Morgunblaðið - 24.07.1986, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
17
Norskt herskip í heimsókn
V ísindastyrkir
Annar þáttur í starfi Atlantshafs-
bandalagsins sem almenningur veit
lítið um er stuðningurinn við
vísindastarfsemi, fyrst og fremst
styrkir til vísindamanna til náms í
öðrum ríkjum bandalagsins. Um
1000 stórir styrkir eru veittir á ári
til náms og rannsókna í hinum fjöl-
breyttustu vísindagreinum auk
margra smærri ferðastyrkja og til
námskeiðahalds. Á þeim 25—30
árum síðan vísindastyrkir NATO
hófust hafa yfir 250 þúsund
vísindamenn notið þeirra, þar á
meðal hundruð íslendinga. Uppi eru
nú áform um að tvöfalda kvóta Is-
lendinga af NATO-styrkjum.
Þessi stuðningur NATO við rann-
sóknir og vísindi kemur ekki aðeins
vísindamönnum, styrkþegunum til
góða. Hann styrkir vísindastarfsemi
bandalagsríkjanna, eflir kunnings-
skap og skilning þjóða í milli og
eyðir tortryggni. Það er eftirtektar-
vert að mest af NATO-styrkjunum
hefur runnið til náms í greinum sem
eru gersamlega óskyldar aðalhlut-
verki bandalagsins, þ.e. vamarkerf-
inu. Rannsóknastyrkir í vistfræði,
hagfræði og þjóðfélagsfræði eru
eins algengir og styrkir til eðlis-
fræði- og verkfræðirannsókna. Það
er ekki einu sinni spurt að því hvort
styrkþegar séu fylgjandi NATO
eður ei. Sannast sagna virðist það
nú óþarfi að styrkja grimma and-
stæðinga til náms og mætti vel
velja og hafna á þeim forsendum.
Eitt málefni enn sem rétt er að
minnast á og Norður-Atlantshafs-
þingið hefur látið sig miklu skipta
Leikmanni gæti virst sem það
væri varla mjög flókið verk að gera
pörunarforrit. En úr því það hefur
ekki tekist bærilega enn, hlýtur að
leynast fískur undir steini: „Þetta
virðist vera auðunnið verk, það er
rétt. En það er margs að gæta, og
eftir því sem mótið er stærra er
málið erfíðara viðfangs," segir
Daði. „Grundvallarreglan er sú að
menn með jafna vinninga eiga að
tefla saman. Segjum að átta menn
séu með 5 vinninga eftir 9 um-
ferðir. Það væri einfalt að para þá
saman ef þeir hefðu ekki sumir
hveijir áður teflt innbyrðis, eins og
næsta víst er. Þá þarf að flytja ein-
hveija þeirra niður í næsta vinn-
ingahóp, láta suma tefla við menn
sem hafa 4 V2 vinning. En hveija
á að flytja og hveija á að velja á
móti þeim úr lægri hópnum? Þegar
slík ákvörðun er tekin þarf að taka
tillit til ótal hluta, svo sem skák-
stiga og jöfnun lita — en það er
reynt að tryggja að menn hafi jafn
oft svart og hvítt í hverju móti.
Þetta getur orðið býsna flókið þeg-
ar keppendur eru margir. Enn-
fremur er það hugmynd okkar að
bæta ýmsu öðru inn í forritið: láta
það reikna út möguleika á titilvinn-
ingum einstakra skákmanna eftir
hveija umferð, annast skákstigaút-
reikninga, raða mönnum upp eftir
vinningum og ýmislegt fleira," út-
skýrir Daði.
Daði er vongóður um að hægt
verði að koma forritinu á markað
erlendis: „Okkur reiknast svo til að
við komum út með sæmilegum
hagnaði ef okkur tekst að selja 100
forrit. Kaupendur yrðu þá einkan-
lega mótshaldarar og taflklúbbar,
og hafa nokkrir aðilar þegar ákveð-
ið að kaupa af okkur forrit. Oft er
rætt um nauðsyn þess að íslending-
ar notfæri sér þá sérþekkingu sem
þeir búa yfir. Skákin er svo sannar-
lega eitt af þeim sviðum þar sem
íslendingar standa hvað fremstir í
flokki. Þá er ég ekki eingöngu að
tala um skákstyrkleika, heldur
einnig um stjórnun skákmóta. Mik-
ill fjöldi alþjóðlegra skákmóta hefur
verið haldinn hér á landi á undan-
förnum árum og hefur framkvæmd
þeirra undantekningarlaust verið
með miklum ágætum. Með sam-
vinnu við Skáksamband íslands tel
ég að við getum nýtt þessa miklu
reynslu til að útbúa heildarkerfi
fyrir stjórnun skákmóta sem væri
mun fullkomnara en þau kerfi sem
fram til þessa hafa verið á markaðn-
um,“ sagði Daði Jónsson.
er jöfnuður í lífskjörum milli land-
anna, sérstaklega bætt lífskjör í
Portúgal, Grikklandi og Tyrklandi.
