Morgunblaðið - 19.06.1986, Side 31

Morgunblaðið - 19.06.1986, Side 31
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. JÚNÍ1986 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1986 31 fEurgmi Útgefandi nHfifeffe Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakið. Svavari hafnað > Atökin um það, hvort Svavar Gestsson, formaður Alþýðu- bandalagsins, yrði ráðinn ritstjóri Þjóðviljans, stóðu opinberlega í tæpa viku. Meirihluti útgáfu- stjómar blaðsins lét það berast út í byijun síðustu viku, að hann ætlaði að halda þannig á málum á fundi stjómarinnar, sem hald- inn var síðastliðinn mánudag, að Svavar Gestsson yrði ráðinn rit- stjóri flokksmálgagnsins. Með þeirri ráðstöfun hefði Svavari að nýju verið falinn sá flokkslegi trúnaður, sem honum var sýnd- ur, þar til hann varð ráðherra 1978, að ritstýra Þjóðviljanum. Meirihluti útgáfustjómarinnar hefði ekki látið fréttimar um ráðagerðir sínar vegna Svavars berast nema af því að hann var viss um, að hann ætti í fullu tré við minnihlutann og starfsmenn ritstjómar Þjóðviljans undir for- ystu Össurar Skarphéðinssonar, ritstjóra. Stuðningsmenn Svav- ars Gestssonar hefðu ekki farið af stað með nafn hans í þessum flokksbardaga, nema af því að þeir voru vissir um að sigra — hafi annað vakað fyrir þeim frá upphafi á flokksformaðurinn enga stuðningsmenn í sínum eigin flokki. Strax og Svavar Gestsson hafði verið nefndur opinberlega sem ritstjóraefni á Þjóðviljanum fóru hjólin að snúast á annan veg en lið hans vænti. Blaðamenn Þjóðviljans risu upp til andmæla. Trúnaðarmaður þeirra sagði í samtali við Morgunblaðið um niðurstöðu mótmælafundar blaðamannanna: „. . . kom fram bullandi óánægja með þá tillögu að setja hingað inn „kommissar". Nokkrir blaða- menn hafa þegar lýst þvi yfír, að verði það niðurstaða útgáfu- stjómar Þjóðviljans að ráða Svavar Gestsson sem ritstjóra, þá muni þeir þá þegar ganga út.“ Svavar Gestsson, flokksfor- maður, lét undan þessum þrýst- ingi að lokum. Hann gerði meiri- hlutamenn sína í útgáfustjóm- inni ómerka. Á mánudaginn náð- ist þar „samkomulag" um að Svavar yrði ekki ritstjóri: „Annir mínar sem formanns flokksins gera mér ekki kleift að þessu sinni að taka áskorunum meiri- hluta útgáfustjómar sem hvetur mig eindregið til þess að takast á hendur ritstjóm blaðsins,“ segir í bókun, sem Svavar lagði fram á fundinum. Þar var síðan ákveðið að fela eftirmanni Svav- ars á formannsstóli útgáfufé- lagsins og þeim tveimur mönn- um, sem enn gegna ritstjóra- störfum á Þjóðviljanum, Össuri Skarphéðinssyni og Áma Berg- mann, að leita eftir þriðja manni á ritstjórastól blaðsins, sem víð- tæk samstaða geti tekist um, eins og það var orðað. Hér hafa málavextir þessa sérkennilega ritstjóramáls verið raktir. Atburðarásin ein gefur til kynna, að hart hafi verið barist og þeir haft sigur að lokum, sem voru andvígir Svavari Gestssyni. Össur Skarphéðinsson er opinber fulltrúi andstæðinga Svavars og stuðningsmanna hans í þessu máli. Að baki honum stendur hins vegar Ólafur R. Grímsson, formaður framkvæmdastjómar Alþýðubandalagsins. Auk hins gamla kjama í Alþýðubandalag- inu, sem á rætur í Kommúnista- flokki íslands, eru það verkalýðs- foringjar flokksins undir forystu Ásmundar Stefánssonar, er