Morgunblaðið - 23.07.1986, Page 3
)flOM
öBei UuL ss HuoAauxivam .aiaAja
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1986 3
Kvartsefni til íslenska járnblendifélagsins:
Unnið að rannsóknum á sýn-
um frá Narsaq í Grænlandi
Leiga á
borgar-
húsnæði
hækkar
BORGARRÁÐ hefur ákveðið að
hækka leigu á íbúðarhúsnæði í
eigu Reykjavíkurborgar. Félags-
málastjóri gerði tillögu um 5%
hækkun og var hún samþykkt.
Borgin leigir nú á níunda hundr-
að íbúða, ef húsnæði aldraðra er
talið með. Heimilt er að hækka leig-
una flórum sinnum á ári, miðað við
breytingar á vísitölu byggingar-
kostnaðar.
Nýja flugstöðin:
Opnuð tilboð
í lóðarfrá-
gang, vogir
og færibönd
TILBOÐ í frágang lóðar við nýju
flugstöðina á Keflavíkurflugvelli
voru opnuð. Sjö aðilar buðu
í verkið. Kostnaðaráætlun hljóð-
ar upp á kr. 103.688.634. Hlað-
bær hf. átti lægsta tilboðið, kr.
85.727.260, 837. af áætlun. Bygg-
ingarnefnd flugstöðvarinnar
stefnir að því að semja við verk-
taka í þessari viku.
Fjögur tilboðanna voru yfir
kostnaðaráætlun, og átti Amardal-
ur sf. það hæsta, 125 milljónir
króna. Nú er unnið að því að bjóða
út einstök kerfí inn í flugstöðinni.
í síðustu viku voru opnuð tilboð í
færibönd og vogir fyrir farangur.
Sex fyrirtæki buðu í verkið sam-
kvæmt útboðsgögnum, auk fjölda
frávikstilboða. Lægsta verðið býður
Siemag Rosenkaimer í Þýskalandi,
kr. 18.361.824. Verkið nær tií
hönnunar, smíði, uppsetningar,
prófunar og viðhalds.
EKKI er enn ljóst hvort unnt
verður að vinna kvartsefni úr
jörðu við Narsaq á Grænlandi
fyrir íslenska járnblendifélagið
hf. Verið er að vinna úr sýnum,
sem safnað var í leiðangri
íslenskra og danskra vísinda-
manna fyrr í sumar, en endanleg-
ar niðurstöður liggja ekki fyrir
fyrr en að afloknum bortilraun-
um, sem væntanlega verða
gerðar nú í ágúst.
Leiðangursmenn dvöldu í fjórar
vikur við rannsóknir í Narsaq, sem
er utarlega í Eiríksfirði. í hópnum
voru þrír íslendingar, Þorsteinn
Hannesson og Ásgeir Kristjánsson
frá jámblendifélaginu á Grundar-
tanga og Hreinn Haraldsson,
jarðfræðingur. Tilgangur leiðang-
ursins var að kanna hvort unnt er
að vinna kvartsefni úr jörðu á þessu
svæði, til vinnslu í jámblendiverk-
smiðjunni á Grundartanga. Myndi
það hafa í för með sér mikinn spam-
að fyrir verksmiðjuna, vegna stytt-
ingar á aðflutningsleið.
Ekki var unnt að taka fullnægj-
andi borsýni vegna bilunar í
tækjabúnaði og verða þvl borsýnin
væntanlega tekin nú í ágúst, eins
og áður segir. Það er því ekki fyrr
en niðurstöður af rannsóknum
þeirra sýna liggja fyrir, sem unnt
verður að skera úr um hvort af
vinnslu efnisins getur orðið á þessu
svæði.