Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 LANDSMÓT skáta verður haldið i Viðey dagana 27. júlí til 3. ágúst nk. Landsmótin eru haldin á fjögurra ára fresti og hafa verið mjög fjölsótt, bæði af innlendum og erlendum skátum. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði að venju og verður hér á síðunni getið hins markverðasta. Borgar- dagur- mn í TILEFNI af 200 ára afmæli Reykjavíkur verður á mótinu sér- stakur Borg-ardagur. Þá fara allir mótsgestir í opinbera heimsókn yfir sundin til höfuðborgarinnar í leit að ævintýrum. Sundlaugamar verða heimsóttar og þau söfn sem kunna að vekja áhuga skátanna. Deginum lýkur svo með varðeldi í Laugardalshöll. Að vísu verður enginn eldur, það gæti valdið vandræðum, en engu að síður verður varðeldastemmn- ingin í hávegum höfð. „Varðeldur- inn“ er opinn öllum borgarbúum sem vilja skemmta sér á þann sér- staka hátt sem skátakvöldvökur bjóða uppá. Borgardagurinn verður 28. júlí og þá ætti enginn að láta sér bregða þótt einkennisbúningar sjáist á göt- unum. Það verður ekki innrás heldur kurteisisheimsáokn átta hundruð skáta úr Viðeyjarlýðveld- Flokka- keppni í LÝÐVELDINU í Viðey verður eins og á flestum öðrum skátamót- um háð flokkakeppni. I henni reynir á samheldni og samstarfsvilja allra sem í flokknum eru því enginn vinn- ur flokkakeppni á eigin spýtur. Flokkamir þurfa að leysa af hendi mörg krefj'andi verk sem em auk þess skemmtileg viðureignar og allir kunna að meta. Til dæmis eru trönubyggingar, heimsókn á Metasvæði, þátttaka í Lýðveldis- leikunum svo eitthvað sé nefnt. Má búast við að flokkakeppnin verði einn vinsælasti liður dagskrárinnar enda skátar miklar félagsverur. Þjóð- hátíð ÞANN 1. ágúst verður þjóðhátíð- ardagur í Nýja lýðveldinu í Viðey. Þann dag mun fáni þess blakta við hún frá Noregi til Nígeríu og um allan heim leggja skátar hönd á bijóst sér og hugsa háleitar hugsan- ir og... Nei, nei, þjóðhátíðin verður mun líflegri en þetta. Sett verður upp skátatívolí og þar verður allt gert til að skemmta gestum. Boðið verð- ur uppá bátsferðir, seglbretta- kennslu og fleira skemmtilegt á ströndinni en uppi á eynni verða tjaldbúðimar almenningi til sýnis. Að kvöldi þjóðhátfðardagsins verður svo varðeldur með tilheyrandi söng, glensi og kakódrykkju. Lýkur deg- Tr- s j j .4. ■tJ® Togast á á metasvæði á skátamóti í Kanada. Slíkt svæði verður á skátamótinu i Viðey. Margt er til gamans gert á skátamóti. Hér er dansað á línu. inum með flugeldasýningu sem á hvorki að gefa eftir þeirri á afmæli frelsisstyttunnar né þeirri á afmæli Reykjavíkur. Þjóðhátíðardagurinn er skipu- lagður þannig að hann er heppileg- asti heimsóknardagurinn fyrir þá sem aðeins ætla að dvelja einn dag í Lýðveldinu. Þann dag verður einna mest að gerast á mótinu, mest að sjá og því skemmtilegast að koma í heimsókn. Ætti fólk að hafa það í huga þegar dagskrá sumarleyfis- ins er skipulögð. Sveita- ball FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 31. júlí, sem er aðfarakvöld Verslunar- mannahelgarinnar verður haldið sveitaball í Lýðveldinu. Þá verður öllum mótsgestum smalað saman fram fyrir hljómsveit sem með stórgóðum leik sínum fær alla til að dilla sér. Tjúttað verður og tvistað í