Morgunblaðið - 24.07.1986, Side 7
MÓRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
Enn einn stórlaxinn
og stórg’anga
STÓRVEIÐI er nú í Laxá í Aðal-
dal og veldur mestu um, að
stórganga hefur komið í ána með
vaxandi straumi sem náði há-
marki í fyrradag. Þá veiddust
29 laxar fyrir hádegi og yfir 30
stykki síðdegis á svæðum Laxár-
félagsins og veiði var jafnframt
góð á öðrum svæðum. I heild eru
komnir um 1400 laxar á land úr
ánni, þar af rúmlega 1100 af
svæði Laxárfélagsins.
Mikil fluguveiði hefur verið í
uppánni síðustu daga, oft mokveiði
á Laxárvísu og hefur Laxá Blue
Þórðar Péturssonar stundum verið
sú eina sem gefið hefur að ráði. Á
hana veiddi Jóhannes Nordal Seðla-
bankastjóri t.d. 23 punda hæng við
Nyrðri Hagabakka á sunnudaginn.
Var það löng og ströng viðureign,
enda staðurinn sérstaklega erflður
fluguveiðimönnum og tvívegis mun
Jóhannes hafa orðið að vaða langar
leiðir á erfiðum botni til að losa
línuna úr festum sem laxinn hafði
ratað með hana í.
Að sögn kunnugra, hefur bæði
stór og smár fískur verið að ganga
að undanfömu og nokkrir verulegir
boltar hafa sést en ekki gefíð sig
enn sem komið er. í Stórafossi hef-
ur einn til dæmis haldið sig og verið
lýst á þá lund að hann „sé eins og
maður!
Leiðrétting-...
Vegna þess að Jóhannes Nordal
bar á góma er rétt að geta þess,
að veiðisaga af honum frá Svart-
höfða sem birtist í blaðinu fyrir
SÁ stóri úr Langá, Bill Simmers
heldur á 22 punda hæng sínum
og honum tU aðstoðar er Rut
Guðmundsdóttir, ráðskona i
veiðihúsinu við Stangarhyl.
nokkru undir yfirskriftinni „Eru
þeir að fá’ann?" var heldur betur
röng. Jóhannes var alls ekki að
veiðum við Svarthöfða og tíðinda-
maður Morgunblaðsins ruglaði
saman Seðlabankastjórum... Er
Jóhannes beðinn velvirðingar á mis-
tökunum.
Um þúsund úr Blöndu
Stórgóð veiði hefur verið í Blöndu
í sumar og hrein uppgripaveiði
suma daga, jöfn og góð aðra. Hátt
í þúsund laxar eru komnir á land
og er það besta veiðin í Blöndu í
þó nokkur ár miðað við tíma. Fyrir
fáeinum dögum veiddi Ólafur
Isleifsson þann stærsta úr ánni til
þessa, enn einn stórlaxinn, 24
punda físk, en nokkrir fískar um
ogyfír 20 pund hafa einnig veiðst.
I Svartá er nú veiðin að verða
spennandi, tölur höfum við ekki,
hins vegar fréttir þess eðlis að lax-
inn sé farinn að ganga í ána af
krafti og veiðast í hlutfalli við það.
Líflegt í Breiðdalsá
Um 40 laxar hafa veiðst í Breið-
dalsá það sem af er og telst afar
gott miðað við heldur slappa
ástundun og svo byijaði veiðin ekki
fyrr en um síðustu mánaðamót.
Eitt magra árið veiddust aðeins 4
laxar í ánni og segir það alla sög-
una um að áin er að koma upp á
ný. Talsvert er sagt af físki í Breið-
dalsá og silungsveiði er einnig með
betra móti.
Glæðist aftur
í Leirvogsá
Um 80 laxar voru komnir á land
úr Leirvogsá í fyrradag og þá veidd-
ust 3 laxar í ánni. Ekki kannski
mikið á Leirvogsárvísu, en veiði-
menn lentu í slagviðri og veiddu
fískana alla í Gijótunum og voru
þeir allir lúsugir. Var að sjá nokkuð
af göngulaxi á ferð, enda stærsti
straumur þann daginn. Fyrir voru
nokkrir fískar á víð og dreif, en
með nýrri göngu ætti veiðin að
glæðast á ný. 16 punda lax veidd-
ist í Ketilhyl í síðustu viku og er
ekki ólíklegt að þar hafi verið á
ferðinni „20-pundarinn“ sem menn
sáu í Birgishyl í upphafí veiðitím-
ans. Nokkrir 10—14 punda fiskar
hafa einnig veiðst, fleiri heldur en
almennt gerist í Leirvogsá. í fyrra-
dag voru svo 7 og 9 punda fískar
í aflanum og fleiri í sama stærðar-
flokki sáust á göngu.
Norðurá góð
Nú eru komnir yfír þúsund laxar
á land úr Norðurá, reyndar um
1100 laxar og er það næstum jafn
mikil veiði og allt síðasta sumar.
7
Hvert hollið af öðru hefur rofíð 100
laxa múrinn og fískur er um aila á.
í „Norðurá 1“ höfðu veiðst um
1000 laxar, en „Norðurá 2“, sem
er Munaðames, Stekkur og áin ofan
Króksfoss hafði gefið 100 laxa. Lax
er farinn að sjást og veiðast á
síðastnefnda svæðinu. Enn er 20
punda hængur Sigmars Jónssonar
stærsti lax sumarsins.
Þessi glœsilegi
vagn er til sölu
Alfa Romeo GTV 2000. Ekinn 63000 km. aðallega
erlendis.
Upplýsingar í síma 22345 eftir kl. 19.00 í kvöld og
næstu kvöld.
Bifreiðin er til sýnis í Saab umboðinu Töggur hf.
NÝTTSÍMANÚMER
69-11-00
I FARARBRODDI MEÐ SKEMMTIKRAFTA A HEIMS
MÆLIKVARÐA OG NU ERU ÞAÐ HINIR EINU OG SÖNNU
sem var fyrsta bítlahljómsveitin frá Liverpool sem
komst í efsta sæti breska vinsældalistans (á undan
Bítlunum) og varð um leið geysivinsæl hér á landi líka.
Eflaust muna flestir eftir lög-
unum þeirra eins og How do
you do it, I like it, You’ll nev-
er walk alone, l’m the one,
It’s gonna be alright o.fl. o.fl.
Öll komust þessi lög á topp-
inn í Bretlandi og á íslandi
og víðar og víðar.
Gerry and the Pacemakers
eru í toppformi eins og þeir
voru í byrjun tónlistarferils
síns og munu svo sannar-
lega skemmta gestum í
veitingahúsinu Broadway
dagana 25. og 26. júlí nk.
föstudags- og laugardags-
kvöld n.k.
Vinsamlegast tryggið ykkur
miða og borð tímanlega í
síma 77500
nom
Staðurinn sem hittir í mark
QFSttisgðtu 13, slmi 14099.