Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 FuUtrúi íslands í keppninni um Ungfrú alheim: „Við máttum ekki fara á milli hæð- anna á hótelinu“ Morgunbladið/Bjami Nú er lögreglan að hefja mikla herferð til að sporna við of hröðum akstri og akstri undir áhrifum áfengis. Þessar bifreiðir voru stöðvaðar á Hringbrautinni í Reykjavík i gær. Umf erðarkönnun: Tæpur þriðjungur öku- manna notar bílbelti Börnin eru oft illa varin „ÞETTA hefur verið geysileg iífsreynsla, mjög erfið, en líka skemmtileg. Maður er reynslunni rikari um skemmtiiðnaðinn, þvi þetta snýst í rauninni ekki um ann- að — sjónvarpsupptökur og stöðug- ar œfingar i dansi og framkomu frá morgni til kvölds,“ sagði Þóra Þrastardóttir þátttakandi Islands i keppninni um Miss Universe, eða Ungfrú alheim, sem lauk nýlega í Panama City. Keppninni var sjón- varpað viða um lönd síðastliðinn mánudag, en sjálf upptakan fór fram 15. júli sfðastliðinn. Það var stúlka frá Venezúela, Barbara Palacios Teyde, sem hreppti hinn eftirsótta titil, en bandarísk stúlka, Christy Fichtner, varð f öðru sæti. Alls tóku 77 stúlkur þátt i keppn- inni og voru fyrst valdar þær 10 stigahæstu, en síðan var 5 úr þeim hópi raðað i efstu sætin. Þóra komst ekki í 10 stúlkna úr- slit, en svo virðist sem hún hafi ekki verið langt frá þvi; hún hlaut tæp átta stig í heildina, en stúlkumar í efstu tfu sætunum voru með rúm átta. Keppninni var skipt í þijá hluta. Fyrst komu stúlkumar fram í sundbol og samkvæmiskjól þann 15. júlí, en síðan ræddu dómarar við hveija stúlku um sig á næstu dögum. Tölva samreikn- aði svo stig dómaranna út úr þessum þremur þáttum keppninnar og því lágu niðurstöður ekki fyrir fyrr en þann 21. júlí. Þóra sagði að úrslit keppninnar hefðu ekki komið sér á óvart: „Ég er mjög fegin að stúlkan frá Venezúela skyldi hafa unnið. Hún átti það fylli- lega skilið. Auk þess held ég að hún sé ein af fáum stúlkum í keppninni sem geta staðið undir því álagi og þeirri vinnu sem titlinum Ungfrú al- heimur fylgir," sagði Þóra. Þóra sagði að mjög strangt eftirlit hefði verið með keppendum og agi og skipulag með ólíkindum mikill. „Það var ekki litið af okkur allan sólar- hringinn. Við bjuggum allar á fyrstu þremur hæðum sama hótelsins, en máttum þó ekki fara á milli hæða! Það voru öryggisverðir á hveiju strái og auk þess gættu okkar svokallaðar fylgikonur. Hver slík kona hafði um- sjón með tveimur stúlkum," sagði Þóra. Þegar Morgunblaðið ræddi við Þóru í síma í gærdag var hún einmitt á heimili fylgikonu sinnar. „Þetta er í fyrsta sinn í fjórar vikur sem maður hefur getað um fijálst höfuð strokið. Ég hef ekkert getað skoðað af þessu fallega landi, en nú er ég ákveðin í að vera hér í nokkra daga og ferðast eitthvað um,“ sagði Þóra. Ungfrú Reykjavík 1986 — Þóra Þrastardóttir. í KÖNNUN sem Umferðarráð gerði í samvinnu við lögregluna og Bifreiðaeftirlit ríkisins kom i ljós, að börn eru illa varin i bif- reiðum. Að visu var aukning frá siðasta ári á notkun barnabíl- stóla, en stálpaðri börn nota sjaldan bílpúða og belti. Niðurstöður könnunar þessarar voru kynntar í gær. Kom fram að 2.451 bifreið hafði verið stöðvuð og voru 381 bam í aftursæti. Af þeim vora 107 í bamabflstól, en-16 sátu á barnapúða eða vora spennt í belti. í könnun sem gerð var í fyrra vora mun færri böm í bílstól og vildi Óli H. Þórðarson, formaður Umferðarráðs, þakka þessa aukn- ingu miklum áróðri. Af öðram atriðum sem fram koma í könnuninni má nefna að aðeins 32% ökumanna höfðu beltin spennt, en í könnuninni í fyrra vora þeir 30,5%. Vora vonbrigði Um- ferðarráðsmanna og lögreglu mikil yfir að aukning væri ekki meiri. Þá var gerð könnun á ástandi öku- tækja og búnaði þeirra. Athyglis- vert er