Morgunblaðið - 19.06.1986, Blaðsíða 47
47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1986
Minning:
Þórbjörg Sigur-
steinsdóttir
Fædd 12. október 1919
Dáin 9. júní 1986
í dag verður Þórbjörg Sigur-
steinsdóttir kvödd hinstu kveðju
frá Akureyrarkirkju. Hún var fædd
12. október 1919 að Dagverðar-
tungu í Hörgárdal. Foreldrar henn-
ar voru Septína Kristín Friðfínns-
dóttir og Sigursteinn Steinþórsson,
sem þá bjuggu í Ásgerðarstaðaseli,
næstfremsta bæ í Hörgárdal. Þór-
björg var yngst þriggja systkina og
er þeirra fyrst tii að kveðja þennan
heim langt um aldur fram. Elst er
Sigríður, f. 1912, húsfreyja á
Akureyri. Hún var gift Friðrik Jó-
hannessyni frá Glerá og á einn son
og eina fósturdóttur. Næstelstur er
Steingrímur, f. 1914, fyrrverandi
leigubílstjóri á Akureyri. Hann var
kvæntur Láru Ágústsdóttur miðli.
Þau áttu ekki böm en ólu upp dótt-
urson Láru.
Septína og Sigursteinn bjuggu á
nokkrum bæjum í Hörgárdal en
lengst af á Vindheimum. Bemsku-
minningar Þórbjargar vom að
mestu tengdar Vindheimum og það
var gleðihreimur í röddinni þegar
hún talaði um uppvaxtarár sín þar,
og þegar hún minntist á dalinn sinn,
Hörgárdal, sem henni þótti afar
vænt um. sigursteinn faðir hennar
veiktist af berklum og af þeim
sökum missti hann hægri handlegg-
inn. Þau hjónin bmgðu þá búi og
fluttu í Glerárþorp haustið 1934.
Þetta var fermingarárið hennar
Þórbjargar og mér fannst á frásögn
hennar að hún hefði kvatt sveitina
sína með miklum söknuði. Sigur-
steinn gerðist bensínafgreiðslumað-
ur á Akureyri er hann komst til
heilsu o g lét víst hvergi deigan síga,
þótt hann væri einhentur.
Þórbjörg hlaut sömu skólagöngu
og flestir unglingar á hennar reki,
en það var einungis bamaskólanám.
Mér fínnst alltaf, að hún hefði átt
að ganga menntaveginn. Hún var
vel greind og hafði afburða fallega
rithönd. Hún undi sér við bóklestur
og hlustaði mikið á útvarp og horfði
á sjónvarp sér til ánægju. Hún hafði
mikla dómgreind til að bera og var
mjög gætin í orðum, hallaði aldrei
orði á neinn. Hún var vönduð bæði
í orði og verki, tók lítið verkefni
fyrir í einu, en leysti það vel af
hendi.
Þórbjörg var alvörugefin og ekki
mjög lífsglöð. Hún var ekki mann-
blendin, dul um eigin hagi, en vinur
vina sinna.
Þórbjörg var fríð kona og grann-
vaxin, í meðallagi há með fallegt
dökkt hár og grá augu, ætíð vel til
fara og prúð í allri framgöngu.
Er Þórbjörg var 19 ára gömul
hóf hún sambúð með Haraldi Norð-
flörð Ólafssyni frá Brekku í Glerár-
hverfí. Hann var sonur Kristbjargar
Jónsdóttur og Ólafs Jakobssonar.
Haraldur var sjötti í röðinni af níu
bömum þeirra hjóna, sem upp
komust. Ólafur var ættaður frá
Norðfirði og var kallaður Ólafur
ellefu landa, vegna þess að hann
hafði verið ámm saman í siglingum
víða um heim. Haraldur var þremur
ámm eldri en Þórbjörg, f. 22. októ-
ber 1916. Hann var mjög myndar-
legur maður, hár og herðabreiður,
dökkhærður og brúneygður. Hann
var glaðvær og hress í bragði,
skapheitur og örgeðja. Hann hafði
suðrænt yfírbragð, enda herma
sögur að franskt blóð hafí mnnið í
æðum hans eins og svo margra
Austfirðinga.