styðja við bakið á Svavari Gests- syni. Tap flokksformannsins í ritstjóramálinu er ekki aðeins persónulegur hnekkir fyrir hann heldur áfall fyrir þá, sem hafa veðjað á hann í þeim gífurlegu átökum, sem eiga sér stað bakvið tjöldin í Alþýðubandalaginu. Þessi átök urðu skýr á lands- fundi flokksins skömmu fyrir áramót. Þar komu andstæðingar Svavars Kristínu Á. Ólafsdóttur í embætti varaformanns. Eftir þann fund var látið út á við eins og ekkert hefði markvert gerst. Næst blossuðu átökin upp vegna forvalsins á borgarstjómarlista Alþýðubandalagsins. Þá réðust andstæðingar Svavars á Siguijón Pétursson, sem hélt velli. Enn var látið eins og ekkert hefði gerst. I þriðja sinn blossuðu átök- in upp vegna þess, hvemig Þjóð- viljinn skrifaði um kjarasamning- ana á liðnum vetri. Þá var gerð atlaga að Ásmundi Stefánssyni, forseta Alþýðusambandsins. I Úórða sinn fór allt á annan endann, þegar Siguijóni Péturs- syni var bolað út úr sjónvarps- þætti kvöldið fyrir kjördag. Vegna misheppnaðrar fram- göngu Össurar Skarphéðinsson- ar þar töldu stuðningsmenn Svavars, að þeir gætu sett hon- um ritstjórastól fyrir dymar á Þjóðviljanum og voru fullvissir um sigur, þegar Svavar leyfði þeim að nota sig í orrustunni um yfírráðin yfír Þjóðviljanum, enda mikið í húfí, sjálft flokksmál- gagnið. En Svavari var hafnað; andstæðingar hans fagna sigri og stuðningsmennimir efast um heilindi hans. Orrustur hafa verið háðar innan Alþýðubandalagsins en stríðinu er ekki lokið. Vígstaða flokksformannsins, kommúnista- lgamans og verkalýðsforingja hefur versnað til muna við úrslit síðustu orrustu. Tapi þessi öfl oftar með sama hætti hleypur flótti í lið þeirra til hins flokksins innan Alþýðubandalagsins. Eigxim engan auð meiri en þann, sem í þjóðinni sjálfri býr Avarp forsætisráðherra, Stein- gríms Hermannssonar, 17.júní Góðir íslendingar Þetta er fíórða árið, sem ég ávarpa ykkur á þjóðhátíðardegin- um. í mínum huga skipar 17. júní sérstakan sess, og svo veit ég að er um aðra íslendinga. Á þessum degi eru deilumálin lögð til hliðar, en um það rætt, sem sameinar okkur og tengir þjóðina landinu. Svo mætti oftar vera, því eins og Tómas Guðmundsson lét Fjallkon- una flytja þjóðinni 17.júní 1950; „Þáerþín hamingja efhvorkimá heift né hyggja flá hugþinn vinna“. Sameinuð getur íslenska þjóðin leyst hvem þann vanda, sem að steðjar, það sanna dæmin. Fyrir þremur árum horfði til stórra vand- ræða í efnahagsmálum landsins. Stórfelldum erfíðleikum, og líklega meiri en við gerum okkur grein fyrir, var afstýrt. Það tókst vegna skilnings og stuðnings almennings. Og énn mun mikill áfangi nást, e.t.v. í raun meiri en 1983. Það tekst með samstilltu átaki laun- þega, atvinnurekenda og ríkisvalds. Þannig er settum markmiðum náð; „er kraftamir safnast og sundmng- injafnast". Hin hraða hjöðnun verðbólgu án atvinnuleysis hefur vakið athygli víða erlendis. Oft hef ég verið að því spurður, hvemig slíkt hafí verið unnt. Ég hef í raun ekki fundið annað betra svar en að vísa til þess almenna og víðtæka skilnings, sem þegnar þessa lands hafa sýnt á þeirri staðreynd, að þeirra eigin hagur og jafnvel sjálfsforræði þjóð- arinnar er óaðskiljanlega háð heil- brigðu efnahagslífí. Þótt mikið hafí á unnist, fer