Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 Borðað úti und- ir beru lofti Fátt kemur manni í meira sum- arsrkap en einmitt það að borða úti undir beru iofti. Flestir láta sér nægja að smyija nokkrar samlokur, bregða sér burt úr bænum og njóta þess að næra sig úti í náttúrunni. Sumir hafa þó sýnt þá forsjálni að fjárfesta f útigrillum ýmiss konar og grípa hvert tækifæri sem til þess gefst að glóða kótilettur og kjötpinna úti í garði. Kaffíhúsin reyna að nýta þessa fáeinu sólardaga og bjóða gestum fara út á stétt með vínarbrauðin sín og slá þannig tvær flugur í einu höggi, seðja sárasta hungrið og sleikja sólskin- ið um leið. Fáir eru þó jafnstór- tækir og kokkamir í Veitingahöll- inni. Á sunnudaginn var drifu þeir sig nefnilega út á veröndina og settu þar upp nokkurs konar eidhús. Þeir létu sér þó ekki nægja að smyrja bara samlokur eða grilla kótilettur og pylsur heldur matreiddu þama fínustu steikur og flókna rétti. Eins og nærri má geta vakti þetta mikla ánægju meðal matargesta þeirra og vom flestir á einu máli um að ferska loftið hefði eiinhver undraverð áhrif á bragðgæði matarins. Skorið, saxað og steikt — atvinnumenn að störfum. Kokkar Veit- ingahallarinnar notuðu sumarblíðuna á sunnudag til að elda ofan í mannskapinn úti á stétt. Engill í mannsmynd — móðir Teresa Móðir Teresa er miklu meira en goðsögn í lifanda lífí. Hún er dáð og virt um víða veröld fyrir sérlega óeigingjamt starf sitt í þágu þeirra sem minna mega sín. Hún er hugsjónakona af Guðs náð, fylg- ir trú sinni og sannfæringu stíft eftir en vinnur þó öll sín verk þegj- andi og hljóðalaust. Hún hefur bjargað hundmðum bama frá dauða, hefur helgað líf sitt barátt- unni við hungurvofuna, ein þeirra fáu sem manni fínnst eiginlega of góð fyrir þennan heim. Nú mætti ætla að kona sem kynnst hefur allri þessari eymd myndi oft og tíðum missa stjóm á skapi sínu, þegar hún þarf svo einnig að horfa upp á flott- ræfílsskapinn og sóunina sem fram fer víða á Vesturlöndum. En það er sko langt frá því. Ef eitthvað er, þá furðar hún sig aðeins á sinnu- leysi stjómvalda veraldar, skilur ekki alveg þankaganginn á bak við hið eilífa lífsgæðakapphlaup. Bitmstu ummæli sem hún hefur látið falla vom á blaðamannafundi einum sem haldinn var fyrir nokkr- um ámm. Þá stóð upp einn blaða- maðurinn og spurði þennan dýrling hvemig í ósköpunum hún gæti fóm- að sér svona gersamlega, hvemig hún gæti horft upp á allt þetta volæði. Móðir Teresa svaraði með annarri spumingu sem snart sam- viskustrenginn í hverju hjarta, er hún spurði: „Hvemig í ósköpunum getur þú setið aðgerðarlaus, þegar þú veist af allri þessari eymd?" Ekki alls fyrir löngu sótti Sophia Spánardrottning Teresu heim og skoðaði m.a. bamaheimilið sem hún hefur reist í Kalkútta. „Afrek henn- ar em ótrúleg og þolinmæðin óþijótandi," sagði Sophia. „Þessi kona er útsendari Drottins. Á því leikur enginn vafi.“ Móðir Teresa leiðir Sophiu Spán- ardrottningu um ganga bama- heimilisins i Kalkútta. Mánudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00 fyrir brottför rútu til Rvk. Fimmtudaga: Samatimataflaog mánudaga. Föstudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00, eftir komu rútu. Viðkoma í inneyjum. Frá Brjánslæk kl. 19.30 Til Stykkishólms kl. 23.00 Þriðjudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00 eftir komu rútu. Frá Brjánslæk kl. 18.00 Til Stykkishólms kl. 21.30 Laugardaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Sigling um suðureyjar. Frá Brjánslæk kl. 15.00 Til Stykkishólms kl. 19.00 Á tímabilinu 1. jújl til 31. ágúst Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00, fyrir brottför rútu. Viðkoma er ávallt i Flatey á báðum leiðum. Bílaflutninga er nauðsynlegt að panta með fyrlrvara. Frá Stykkishólmi: Frá Brjánslæk: Hjá afgreiðslu Baldurs Hjá Ragnari Guðmundssyni Stykkishólmi, s.: 93-8120 Brjánslæk, s.: 94-2020. Á tímabilinu 1. maí til 30. sept. Á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst Auglýsing um styrki úr Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar Stjóm Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar, kaupmanns, aug- lýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Styrkirnir eru ætlaðir nemendum í verkfræði- og raunvísindanámi. Umsóknareyðublöð fást á aðalskrifstofu Háskóla íslands og ber jafnframt að skila umsóknum þangað. Umsóknar- frestur er til 10. september nk. og er fyrirhugað að tilkynna úthlutun fyrir 25. sama mánaðar. Lágmarksupphæð hvers styrks mun væntanlega nema kr. 75 þúsund. O Husqvarna j VERÐLÆKKUN VEGNA NYRRA SAMNINGA VERKSMIÐJURNAR, TÓKST OKKUR' AÐ LÆKKA VERÐIÐ Á HEIMILIST/EKJUM.' DÆMIUMVERD: KERAMIK ELDAVÉL SEM KOSTAÐI AÐUR stgr.kr. 57632- KOSTAR NU stgr.kr. 44.384,- Æ LlKa Gunnar Ásgeirsson hf. ~ BHHH StxJurlandsbmut lé StmT9Í 3520Ö
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.