Morgunblaðið - 12.06.1986, Page 61

Morgunblaðið - 12.06.1986, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. JÚNÍ 1986 61 Morgunblaðiö/AP • Frank Vercauteren (hvftklœddi) skorar hér fyrra mark Belga f leikn- um gegn Paraguaymönnum f gœrkvöldi. Cesar Zabala frá Paraguay reynlr aö koma vörnum viö en Vercauteren vippar laglega yfir hann og markvörðinn. Sigurður lék á 74 höggum - og er í 20. sæti af 90 keppendum SIGURÐUR Pótursson kyifingur úr GR er í 20. sseti eftir fyrri dag Evrópumeistaramótsins í golfi sem fram fer í Eindhofen í Hol- landi um þessar mundir. Hann lók 18 holur í gær í 74 höggum. Þátttakendur í mótinu eru 90 frá hinum ýmsu löndum Evrópu. Tveir þátttakendur eru frá islandi, Úlfar Jónsson auk Sigurðar. Úlfar lék á 76 höggum og er val fyrir fram miðju. Besta skorið í keppn- inni eftir 18 holur er 70 högg. Mótið klárast á laugardag. Þeir félagar, Sigurður og Úlfar, hafa dvalið ytra við æfingar að undan- förnu. Belgía og Paraguay gerðu jafntefli í skemmtilegum leik BELGÍA og Paraguay geröu jafn- tefli, 2:2,1 B-riöli heimsmeistara- mótsins í knattspyrnu í gær- kvöldi. Belgía haföi yfir í hálfleik, 1:0. Paraguay ásamt Mexíkó, sem siraði írak, 1:0, tryggöi sér þar meö réttinn til aö leika I 16-liöa úrslitum keppninnar. Líklegt má telja að Belgfa komist áfram sem þriöja lið þar sem þeir hafa þrjú stig og markatöluna 5:5. Leikurinn fór frekar rólega af stað og var þá jafnræði á meö liðunum. Fyrsta mark leiksins kom á 31. mínútu. Frank Vercauteren fékk góða sendingu frá Ceulemans inn í vítateiginn og skoraði með því að vippa laglega yfir markvörð Paraguaymanna og efst í bláhorn- ið fjær. Fallegt mark. Það skall hurð nærri hælum við mark Belga stuttu seinna er Requin bjargaði á línu eftir að einn leikmaður Paragu- ay hafði vippað yfir Pfaff markvörð. Seinni hálfleikur var mun líflegri en sá fyrri. Þegar tíu mínútur voru búnar höfðu Paraguaymenn jafn- að. Það var leikmaðurinn skemmti- legl, Cabanas, sem það geröi með því að skora af stuttu færi. Mark- vörður þeirra sparkaði út og knött- urinn fór rakleiðis fyrir fætur Ca- banas, eftir að Belgi hafi komið við knöttinn og hann afgreiddi hann fallega í netið. Belgar komust aftur yfir á 60. mínútu. Veyt vippaði þá laglega yfir Fernadez markvörð eftir að hann hafi komist einn innfyrir. Eftir þetta færðist mikiö kapp í leikmenn Paraguay. Þeir áttu stangarskot á 63. mínútu eftir að vörn Belga hafði opnast illa og á 76. mínútu jöfnuðu þeir aftur. Cabanas var þá aftur á ferðinni með skoti af stuttu færi eftir enn ein varnarmistök í vörn Belga. Skömmu áður hafði Scifo skorað stórglæsilegt mark fyrir Belga beint úr aukaspyrnu, en það var réttilega dæmt af, þar sem spyrn- an var ekki bein. Eftir þetta sóttu Belgar meira en Paraguayar vörð- ust vel. Úrslit leiksins verða að teljast sanngjörn miðað viö gang leiksins. Belgar voru þó meira með knöttinn en skyndisóknir Paraguaymanna voru hættulegar. • Aðdragandinn að marki Mexíkana Quirarte sem skorar af stuttu færi. Knötturinn siglir framhjá öllum vamarmönnum fraka og endar hjá Mexíkanar unnu íraka og sigruðu í riðlinum MEXÍKANAR tryggöu sér sigur- inn í B-riðli heimsmeistarakeppn- innar meö naumum 1:0 sigri á frak í gærkvöldi. Eina mark leiks- ins skoraöi varnarmaðurinn Quir- arte. Morgunblaðsliðið — 3.umferð TVEIR sfðustu leikirnir í þriðju umferð 1. deildar voru leiknir f gærkvöldi. Alls voru 16 mörk skoruð í umferðinni, sem er meira en f nokkurri annarri umferö til þessa. Sem fyrr eru í llðinu þeir leikmenn sem hæstu einkunn hljóta f einkunnagjöf Morgunblaðsins. Aö þessu sinni stillum viö upp nýstárlegri leikaöferð -3-3-4- en þaö er f stfl við góöan sóknarleik f umferöinni. Friðrik Friðriksson Viöar Halldórsson PH (2) Ólafur Þóröarson ÍA(2) Fram (2) Loftur Ólafsson KR (1) Mark Duffield Víði(i) Ágúst Már Jónsson KR(2) Ólafur Jóhannesson FH(1) Sigurjón Kristjánsson Guömundur Torfason Halldór Askelsson ValurValsson Val (1) Fram (1) Þór(2) Val(1) Leikurinn þótti langt frá því glæsilegur að hálfu Mexíkana, sem þrátt fyrir að hafa alla áhorfendur á sínu bandi, og hafa yfirburði úti á vellinum, tókst ekki að skapa sér mjög mörg og góð marktækifæri. Liðið var án stjörnunnar miklu, Hugo Sanchez, og sóknarleikurinn byggðist því einkum á því aö koma knettinum til Luis Flores. Hann átti nokkur þokkaleg færi í fyrri hálfleik, og einu sinni munaði litlu að hann næöi að nýta sér það. Skot hans fór í þverslá. Tíu mínútum eftir leikhlé kom eina markið í leiknum. Mexíkanar áttu þá aukaspyrnu á eigin vallar- helmingi, og löng og há spyrnan flaug yfir alla varnarmenn íraka til Quirarte sem potaði knettinum yfir marklínuna af örstuttu færi. Eftir markið gerðist fátt - sigur- inn tryggði Mexíkönum áfram- haldandi þátttöku, og frakar höfðu ekki getu til að ógna þeim veru- lega. írak lék án þriggja fasta- manna, og átti aðeins tvö skot að merkinu ífyrri hálfleik. Islandsmótið: Atta lið hætt við ÁTTA lið hafa nú hætt við þátt- töku I íslandsmótinu í knatt- spyrnu. Tilkynningar þess efnis hafa verið aö berast mótanefnd síðustu dagana og kemur þetta sér aö sjálfsögðu mjög illa þar sem reynt er aö raða niður leikj- um meö talsverðum fyrirvara. Ármann hefur dregið til baka þátttöku meistaraflokks kvenna auk 3. og 5. flokks karla. Hörður hætti við þáttöku í B-riðli 4. deildar og eitt félag hefur hætt við þátt- töku i 3. flokki kvenna en það er ÍK úr Kópavogi. (3. flokki karla hafa bæði Aftur- elding og Stokkseyri hætt við að vera með og Haukar hafa hætt við að senda 2. flokk karla í íslands- mótið. Mótanefndin var að vonum ekki ánægð þegar við ræddum við hana í gær og sagði að þetta kæmi sér mjög illa fyrir þá þar sem nú þyrfti að endurskipuleggja íslandsmótin í þessum flokkum að einhverju leyti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.