því þó víðsfjarri að verkinu sé lokið. Svo verður reyndar aldrei. Baráttan er ævarandi. Breytingar verða með vaxandi hraða og framfarir em þjóðinni nauðsynlegar. Þótt á hátíð- isdegi sé, ætla ég að leyfa mér að nefna nokkur þau verkefni, sem ég tel mikilvægust. Verðlag má aldrei fara úr bönd- um á ný. Um það verða menn að sameinast. Það hefur reynslan kennt okkur. Erlendar skuldir þjóðarinnar em of miklar. Á næstu ámm er nauð- synlegt að draga markvisst úr þeim. Það mun kosta nokkrar fómir, en miklar vaxtagreiðslur af erlendum lánum er blóðtaka, sem þjóðin verð- ur að losa sig við. Fjölbreytni og öryggi atvinnulífs- ins ber að auka. Sjávarútvegur mun verða meginstoð um langan aldur, og hann má auka og bæta. En á ýmsum nýjum sviðum em vaxtar- líkur mestar. Það er okkur skylt að nýta, og reyndar hasla nú margir dugmiklir einstaklingar sér völl í nýjum atvinnuvegum og greinum. En þótt kostimir séu margir, eigum við þó engan auð meiri en þann, sem í þjóðinni sjálfri býr, einkum æsku þessa lands. Eitt sinn spurði ég erlendan sérfræðing að því, hvar hann teldi möguleika okkar íslendinga mesta. Hann svar- aði án tafar: „Á sviði hugbúnaðar og ýmiss konar þekkingar. Þið ís- lendingar emm vel menntuð þjóð, talið margir erlend tungumál og emð frægir fyrir mikinn fíölda ágætra skákmanna. Það em sömu : þæfíleikar og hátækniiðnaðurinn 'lcrefst". Þetta svar hef ég oft hugleitt og sannfærst um það betur og betur, að það er rétt. Þekkingin er gmnd- völlur nútíma atvinnulífs, ekki síst hjá smáþjóð, sem verður að byggja á gæðum og hugviti. Á vísindi, rannsóknir og góða menntun ber því umfram allt að leggja ríka áherslu. Þeim sem eldri em hættir til þess að vanmeta æskuna og telja hana í flestu standa að baki æsku- fólki fyrri ára. Þetta er mikill mis- skilningur. Margt hefur að sjálf- sögðu breyst í hugsun, fari og fram- komu ungmenna. Það liggur í hlut- arins eðli, tímamir em gjörbreyttir. Af kynnum mínum af æskufólki hef ég sannfærst um, að það ber þó ekki síður í bijósti nú en fyrr sterkar taugar til lands, þjóðar og tungu, og það er víðsýnna og betur mennt- að en fíöldinn var áður. Ef við, sem nú ráðum, skilum traustu og heil- brigðu íslandi, óttast ég ekki um framtíð lands og þjóðar í höndum þeirrar æsku, sem nú elst upp. Góðir íslendingar, Ef friður helst í heiminum, er framtíð okkar lands björt, svo segir mér hugur, en hún mun verða mikið breytt frá því, sem við þekkjum. Framfarir og hraði breytinganna eykst stöðugt. Þær verða ekki stöðvaðar, hvort sem mönnum líkar betur eða verr, enda engin ástæða til þess. Ef við höfum vit og þor til að nýta okkur framfarimar eins og okkur hentar, eiga breytingamar að stuðla að bættu mannlífí, sem er að sjálfsögðu það megin mark- mið, sem okkur sameinar. Til þess höfum við betri aðstöðu en nokkur önnur þjóð sem ég þekki. Ég óska íslendingum nær og fíær gleðilegrar hátíðar og glæstrar framtíðar, góðs mannlífs í fögru landi. Ávöxtunarsjóðir og starfsemi þeirra eftir Davíð Björnsson í maí síðastliðnum var ár liðið frá því að starfræksla fyrstu tveggja ávöxtunarsjóðanna hér- lendis hófst. Fram hefur komið að samanlögð eign þessara tveggja sjóða er hátt í sjöhundruð milljónir króna og þar með er ljóst að allnokkur hluti