Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
19
hefur nákvæmlega sömu skoðun og
ég að þessu leyti, en leggja mig í
einelti," spurði hann einnig.
Gártner sagði frá því er hann
kom fram í vinsælum viðtalsþætti
þar sem ekkert var minnst á kven-
presta, heldur ýmis önnur áhuga-
mál hans svo sem íþróttir og
réttindabaráttu fólksins í Suður-
Ameriku. Eftir þann þátt fékk hann
fjöldann allan af bréfum og upp-
hringingum þar sem fólk tjáði
honum undrun sína og sagði sem
svo: „Þú ert þá bara ósköp geð-
þekkur og eðlilegur náungi eftir
allt saman." Hann tók þetta sem
talandi dæmi um mátt fjölmiðla.
Afstaðan til tengslanna milli ríkis
og kirkju voru annað dæmi sem
hann tók um áhrifavald flölmiðla
þegar um er að ræða skoðanamynd-
un. Nú eru fjölmiðlar jákvæðari í
garð aðgreiningar þessara stofnana
en áður og taldi hann að í náinni
framtíð yrði þetta mál tekið aftur
upp og mundi þá komast eitthvað
lengra áleiðis en þegar það var
síðast á dagskrá.
Finnska kirkjan
framarlega
Ýmislegt fleira kom fram á þess-
ari ráðstefnu sem ástæða er til að
gera grein fyrir. Má þar t.d. nefna
greinargerð um þær tilraunir og
áætlanir sem Finnar eru að gera
um aukinn þátt fjölmiðlunar í safn-
aðarstarfi lúthersku þjóðkirkjunn-
ar. Finnska kirkjan hefur frá
upphafí sjálf séð um trúarlegt efni
í útvarpi og sjónvarpi og hefur hún
því yfír að ráða þekkingu og reynslu
á þessu sviði sem kemur systur-
kirkjunum á hinum Norðurlöndun-
um að gagni. Það er einkum
athyglisvert hvernig kirkjan styður
við bakið á söfnuðunum sem taka
þátt í sendingum svæðisútvarpsins
og gera sjálfstæða þætti í samvinnu
við önnur kristin trúfélög og sam-
tök. í Finnlandi hefur hvert próf-
astsdæmi sérstakan fréttafulltrúa
sem sinnir þessum málum.
Sr. Bemharður Guðmundsson
sagði í stuttu viðtali við tíðinda-
mann Morgunblaðsins að þetta
væri í sjötta skiptið sem fréttastjór-
ar kirknanna hittust á slíkum
ráðstefnum og þær væru haldnar á
tveggja ára fresti. Þessar ráðstefn-
ur eru mjög lærdómsríkar þótt við
íslendingar getum vart borið okkur
saman við hinar Norðurlandaþjóð-
imar. Upplýsingamiðstöð sænsku
kirkjunnar hefur t.d. yfír að ráða
um 20 manns auk þess sem hópar
fólks vinna að þessum málum í
hveiju biskupsdæmi og stærstu
söfnuðunum. Finnar em sérstak-
lega langt á veg komnir í því að
nýta sér Ijölmiðlatæknina í þágu
kirkjunnar, sagði Bernharður að
lokum.
MAMMA OG PABBI -HER ER DRAUMUR ALLRA KRAKKA!
á IMrfttÍJi.
í BEAUMONT SUMARBIÍDUNUM
Á BRETLANDI KYNNAST KRAKKAR
GÓDUM FÉLÖGUM.LÆRA ENSKU OG
Höfundur starfar við háskólann i
Lundi í Svíþjóð og er fréttaritari
Mbl.
OG ÓTAL MARGT FLEIRA
Urval kynnir skemmtilega
nýbreytni í terðalögum
barna og unglinga; glæsilegar
sumarbúðir á Bretlandi þar
sem sameinuð er vönduð
kennsla í ensku og heilbrigð
iðkun margvíslegra tómstunda
tii gagns og gamans.
Við bjóðum upp á sumar-
búðir víðs vegar um Bretland
allan júlí og ágúst fyrir öll
börn og unglinga á aldrinum
7-17 ára.
Sérstök athygli skal vakin á
búðunum í GRESHAM fram til
16. ágúst og eftir það í LIME
HOUSE. Mögulegt er að
dvelja í búðunum í allt að 4
vikur og við mælum hiklaust
með að dvölin verði ekki styttri
en 2 vikur svo fullt gagn verði
af ferðinni.
Starfsfólk sumarbúðanna
sækir börnin á Heathrow
flugvöllinn í London alla
föstudaga og laugardaga og
koma þeim aftur á flug við
heimför.
i búðunum fá börnin mjög
alúðlega aðhlynningu og þess
vandlega gætt að þau séu
aldrei án umsjónar starfs-
manna. Hægt er að velja sér
áhugamál og raða saman
dagskrá að óskum hvers og
eins. Fullt fæði fylgir.
Innifalið f verði: Flugfar
Keflavík - London - Keflavík.
Akstur milli flugvallar og
sumarbúða við komu og
brottför. Dvöl í sumarbúðunum
Í1,2,3 eða 4 vikur með fullu
fæði. Kennsla í ensku og
margvísleg tómstundastörf.
Hafið samband við okkur
sem fyrst og fáið vandaðan
bækling á íslensku með
öllum frekari upplýsingum.
Einnig eigum við myndbands-
spólu frá stöðunum.
Verðskrá:
7-11 ára
12-17 ára
1 vika
15.605,-
19.835,-
2 vikur
24.980,-
29.710,-
3 vikur
32.980,-
37.710,-
aukavika
8.200,-
8.700,-
Ferðaskrifstofan Úrval v/Austurvöll. Sími (91) 26900.
FBNMSKRlPSTOfíiN ÚRVAL
G0TT FÓLK / SÍA
Caltalækjarskógiet%r»ei9in