Morgunblaðið - 24.07.1986, Page 1

Morgunblaðið - 24.07.1986, Page 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 163. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Afvopnunarviðræður: Möguleiki á víð- tæku samkomulagi — segir Max Kampelman Washington,^ AP. BANDARÍKJAMENN og Sovétmenn gætu náð víðtæku sam- komulagi um að fækka kjarnorkuvopnum á þessu ári, að því er helsti samningamaður Bandaríkjanna, Max Kampelman, sagði í gær. Kampelman kvaðst í viðtali við bandarísku Worldnet-frétta- stofuna, sem dreifir fréttum til Vestur-Evrópu, bjartsýnn á að samningaviðræðumar í Genf beri ávöxt. Hann hvatti aftur á móti til þolinmæði í viðræðunum, sem verður haldið áfram í september, og sagði að umræðuefnin væru það flókin að ekki megi vænta þess að gengið verði frá samn- ingum að fullu á þessu ári. Ítalía: Kristilegir demókratar styðja Craxi Róm, AP. KRISTILEGIR demókratar lýstu yfir því í gær að flokk- urinn myndi styðja sósíalist- ann Bettino Craxi til að vera forsætisráðherra á Ítalíu þar til gengið verður til kosninga 1988 með því skilyrði að Sósíalistaflokkurinn sam- þykki að eftirmaður Craxis verði úr röðum kristilegra demókrata. Sósíalistar hafa ekki svarað þessu boði opinberlega. Cririaco de Mita, framkvæmdastjóri flokks kristilegra demókrata, gerði þetta tilboð í sjónvarpi. Francesco Cossiga, forseti, fól Craxi stjómarmyndun á mánudag, eftir að Giulio Andre- otti, utanríkisráðherra, hafði greint forsetanum frá því að sér hefði ekki tekist að mynda stjóm. Sósíalistar höfnuðu Andreotti sem forsætisráðherra. ítalska stjómin féll 27. júní, þegar Craxi sagði af sér eftir að hafa tapað leynilegri at- kvæðagreiðslu á þingi. „En ef þú ert að tala um víðtækt samkomulag, þá tel ég það vissulega mögulegt," sagði Kampelmann við viðmælanda sinn. Kampelmann sagði einnig að Ronald Reagan, Bandaríkjafor- seti, ætlaði líkast til að leggja til að öldungadeild Bandaríkja- þings staðfesti samninga frá 1974 til 1976 um bann við til- raunum með öflugri kjarnorku- sprengjur en 150 megatonn, ef samkomulag næst um eftirlit til að tryggja að bann þetta verði haldið. Viðræður milli bandarískra og sovéskra sérfræðinga um eftirlit með kjarnorkutilraunum hefjast í Genf á morgun. Einnig fara fram í Genf viðræður um SALT Il-samninginn frá 1979 um tak- mörkun langdrægra eldflauga af tilteknum gerðum. Brúðhjónin til Azoreyja Hin nýgiftu hertogahjón af York ganga frá Westminster Abbey í fylgd svaramanns Andrésar, bróður hans Játvarð- ar og brúðarmeyja og sveina. Fremstur brúðarsveinanna er Vilhjálmur, sonur Karls ríkis- arfa og Díönu konu hans. Mikið var um dýrðir i Lundúnaborg í gær vegna brúðkaupsins, um 2.000 gestir voru viðstaddir athöfnina og geysilegur mann- fjöldi safnaðist saman hvar- vetna þar sem brúðhjónin birtust og fagnaði þeim inni- lega. Miklar öryggisráðstafanir voru gerðar og 3.600 her- og lögreglumenn höfðu það hlut- verk að halda uppi röð og reglu. Eftir veislu í Bucking- hamhöll héldu hjónin í brúð- kaupsferð tíl Azoreyja, þar sem portúgalski landstjórinn, Joao Bosco De Mota Amaral, tók á móti þeim og færði þeim gjaf- ir. Breska konungssnekkjan „Britannia" beið þeirra þar og munu þau sigla umhverfis eyj- amar í vikutíma og slaka á eftir allt umstangið undan- faraar vikur, uns haldið verður aftur heim á leið eftir hátiðlega kveðjuathöfn 28. júlí. Vonumst til að finna svör sem allir geta sætt sig við - sagði Sir Geoffrey Howe við upphaf viðræðnanna við P.W. Botha, forseta Suður-Afríku Addis Ababa, Washington og Jóhannesarborg, AP. SIR GEOFFREY Howe, utanríkisráðherra Bretlands, átti í gær tveggja stunda viðræður við P.W. Botha, forseta Suður-Afríku, um afstöðu Evrópubandalagsins til aðskilnaðarstefnu stjórnvalda þar. Eftir fund þeirra sagði Howe við fréttamenn: „Stormur breyting- anna í Afríku skekur nú undirstöður þjóðfélagsins í syðsta landi álfunnar." íbúar Suður-Afríku geta sætt sig við.