innlends spamaðar hefur leitað í þetta form. Þessi þró- un er síður en svo nokkurt sérís- lenskt fyrirbrigði heldur einungis endurspeglun af því sem verið hefur að gerast undanfama áratugi í vestrænum ríkjum. í þessari grein verður farið nokkrum orðum um ávöxtunarsjóði og starfsemi þeirra og hlutverki lýst. Þá verður því lýst hvemig fé lagt í ávöxtunarsjóð er tryggt, t.d. samanborið við fé lagt í banka. Hvað er ávöxtunar- sjóður? Ávöxtunarsjóðir hafa starfað lengi í þeim löndum þar sem verð- bréfaviðskipti eru hvað þróuðust. í Bandaríkjunum starfa þúsundir slíkra sjóða, sem kallaðir eru „mutual funds". í Bretlandi em starfandi hátt á níunda hundrað sjóða, sem þar kaliast „unit trusts". Auk þess em sjóðir starfandi í flest- um hinna nágrannalandanna. Ávöxtunarsjóðir hafa á liðnum ámm þróast upp í það að verða sífellt mikilvægari milliliður milli smærri sparifjáreigenda og fíár- magnsmarkaðarins. Starfsemi ávöxtunarsjóða felst í því að safna saman fíárhæðum frá hveijum ein- stökum sparifjáreiganda með því að gefa út og selja eigin skuldabréf. Það fé sem þannig safnast er síðan ávaxtað með ýmsum hætti, mis- munandi hjá hveijum sjóði. Sjóðir geta valið um að fíárfesta í hluta- bréfum, skuldabréfum, hrávöm- samningum, málmum eða öðra því sem talið er að gefa muni góða ávöxtun. Yfirleitt sérhæfa sjóðimir sig mjög og eiga nær eingöngu viðskipti á einum hluta markaðar- ins. Þannig em til sjóðir, sem kaupa eingöngu hlutabréf í stærstu fyrir- tækjum, aðrir gætu fjárfest ein- göngu í ríkisskuldabréfum, enn aðrir eingöngu keypt skuídabréf fyrirtælqa af hæsta gæðaflokki og svo framvegis. Islenskir ávöxtunar- sjoðir Hér á landi em starfandi tveir ávöxtunarsjóðir eins og fyrr var nefnt. Þeir em ávöxtunarsjóðir Hávöxtunarfélagsins hf. og Verð- bréfasjóðsins hf. Hávöxtunarfélagið hf. gefur út Einingabréf og Verð- bréfasjóðurinn hf. gefur út Kjara- bréf. Bréf þessi hafa nú verið á markaðnum í rúmt ár og hafa hlotið góðar undirtektir spariQáreigenda. Segja má að íslensku ávöxtunar- sjóðimir hafí nær eingöngu lagt fé í skuldabréf, enda em aðstæður hér á landi þær, að önnur form fíárfest- inga em ekki jafn hagstæð. Hins vegar er viðbúið, breytist aðstæður í þjóðfélaginu þannig að önnur form fíárfestinga verði jafn hagstæð eða hagstæðari sparifjáreigendum en ávöxtun á skuldabréfamarkaði er nú, að sjóðimir breyti ráðstöfun fíármagns síns eða stofnaðir verði aðrir ávöxtunarsjóðir, sem fíárfesti á annan hátt en þeir sjóðir sem nú em starfandi. Samkvæmt upplýs- ingum sjóðanna tveggja sem hér starfa, hafa þeir iagt mesta áherslu á verðtryggð skuldabréf með veði í fasteign, en einnig hafa verið keypt ríkisskuldabréf með ábyrgð banka eða sveitarfélaga og bréf með sjálfskuldarábyrgð. Báðir sjóð- ir hafa nýlega auglýst 54% ávöxtun fyrsta árið þegar ekki hefur verið tekið tillit til innlausnargjalds sem er 2—3%. Þessi ávöxtun svarar til um það bil 20% vaxta umfram verðbólgu. Helstu kostir ávöxtunarsjóöa Fyrir hinn almenna spari^áreig- anda, sem hyggst ávaxta fé sitt á fíármagnsmarkaði hefur það nokkra kosti í för með sér að gera það óbeint með þátttöku í ávöxtun- arsjóði í stað þess að taka beinan þátt í markaðnum með verðbréfa- kaupum. Þessir kostir felast í: — dreifingu