Haraldur og Þórbjörg hófu bú-
skap í Glerárþorpi. Haraldur var
sjómaður og síðar netagerðarmað-
ur.
Á köldum vetrardegi í febrúar
1939 fæddist þeim sonur. Hann var
heldur óburðugur, fæddur sex vik-
um fyrir tímann og var aðeins rúm-
ar fímm merkur. Hjónin lögðu nótt
við dag til þess að halda lífi í bam-
inu og þau höfðu erindi sem erfíði,
drengurinn lifír og heitir Bemharð
Sigursteinsson Haraldsson. Hann
er þeirra eina bam. Bemharð gekk
menntaveginn og er nú skólameist-
ari Verkmenntaskólans á Akureyri.
Haraldur og Þórbjörg bjuggu
fyrstu árin í Glerárþorpi, en fluttu
árið 1943 í Geislagötu 37 og bjuggu
þar í sambýli við foreldra Þórbjarg-
ar. Árið 1949 flutti Sigríður systir
Þórbjargar í Geislagötu 39, ásamt
fjölskyldu sinni, og var ávallt mikill
samgangur milli heimila þeirra
systra og foreldra þeirra.
Þórbjörg var heimavinnandi hús-
móðir eins og flestar konur á þess-
um ámm. Á sumrin fór hún oft í
kaupavinnu vesturí Hörgárdal með
son sinn með sér, en Haraldur var
þá oftast á sfldveiðum. Nokkur
sumur fór öll fjölskyldan í sfld til
Siglufjarðar og hef ég heyrt margar
skemmtilegar sfldarsögur frá þeim
áram.
Er sonur þeirra óx úr grasi fór
Þórbjörg að vinna í kexverksmiðj-
unni Lorelei. Þar vann hún uns
verksmiðjan hætti starfsemi sinni
árið 1966. Eftir það vann hún í
Niðursuðuverksmiju Kristjáns Jóns-
sonar.
Þórbjörg talaði oft um árin sín í
Lorelei og heyrðist mér, að það
hefðu verið góð ár. Það urðu henni
talsverð viðbrigði að hefja störf í
Mosaeyðing!
Mosi í görðum hefur lengi verið vandamál hjá garðeigendum.
Nú býðst yður ný þjónusta.
Við úðum grasflötina með sérstöku mosaeyöandi efni (hættu-
lausu) og í framhaldi af því leiðbeinum við þór hvernig best
sé að halda mosanum frá grasflötinni.
Ath! Verð aðeins kr. 900 á meðalgarð með efni, vinnu og akstri.
Pantanir í sima 25707 frá kl. 12 f.h. til 20 e.h.
niðursuðunni. Það var mun erfiðari
vinna og henni féll illa hávaðinn í
vélasalnum en líkaði betur í kaffí-
stofunni þar sem hún vann síðustu
árin. Vinnuveitendur hennar og
samstarfsfólk í niðursuðunni reynd-
ust henni afar vel og vora henni
notaleg á seinni áram þegar heilsu
hennar tók að hraka.
Haraldur Ólafsson missti heils-
una langt um aldur fram. Seinustu
árin sem hann lifði var hann öryrki.
Þá hugsaði hann um heimilið og
Þórbjörg vann í niðursuðunni.
Haraldur var afar flinkur mat-
reiðslumaður og naut sín vel við
heimilisstörfin, þótt heilsan væri
léleg. Hann lést 1. júlí 1971 aðeins
54 ára gamall. Missir Þórbjargar
var mikill og má eiginlega segja,
að hún hafí ekki borið sitt bar eftir
lát Haralds. Árið 1977 seldi hún
húsið í Geislagötu 37 og flutti í
Skarðshlíð 4.