Þessu verkefni hefur verið vel tekið
hjá öðrum bandalagsþjóðum og
miðað vel. Telja má fullvíst að
NATO hafi aflað sér góðs stuðning
í þessum þrem löndum.
*
Island verður
áfram í NATO
Það er af mörgu fleiru að taka
um starfsemi Atlantshafsbanda-
lagsins utan hins eiginlega varnar-
starfs. Þess er að vænta og það er
vonandi að bandalagið haldi áfram
jafnvel þó ógnun frá austri linni.
Hitt er alveg ljóst að NATO verður
áfram pólitískur skotspónn vinstri-
sinna og stjómleysingja. Því er
nauðsynlegt að allir sem trú hafa
á málstaðnum taki höndum saman
og styðji við bakið á NATO og láti
ekki rægja bandalagið og níða niður
í sín eyru ómótmælt.
Jón Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins talar um
NATO sem sósíaldemókratísk sam-
tök í Mbl-viðtali nýlega. Það hlýtur
í hans munni að vera hið mesta
hrós og gleður okkur hina, fylgis-
menn NATO. Hvort Jón Baldvin
Hannibalsson er að taka af öll
tvímæli um að hann gæti orðið
góður utanríkisráðherra skal ósagt
látið, en eindregin afstaða hans og
annarra þingmanna Alþýðuflokks-
ins er ánægjuleg þar sem Nörður-
landakratar eru ekki allir jafngóðir
bandamenn og forverar þeirra voru
í þessu tilliti.
Það var hins vegar leiðinlegt að
lesa það eftir Þórarni Þórarinssyni
í Tímanum að við eigum hiklaust
að tefla aðild okkar að vestrænni
samvinnu á móti nokkmm tonnum
af kinda- og hvalkjöti. Sala á dilka-
kjöti og hvalkjöti mun ekki aukast
þó við göngum úr NATO og ekki
aukast þá flutningar til Keflavíkur.
Þegar menn slá fram svona stund-
arhugdettum veðrar að fyglja
hugsun um það hvað við tekur ef
NATO-aðild íslands sleppir.
Höfundur er þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Norðulandskjör-
dæmi eystra.
SKIP úr Konunglega norska flot-
anum, KNM Horten, kom til
landsins á þriðjudagsmorgun í
vináttuheimsókn. Það mun dvelja
hér tii fimmtudags.
KNM Horten er nú á leið heim
til Noregs frá Bandaríkjunum þar
sem skipið var meðal annars við-
statt hátíðahöldin í sambandi við
þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna
og aldarafmæli Frelsisstyttunnar
þann 4. júlí síðastliðinn.
KNM Horten er 2500 lestir að
stærð og með 85 manna áhöfn.
Horten er notað sem aðstoðarskip
við kafbáta og hraðskreiða eftirlits-
báta. Einnig notaði Olafur V
Noregskonungur KNM Horten sem
konunglega snekkju í maí til sept-
ember 1985.
Skipstjóri á KNM Horten er Tor
Lien.
EUDBA FOLK
IHOPFERÐ
TIL MALLORCA
Það erengin tilviljun að Ferðaskrifstofan Polaris gefieldra fólkikostá
haustferð til Mallorca.
Á haustin erloftslagið á Mallorca einstaklega þægilegt, sólin skín og
andvarinn afsjónum ersvalandi.
íþriggja vikna hópferð býður Polaris eldri farþegum sinum þægilegt og
forvitnilegt umhverfi og gistingu á hinu stórglæsilega íbúðahóteli Ciudad
Blanca viðAlcudiaflóann. Á undanförnum árum hafaþúsundiríslendinga
gefið þessu hóteli sin allra bestu meðmæli og það sem mestu skiptir er að hjá
Polaris eru islenskir fararstjórar og íslensk hjúkrunarkona.
Brottföríhaustferðer30. september. Valdís Blöndal, sérlegurfararstjóri
aldraðra verðurmeð i ferðinni og verðurhún á Ferðaskrifstofunni Polaris,
Kirkjutorgi 4, fimmtudaginn 24. júlíkl. 14.00-17.00. Þargeta eldri farþegar
kynnt sér ferðina og þá glæsilegu aðstöðu sem þeim stendur til boða.
Sextugur, sjötugur, áttræður... Aldurinn skiptirekki mali, í Polarisferð
verða allir ungir íánnað sinn!
FERÐASKR/FSTOFAN
POLARIS wg/s
Kirkjutorgi4 Sími622 011