áhættu — féð er nær óbundið — hægt er að ávaxta smærri upp- hæðir en áður á verðbréfamark- aði. Hvað dreifíngu áhættu viðvíkur er ljóst að ávöxtunarsjóður, sem á hundmð eða þúsundir bréfa, getur dreift áhættu sinni miklu meir en hver einstakur spariíjáreigandi gæti. Sá sem tekur þátt í ávöxtun- arsjóði með kaupum á Einingabréf- um eða Kjarabréfum á þar með tilkall til ákveðins hluta eigna sjóðs- ins í heild, en ekki tilkall til ákveð- ins bréfs eða bréfa. Þetta er einn stærsti kosturinn fyrir þá sem taka þátt í sjóðunum, þar sem þetta tryggir það að jafhvel þó að skulda- bréf í eigu sjóðsins glatist af ein- hveijum orsökum tapar hver ein- stakur aðili, sem tekur þátt í sjóðn- um einungis örlitlu broti af heildar- eign sinni. — Annar umtalsverður kostur við að fjárfesta með milli- göngu ávöxtunarsjóðs er sá að féð er mun óbundnara en ella. Ávöxtun- arsjóðir innleysa eigin bréf með skömmum fyrirvara, en ef sparifjár- eigendur fíárfestu í bréfum á eigin spýtur þyrftu þeir annaðhvort að bíða eftir afborgun af þeim bréfum sem þeir kaupa, eða selja þau aftur á markaði. Endursala á markaði er hins vegar ekki alltaf trygg og getur tekið tíma. Samkvæmt upp- lýsingum forráðamanna íslensku sjóðanna, sem birtust í Morgun- blaðinu hinn 29. maí sl., hafa Ein- ingabréf verið innleyst samdægurs Davíð Björnsson „Ávöxtunarsjóðir hafa á liðnum árum þróast upp í það að verða sí- fellt mikilvægari milli- liður milli smærri spari- fjáreigenda og fjár- magnsmarkaðarins. Starfsemi ávöxtunar- sjóða felst í því að safna saman fjárhæðum frá hveijum einstökum sparifjáreiganda með því að gefa út og selja eigin skuldabréf. Það fé sem þannig safnast er síðan ávaxtað með ýmsum hætti, mismun- andi hjá hveijum sjóði.“ gegn 2% innlausnargjaldi, en Kjara- bréf að tveimur dögum liðnum gegn 2% innlausnargjaldi eða samdægurs gegn 3% innlausnargjaldi. — Þriðji kosturinn við að taka þátt í verð- bréfamarkaðnum í gegnum ávöxt- unarsjóð er sá, að smærri upphæðir em alveg jafn gjaldgengar á mark- aðnum. Án ávöxtunarsjóðs þarf ákveðna lágmarksupphæð til að tali-n hátt í vprðhréfaviðskintum. har sem verð á venjulegum skuldabréf- um er yfirleitt það hátt að það er ekki á allra færi að kaupa þau. Auk þess þarf mikla fjármuni til að kaupa jafn mörg bréf og æskilegt væri, til að heppileg áhættudreifíng náist. Nú er hægt að taka þátt í verðbréfamarkaðnum fyrir 5—8 þúsund krónur, en áður vom al- gengustu einingar á markaðnum á bilinu 50 til 100 þúsund krónur. Þá má nefna að starfsmenn ávöxt- unarsjóðanna era flestir sérfræð- ingar í verðbréfaviðskiptum og þekkja þar af leiðandi þær gryíjur, sem varast þarf í þeim. Með vaxandi hlutverki þeirra á verðbréfamark- aðnum má því ætla að öryggi hans aukist enn. Tryggjng- þeirra, sem taka þátt í ávöxtunarsj óðum Sparifjáreigendur hljóta ávallt að vilja vita hvemig sparifé þeirra er tryggt, hvort sem þeir ávaxta pen- inga með því að leggja þá í banka eða með öðram hætti. Trygging þeirra sem taka þátt í ávöxtunar- sjóðnum er sú eign, sem sjóðurinn myndar. Sú eign getur verið mis- munandi eftir því á hvaða sviði sjóð- urinn starfar, en hér á landi felast eignir ávöxtunarsjóðanna í skulda- bréfum, eins og fyrr var nefnt. Sú trygging, sem stendur að