Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 14
 íbúð í Kópavogi óskast Höfum kaupanda að 3ja-4ra herb. íb. með rúmgóðri stofu og bílskúr í Kópavogi. Góðar greiðslur í boði. Upplýsingar gefur: Agnar Gústafsson hrl., Eiríksgötu 4, símar 12600 — 21750. TERELYNEBUXUR Kr. 1.095, 1.195, 1.495 og 1.595. Gallabuxur, karl- og kvensnið, lágt veró. Nýkomnar gráar og svartar bómullarbuxur á kr. 790. Flauelsbuxur kr. 745. Skyrtur kr. 434, 485, 495, 510, 513 og kr. 690 langar og stuttar ermar. Nærfot sokkar o.fl. ódýrt. Andrós Skólavörðustíg 22, Sími 18250. Þakkarávarp Hjartanlega þakka ég öllum þeim er glöddu mig meö orÖum og gjöröum á afmœli mínu. YrÖi of langt alla aÖ telja. Þessara aÖila verÖ ég þó aÖ geta eigenda Bókaútgáfunnar Skjald- borg, sem gáfu út bókina mína, Jóns Sigur- geirssonar er bauÖ mér hlé í sínum einstaka friöargaröi aÖ Varmalandi og skipshafna á 20 togurum á HalamiÖum er sendu mér fallega kveÖju. ÞaÖ voru góÖ skáldalaun. GuÖirnir launa fyrir hrafninn. Kristján frá Djúpalæk. EINSTAKLINGAR Minni heimili Þetta er örbylgjuofninn fyrir ykkur Verð aðeins 12.900 stgr. útb. 5.000.- eft- irstöðvar á 6 mánuðum. íslenskar leiðbeiningar og uppskriftir fylgja og kvöldnámskeið án endurgjalds. — Kynntu þér ofninn strax í dag — EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995 N’ART’68: Borgarskáli Myndllst Bragi Ásgeirsson Stórsýning — Norræn lista- sveifla, er inntak viðamikils samsafns hvers konar myndlistar- tilrauna ungs fólks frá Norðurlönd- um. Innan um þetta unga fólk er svo einnig slangur af fólki, sem er ekki alveg ungt, strangt til tekið, en hugmyndimar eiga að vera ung- ar, — nýjar og ferskar. Gjömingurinn mikli fer fram í Borgarskála og ber að geta þess strax, að inngangurinn er frá lok- uðu götunni, sem er í beinni línu við Sigtún. Láðst hefur að upplýsa ókunnuga um þetta litla en mikil- væga atriði, því að staðurinn er, vægast sagt, ekki mjög þekktur fyrir listrænar uppákomur. Engin sérstök sýningarskrá hef- ur verið gefin út vegna myndlistar- viðburðanna, en hins vegar ein vegleg fyrir alla listhátíðina í heild, sem nauðsynlegt er fyrir áhuga- sama að festa sér svo þeir séu ekki fullkomlega úti að aka um sjálf- sagðar upplýsingar. Svo sem fram hefur komið í ijölmiðlum, þá er þetta 10 daga hátíð sem ber nafnið „Kulturprojekt Island ’86 og voru stofnuð samtök sérstaklega í þessu skyni. Ýmsir norrænir listamenn og skemmtikraftar heimsækja landið í tilefni hátíðarinnar, sem er einnig hugsuð sem afmæliskveðja vegna 200 ára afmælisins. Stefnuyfirlýsing framkvæmdar- innar í Borgarskála er vel tíunduð á bls. 10 í heildarskránni og hljóðar svo: „Um völundarhús handa öll- taugavegi 27 • Sími 19660 um____Draumurinn um að • geta gengið inn í málverk, póstkort, kvikmyndir eða einfaldlega huga annarra. Draumurinn um að vera umvafinn draumnum. Lykt, ilmur, litir, skuggar, form, áferð, raddir, tónar, hljóð úr runnaþykkninu og hreyfing. Allt sem setur saman heiminn er tilbúið að taka við þér. Þú átt von á öllu og það á von á þér. Þú ert lykt, hreyfíng, litir, skuggar, form ... Þú ert allt... Leyfðu þér að renna saman við allt, leyfðu öllu að renna saman við þig. Saman myndið þið völundarhúsið og eruð á rölti um það um leið. Þið skoðið myndirnar, hlutina og þeir ykkur. Þið eruð á sýningu, myndir á sýningu, á hreyfingu. Þið eruð til sýnis, göngulag ykkar er dans! Raddir ykkar eru ekki til nema aðrir heyri þær! Látið heyra í ykk- ur, dansið, skoðið og skoðist. .. Draumurinn um að geta gengið inn í hús í Reykjavík og út úr því í Reykjavík og vakna svo í mál- verki, póstkorti og ganga svo í svefni út úr húsi og svo framvegis mun það ganga . . .