Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FXMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 Jakobína Þórðar- dóttir — Minning Fædd4. maí 1907 Dáín 16. júlí 1986 Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem) Hinstu kveðju sendum við ömmu okkar, Jakobínu Þórðardóttur, er fæddist í Héðinsvík á Tjömesi þann 4. maí 1907. Hún var dóttir hjónanna Þórðar Vilhelms Egilssonar og Guðbjargar Sigurðardóttur. Sex ára fluttist hún að Narfa- staðarseli í Reykjadal og ólst þar upp hjá þrem systkinum, þeim Hólmfríði, Magnúsi og Tryggva. Hún kynntist afa okkar, Benjamín Jónssyni, um 1946, en hann lést 1981. Þau eignuðust aðeins eina dóttur, móður okkar, Guðbjörgu að nafni. Amma átti tvö böm fyrir, þau Þórð og Öldu. Amma reyndist okkur alltaf vel, hún var alltaf boðin og búin til að passa okkur. t Móðursystir mín, EYVEIG BJÖRNSDÓTTIR, lést í Fjóröungssjúkrahúsinu í Neskaupstað þriðjudaginn 22. júlf. Fyrir hönd systkina minna og annara ættingja Þorkell Bergsson. t Eiginkona mín og systir okkar, INGIBJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR lyfjafræðingur, er látin. Útförin hefur farið fram. Sverrir Magnússon og systkini hinnar látnu. t Sonur minn. SVAVAR MAGNÚSSON bifreiðastjóri, Fellsmúla 26, lést í Borgarspítalanum 22. júlí. Jóhanna Jónsdóttir. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, SVAVA M. RÖNNING, lést í Borgarspítalanum föstudaginn 11. júlí. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ásta Sylvia Rönning, Nils H. Zimsen, Jóhann Tómas, Jón Pétur, Óli Björn. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, ÁSBJÖRN JÓNSSON frá Deildará, Nýlendugötu 29, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni föstudaginn 25. júlí kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Kristrún Jónsdóttir, Jón Ásbjörnsson, Fríða Ásbjörnsdóttir, Halla Daníelsdóttir, Steingrímur Baldursson. t Jarðarför móður minnar og tengdamóður, SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR, Ártúni 17, Selfossi, fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 26. júlí kl. 15.00. Karl Eirfksson, Guðfinna Sigurdórsdóttir. t Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinarhug viö andlát og útför litlu dóttur okkar og systur, BERGLINDAR ASPAR ÁSMUNDSDÓTTUR. Guð blessi ykkur öll. Birna Kristrún Kjartansdóttir, Ásmundur Þór Kristinsson, Bryndfs Eva Ásmundsdóttir. Minning: Kristfán Hinrik Guðmundsson Með þessari kveðju sendum við systkinin elskulegri ömmu bless- unaróskir yfír móðuna miklu og minnumst hennar ætíð með virð- ingu og þökk. Einnig vottum við systur hennar, móður okkar og systkinum innilega samúð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem) Stefán, Benjamín, Matt- hildur Ósk, Jakobína Ólöf. Fæddur 23. nóvember 1901 Dáinn 16. júlí 1986 í dag er til moldar borinn Krist- ján H. Guðmundsson, bakarameist- ari og verslunarmaður. Kristján fæddist á Snæfjallaströnd 1901, sonur hjónanna Guðmundar Jóns- sonar, kennara, sem ættaður var úr Skagafírði og Bjameyjar Guð- rúnar Bjamadóttur. Kristján var aðeins 10 ára gamall er faðir hans lést og eftir það fluttist ekkjan með sex bömum sfnum til föðurfólks þeirra á Sauðárkróki. í Skagafírði var Kristján fram yfír tvítugt og á Sauðárkróki lærði hann bakaraiðn hjá Snæbimi bakara. Þar kynntist hann einnig Jósefínu Jóhannsdóttur frá Karlsá í Svarfaðardal og gekk að eiga hana árið 1925. Nokkm síðar flytjast þau hjón til Akur- eyrar, þar sem Kristján starfaði sem bakari um hríð. Árið 1930 kaupir Kristján bakaríið á Ólafsfírði af Schiöt bakarameistara og rak hann það til 1946. Á Ólafsfjarðarárunum eignast þau hjón fyorar dætur, Aðal- heiði, Önnu, Bjameyju og Jónínu, en áður höfðu þau eignast soninn Alfreð sem fæddist á Sauðárkróki. Árið 1946 flyst fyölskyldan suður. Starfaði Kristján sem bakari bæði á Akranesi og Eyrarbakka, en 1950 