baki þeim, er ýmist fasteignaveð, ábyrgð banka, ríkissjóðs eða sveitarfélaga, eða sjálfskuldarábyrgð þeirra aðila, sem sjóðimir meta nægilega trygga. Þessar tryggingar em svip- aðar og bankar krefjast er þeir ráð- stafa fé sínu til útlána. Öryggi þess fjár, sem lagt er í ávöxtunarsjóði ætti því að vera tryggt. Ljóst er af viðtökum þeim, sem íslensku ávöxtunarsjóðimir hafa hlotið, að starfsemi þeirra á eftir að eflast vemlega á næstu ámm. Stofnun þeirra var mjög merkur áfangi í þeirri þróun íslensks ijár- magnsmarkaðar, sem orðið hefur á sfðastliðnum þremur til fjórum ámm. Nokkuð hefur hins vegar skort á að menn gerðu sér fyllilega grein fyrir því hvers eðlis starfsemi ávöxtunarsjóðanna er, og má líta á þessa grein sem tilraun til að bæta úrþví. Höfundur er rekstarhagfræðing- ur og deildarstjári verðbréfadeild- ar Kaupþings hf. AF ERLENDUM VETTVANGI David Owen leiðtogi breskra sósíaldemókrata og David Steel formaður Frjálslynda flokksins deila nú hart um afstöðu Bandalags þessara flokka kjarnorkumála. Kosningabandalagið í Bretlandi: Harðar deilur um kjamorkumál Harðar deilur hafa nú risið í Bandalagi breskra sósíaldemó- krata og frjálslyndra um varnarmál. Er talið að þessi ágreiningur sé hinn mesti, sem komið hefur upp síðan Bandalagið var myndað fyrir fimm árum, og geti haft áhrif á gengi þess í næstu kosning- unum. Deilan á rætur að rekja til skýrslu sameiginlegrar nefndar Bandalags flokkanna um vamar- og afvopnunarmál. í skýrslunni, sem unnið hefur verið að í marga mánuði og gerð var opinber í síð- ustu viku, segir að fresta skuli ákvörðun um afstöðu Bandalags- ins til þess hvort Bretar skuli halda við kjamorkuvopnabúri sínu í vamar-og öryggisskyni. Nú er ljóst að Polaris-kafbátar Breta verða úreltir eftir nokkur ár, og hefur stjóm Thatchers ákveðið að í stað þeirra skuli koma kafbátar af Trident-gerð, sem hafa fleiri langdrægar eldflaugar. I skýrslunni er komist að þeirri niðurstöðu að Polaris-kafbátamir dugi þangað til um miðjan næsta áratug, og því skuli ákvörðun um endumýjun þeirra tekin með tilliti til afvopnunarviðræðna stjórveld- anna og afstöðu annarra Évrópu- þjóða í þessu máli. Einnig verði reynt að treysta fælingarmátt breska heraflans með öðmm að- ferðum en þessum. Djúpstæður ágrein- ingur David Owen leiðtogi sósial- dmókrata vill að Bretar hefji nýja eldflaugaáætlun f því skyni að leysa Polaris-kafbátana af hóimi. Margir flokksbræðra Davids Steel formanns fijálsynda flokksins styðja hins vegar einhliða kjam- orkuafvopnun Breta. Þeir em því ósammála Owen um að Bretar skuli yfírleitt eiga nokkur kjam- orkuvopn, hvað þá að endumýja þau sem fyrir eru. Ágreiningur flokkanna tveggja kom greinilega í ljós eftir að skýrslan var birt, en þá sagði Owen að taka yrði afstöðu til málsins nú. Annað væri veikleika- merki, sem gæti reynst Bandalag- inu dýrkeypt í næstu kosningum. Að hans dómi er nauðsynlegt að Bretar endumýi kjamorkuvopna- búr sitt til halda fælingarstyrk sínum. Það sé ekki vænn kostur í öryggismálum Vestur-Evrópu að treysta einvörðungu á hefð- bundin vopn: „Mestu máli skiptir að Frakkar verði ekki eina Evr- ópuþjóðin, sem jrfír kjamorku- vopnum ráða,“ segir Owen. Hins vegar er David Steel samþykkur þeirri málamiðlun, sem