Morgunblaðið - 19.06.1986, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.06.1986, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. JÚNÍ1986 Réttarhöld í AchiUe Lauro-málinu hafin Genua, AP. RÉTTARHÖLD yfir 15 mönnum, ákærðir eru í tengslum við ránið á skemmtiferðaskipinu Achille Lauro fyrr í vetur, hófust í Genúa I gær. Einn leiðtoga palestínuskæruliða, Mohammed Abbas, sem talinn er hafa skipulagt sjóránið, verður dæmdur að honum fjarstöddum. Nokkru eftir að réttarhöldin hóf- ust risu tvær konur og tveir karlar úr sætum og hrópuðu á ensku að þau styddu byltingu palestínu- manna. Um 30 lögreglumenn tóku þá í taumana og báru fólkið út úr réttarsalnum. Hér var um að ræða Vestur-Þjóðveija, sem yfirheyrðir höfðu verið í málinu, en ákæra á hendur þeim var látin niður falla. Mannræningjamir ijórir, sem eru í haldi, voru ekki viðstaddir réttar- höldin í gær. Aðeins fimm þeirra, sem sakaðir eru um aðild að ráninu á skipinu í október í fyrra, þar sem einn Bandaríkjamaðurinn var myrt- ur, voru viðstaddir réttarhöldin. Samkvæmt ítölskum lögum má dæma samverkamenn á sömu for- sendum og þá, sem glæpinn frömdu. Noregur; Trygging sett fyrir Moby Dick Vardoe, Noregi, AP. GRÆNFRIÐUNGAR hafa sett 10.000 norskar krónur sem tryggingu fyrir skipstjórann á sldpi þeirra, Moby Dick, sem flutt var til hafnar í Vardoe, nyrst í Noregi, í siðustu viku. Skipið hafði verið tekið af norsku strandgæslunni, eftir að það fór inn fyrir 4 mflna landhelgina, í mót- mælaskyni við hvalveiðar Norð- manna. Skipstjórinn, Jonathan Castle, á að mæta fyrir rétti í Vardoe þ. 28. ágúst. Skipið má nú láta úr höfn, en tefst þar sem verið er að gera við ratsjá þess. BLÓÐUGUR FÖGNUÐUR Sjúkraflutningsmenn koma til bjargar manni, sem varð illa úti í átökum knattspyrnuáhugamanna i Mexíkóborg. Atvikið átti sér stað er heimamenn fögnuðu sigri sinna manna í riðlakeppni heims- meistarakeppninnar í knattspyrnu. Brutust þá út slagsmál og ólæti og hlutu margir meiðsli. f Francis Pym fyrrum utanríkisráðherra Bretlands: Grípa ber til róttækra ráð- stafana gegn sljórn S-Afríku Aðgerðaleysi er siðferðilega óréttlætanlegt London. Frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. RÍKISSTJÓRN breska íhaldsflokksins sætir nú æ meiri gagnrýni fyrir að beita Suður-Afriku ekki efnahagslegum refsiaðgerðum vegna aðskilnaðarstefnunnar og neyðarástandslaganna, sem gengu í gildi þar syðra í síðustu viku. I gær urðu snarpar umræð- ur um þetta mál i breska þinginu þar sem Margaret Thatcher, forsætisráðherra, vísaði enn á bug hugmyndum stjórnarandstæð- inga, sem skorað hafa á ríkisstjórnina að ganga i lið með þeim ríkjum sem ákveðið hafa að grípa til harðra efnahagslegra refsi- aðgerða gegn minnihlutastjóm hvítra í Suður-Afríku. Ríkisstjórnin gagnrýnd í kjölfar atburða síðustu daga hefur þeim mjög vaxið ásmegin hér í landi sem hvetja til róttækra og harðra refsiaðgerða gegn ríkis- stjóm hvíta minnihlutans í Suður- Afríku. Hafa spjótin beinst æ meir að bresku ríkisstjóminni, sem vill forðast efnahagslegar refsiaðgerð- ir í lengstu lög. Á stjómin nú