Morgunblaðið - 19.06.1986, Blaðsíða 60
jjljjlfHL!G@M(j
C&il
|^> FASTEIGNA
WJ MARKAÐURINN
Eign þin er í traustum
höndum hjá okkur
símar:11540—21700.
FIMMTUDAGUR19. JÚNÍ 1986
VERÐ f LAUSASÖLU 40 KR.
Mál Guðmimdar J. Guðmundssonar:
Y erkalýðsmenn
^lýsa stuðningi
við Guðmund
Gengnr á fund saksóknara í dag
Ovíst um ákvörðun Alþýðubandalags
„VIÐ hyggjumst ekki kasta sprekum á þá galdrabrennu
sem nú hefur verið stofnað til gegn formanni Verkamanna-
sambandsins," segir Karl Steinar Guðnason varaformaður
Verkamannasambands íslands í samtali við Morgunblaðið
í dag. Stjóm Dagsbrúnar kom saman til fundar í gær, og
þar var ákveðið að verða við tilmælum Guðmundar J.
Guðmundssonar, formanns Dagsbrúnar og Verkamanna-
sambandsins, um að hann fái að fela varaformanni Dags-
/. > brúnar skyldustörf formanns, verði ríkissaksóknari við
þeirri ósk hans, að rannsókn fari fram vegna ferðastyrks,
sem Albert Guðmundsson, þáv. fjármálaráðherra, afhenti
honum 1983. Það skýrist væntanlega í dag að loknum fundi
Guðmundar með ríkissaksó knara, hvort orðið verður við
þeirri ósk hans.
Miklar hræringar eru nú innan
Alþýðubandalagsins vegna máls
Guðmundar J. Guðmundssonar, þar
sem ólíkir armar flokksins togast
á. Svavar Gestsson, formaður AI-
þýðubandalagsins, segir í viðtali við
(Morgunblaðið í dag, að niðurstaða
flokksforystunnar í máli Guðmund-
ar J. liggi fyrir, en ekki sé hægt
að greina frá henni að svo stöddu.
Líklegt er talið, að flokksforystan
vilji bíða átekta, þar til ríkissak-
sóknari hefur gefið svar sitt við ósk
Guðmundar. Verði svar hans nei-
kvætt, er talið, að flokksforystan
muni reyna að þrýsta á Guðmund
að hann segi af sér þingmennsku
og öðrum trúnaðarstörfum. Guð-
mundur segir hins vegar, að sér
sé ekki kunnugt um, að flokks-
forystan hafi komist að sameigin-
legri niðurstöðu hvað varðar hans
mál, og segir ekki nokkum mann
í flokknum hafa beðið sig um að
segja af sér, né hafa hótað úrsögn
úr flokknum, ef hann verði ekki
við þeim tilmælum.
í gær upplýstist, að skipafélögin
Eimskip og Hafskip skiptu með sér
ferðakostnaðinum af Flórídaferð
Guðmundar J. Guðmundssonar
haustið 1983, oggreiddi hvort félag
um sig 60 þúsund krónur í þessu
skyni.
Sjá viðtöl og fréttir bis. 4.
MorgunbbuMð/Sigurður SigmundMon
Frá slysstað. Eftir að mönnunum hafði verið bjargað úr flaki flugvélarinnar var hún úðuð með
slökkvikvoðu til að koma í veg fyrir íkveikju í bensíni.
Lítil flugvél hrapaði við Flúðir:
Maður lést og ann-
ar slasaðist mikið
FARÞEGI í eins hreyfils, fjög-
urra sæta flugvél fórst á þriðju-
dagskvöld, er vélin hrapaði á
veginn við flugvöllinn hjá Flúð-
maður vélarinnar slasaðist mik-
ið, en er ekki talinn í lífshættu.
Flugmaður vélarinnar hafði farið
frá Reykjavík á seinni tímanum í 9
Hafskipsmönnum
sleppt
HÆSTIRÉTTUR kvað í gær upp
úrskurð i máli ákæruvaldsins
gegn þeim tveimur forráða-
mönnum Hafskips, sem þá sátu
enn í gæsluvarðhaldi. Þess var
krafist að þeir Ragnar Kjartans-
son og Björgólfur Guðmundsson
skyldu sæta varðhaldi til 25. júní,
en Hæstiréttur taldi ekki nægj-
úr
haldi
um kvöldið með þijá farþega. Hann
lenti nokkru síðar á flugvellinum
við Flúðir og skilaði farþegunum
af sér en tók einn nýjan og flugu
þeir einn hring yfir vellinum og
svæðinu í kring áður en óhappið
varð. Ekki er fyllilega ljóst með
hvaða hætti það varð, þar sem engin
vitni urðu að því er vélin lenti á
veginum. Hins vegar er talið ljóst
að hún hafi verið í krappri beygju
á leið að flugbrautarenda og hugs-
anlega misst ferð við það.
