Morgunblaðið - 24.07.1986, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 24.07.1986, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 Konunglegt brúðkaup á Bretlandi Brúðhjónin arinnar, en af Wales. benda í átt að fjöldanum, sem hópaðist saman fyrir neðan svalir Buckinghamhallar. Lengst til vinstri sést í móður brúð- lengst til hægri er drottningarmóðirin og Edward prins. Fyrir framan drottningarmóðurina sést í Vilhjálm litla, prinsinn Andrew Bretaprins geng- ur að eiga Söru Ferguson London, AP. BRÚÐKAUP Andrews Breta- prins og Söru Ferguson fór fram við mikla viðhöfn í Lund- únum i gær. Tugþúsundir manna tóku þátt í hátíðahöld- unum og 300 miljónir í 42 löndum gátu fylgst með því sem fram fór í beinni útsendingu. Mörg þúsund manns höfðu þeg- ar á þriðjudag komið sér fyrir meðfram leiðinni sem ekin var milli Buckinghamhallar og West- minster Abbey, þar sem athöfnin fór fram og snemma á miðviku- dagsmorgun var mannþröngin slík að hvergi sást í dökkan dfl. Miklar öryggisráðstafanir voru gerðar og gekk allt að óskum. Ymsir höfðu haft áhyggjur af veðrinu þar sem spáð hafði verið rigningu, en sólin braust gegnum skýin og glampaði á skrautlegum hestvögnum, svörtum Rolls-Royce bifreiðum, aktygjum hestanna og hjálmum riddaranna. Brúðkaups- gestimir 2.000, þ. á m. móðir Sara mismælti sig við altarið Lundúnum, AP. SARA FERGUSON hafði lýst þvi yfir að hún kynni fullkomna aðferð við að leggja á minnið hjúskaparheit sitt, er hún gengi að eiga Andrew prins. Ekki tókst þó betur til en svo, að hún ruglaðist þegar hún þuldi upp nöfnin fjögur. Sara, eða Fergie, eins og hún er oftast kölluð, hafði margsinnis lýst því yfír að orðið „ACE“ myndi hjálpa sér við að muna nöfnin Þijú, sem koma á eftir Andrew, eða Albert Christian Edward. Henni fípaðist eitthvað þegar kom að því að þylja nöfnin upp og tvítók hún nafnið Christian. Fergie er ekki ein um að hafa mismælt sig við hjúskaparþuluna, þar sem Díönu prinsessu varð einnig á í messunni þegar hún giftist Karli Bretaprins. Hún ruglaði nafnaröðinni og í stað þess að bindast Charles Philip Arthur George, að eilífu, sagðist hún lofa að elska Philip Charles Arthur George ævilangt. Fleiri uppákomur áttu sér stað við brúðkaupið, en það staðfesti aðeins að þrátt fyrir blátt blóð, er kóngafólk jafn mennskt og annað. Karl, arftaki krúnunnar, tárað- ist við athöfnina og tók fram vasaklút til að þerra gleðitárin sem læddust niður kinnar hans. Drottningin, Elísabet II, virtist aftur á móti mjög hugsi á meðan á athöfninni stóð og jafnvel örlítið taugaóstyrk. Hins vegar fékk Vilhjálmur, sonur Karls og Díönu, drottning- una til að brosa og móður sína til að flissa. Brúðarmeyjamar og sveinamir, fjórir drengir og fjórar stúlkur á aldrinum fjögurra til sex ára, höfðu æft sig lengi til að mynda beina röð fyrir aftan brúð- hjónin. Þrátt fyrir að röðin væri svolítið skökk, tókst bömunum ágætlega upp og settust þau síðan á litla, bleika stóla fyrir neðan altarið. Þá tók við 45 mínútna bið, á meðan athöfnin fór fram og voru bömin misróleg á meðan á biðinni stóð. Það vakti mikla kátínu viðstaddra þegar Vilhjálm- ur litli, sem klæddur var í sjóliða- föt frá 19. öld, tók af sér höfuðfatið og fór að naga höku- bandið. Athöfnin var sýnd á myndbandaskermi í kirkjunni og sáu því allir hvað fram fór, þegar kvikmyndatökumennimir beindu vélum sínum að piltinum unga. Fimm ára frændi Söru, Seamus Makim, líkti eftir prinsinum og sátu þeir tveir alsælir með nóg til að narta