Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 38

Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna StöðvarstJóri Fiskeldisstöðin Sjávargull hf., Grindavík óskar eftir að ráða stöðvarstjóra frá 1. sept. ’86 fyrir landeldisstöð sína í Grindavík, sem og seiðaeldisstöð, sem áætlað er að byggja í Landssveit, Rangárvallasýslu. Þeir sem hafa áhuga á stöðunni sendi inn umsókn með uppl. um menntun, reynslu í fiskeldi, ásamt launakröfum fyrir 30. júlí nk. Farið verður með umsóknir sem trúnaðar- mál. Fiskeidisstöðin Sjávargull hf., Brautarholti 8, 2. hæð, 105 Reykjavík. S. 91-622848. GILDI HFlái Uppvask Starfsfólk óskast í kvöld- og helgarvinnu í uppvask. Ennfremur vantar starfsfólk í vakta- vinnu, fullt starf, í uppvask. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri á staðnum milli kl. 9.00- 14.00 næstu daga. Gildihf. Ræstingastjóri Óskum eftir að ráða ræstingastjóra til starfa. Starfið felst í daglegri stjórnun ræstinga- fólks, innkaupum á ræstingavörum ásamt umsjón á línherbergi fyrir veitingareksturinn. Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja reynslu í stjórnunar- og eða ræstingastörfum og geti hafið störf sem fyrst. Upplýsingar um starfið gefur starfsmannastjóri á staðn- um milli kl. 9.00-14.00 næstu daga (ekki í síma). Gildihf. Rafvirki Rafvirki óskast nú þegar. Rafþjónustan, sími 73722. Byggingarfræðingur Byggingarfræðingur óskar eftir atvinnu. Margt kemur til greina. Upplýsingar í síma 99—7379. ___ Hrafnista nv^7 Reykjavík Hjúkrunardeildarstjóri óskast frá 1. sept- ember. Hjúkrunarfræðingar óskast á kvöld- og helgarvaktir. Sjúkraliðar óskast í vaktavinnu, fastar vakt- ir og hlutastörf koma til greina. Starfsfólk óskast í aðhlynningu og ræst- ingu. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 35262 og 38440. Bolungarvík — kennarar Kennara vantar til starfa við Grunnskóla Bolungarvíkur. Kennslugreinar: Almenn kennsla á barnastigi, samfélagsfræði og náttúrufræði á unglingastigi, danska, enska, íþróttir, mynd- og tónmennt. Ennfremur stuðnings- og hjálparkennsla. Ódýrt hús- næði. Nánari upplýsingar gefa skólastjóri í síma 94-7288 og formaður skólanefndar í síma 94-7540. Skólanefnd Grunnskólans í Bolungarvík. Staða yfirlæknis Sjúkrahús Siglufjarðar óskar að ráða yfir- lækni til starfa frá og með 1. október 1986. Áskilið er að viðkomandi hafi sérfræðileyfi í almennum skurðlækningum. Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum sendist stjórn Sjúkrahúss Siglufjarðar fyrir 1. september nk. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 96-71166 og for- maður stjórnar í síma 96-71750. Stjórn Sjúkrahúss Siglufjarðar. Frá menntamálaráðuneytinu: Lausar stöður við framhaldsskóla Við Fjölbrautaskólann i Breiðholti eru iausar til umsóknar kennarastöður í handavinnu tré- og málmgreina, tölvufræðum, viðskipta- fræðum og V2 staða tónmenntakennara. Umsóknir skulu sendar til menntamálaráðu- neytisins, Hverfisgötu 6, 105 Reykjavík fyrir 10. ágúst. Umsóknarfrestur um áður auglýstar kenn- arastöður í stærðfræði og þýsku við Menntaskólann á Akureyri framlengist til 10. ágúst. Menntamálaráðuneytið. Brautarholt 20. Starfsfólk óskast Óskum eftir að ráða starfsfólk í eftirtalin störf: - Uppvask - Umsjón með snyrtingu kvenria - Smurbrauðsdömu - Aðstoðarfólk á bar Upplýsingar aðeins veittar á staðnum hjá veitingastjóra í dag milli kl. 14 og 17. Matreiðslumaður sem er að koma heim eftir störf í veitingahús- um erlendis óskar eftir vinnu í haust. Er staddur hér á landi og veitir nánari uppl. í síma 43901 milli kl. 14-17 ídag og á morgun. Sinfóníuhljómsveit íslands auglýsir lausar stöður: 2 50% stöður í cellódeild. 2 50% stöður í slagverksdeild. Ráðningartími er frá 1. okt. 1986. Umsóknir skulu berast skrifstofu Sinfóníu- hljómsveitar íslands, Hverfisgötu 50, Rvk., fyrir 1. ágúst nk. Hæfnispróf munu fara fram föstud. 12. sept. nk. Lyfjatæknaskóli íslands Starf skólastjóra Lyfjatæknaskóla íslands er auglýst laust til umsóknar. Starfið veitist frá 1. október 1986. Umsóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 18. ágúst nk. Heilbrigöis- og tryggingamálaráðuneytið, 18.júlí 1986. Hagvangur hf - SÉRHÆFÐ RÁÐNINGARÞJÓNUSTA BYGGÐ Á GAGNKVÆMUM TRÚNAÐI Fjármálastjóri Fyrirtækið er stórt og öflugt verslunar- og útgerðarfyrirtæki úti á landi. Starfssvið: ábyrgð á og yfirumsjón með dag- legri fjármálastjórn og bókhaldi. Rekstrar- og greiðsluáætlanir. Uppgjör og skýrslugerð. Starfsmannahald. Fjármálastjóri er stað- gengill framkvæmdastjóra. Við leitum að manni með starfsreynslu og haldgóða menntun á sviði verslunar og við- skipta. Háskólamenntun æskileg. Nánari uppl. veitir Þórir Þorvarðarson. Vin- samlegast sendið umsóknir á eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar merkt- ar: „Fjármálastjóri úti á landi“ fyrir 1. ágúst. Hagvangurhf RÁÐNINCARÞJÓNUSTA GRENSÁSVEGI 13, 108 REYKJAVÍK Sími: 83666 Hafnarfjörður Maður á aldrinum 25-35 ára óskast til örygg- isgæslu. Þarf að vera heiðarlegur og sam- viskusamur. Umsóknir ásamt uppl. um fyrri störf sendist augldeild Mbl. merkt: „Öryggis- vörður — 5838“ fyrir 28. júlí nk. Grunnskólinn í Þykkvabæ Kennara vantar í Grunnskólann í Þykkvabæ, Rangárvallarsýslu, svo og skólastjóra fram eftir vetri. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 99-5665. ; í : i Starfsmaður auglýsingastofu Við bjóðum þér mjög fjölbreytt starf á sviði almenningstengsla. Góð laun og vinnuað- staða. Menntun á sviði félagsvísinda og/eða viðskipta er gott veganesti. Mikilvægt er að þú eigi auðvelt með að umgangast fólk og getir unnið sjálfstætt að eigin frumkvæði. Um er að ræða framtíðarstarf og þú getur byrjað strax. Sendu umsókn fyrir 1. ágúst og segðu deili á þér. Umsókn sendist augl- deild Mbl. merkt: „Örkin — 5839“. Auglýsingastofan ORKIN ^

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.