Hinn látni hét Haraidur Agnars-
son til heimilis að Smárahlíð í
Hrunamannahreppi. Hann var
fæddur 6. marz 1953. Haraldur
lætur eftir sig unnustu og tvo syni.
Sjá nánar á bls. 35
Haraldur Agnarsson.
anlega sýnt fram á, að þörf væri
framhalds á gæslu vegna rann-
sóknarnauðsynja eða af öðrum
ástæðum og því bæri að fella
úrskurð Sakadóms Reykjavíkur
um áframhaldandi gæslu úr
gildi.
Það var hinn 21. maí sl. að sex
forráðamenn Hafskips voru hand-
*
Islensk stúlka
hverfur í Noregi
Osló. Frá Jan F.rik Lauré, fréttaritara Morgunblaðsina.
„ÉG ÆTLA bara að skreppa út
og kem fljótt til baka,“ sagði 20
ára gömul íslensk stúlka þegar
hún fór út úr hóteli í Balestrand
K Sognfirði í Noregi aðfaranótt
þriðjudags. Síðan hefur enginn
séð stúlkuna, sem kom til Noregs
fyrir þremur vikum til að starfa
á hótelinu í Balestrand í sumar.
Á þriðjudagskvöld var farið að
óttast um stúlkuna og í allan gær-
dag var leitað. Björgunarsveitar-
menn leituðu með aðstoð hunða,
báta og þyrla.
„Þrátt fyrir umfangsmikla leit á
svæðinu höfum við enga vísbend-
ingu að fara eftir," sagði lénsmað-
urinn í Balestrand, Jens Ese. í dag
verður tekin ákvörðun um það hvort
umfangsmeiri leit verður gerð.
Það var um tvöleytið aðfaranótt
þriðjudags að stúlkan fór frá hótel-
inu. Enginn tók eftir neinu óeðlilegu
og allt benti til að hún ætlaði sér
að koma fljótlega aftur.
teknir og lagði Rannsóknarlögregla
ríkisins fram kröfu um gæsluvarð-
hald yfir þeim til 25. júní. Voru
fímm þeirra úrskurðaðir í Sakadómi
í gæsluvarðhald til þess tíma, en
einn til 11. júní. Var þessum úr-
skurði áfrýjað og taldi Hæstiréttur
þá nægjanlegt að gæsluvarðhalds-
tími allra yrði til 11. júní, þ.e.
miðvikudag í síðustu viku. Þegar
tíminn rann út voru tveir mannanna
enn í haldi og krafðist Rannsóknar-
lögreglan áframhaldandi varðhalds
yfir þeim til 25. júní. Eins og áður
sagði felldi Hæstiréttur þann úr-
skurð Sakadóms úr gildi með dómi
sínum í gær. Mönnunum tveimur
var því sleppt úr haldi.
Að sögn vararannsóknarlög-
reglustjóra, Þóris Oddssonar, kom
niðurstaða Hæstaréttar honum
nokkuð á óvart. „Ég vil þó ekki
leiða neinar getur að því, hvort
þessi niðurstaða muni á einhvem
hátt breyta okkar áætlunum, en ég
vil líka vekja athygli á því, að frá
því að úrskurður Sakadóms gekk
um framlengingu gæsluvarðhalds-
ins höfum við haft eina viku, sem
hefur verið nýtt til hins ýtrasta.
Rannsókn málsins hefur þokað vel
áfram,“ sagði Þórir.
Sláttur hafinn
Holti.
HÉR UNDIR Eyjafjöllum hefur
verið gott vor, en heldur vætu-
samt. Vafalaust hefur þó vætan
verið til hjálpar gegn gras-
maðkinum, sem heijaði á tún í
fyrra og hefur nú orðið víða
vart, einkum í úthögum, en í
verulega minna mæli.
í fyrradag, 17. júní, var hið
fegursta hátíðarveður og komu
Vestur-Eyfellingar saman' á
Heimalandi og Austur-Eyfellingar
á Skógum þar sem hátíðarhöld
fóru fram.
í gær fóru bændur með ný-
ræktir og varin tún að huga að
slætti og er meðfylgjandi mynd
af Siguijóni Karlssyni, bónda á
Efstu-Grund, þar sem hann slær
nýrækt sína í landi Vallatúns.
Fréttaritari