“ Þessi yfírlýsing eða „manifest" eins og það heitir í útlandinu, er góð og gild, en naumast fersk, — hvorki að hugmyndafræðilegu inn- taki né framkvæmd. Þetta eru einföld sannindi, sem kennd eru í einhverri mynd í hveijum einasta listaskóla, sem stendur undir nafni — þetta, að taka eftir umhverfmu og vera virkur og opinn í því, — láta dauða hluti tala og bregða nýju ljósi yfír gömul sannindi. Þegar gengið er um þetta völund- arhús, sem í raun á fátt sammerkt með skilningi, sem menn leggja í slík hús, hefur maður öllu meira á tilfinningunni, að maður sé staddur í risavaxinni ruslakompu, sem verið sé að innrétta, — og að menn séu hér rétt byrjaðir. Myndir á gólfí, veggjum og í tjöldum eru í óskipulegum hræri- graut og mun þó ekki með öllu vera að sakast við það fámenna lið, er kom sýningunni upp. Flestir sýnendur voru víðs fjarri og sýndu engan metnaðarfullan áhuga á því, að hér væri vel staðið að verki, stóð eiginlega alveg á sama um framkvæmdina, að mér hefur verið sagt. Hér er ef til vill rétt einu sinni á ferð ákveðinn hópur fólks, sem hefur það að meginatriði að koma saman undir merkjum listrænna athafna og leika sér — listrænasta athöfnin er þá vísast hve frábær- lega útsjónarsamt þetta fólk er að kría út stuðning og styrki til at- hafnasemi sinnar. Tek hér fram, að hér á ég einung- is við myndlistina, sem er það svið, er ég þekki best til. REYKJAVÍK 18.-27. JÚLÍ HÁTlÐ MEO NORRÆNUM LISTAMÖNNUM OG SKEMMTIKRÓFTUM Á 200 ÁRA AFMÆLI BORGARINNAR Vafalítið er það ótrúlega gaman að taka sjálfur þátt í slíkum gjöm- ingum og ekki sé ég eftir styrkjum til ungs fólks. En til sýningarhalds eru gerðar nokkrar kröfur af þeim, er sækja þær — þær eru eitthvað annað og meira en að vera einung- is til málamynda. Hafi menn svo ætlað annað í upphafí, þá virðist það hafa mistek- ist í þetta sinn. Margt er orðið svo útþvælt og margtuggið, sem getur að líta á þessari sýningu, að það líkist einna helst klisjukenndri íhaldssemi, — og það forhertri íhaldssemi. Þá hafa sum verkin á sýningunni verið sýnd áður, og raunar virðist flest á sýningunni hafa verið sýnt margoft áður, og hið grófasta og klúrasta vekur fremur vorkunn um sálarástand viðkomandi en hneyksl- an — þá er stutt í það, að botninum sé náð. Af þeim mörgu hrúgum, sem ég sá á gólfinu, þóttu mér ruslhrúgum- ar í engu gefa eftir alvörulistaverk- unum og hér er falinn viss sannleikur. í öllum úrgangi, eða „moyens pauvres" líkt og það nefn- ist í listasögunni, er falin viss fegurð, t.d. er litur brauðmyglunnar mjög fagur og kúamykjuna ber fag- urlega við grængresið. Brotajám og bíll keyrður í klessu getur haft yfír sér mikla sjónræna fegurð. Ósjálfráðar höggmyndir náttúmnn- ar og öll hin svonefnda duttlunga- list, sem víða kemur fram í formunum náttúmnnar, era og hrífandi staðreyndir og allt þetta er hluti allífsins. En það þýðir lítt fyrir fólk, sem hefur ekki tilfmningu fyrir þessu og hefur heldur ekki þroskað með sér tilfinninguna fyrir því að hrífast með sköpunarverkinu, að búa til slíkar formanir eftir ein- hveijum kenningum magaveikra og fúlla listsagnfræðinga. Menn verða einfaldlega að upplifa og meðtaka sköpunarverkið sjálfír. Auðvitað má finna ágæt verk innan um á sýningunni, ef vel er leitað, en þau njóta sín ekki — líður einfaldlega illa. En þá er það von mín, að höfund- unum hafi liðið þeim mun betur. Bragi Ásgeirsson NÝTT SlMANÚMER 9-11-00 oj Gabriel 1gHÍ HÖGGDEYFAR í MIKLU ÚRVALI G ” SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91 -8 47 88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.