Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 2

Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 Jöfur yfirtekur Hafrafell JÖFUR hf. hefur keypt 80% hluta- fjár í Hafrafelli, sem um árabil hefur verið umboðsaðili fyrir Peugeot-bíla. Innan skamms verður öll starfsemi Hafrafells flutt í húsakynni Jöfurs og hús- eignin að Vagnhöfða 7 seld. „Ég tel að nú séu runnir upp þeir timar í viðskiptaheiminum að fyrirtæki renni æ meira saraan i sterkari heildir" sagði Eyjólfur Brynjólfsson, framkvæmdasljóri Jöfurs. „Við bætum við úrvalið án þess að auka fastan kostnað, og rennum styrkari stoðum und- ir reksturinn." Jöfur var stofnaður árið 1946. Fyrirtækið hefur umboð fyrir Skoda, Alfa Romeo og Chrysler bifreiðar. „Með tilkomu Peugeot bílanna bætum við „millibíl" inn í úrvalið. Verðin sem við höfum sam- ið um fyrir næsta ár eru okkur hagstæð. Ekki sakar að Peugeot er í sókn bæði í Frakklandi og utan þess“ sagði Eyjólfur. Hann bætti við að þegar væru komnar inn 50 pantanir fyrir næstu árgerð bílanna. „En bflasala á þessu ári er líka fáránlega mikil. Ég er hræddur um að á næstunni fái menn í þessari grein mikla timbur- menn.“ LESBCE u la ni a [u] ® m b a ® si in ® m HLÉ verður á útgáfu Les- bókar í 4 vikur yf ir hásumarið. Næsta Lesbók kemur út laugardaginn 16. ágúst. TEKIÐ var til hendinni í Fossvoginum í gær I fullorðinna tók þátt í þessari vinnu með er unglingar úr Vinnuskóla Kópavogs lögðu I krökkunum og var ekkert gefið eftir þó tals- göngustíg frá Birkitúni að Daltúni. Hópur | vert rigndi í gær. Fengn 20% launa- hækkun SAMNINGAR hafa náðst í vinnu- deilu Alþýðusambands Aust- fjarða og VSI og Vinnumálasam- bands samvinnufélaganna vegna starfsfólks í fiskimjölsverksmiðj- um. Samkomulag varð um að meðaltali 20% álag á 19. launa- flokk ASÍ. Hrafnkell A. Jónsson, formaður verkalýðsfélagsins Árvakurs á Eskifirði, sagði í samtali við Morg- unblaðið, að þessir starfsmenn þægju laun samkvæmt 19. launa- flokki ASÍ. Samið hefði verið um ákveðið álag á þann launaflokk, mismunandi eftir starfsaldri. Byij- endur fengju 15% álag, eftir tvö ár yrði álagið 20%, 25% eftir 6 ár og 30% eftir 9 ár, en flestir starfs- menn verksmiðjanna væru með tveggja til sex ára starfsaldur. Auk þess hefði verið samið um að verk- smiðjumar sæju starfsmönnum sínum fyrir viðeigandi hlífðarfatn- aði þeim að kostnaðarlausu og fleiri smærri atriði. Stal banka- bókum og náði út tæpum 200 þúsund kr. Hitaveitan í Vestmannaeyjum: Raforka tekur fljót- lega við af hrauninu - Hraunið getur ekki sinnt orkuþörfinni að fullu nema til loka næsta árs segir Sveinbjörn Björnsson eðlisfræðingur „HRAUNIÐ í Vestmannaeyjum mun líklega ekki geta sinnt allri orkuþörf Vestmannaeyja nema til loka næsta árs, “sagði Svein- björn Björnsson, eðlisfræðingur, en hann hefur ásamt Þorbimi Sigurgeirssyni unnið sem ráð- gjafi á vegnm Raunvísindastofn- unar Háskólans fyrir Hitaveitu Vestmannaeyja um það hvernig nýta megi hraunið. „Virkjunaraðferðin sem notuð er í dag gengur út frá samfelldu lagi af bráðnu hrauni", sagði Sveinbjöm. „Ef hraunið er storkið í gegn og komið gat á pönnuna hleypir það í gegn vatninu sem vökvað er á og verður það þá ekki að gufu. Þetta gerist jafnvel þó að hraunið sé enn allt að 7-800 stiga heitt. Þannig minnkar alltaf smám saman sú orka sem hraunið getur veitt. Það verður þó áfram hægt að fá verulega orku úr hrauninu en hún mun ekki geta sinnt þörfinni þegar orkuþörfin er sem mest. Yfir hávet- urinn getur orkuþörfin farið upp í allt að 18 MW en er að jafnaði ekki nema einn þriðji af því, allt niður í 5 MW á góðum sumardög- um. Hraunið gæti vel enst sem orku- gjafi í ein 10-15 ár til viðbótar en mundi þá ekki geta sinnt nema kannski fjórðungi af orkuþörf bæj- arins. Þá fer þetta líka að verða spuming um það, hvort það borgi sig að vera að eltast við hitann. Tilkostnaðurinn er kannski orðinn það mikill að aðrir orkugjafar reyn- ast hagstæðari. Það er líka hugsanlegt að í framtíðinni verði hægt að nýta þann hita sem er að finna í Eldfellinu sjálfu. En þar þyrfti þá að nota allt aðrar virkjunaraðferðir en við þekkjum í dag og sem þyrfti að þróa upp, en það tæki auðvitað sinn tíma. Éins og stendur þekkir enginn maður á íslandi