að aðeins vora slökkvitæki í um 9% bifreiða, sjúkrataska í tæpum 18% og viðvörunarþríhym- ingur í 10% bifreiða. Ástand bif- reiða var yfirleitt ágætt, enda könnun gerð þegar ársskoðun bif- reiða var að mestu lokið. Þó reyndust hjólbarðar bifreiða ekki í nógu góðu lagi og var ástand mjög slæmt í um 3% tilfella. Mikil herferð er nú að hefjast af hálfu Umferðarráðs og lögreglu og beinist hún fyrst og fremst að því að draga úr hraða bifreiða og koma í veg fyrir akstur undir áhrif- um áfengis. Era lögreglumenn þegar famir að láta til sín taka og verður eftirlit hert mjög á næstunni um alit land. Ætla lögreglumenn einnig að afhenda fólki bæklinginn „Ferðafélagann", þar sem er að finna ýmis heilræði og fróðleik. Þá verða böm hvött til að nota öryggis- búnað í bifreiðum og í næstu viku og um verslunarmannahelgina get- ur fólk átt von á að lögreglan stöðvi bifreiðar og athugi hvemig búið er að bömunum. Ef böm sitja í bflbelt- um eða bamastólum fá þau af- hentan glaðning frá lögreglunni. Það er því til nokkurs að vinna fyr- ir yngstu meðlimi fjölskyldunnar, þótt stærsti kosturinn sé auðvitað sá að vera vel varinn í umferðinni. Uppstokkun bankakerfisins Steingrímur Hermannsson: Andstaða stjómenda Bún- aðarbankans skipti ekki máli Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra er sömu skoðun- ar og Þorsteinn Pálsson, að ekki komi til greina að ríkis- sjóður rétti við fjárhag Útvegs- bankans. Hann telur fyllilega koma til greina að Útvegs- bankinn sameinist Búnaðar- banka, einkabönkum og sparísjóðum, og úr verði öflug- ur banki. Hann segir andstöðu stjórnenda Búnaðarbankans við slikum samruna ekki skipta neinu máli, þar sem Búnaðar- bankinn sé ríkisbanki. Þe’tta kom fram i samtali blaðamanns Morgunblaðsins við forsætis- ráðherra i gær. „Framsóknarflokkurinn hefur ekki tekið þá afstöðu að vera andvígur því að ríkissjóður endur- reisi §árhag Útvegsbankans, en persónulega er ég þeirrar skoðun- ar, að slíkt eigi ekki að gera, heldur verði að koma til aðrar eignir ríkisins, eins og Búnaðar- bankinn til þess að endurreisa Útvegsbankann," sagði forsætis- ráðherra. Hann sagði að sér litist ekki illa á þá hugmynd að einn öflugur banki yrði stofnaður úr Útvegsbanka, Búnaðarbanka og einkabönkum og sparisjóðum, ef þeir vildu. Forsætisráðherra var spurður hvort andstaða stjómenda Búnað- arbankans við samrana við Útvegsbankann gæti haft áhrif á ákvörðun stjómvalda í þessum efnum: „Mér er kunnugt um að ýmsir Búnaðarbankamenn í báð- um flokkum era mjög andsnúnir þessu, en þetta er eign ríkisins, þannig að andstaða þeirra skiptir í sjálfu sér engu máli. Vitanlega eigum við að gera það sem við teljum skynsamlegast," sagði Steingrímur. Baldvin Tryggvason, sparisjóðsstjóri: Full alvara varðandi þátt- töku í kaupum á Utvegsbankanum „OKKAR afstaða er óbreytt frá því sem áður var. Við erum reiðubúnir til viðræðna, en þær viðræður hafa fram til þessa eingöngu verið hugsaðar um þann möguleika að ríkið tæki þá ákvörðun að selja Útvegs- bankann," sagði Baldvin Tryggvason, formaður Sam- bands sparisjóða, i samtali við Morgunblaðið. Baldvin sagði að ekki hefði verið rætt um þann möguleika að einhverjir sparisjóðir, ásamt Bún- aðarbanka og einum eða tveimur einkabönkum, sameinuðust Út- vegsbankanum, þannig að ekki væri hægt að segja neitt um það hver afstaða Sambands sparisjóða eða stjómar þess væri til slíks möguleika. „Af okkar hálfu hefur verið full alvara á bak við þessar við- ræður, og það að vera hugsanlega þátttakendur í því að kaupa Út- vegsbankann af ríkinu. Við höfum viljað kanna þennan kost til hlítar, en til þess að geta gert upp hug okkar, þurfum við að fá ærið mikl- ar upplýsingar í hendur, svo sem