felst i niðurstöðu skýrslunn- ar, og brást hann harkalega við ummælum Owens. Hann sagði að gætu flokkamir ekki komið sér saman um stefnumál í stjómar- andstöðu, þá vaknaði sú spuming hvort það væri unnt í ríkistjóm. Steel vísaði einnig á bug þeirri tillögu Owens, að flokkamir gengju óbundnir til kosninga í þessu máli ef ekki næðist sam- komulag um það. Steel sagði að næði hugmynd Owens fram að ganga, kynni það að hafa alvar- legar afleiðingar í för með sér. Að visu væri ekki sjálfgefíð að Bandalagið klofnaði, en líkumar á því mundu vissulega aukast. Hann kvaðst þó vona að Owen snerist hugur, þar sem sú mála- miðlun sem kæmi fram í skýrsl- unni væri besta lausnin eins og málum væri nú háttað. Gagnrýni á Owen innan f lokksins En það var ekki aðeins Steel sem deildi á Öwen fyrir afstöðu hans í þessu máli, heldur líka áhrifamenn úr flokki sósíaldemó- krata sjálfra. Bæði formaður og varaformaður flokksins, Shirley Williams og William Rodgers, hvöttu Owen til að leita sátta, svo þessi ágreiningur stofnaði ekki samstarfssamningi flokkanna í hættu. Haft var eftir Rodgers að Owen væri „frábær leiðtogi, en stundum of kreddufastur". Shir- ley Williams staðhæfði að Owen rangtúlkaði stefnu flokksins í vamarmálum. Það væri markmið flokksins að endumýja kjamorku- vopnabúr Bretlands „ef það reyndist nauðsynlegt". Margir hafa þó tekið upp hanskann fyrir Owen. John Cart- wright talsmaður sósíaldemó- krata í vámarmálum deildi t.a.m. á Williams fyrir að gefa í skyn að Owen væri einangraður í flokknum í þessu máli, enda ættu skoðanir hans í vamarmálum miklu fylgi að fagna meðal sósíal- demókrata. Einnig telja sumir að eina leiðin til að auka fylgi Banda- lagsins í næstu kosningum sé að vinna stuðningsmenn hægri arms Verkamannaflokksins og miðju- manna í Ihaldsflokknum á sitt band. Með öðmm orðum sé hér um það að ræða að leggja snömr fyrir kjósendur sem séu sama sinnis og Owen í vamarmálum. Hvað sem þessum vangaveltum líður er greinilegt að djúpstæður ágreiningur er milli flokkanna tveggja um vamarmál. í skoðana- könnun, sem gerð var meðal þing- manna þeirra um afstöðuna til kjamorkuvopna, kemur fram að 51% sósíaldmeókrata er fylgjandi því að kjamorkuvopn Breta verði endumýjuð, 24% á móti og 21% óákveðnir. Hins vegar em 83% þingmanna Fijálslynda flokksins andvígir því og aðeins 6% með- mæltir. Reyna sáttaleiðina Gera má ráð fyrir því að deil- umar í Bandalaginu verði vatn á myllu andstæðinga þess, íhalds- flokksins og Verkamannaflokks- ins. íhaldsmaðurinn Peter Walker, sem er orkumálaráðherra, sagði t.d. fyrir helgi að þjóðinni mætti vera ljóst að Bandalaginu væri ekki treystandi, þvi nú hefði það í hyggju að taka upp svipaða afstöðu og Verkamannaflokkur- inn, sem vill einhliða kjamorkuaf- vopnun. Óttast margir að komi flokk- amir tveir sér ekki saman um þetta mál, kunni Bandalagið að fá svipaða útreið og Verkamanna- flokkurinn í sfðustu kosningum. Af þeim sökum m.a. er Owen og Steel í mun að ná sáttum. Samt er næsta víst að þetta mál á eftir að draga dilk á eftir sér, jafnvel er ekki talið útilokað að Bandalag- ið klofni ef deilumar magnast enn frekar. (Heimildir: The Economist, Guardian, og Financial Times.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.