Æðsta takmark Þórbjargar í líf-
inu var að koma syni sínum til
manns, þannig að hann yrði að
minnsta kosti jafnoki samferða-
manna sinna. Sömu umhyggju bar
hún fyrir bamabömunum sínum
fjóram.
Hún gerði engar kröfur sjálfri
sér til handa. Henni fannst hún
alltaf hafa nóg af öllu og var treg
til að taka þátt í lífsgæðakapp-
hlaupinu og veita sér það sem öðr-
um fínnst sjálfsagt. Hún var ákaf-
lega heimakær og hún átti góða
nágranna í Skarðshlíð 4. Einnig var
Sigríður systir hennar vakin og
sofín yfir velferð hennar.
Við Þórbjörg kynntumst fyrir 20
áram, þegar ég varð tengdadóttir
hennar. Það fór alltaf vel á með
okkur, þótt við kæmum úr ólíku
umhverfí og hefðum um margt ólík-
ar skoðanir. Hún hafði mikla
ánægju af bamabömum sínum Qór-
um, Haraldi, Hans Braga, Amdísi
og Þórdísi. Sérstaklega vora þau
samrýmd hún og Haraldur. Hann
var augasteinninn hennar, enda
áttu þau lengsta samleið.
Á síðastliðnu hausti kenndi hún
mikils slappleika og er nánar var
að gáð reyndist vágestur á ferð.
Krabbamein lagði hana að velli á
nokkram mánuðum. það var átak-
anlegt að fylgjast með þeirri viður-
eign. Það má eiginlega segja, að
hun hafí ekki litið glaðan dag frá
því hún lagðist inn á sjúkrahús í
desember og þar til yfír lauk 9.
júní síðastliðinn.
Þórbjörg var mjög trúuð á fram-
haldslíf og las mikið um dulræn
efni. Ég trúi að það hafí veitt henni
styrk. Ég þakka henni samfylgdina,
sem var alltof stutt, og bið henni
blessunar á ókunnum slóðum.
Guð blessi Þórbjörgu.
Ragnheiður Hansdóttir
VERKFRÆÐISTOFUR,
PRENTSMBJUR, AUGLÝSINGASTOFUR,
BNSKÓLAR, TÆKNISKÓLAR,
MYNDLISTARSKÓLAR OG HEDifflJ.
Á ÖLLUM ÞESSUM STÖÐUM
ERU NE0LT TEKNIB0RÐ
OG FYLGIHLUTIR ÞEIRRA
ÓMISSANDI.
?að er gott að eiga annað borð heima
iyrst maður vinnur á annað borð heima
r
ji fyiir
ar fyiir
4 til 14
Teikniboi I til
heimanotr
KL teflcoi él
NEOLT vömmax em framleiddar af einum stærsta
teiknivöruframleiðanda í heimi.
Þær em vandaðar og á hagstæðu verði.
NEOLT teikniborð em nú í vaxandi mæli einnig notuð
við teiknivinnu í heimahúsum.
Þau em óneitanlega þægilegri en eldhúsborðið eða
borðstofuborðið.
Við NEOLT teikniborðið ertu alltaf í réttum stellingum
og reynir ekki um of ó bakið.
Að lokinni notkun má leggja það saman.
Þannig geymist það auðveldlega til dæmis á
bakvið hurð.
Það ber mörgum saman um að gott sé að eiga annað
borð.
Nú er nýkomið frá NEOLT:
Teikniborð, margar gerðir og stærðir með stillanlegri
hæð og halia.
KL teiknivélar, sem em arftakar JOKER teiknivélanna.
Hirslur fyrir teikningar, bæði skápar til að geyma
hangandi teikningar, skúffuskópar
og grindur fyrir teikningar.
Ljósaborð í þremur stærðum með fjórum útfærslum.
Hæð og halli stillanlegt.
Hjólaskápar fyrir ýmsa smóhluti og skjöl.
Lampar og aðrir fylgihlutir, svo sem pennabakkar og
rennur.
ALLT í EINNI FERÐ
CM3
Hallarmúla 2 Sími 83211