mjög undir högg að sækja vegna afstöðu sinnar og kom til dæmis í ljós í gær að ýmsir þingmenn Ihalds- flokksins hafa snúist á sveif með þeim sem ekki eru sáttir við þann ásetning Margaret Thatcher að beita Suður-Afríku ekki efnahags- legum refsiaðgerðum í bráð. í umræðum í neðri málstofu breska þingsins í gær voru stjóm- arandstæðingar hvassyrtir í garð ríkisstjómarinnar og sökuðu hana um að styðja í raun aðskilnaðar- stefnuna í Suður-Afríku með að- gerðaleysi sínu og andstöðu við efnahagslegar refsiaðgerðir. Helsti talsmaður Verkamannaflokksins í utanríkismálum, Denis Helay, sagði að Bretar væru orðnir að athlægi í augum umheimsins vegna aðgerðaleysis ríkisstjómar Margaret Thatcher. Fór hann ásamt fleiri stjómarandstæðingum hörðum orðum um ríkisstjómina fyrir að veigra sér sífellt við að grípa til efnahagslegra refsiað- gerða þótt bæði leiðtogar blakkra í Suður-Afríku og samveldisnefnd- in svokallaða hefðu hvatt til slíkra aðgerða. Sagði Healy að afstaða ríkisstjómarinnar væri ekki aðeins Bretum til skammar á alþjóðavett- vangi heldur stefndi hún í voða sjálfu breska samveldinu en nokkr- ir þjóðarleiðtogar innan þess hafa hótað að segja skilið við það haldi Margaret Thatcher til streitu and- stöðu sinni við efnahagslegar refsi- aðgerðir gegn Suður-Afríku. Sagði Healy að með öllu væri óveijandi að Bretar héldu áfram efnahags- legum samskiptum við Suður- Afríku og styddu þannig í raun við bakið á stjómvöldum, sem kúg- uðu svarta meirihlutann og neituðu honum um einföldustu og sjálf- sögðustu mannréttindi. Ýmsir þingmenn tóku undir þessi orð og hvöttu ríkisstjóm Thatcher til að svara kalli þeirra sem talað hafa fyrir munn svartra í Suður-Afríku og skorað hafa á þjóðir heims að beita stjóm hvíta minnihlutans róttækum refsiað- gerðum og knýja hana þannig til að láta af aðskilnaðarstefnu sinni. Vakti ekki síst athygli málflutning- ur Francis Pym, fyrrverandi utan- ríkisráðherra í ríkisstjóm Margar- et Thatcher. Hann sagði að Bretum væri ekki lengur stætt á því að horfa aðgerðalausir á þróun mála í Suður-Afríku, þaðan bærist nú neyðarkall sem bregðast yrði við á réttan hátt. Pym sagði að bresk stjómvöld yrðu umsvifalaust að grípa til róttækra ráðstafana gegn stjóm Suður-Afríku, áframhald- andi aðgerðaleysi væri siðferðilega óréttlætanlegt. Afstaða ríkis- stjórnarinnar Francis Pym, fyrrverandi utan- ríkisráðherra, var í hópi fímmtán þingmanna breska Ihaldsflokksins sem ekki greiddi atkvæði gegn Francis Pym Denis Healey tillögu stjómarandstæðinga þess efnis, að Suður-Afríka skyldi beitt hörðum efnahagslegum refsiað- gerðum vegna aðskilnaðarstefnu hvíta minnihlutans og neyðarlag- anna sem undanfama daga hafa enn frekar skert frelsi svarta meirihlutans til orðs og æðis. Breska ríkisstjómin á þó enn vísan stuðning yfírgnæfandi meirihluta þingmanna íhaldsflokksins í þessu máli og í gær snerust talsmenn stjómarinnar öndverðir gegn áskorunum um að beita Suður- Afríku efnahagslegum refsiað- gerðum. Margaret Thateher, for- sætisráðherra, sagði að slíkar aðgerðir væru tvíeggja vopn og kæmu verst niður á