í. Andrew tókst að fara með hjú- skaparheit sitt átakalaust, en þegar kom að því að læða gifting- arhringnum á fíngur Söm, var sverð hans í vegi fyrir honum. Öllum til undrunar dró Sara hring á litla fíngur Andrews, án þess að mæla orð frá vörum. brúðarinnar og stjúpfaðir, tignar- fólk hvaðanæva að úr heiminum, erlendir stjómarerindrekar og Nancy Reagan, kona Bandaríkja- forseta, biðu í kirkjunni þar sem breskir þjóðhöfðingjar hafa verið krýndir, giftir og grafnir undan- farín 920 ár. Mannfjöldinn fyrir utan konungshöllina söng þjóð- sönginn „God Save The Queen" er Elísabet II Bretadrottning ók ásamt manni sínum, Philip prins, í fremsta vagninum af stað til athafnarinnar. Brúðguminn, Andrew, ók í vagni með yngri bóður sínum, Edward og ríkisarf- anum, Karli ásamt konu hans, Díönu. Brúðurin, Sara Ferguson, ók með föður sínum, Ronald Ferguson, í glervagninum frá ár- inu 1910. Athöfnin í kirkjunni þótti mjög hátíðleg. Brúðguminn, íklæddur sjóliðsforingjabúningi, beið brúð- arinnar við altarið ásamt svara- manni sínum, sem var bróðir hans Edward. Er brúðurin kom inn í kirkjuna var blásið í lúðra og síðan leiddi faðir hennar, sem var svara- maður, hana upp að altarinu á meðan sunginn var sálmur. Beðið hafði verið með eftirvæntingu þess að sjá hvemig brúðarkjóllinn liti út. í ljós kom að hann var úr fflabeinslitu silkisatíni, með 5,4 m löngum slóða og skreyttur perlum er mynduðu þistla og býflugur, sem eru í skjaldarmerki hennar og öldur og akkeri vegna tengsla prinsins við sjóherinn. Þykkt rautt hárið féll niður á axlir, en jrfír því bar Sara slör og höfuðdjásn, gim- steinum skreytt. Erkibiskupinn af Kantaraborg, Robert Runcie, gaf brúðhjónin saman. Eftir athöfnina var haldið til Buckinghamhallar, þar sem gest- imir gæddu sér á brúðartertunni, humar, lambakjöti og jarðarbeij- um. Brúðhjónin komu fram á svalir hallarinnar ásamt nánustu íjölskyldumeðlimum og veifuðu til mannfjöldans sem fagnaði ákaft, hrópaði og bað um hinn hefð- bundna brúðarkoss, sem Andrew smellti þegar á brúði sína. Að veislunni lokinni héldu hertoga- hjónin af York, en hertogatitilinn hlaut prinsinn einum og hálfum klukkutíma fyrír brúðkaupið, af stað í vikulanga brúðkaupsferð til Azoreyja, að því er sagt var, og þar mun konungssnekkjan „Brit- annia" bíða þeirra. Fjölskyldur Andrews og Söm, gestir og starfsfólk hallarinnar kvöddu þau með tilþrifum, vörpuðu bréfræm- um yfír þau og á vagninn sem þau óku í hafði verið fest eftirlík- ing af gervihnattardisk, þar sem á stóð „Phone home", hringið heim. Var álitið að þama hefði prakkarinn Edward verið að verki. Meðfram leiðinni til Chelsea Royal Hospital, þar sem þyrla er flutti brúðhjónin til Heathrow-flugvall- ar, beið þeirra, var mikill mann- fjöldi er fagnaði þeim ákaft og á flugvélina er þau flugu í til Azor- eyja hafði verið málað „Just married" -nýgift. / ' mmmmm i Hér kyssast hin nýgiftu brúðhjon, Sara og Andrew, á svölum Buckinghamhallar. Til vinstri sést i brúðarmeyjuna Zöru Phillips. AP/Símamynd Brúðkaupsterta Andrews og Söru var bökuð í matreiðslu- skóla breska sjóhersins. Bakst- urinn tók tiu vikur, kakan var 1,67 m á hæð og 108,8 kg að þyngd. Henni var ætlað að metta tvö þúsund munna. Risastór bangsi fékk að fljóta með brúðhjónunum, þar sem þau héldu frá Buckinghamhöll á leið i brúðkaupsferðina. Þau óku um í skrautvagni stuttan spöl, áður en þau stigu um borð í þyrlu, sem flutti þau til Heathrow-flugvallar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.