aðferð sem hægt væri að nota,“ sagði Sveinbjöm Bjömsson. „Draumurinn er auðvitað að við gætum komið okkur upp endanleg- um grunnorkugjafa fyrir ársbyrjun 1988 til að koma til móts við orku- þörfina," sagði Eiríkur Bogason rafveitustjóri í Vestmannaeyjum í samtali við Morgunblaðið. „Grunn- aflið yrði þá rafskautskatlar og síðan mundum við nýta hraunið eins og við getum. Við erum að fara í gang með samninga við Rafmagns- veitur ríkisins um kaup á raforku frá meginlandinu og hversu hag- stæðir þeir verða mun ráða miklu um framtíðina. Við eram með all nokkum skuldabagga á bakinu og það verður því að ráðast, hvort að við höfum bolmagn til þess að koma á endanlegum grunnorkugjafa strax, eða hvort að við munum þurfa að að bjarga okkur fyrir hom með olíu fyrst í stað. Hún er þó óhagstæðari, á því verði sem hún er á í dag, en innlenda orkan miðað við til dæmis þá samninga sem Orkubú Vestfjarða er með. Þetta er auðvitað stórmál fyrir okkur hér og það varðar framtíðar- búsetu í Vestmannaeyjum að takist að finna lausn á þessum málum. Auðvitað vonar maður að hraunið Þorsteinn Gíslason sagði í samtali við Morgunblaðið, að verðið væri út í bláinn miðað við afurðaverð og reksturinn gengi hreinlega ekki upp miðað við óbreyttar forsendur. Stjómendur SR hefðu verið að bíða eftir verði, þegar haft hefði verið samband við hann vegna Gísla Áma, sem var á leið til lands með full- fermi. Hann hefði lofað að beita sér fyrir því, að þeir töpuðu ekki á því að landa fyrsta farminum á Raufar- geti enst okkur aðeins lengur en spáð er, en allir útreikningar og spádómar Raunvísindastofnunar- innar hafa staðist hingað til og því nauðsynlegt að haga sér í samræmi við það,“ sagði Eiríkur Bogason. höfn. Engar upphæðir hefðu verið nefndar enda hefði þá ekki legið fyr- ir með neinni vissu tilboð frá öðrum verksmiðjum. Þorsteinn sagðist telja það raun- hæft verð, sem boðið væri erlendis, ti! dæmis í Færeyjum, 1.600 krónur fyrir lestina. Vegna lægra verðs á svartoliu þar, kostaði það um 150 krónum minna að framleiða úr hverri lest en hér. Við þennan samanburð væri því enn lægra verð raunhæft SÍBROTAMAÐUR, sem brotist hafði inn i bæ í Grafningi og stolið þaðan þremur bankabók- um, var handtekinn í Borgarnesi í fyrradag. Hafði hann þá tekið 180 þúsund krónur út af bókun- um. Maðurinn hafði farið í tvö banka- útibú á Selfossi og leyst út 140 þúsund krónur úr einni bókanna og 40 þúsund krónur úr hinum. Hann skrifaði nafn eiganda bókanna á úttektarseðlana og sitt eigið nafn undir. Því var strax farið að svip- ast um eftir honum og á þriðjudag hafði lögreglan spumir af honum á Þingvöllum. Hann var síðan hand- tekinn í Borgamesi á þriéjudags- kvöld og hafði hann þá 130 þúsund krónur í reiðufé á sér. Nokkuð hefur verið um innbrot í sumarbústaði í Grafningi að und- anfömu og leikur gmnur á að þessi maður hafi einnig verið þar að verki. hér eða um 1.500 krónur fyrir lest- ina. Hann sagði vinnslu hafna á Raufarhöfn, en hvert framhaldið yrði, væri enn óráðið. Menn væru enn að ná sér eftir undrunina á verð- inu. Magnús Bjamason, framkvæmda- stjóri Hraðfrystihúss EskiQarðar, sagði í samtali við Morgunblaðið, að verðið væri það hátt, að enginn grundvöllur væri til kaupa á loðnu og vinnslu afurða. Jón Kjartansson, eitt skipa fyrirtækisins, var á miðun- um í gær og sagði Magnús, að tekið yrði við þeim farmi, en um fram- haldið væri allt óljóst. Krossaness-verksmiðjan hefur tekið á móti einum farmi, 810 lestum af Súlunni. Ekki verður tekið við loðnu af öðrum skipum fyrst um sinn þar. „Verðið út í bláinn ogtap fyrirsjáanlegt“ Stjórnendur loðnuverksmiðju óánægðir með nýtt loðnuverð EIGENDUR loðnuverksmiðja á landinu eru mjög óánægðir með loðnu- verðið, sem ákveðið var á þriðjudag. Telja þeir það allt of hátt og taprekstur fyrirsjáanlegan miðað við afurðaverð. Því er óákveðið í flestum tilfellum hver framvinda mála verður og hvort verksmiðjum- ar telja sér fært að vinna loðnuna. Þorsteinn Gíslason, stjómarformað- ur Síldarverksmiðja rikisins, segir ákvörðun yfimefndar Verðlagsráðs sjávarútvegsins kjánalega. Verksmiðjurnar á Raufarhöfn og Krossa- nesi hafa hvor um sig tekið á móti einum farmi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.