þeim sem síst skyldi, svörtum íbúum Suður- Afríku. Sagði Thatcher að sann- færa yrði ríkisstjóm hvíta minni- hlutans með rökum, öðruvísi yrði aðskilnaðarstefnan ekki afnumin. Efnahagslegar refsiaðgerðir væru síst til þess fallnar að ná settu marki, þær mundu einungis for- herða ríkisstjóm hvíta minnihlut- ans og um leið auka á bágborinn efnahag svartra. Gagnrýndi for- sætisráðherrann stjómarandstæð- inga fyrir að hvetja til aðgerða, sem óhjákvæmilega hefðu í för með sér aukið atvinnuleysi bæði í Suður-Afríku og Bretlandi. Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra, tók í sama streng og benti meðal annars á að í veði væru 120.000 störf í Bretlandi sem komin væru undir versluninni við Suður-Afríku. Sagði utanríkisráðherrann að fram hjá þessu gætu menn ekki horft þótt andstaða ríkisstjómarinnar við efnahagslegar refsiaðgerðir væri vitanlega fyrst og fremst byggð á efasemdum um árangur slíkra aðgerða. Howe sagði að rík- isstjómin hefði söguna með sér í þessu máli, hún hefði sannað að efnahagslegar refsiaðgerðir gagn- vart einstökum ríkjum bæru sjaldnast tilætlaðan árangur en afleiðingamar yrðu oft allt aðrar en stefnt væri að. Enda þótt breska ríkisstjómin hafi nú enn snúist öndverð gegn hugmyndum um að beita ríkis- stjóm hvíta minnihlutans hörðum efnahagslégum refsiaðgerðum er ekki þar með sagt að hún hyggist sitja aðgerðalausir. Segist ríkis- stjómin hafa á pijónunum marg- vísleg áform um að beita stjómina í Suður-Afríku þrýstingi og stuðla þannig að afnámi aðskilnaðar- stefnunnar. Á morgun verða slík áform til dæmis rædd á ríkisstjóm- arfundi og hefur meðal annars kvisast út að leggja niður flug til Suður-Afríku. Harðar efnahags- legar refsiaðgerðir eru hins vegar ekki á dagskrá frekar en fyrri daginn. Framtíðin ein mun skefa úr um hvort atburðir í Suður- Afríku og þrýstingur utanlands og innan munu að lokum knýja bresku ríkisstjómina til að grípa til ráð- stafana af því tagi. Sakharov Vestur-þýskt blað fær myndband af Sakharov Hamborg, AP. í VESTUR-ÞÝSKA dagblaðinu Bild var skýrt frá því í gær að blaðinu hefði borist myndband í síðasta mánuði, þar sem heyra mátti m.a. samræður Andreis Sakharovs og konu hans Yelenu Bonner um nýjustu tillögu Mik- hails Gorbachev um afvopnunar- mál. í frétt blaðsins kemur fram að hluti myndbandsins hafi að öllum líkindum verið tekinn upp skömmu eftir að Bonner hafi komið frá ferð sinni til Bandaríkjanna og Vestur- Evrópu. Að sögn Bild þá sáust Sakharov-hjónin ekki á myndband- inu, en raddir þeirra heyrðust Samkvæmt frásögn Bild sagði Sakharov við konu sína að hún hefði ekki átt að lýsa yfir því opin- berlega að tillaga Gorbachev um afvopnunarmál hefði verið góð, heldur segja að hún hefði ekki nógu miklar upplýsingar til að geta tjáð sig um hana. Á myndbandinu sést einnig til Sakharaovs við garðyrkjustörf og segir blaðið að sá hluti myndarinnar hafi líklega verið tekin meðan Bonner var enn erlendis. Ekki var greint nánar frá mynd- bandinu að öðru leyti en því að það hefði borist frá Moskvu. í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.