Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 35

Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 35
_______________________MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 _ Margir mjólkurbændur komnir yfir fullvirðismarkið: Halda undantekningarlaust áfram að leggja inn mjólk „Maður getur ekki hætt að mjólka kýrnar“ — segir bóndi sem er farinn yfir markið MARGIR mjólkurbændur, um allt land, eru búnir — eða í þann mund — að klára „fullvirðis- mark“ sitt. Þegar því marki er náð fær bóndinn aðeins brot af fullu verði fyrir þá mjólk sem hann leggur inn til mjólkursam- lags sins. Hjá Mjólkurbúi Flóamanna eru 120 af 720 bændum búnir með sinn skammt, og á svæði Mjólkursam- Norræna húsið: Fyrirlestur um gróður- ríki Islands í KVÖLD, fimmtudaginn 24. júlí, klukkan 20.30, verður íslensk flóra á dagskrá í „Opnu húsi“, sumardag- skrá Norræna hússins fyrir erlenda ferðamenn. Þá flytur Eyþór Einars- son erindi um gróðurríki íslands ásamt litskyggnum og talar á dönsku. Að erindinu loknu verður gert kaffihlé og því næst sýnd kvik- myndin „Þtjár ásjónur íslands" með norsku tali. Kaffistofa og bókasafn Norræna hússins verða opin fram eftir kvöldi eins og venja er þegar „Opið hús“ er á dagskrá. Aðgangur er ókeypis og allir, sem áhuga hafa, eru velkomnir. Þórshaf narhreppur: Davíð Agnars- son ráðinn sveitarstjóri RÁÐINN hefur verið sveitar- stjóri Þórshafnarhrepps, Davíð Agnarsson, sem verið hefur starfsmaður Hafnarhrepps i Hornafirði undanfarið. Hann tekur við embætti sveitarstjóra 1. september af Stefáni Jóns- syni, sem gegnt hefur embættinu sl. fjögur ár. Starf sveitarstjóra á Þórshöfn hefur verið auglýst tvisvar. í fyrra skiptið sóttu tveir um sem báðir óskuðu nafnleyndar, en þeim var báðum hafnað. I síðara skiptið sótti enginn um starfið, en eins og áður sagði hefur Davíð verið ráðinn þó formleg umsókn hafi ekki borist frá honum. Meirihluti sveitarstjómar á Þórs- höfn er skipuð fjórum fulltrúum af F-lista, lista framfarasinnaðra kjós- enda, og einum af H-lista, lista óháðra frjálslyndra. Leiðrétting BAKSÍÐUMYND Morgunblaðsins í gær var ranglega merkt. Sá sem tók myndina er Sigurður R. Sigur- björnsson. Velvirðingar er beðist á þessu ranghermi. Auglýsingar 22480 Afgreiðsla 83033 lags Borgfirðinga em 19 af 180 bændum komnir yfir markið. Um næstu mánaðamót hækka þessar tölur vemlega. I Eyjafirðinum er ástandið skárra, 6 bændur em komnir yfir, af 260 sem leggja inn í samlagið. Búist er við að talan 6-faldist um næstu mánaðamót og meirihluti bænda verði við mörkin í lok sumars. Það virðist vera að bændur haldi undantekningarlaust áfram að leggja inn mjólk þótt full- virðismarki sé náð. „Maður getur ekki hætt að mjólka kýrnar" sagði bóndi á Suðurlandi í samtali við blaðamann. Morgunblaðið hafði tal af nokkr- um bændum á Suður- og Vestur- landi sem búnir em með fullvirðis- mark sitt. Þeim bar saman um að aðhald væri nauðsynlegt í fram- leiðslunni. Á hinn bóginn hefðu bændur í þessum fjórðungum feng- ið óeðlilega lágt fullvirðismark. „Árin tvö, sem notuð em til viðmið- unar urðum við fýrir áfalli og kúm var slátrað. Þá var mikið talað um að bændur ættu að minnka fram- leiðsluna svo að við endumýjuðum ekki. Mér fínnst súrt í broti að vera nú refsað fýrir að fara að tilmælum ráðamanna" sagði Jon Böðvarsson bóndi í Brennu sem kláraði fullvirð- ismark sitt þegar í maí. Hann leggur inn um 13.500 lítra í mán- uði, og fær kr. 4,50 fyrir lítrann. „Aðstaða okkar er auðvitað mjög óþægileg. Þetta kerfi getur varla gengið til lengdar, skömmtunin hittir menn af handahófi og bændur á Suður- og Vesturlandi virðast hafa farið verst út þessu" sagði Jón. Eggert Ólafsson, bóndi á Þor- valdseyri undir Eyjafjöllum taldi að 35 þeir sem hefðu takmarkað fram- leiðslu sína hefði verið refsað með lágu fullvirðismarki. „En vondu mönnunum er umbunað ríkulega. Þetta er glöggt dæmi um hvemig fer þegar málin eru látin í hendur hagfræðinga með tölvu, og mann- legi þátturinn kemur hvergi inn í.“ Eggert, sem heldur bú með syni * sínum Ólafi er nýlega farinn yfir fullvirðismarkið. Hann var með 70 kýr í vetur og sagðist hafa dregið „ úr fóðmm og reynt að nota einung- is sitt hey. Þeir feðgar leggja inn í Mjólkurbúið sem fyrr. Hafa þeir engin önnur not fyrir mjólkina. Guðlaugur Björgvinsson, for- stjóri Mjólkursamsölunnar í Reykjavík, var spurður hvort hætta væri á því að mjólkurskortur yrði á Suðvestur-horninu í lok sumars ef mikill hluti bænda verður farinn yfir fullvirðismarkið. Hann sagði að sér væri ekki kunnugt um að nokkur bóndi hefði hætt að leggja inn. „Þar sem mjólk heldur áfram að streyma inn, er ekki fyrirsjáan- legur neinn skortur" sagði Guðlaug- ur. I LANDSBANKANUM FÆRÐU DOLLARA, PUND, MÖRK, FRANKA, PESETA, FLÓRÍNUR, ESCUDOS OG LÍRUR HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATEKKUM g þá er ekki allt upp talið. í öllum afgreiðslum Landsbankans geta ferðalangar nánast fyrirvaralaust gengið að gjaldmiðlum allra helstu viðskiptalanda okkar vísum. Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar eru ávallt fyrirliggjandi, í ölium helstu gjaldmiðlum. Við minnum líka á Visakortið, - athugaðu gildistímann áður en þú leggur af stað. Góða ferð. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.