setjast þau að í Reykjavík, þar sem Kristján reisti sér hús í Steina- gerði. í Reykjavík starfaði hann um árabil hjá Kaupfélagi Reykjavíkur og nágrennis. Kristján missti konu sína síðla árs 1980. Ég kynntist hjónum þeim Krist- jáni og Jósefínu, síðar tengdafor- eldmm mínum, 1959. Það var ætíð notalegt að koma á heimili þeirra. Þau vom afar gestrisin og áhuga- söm um gengi okkar sem og annarra bama og bamabama. Allt- af vom þau fús að rétta hjálparhönd og var það gert á þann hátt sem gott var að þiggja. Þau hjón vom í ýmsu nokkuð ólík. Jósefína var hæglát og frekar hlédræg. En hún var skarpgreind og mjög athugul. Ástúð hennar og umönnun risti djúpt og nutu þess böm og bama- böm hennar í ríkum mæli. Kristján var mannblendinn og naut mann- fagnaðar, ekki síst þegar sungið var. Hann sagði vel frá og var minn- ugur. Hann hafði frá mörgu að segja, enda af þeirri kynslóð sem upplifði mikla byltingu í nær öllum þjóðháttum. Kristján var skap- maður og vandur að virðingu sinni og hann þoldi enga málamiðlun, þegar hún var annars vegar. Um ár þeirra Kristjáns og Jós- efínu á Ólafsfírði fannst mér ætíð stafa nokkmm ljóma. Þar vom þau í blóma lífsins og bömin að vaxa úr grasi. Þrátt fyrir krepputíma byggði Kristján þar myndarbakarí. Hann tók virkan þátt í bæjarmálum og gamall Ólafsfírðingur sagði mér fyrir nokkmm áram að bakaríið hefði þjónað svipuðu hlutverki og heitu pottamir nú til dags, þar var Minning: Ólafur * Olafsson vélsijóri Fæddur 28. október 1917 Dáinn 14. júní 1986 t Ástkær eiginmaöur minn, faðir okkar og bróðir HALLDÓR ALEXANDER ALEXANDERSSON, Bugðulæk 14, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 25. júlí kl. 15.00. Eygló Guðjónsdóttir, Grétar Örn Magnússon, Sigrfður Halldórsdóttir, Jóna Kristjana Halldórsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttlr, Sólveig Halldórsdóttir, Kristjana Alexandersdóttir, Gróa Alexandersdóttir, Magnús Alexandersson. t Þökkum innilega sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför HELGA BJÖRGVINS BJÖRNSSONAR, fv. yfirdeildarstjóra hjá Pósti og síma. Hanna Helgadóttir, Ásmundur J. Ásmundsson. t Við þökkum öllum sem sýnt hafa vináttu og samúð vegna fráfalls NÍELSAR NfELSSONAR, Reynlmel 76. Vfðir H. Kristinsson, og fjölskylda. t Þökkum auösýnda samúö og hlýhug við andlát og jarðarför ÞORSTEINS GEORGS JÓNASSONAR, Ljósalandi, Hveragerði. Ennfremur þakkir til lækna og starfsfólks Öldrunardeildar Borgarspítalans. Ögn Slgfúsdóttir, börn og barnabörn. Birting afmælis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargrein- ar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minning- arorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Meginregla er að minningargreinar birtist undir fullu höfundarnafni. Þegar menn hverfa snögglega af sjónarsviðinu tekur það oft æði- langan tíma að átta sig á því. Þannig var því farið er ég frétti að Óli vélstjóri eins og við kölluðum hann einatt væri allur. Ég kynntist Óla fyrst er ég hóf starf mitt á Hafrannsóknastofnun og var í leiðöngrum á „gamla Haf- þór“ eins og við kölluðum það skip síðar. Óli vann þar við vélgæslu og tókum við oft tal saman, enda var maðurinn mjög vel lesinn og svo var hann mjög áhugasamur um það sem þessir fískifræðingar vom að bjástra við. Þegar svo Hafþór var tekinn úr þjónustu Hafr. og Dröfn- in kom í staðinn réðst Óli sem vélstjóri um borð og var þar nær allan þann tíma er Hafr. rak það skip. Þar sem ég var oft leiðangurs- stjóri um borð í þvi skipi urðu góð kynni með okkur Óla og jukust þau þegar fram í sótti þar sem báðum þótti gaman að stunda hverskonar útilíf og leita til fagurra óbyggða þessa stórbrotna lands. Ófáar urðu ferðimar til ýmiskonar veiða þó árangurinn væri ekki alltaf sem erfíðið. Það var gott að vera með Óla því hann kunni skil á mörgu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.