandi vetri verður dag- legur skólatími kl. 0815-16°°, og öllum nemendum stendur til boða aðstoð við heimanám. Áhugasamir nemendur geta einnig stundað ítarnám í íslensku, ensku og dönsku. Skólagjöld em kr. 4.500.- á mánuði. Stjómendur hvetja nemendur eða forráðamenn þeirra til að sækja um skólavist fyrir 4 o 2'^.' lo. ]um. Nánari upplýsingar í símum 16820, 34886, 666939 kl. O^00-!^10. Stjómendur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.