lopapeysunum fram á rauða nótt eða þar til svefninn fer að síga á dansarana. Allir eru vel- komnir á ballið; þetta verður eldhresst, vímulaust skáta-sveita- ball þar sem allir geta „fríkað út“ eins og það heitir víst núorðið. Meta- svæði Á SÍÐASTA Alheimsmóti skáta sem haldið var í Alberta í Kanada var dagskrárliður sem nefndur var Metasvæði. Þar gafst kostur á að reyna að setja met í ýmsum furðu- legum uppátækjum. Til dæmis tróðu sér tuttugu og fjórir Indónesíumenn inní símaklefa og yfir þijátíu Þjóðverjar stóðu samtímis á palli sem var aðeins einn metri í þvermál. Þessi dagskrá þótti takast svo vel að ákveðið hefur verið að hafa Metasvæði með svip- uðu sniði á Landsmótinu í Viðey. Þar verður keppt í ýmsum greinum svo sem þriggja kaðla reiptogi, stauraklifri, jafnvægislistum og koddaslag. Og hver veit nema reynt verði að hnekkja meti Indónesíu- manna í að fjölmenna í símaklefa. Fullvíst er að á þessu svæði verður alltaf eitthvað áhugavert að gerast og verður spennandi að fylgjast með því hvort eitthvert heimsmetið fær að fjúka. Lýðveld- isleik- arnir SKATAlR hafa lengi haft orð á sér fyrir að leggja rækt við heilsu sína og líkama. Á Landsmótinu verður frekar aukið við þennan orðróm held- ur en hitt því að allan tímann verða í gangi Lýðveldisleikar í íþróttum. Ekki verður þó keppt í hefðbundn- um greinum heldur breyttum og endurbættum skátaútgáfum af fom- um keppnisíþróttum. Þar á meðal eru stígvélakast, þeytiskífukast, boð- hlaup, bogfimi, handbolti og safarí- blak. Auk þess verður keppt í spjótkasti með nýju spjóti. Það er þó ekki venjulegt nýtt spjót sem hér um ræðir; skátaspjótið hefur verið stækkað og þyngt svo ótæpilega að réttast væri að kalla spjótkastið drumbakast. Sigurvegaramir í því ættu þess vegna að eiga góða sigur- möguleika á skosku Hálandaleikun- um. Allir, hvort sem þeir dvelja lengur eða skemur á mótinu, geta tekið þátt í leikunum, og er tilvalið fyrir gamlar íþróttakempur og áhugamenn að skella sér í eyna og liðka sig. Ferðir í Viðey FYRIR ÞÁ sem vilja heimsækja skátamótið í Viðey upplýsist hér með að þangað verða svo til stanslausar bátsferðir meðan á mótinu stendur. Þær hefjast klukkan tíu á moign- ana og er lagt upp frá Sundahöfti á um það bil hálftíma fresti. Fargjaldið er tvö hundrað krónur fyrir fullorðna og eitt hundrað fyrir böm og gildir það báðar leiðir. Skáta- vinur VINÁTTA ,er eitt af lykilorðum skátastarfs. Að eignast nýja vini og leggja rækt við gamla vináttu er göfugt og skemmtilegt áhugamál og fyrir þá sem það stunda verður sér- stakur kynningarleikur á mótinu, strax að lokinni setningu. Þá verður hveijum mótsgesti út- hlutað spjaldi með einum bókstaf úr orðinu „skátavinur". Svo eiga að hópa sig saman skátar sem fengið hafa mismunandi bókstafi og mynda með þeim lykilorðið, skátavinur. Saman mynda skátavinimir nýjan flokk sem kynnast innbyrðis og tekur þátt í Borgardeginum sem ein heild. Þessi leikur ætti að gera það að verk- um að allir, sama hversu óframfæmir þeir era, eignast níu góða vini og hefur margur lagt meira á sig fyrir Umsjón: Guðmundur K. Birgisson Guðmundur F. Sigurjónsson Kristján Maack Landsmót skáta í Viðey
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.