þær hvort eigandi Útvegsbank- ans, ríkið, vill selja bankann, svo og það hvers virði er það sem við hugsanlega kaupum," sagði Bald- vin. Stefán Pálsson Búnaðarbanka: Alls ekki tilbún- ir að ræða sam- eininguvið Útvegsbankann STEFÁN PÁLSSON banka- stjórí Búnaðarbankans telur það rangt, að tala um að Búnað- arbankinn eigi einn að koma Útvegsbankanum til bjargar, en hann segir umræðuna um uppstokkun bankakerfisins ein- kennast nokkuð af slíku. Hann segir að ef endurreisa eigi fjár- hag Útvegsbankans, verði að koma til víðtækur stuðningur bankakerfisins í heiid, en ekki einungis Búnaðarbankans. „Við höfum haft þá skoðun hér, að Búnaðarbankinn væri af mjög heppilegri stærð og við telj- um líka að Búnaðarbankinn standi sig vel innan bankakerfisins, og því teljum við í raun og vera að það sé engin ástæða til þess að draga Búnaðarbankann sérstak- lega inn í þessa mynd,“ sagði Stefán í samtali við Morgunblaðið í gær. Stefán sagði stjómendur Bún- aðarbankans ekki vera andvíga þeirri skoðun að eðlilegt sé að fækka ríkisbönkum, þannig að þeir yrðu tveir. „Við eram þeirri skoðun ekki andstæðir, ef það er talið heppilegra, og við teljum að Landsbankinn og Búnaðarbank- inn standi mjög vel,“ sagði Stefán. „Við eram alfarið á móti því að draga Búnaðarbankann inn í þessa umræðu með þeim hætti sem gert hefur verið, að tala um að það sé eitthvað sjálfgefið að Búnaðarbankinn eigi að bjarga Útvegsbankanum, með því að taka á sig tap hans,“ sagði Stefán. Stefán sagðist telja að það þyrfti að leysa þau vandamál sem Útvegsbankinn hefði ratað í, en hann kvaðst ekki telja að slíkt ætti að verða verkefni eins banka. „Ég held að það gæti komið til víðtæk lausn, þar sem allt banka- kerfið tæki þátt í Iausninni. Við eram ekki á móti þeirri hugsun," sagði Baldvin, „við viljum bara ekki vera dregnir inn í þessa mynd sem aðalhjálparaðilar, þótt við séum vissulega tilbúnir til samstarfs við allt bankakerfið og ríkisstjóm, en alls ekki tilbúnir til þess að tala um sameiningu Út- vegsbankans og Búnaðarbank- ans. Við teljum að það sé enginn grundvöllur til þess.“ Sljórnendur einkabankanna: Bíðum eftir stefnumótun stjórnvalda BANKASTJÓRAR Iðnaðar- bankans og Verzlunarbankans, þeir Valur Valsson og Höskuld- ur Ólafsson, segjast ekkert hafa um hugsanleg sameining- aráform banka að segja nú, á meðan stjórnarflokkarnir eru enn með uppstokkun banka- kerfisins til umfjöllunar hjá sér. Segjast þeir biða eftir nið- urstöðu stjórnvalda í þessum efnum. „Málið er til umfjöllunar hjá stjómarflokkunum núna, og við eram því alveg utangarðs í þessu máli, eins og stendur," sagði Val- ur Valsson, bankastjóri Iðnaðar- bankans, í samtali við Morgun- blaðið í gær. Valur sagði að það hefði verið í desember sl. sem stjómendur einkabankanna greindu stjómvöldum frá því, að þeir væra reiðubúnir til þess að fara út í viðræður, sem miðuðu að því að sameina Iðnaðarbank- ann, Verzlunarbankann og Útvegsbankann. Þær hugmyndir hefðu verið byggðar á tillögum bankamálanefndar sem fram hefðu komið í byrjun desember. „Við lýstum því þá yfir, að við teldum þetta vera mjög áhuga- verðan kost, og vildum láta reyna á það til hlítar, hvort menn væru reiðubúnir til þess að fara út í slíka sameiningu," sagði Valur, „þannig að stjómvöldum hefur verið kunnugt um þessa afstöðu okkar frá því í desember í fyrra, en þau eiga enn eftir að móta sína stefnu í þessu máli. Við bíðum einfaldlega eftir því að stjómvöld geri það, áður en við tökum ákvörðun um næsta skref okkar.“ Höskuldur Ólafsson bankastjóri Verzlunarbankans tók í sama streng og Valur, og sagði að málið væri í þannig stöðu nú, að ekkert væri um það að segja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.