Morgunblaðið - 19.06.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1986
fjúverðurþaJ
VíðiríValnum
«stuð;m
jnenn um
Víða ver-
öldfiöÞ
•mennaá
!? vöttinn í
kvö\d“
arakrossi fyrir störf að tryggingar-
málum. Helga Gíslason, fv. héraðs-
stjóra hjá Vegagerð ríkisins, Fella-
hreppi, N-Múlasýslu, riddarakrossi
fyrir störf að félags- og menningar-
málum. Jakob Jakobsson, forstjóra
Hafrannsóknarstofnunar, Reykja-
vík, stórriddarakrossi fyrir embætt-
is- og vísindastörf. Jón Egilsson, fv.
forstjóra Ferðaskrifstofu Akur-
eyrar, riddarakrossi fyrir störf að
ferðamálum. Jón Jónsson, fv. for-
stjóra Hafrannsóknarstofnunar,
Reykjavík, stórriddarakrossi fyrir
embættis- og vísindastörf. Jón úr
Vör Jónsson, skáld, Reykjavík, stór-
riddarakrossi fyrir bókmenntastörf.
Magnús E. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóra Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf að sveitastjómar-
málum. Magnús Jónsson, ópem-
söngvara, Reykjavík, riddarakrossi
fyrir tónlistarstörf. Magnús Magn-
ússon, rithöfund, Edinborg, stór-
riddarakrossi fyrir menningar- og
landkynningarstörf. Rósu Þor-
steinsdóttur, fv. forstöðumann,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
að uppeldis- og bamavemdarmál-
um. Siguijón Rist, vatnamælinga-
mann, Reykjavík, riddarakrossi
fyrir störf að vatnamælingum. Þá
sæmdi forseti íslands Snjólaugu
Thomson, ræðismann íslands í
Edinborg, riddarakrossi fyrir ræðis-
mannsstörf.
V estmannaeyjar;
Nýr bátur í Eyjaflotann
Sigurfari VE 138 keyptur frá Svíþjóð
Vestmannaeyjum.
NÝTT skip bættist i fiskiskipa-
flota Vestmanneyinga á mánu-
daginn. Þá sigldi inn i höfnina
fánum prýddur 120 tonna stál-
bátur, Sigurfari VE 138, sem
keyptur er frá Svíþjóð. Eigendur
Sigurfara eru Haraldur Gislaon
og Bjarni Sighvatsson og keyptu
þeir bátinn i stað Kristbjargar
VE 70, sem fer i úreldingu.
Nýi báturinn er hið föngulegasta
fley, tveggja ára, byggður í Dan-
mörku 1984, en keyptur frá Svíþjóð
fyrir milligöngu Carls Vik, Shipping
Ltd. í Gautaborg. Báturinn er 23,83
metrar á lengd, 6,80 á breidd og
3,75 á dýpt. Lestarrými er 150 rúm-
metrar. I skipinu er 565 hestafla
Caterpillar-vél. Sigurfarinn er bú-
inn öllum nýjustu og fullkomnustu
fiskileitar- og siglingatækjum og
mun hefja togveiðar á næstu dög-
um. Skipstjóri á Sigurfara er Ben-
óný Færseth og fyrsti vélstjóri Óð-
inn Kristjánsson. Skipinu var vel
fagnað í Eyjum enda telst það orðið
til tíðinda, þegar nýtt fískiskip
bætist í flotann.
- hki.
Ff • * *
17.juni:
___ >
Forseti Islands
sæmir 16 Islend-
inga fálkaorðu
FORSETI tslands sæmdi 16 ís-
lendinga heiðursmerki hinnar
íslensku fálkaorðu þann 17. júni.
Bjama Vilhjálmsson, fv. þjóð-
slq'alavörð, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir embættis- og fræðistörf.
Bjöm Guðmundsson, útgerðar-
mann, Vestmannaeyjum, riddara-
krossi fyrir störf að sjávarútvegs-
málum. Einar Kristjánsson, fv.
skólastjóra við Laugarskóla í
Hvammssveit, riddarakrossi fyrir
störf að fræðslu- og félagsmálum.
Erlu Elíasdóttur, aðstoðarháskóla-
ritara, Reykjavík, riddarakrossi
fyrir störf að málefnum Háskóla
íslands. Guðmund Guðmundsson,
tryggingafræðing, Reykjavík, ridd-
Varmahlíð:
Hestamennska
og tjaldstæði á
Vindheimamelum
Varmahlið.
NÚ ÞEGAR er farið að gæta
aukinnar umferðar um þjóð-
veginn gegnum Varmahlíð og
þeir, sem atvinnu hafa af þjón-
ustu við ferðamenn, sem óðast
að undirbúa sig fyrir aðalver-
tíðina. í Varmahlíð verða menn
vel varir við vaxandi umferð ár
frá ári, enda öll umferð til
Norðurlands hér í gegn. í
Varmahlíð og næsta nágrenni
er ýmislegt í boði fyrir ferða-
menn og má þvi segja að staður-
inn sé ákjósanlegur áningar-
staður.
Síðastliðið sumar hóf starfsemi
sína fyrirtækið Hestasport, en
eins og nafnið bendir til, býður
það þjónustu við þá, sem kynnast
vilja hestamennsku. A vegum
fyrirtækisins hafa verið skipu-
lagðar lengri og styttri hestaferðir
nú í sumar og þegar uppselt í
sumar þeirra. Sú nýbreytni verður
á starfseminni í sumar að Hesta-
sport hefur fengið aðstöðu á
Vindheimamelum. Þar eru góð
tjaldstæði og mjög ákjósanlegar
reiðleiðir í allar áttir. Auk þess
er Hestasport með hesta og að-
stöðu í Varmahlíð fyrir þá, sem
leið eiga þar um.
Hótel Varmahlíð hefur flutt
starfsemi sína í Varmahlíðarskóla,
sem undanfarin sumur, en þar er
rúmgóð veitinga- og gistiaðstaða
í hinum glæsilegu húsakynnum
skólans. Glaumbæjarsafnið skoða
á hveiju sumir þúsundir innlendra
og erlendra ferðamanna og sama
má segja um Víðimýrarkirkju,
sem er safngripur í umsjón þjóð-
minjavarðar. í gróðrarstöð Skóg-
rælriar ríkisins, sem aðsetur hefur
í Varmahlíð, er unnið af fullum
krafti og plöntusala í hámarki um
þessar mundir. Eftirspum fer
vaxandi með ári hveiju. Allur
gróður er um hálfum mánuði
seinna á ferðinni en í venjulegu
árferði. Til dæmis var birkið ekki
fullútsprungið fyrr en í lok síðustu
viku.
P.D.
VALUR
AU>
VIÐIR
á Valsvellinum að Hlíðarenda í kvöld kl. 20.00. En verður Gunnar á Hlíðarenda?
Og nú erröðin komin að Víði
Valsmenn taka nú á honum stóra sínum og munar ekkert um að
verða víðtækir í kvöld.
Veitingasalan verður auðvitað opin fyrir Valsmenn og Víðisaðdáendur.
Th&imafiane Litmyndir
EINANGRUNARGLER samdægurs
Mama\
Glerverksmiðjan Esja
SÍMI 666160
LJOSMYNDAÞJONUSTAN Hl
LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!