“ Áformað er, að Howe ræði við forystumenn blökkumanna úr efna- hagslífi Suður-Afríku í dag og ennfremur við ýmsa aðila, sem „Þeir, sem standa fyrir utan, kunna að sjá hluti, sem þeir, er nær standa, sjá ekki,“ sagði Howe enn- fremur. Fyrir fundinn hafði hann sagt: „Við vonumst til að fínna svör við mörgum spumingum, sem allir Hassan segir viðræðurnar við Peres árangurslausar T'«l A iriv Damaakus AP Tel Aviv, Damaskus, AP. HASSAN II, konungur af Marokkó, sagði í sjónvarpsávarpi í gær- kvöldi að viðræður sínar við Shimon Peres, forsætisráðherra ísraels, hefðu ekki reynst spor i átt til friðar í Miðausturlöndum. Hassan sagði að ísraelum yrði ekki haggað í afstöðu sinni gegn Frelsissamtökum Palestínu (PLO), sem þeir neita að viðurkenna, og einnig neituðu ísraelar að gefa eft- ir hemumin svæði. Ræða Hassans tók 45 mínútur og var fyrst og fremst beint til þegna hans. Viðurkenndi Hassan í raun að hinn sögulegi fundur sinn og Peresar hefði ekki borið árangur. Hassan kvað Ronald Reagan, Bandaríkjaforseta, hafa reynt að telja sig á að halda fundinn í Banda- ríkjunum, en það hefði hann ekki viljað af ótta við að verða sakaður um að vera undir áhrifum frá Bandaríkjamönnum. Búist var við sameiginlegri yfir- lýsingu ríkisstjórna ísraels og Marokkós í morgun. Peres er nú farinn frá Marokkó. Heimsókn Peresar til Marokkó var harðlega fordæmd í yfirlýsingu frá A1 Fatah, sem em stærstu sam- tökin innan Frelsissamtaka Palestínu (PLO). Sagði í yfirlýsing- unni að þetta frumkvæði Hassans myndi auka á óeiningu í röðum araba einmitt nú þegar sameiningar væri þörf. Peres og Hassan var óskað ár- angurs í leiðurum egypskra dag- blaða í gærmorgun og sagði að fundur þeirra vekti vonir um að allar arabaþjóðir myndu að lyktum fylgja því fordæmi, sem Egyptar settu fyrir níu árum, og kæmu á friði í Miðausturlöndum. mestu máli skipta í viðskiptatengsl- um Bretlands og Suður-Afríku. Síðan er ráðgert, að hann haldi til Zambíu til viðræðna við Kenneth Kaunda forseta þar. Einingarsamtök Afríku (OAU) skoruðu í gær á Bandaríkjaþing að samþykkja harðar refsiaðgerðir gagnvart Suður-Afríku og virða þannig að vettugi áskorun Reagans forseta um hið gagnstæða frá því daginn áður. Fordæmdu samtökin forsetann fyrir ræðu hans á þriðju- dag. I ræðunni hvatti forsetinn þingið og bandalagsríki Bandaríkjanna til þess að grípa ekki til refsiaðgerða gegn Suður-Afríku, en lagði jafn- framt hart að Suður-Afríkustjóm að ákveða tímamörk fyrir endalok aðskilnaðarstefnunnar. Richard Lugar, formaður utan- ríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings, gagnrýndi forset- ann í gær fyrir ræðuna og sagði, að hann skorti „forystuvilja". „Ég tel, að forsetinn verði að ganga mun lengra," sagði Lugar. Nancy Kassebaum, einn af þrem- ur öldungadeildarþingmönnum repúblikana, sem eindregið hafa ráðlagt Reagan forseta að taka upp hvassari stefnu gagnvart Suður- Afríku, kvaðst í gær hafa orðið fyrir sárum vonbrigðum yfir því, að forsetinn hafði „valið þann kost að boða ekki nýja stefnu. Ég álít, að Bandaríkin geti ekki horft að- gerðarlaus á ástandið eins og það er nú,“ sagði Kassebaum. 14 blóðgjafar reynast hafa al- næmisveiruna Providence, AP. HEILBRIGÐISFULLTRÚAR á Rhode Island sögðu á þriðju- dag, að komið hefði í ljós að 14 blóðgjafar, sem gáfu blóð á tímabilinu 1979 til 1985, hefðu reynst vera með mót- efni gegn alnæmi. Blóðgjaf- arnir höfðu samtals gefið um 100 blóðskammta, en ekki er enn vitað hversu margir þágu blóðið. Ronald Waynkee, forstöðu- maður Blóðbanka Rhode Island, sagði að slysið hefði komið í ljós eftir að byrjað var að rannsaka allt blóð, sem gefíð er. Hann sagði að þrír blóðgjafanna væru hommar, en þrír væru fíkniefna- neytendur. Enginn þeirra er með alnæmi, þrátt fyrir að þeir séu smitberar. Skrár yfír blóðþega verða nú rannsakaðar og til að komast að því hveijir fengu blóðið. Læknar þeirra verða svo látnir vita.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.