Morgunblaðið - 24.07.1986, Side 40

Morgunblaðið - 24.07.1986, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 Ásta Pálsdóttir sýnir í Golfskálanum í Leiru í GOLFSKÁLANUM í Leiru á Suðurnesjum verður í dag, 24. júlí, kl. 16 opnuð sýning á mál- verkum eftir Ástu Pálsdóttur myndlistarmann. Á sýningunni eru 35 vatnslita- myndir og sækir Ásta myndefni sitt að mestu í Leiruna og aðra staði á Suðumesjum. Þetta er önnur einkasýning Ástu, fyrri sýningin var á Sauðárkróki árið 1982. Einnig hefur hún tekið þátt í nokkrum samsýningum bæði hér heima og erlendis. Sýningin stendur fram yfír lands- mótið í golfí sem verður haldið á Hólmsvelli í Leiru í ár og lýkur henni 5. ágúst. NÝTT StMANÚMER 69-11-00 Auglýsingar 22480 • Afgreiðsla 83033 ÍTiyPfíN v BÆJARFELOG, VERKTAKAR FYRIRTÆKI OG EINSTAKLINGAR sem hafa með gatnagerð og lóðafrágang að gera: KANTSTEYPAN hf. er nýtt fyrirtæki sem tekur að sér að steypa GÖTUKANTA. Ný og fullkomin tæki. Starfsreyndir fagmenn sem tryggja hámarksgæði. Leitið hagstæðra verðtil- boða. Upplýsingar eru góðfúslega veittar í síma 91-687787. ViA kynnum matreiðslu- sparibaukinn f rá § SANYO Þessi örbylgjuofn frá Sanyo sparar þér ekki aðeins tíma og rafmagn við matseldina, hann kostaraðeins: 13.400,-« . . . Og það fylgir honum matreiðslubók á íslensku, athugaðu það. Nú skellir þú þér á einn. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 91-35200 .Galdranomin í fullum skrúða tilbúin að hjóla af stað' Hinn mannlegi þáttur/Ásgeir Hvítaskáld Undir berum himni Það kólnaði stöðugt og brátt var orðið ískalt. Ég vakti Gústa og fékk hann til að víxla höfða- lagi, þannig að hann notaði fætuma mína sem kodda og ég var með andlitið klesst utan í DETTO-hjólreiðaskó hans. Vitund mín fylltist af rúskinnsþef. Svona hafði fólk sofíð í torfbæjunum í gamla daga til að nýta plássið og halda á sér hita, það fannst Gústa bijálað. Nú tókum við minna pláss og gátum vafíð hluta af geim- farateppinu utan um okkur. Síðan breiddum við tuskur yfír; töskum- ar líka. Þama lágum við í hnipri eins og eitt hrúgald. Æðislega spennandi að sofa úti undir bemm himni, ekki satt. Það var eins og ég héldi vakt á meðan Gústi svaf. Ýmist var ég að kafna úr rúskinnsþef eða af frumskógarolíunni á andliti mínu. Aldrei sást neitt mýbit. Skyndilega heyrði ég þmsk í trénu, augu mín galopnuðust, eyr- un sperrtust og ég fékk hjartslátt. Af öllum merkjum að dæma var þetta ljón. Mér fannst ég heyra andardráttinn í því. Ég ætlaði að rísa upp en þá var ég fastur. Hausinn á mér var klemmdur á milli tveggja DETTO-fóta. Gústi ríghélt um fætur mína og svo þeir vom allir orðnir dofnir. Nú myndi ljónið koma og éta mig. Þá sá ég stjömuhrap og ég flýtti mér að óska ljóninu burt. Um leið mundi ég að það em engin ljón í Danmörku. Frekar hefði ég átt að óska að ég losnaði úr skrúf- stykkinu. Klukkan fjögur var orðið of kalt til að liggja þama og við skulfum báðir úr kulda. Morgun- verðurinn var fátæklegur; rúsínu- bollur og sandkaka. Stirðir og kaldir hjóluðum við af stað. Hann var í gulri regnslá, með klútinn um hausinn eins og galdrakerling og hjólaði hratt til að hita sér. Ég var ekki beint upplagður til hjólreiða, allur dofínn eftir skrúf- stykkið og ósofínn. Gústi rak á eftir mér með frekju. Þoka var yfír ökmnum og á vissan hátt fallegt, en mér var kalt og hrollur fór um mig allan. Svo varð ég strax uppgefínn í fótunum. Á malbikinu lá dauður héri í stómm blóðpolli. Ég rannsakaði málið. Blóðið var óstorknað og hérinn volgur, þetta var nýskeð. Keyrt hafði verið yfír hausinn og framhluta dýrsins, þannig að allt lqötið var heilt. Það hefði verið fínt að steikja kjötið yfír báli með spýtu á rómantískum stað inn í skóginum. Þessi fallegi héri var kosemer dauður og engum til gagns, yrði bara að klessu er liði á daginn. „Gústi, lánaðu mér vasahníf,“ sagði ég. En Gústi steig á hjólið og hjól- aði burt. „Láttu ekki svona, þá getum við fengið heitt kjöt sem einhver næring er í og við fáum orku til að hjóla." Gústi hjólaði langt á undan og ég varð að flýta mér ef ég ætlaði ekki að missa af honum. Við þut- um framhjá beljum sem stóðu fyrir utan fjós og bauluðu en gláptu er þær sáu okkur. Ég ull- aði. Á mörgum stöðum var græn- meti í húsagörðum við veginn. Glorsoltinn ætlaði ég að stíga af hjólinu og teygja mig í það. Gústi rak þá alltaf á eftir mér og sagði að bráðum kæmi bakarí. Eins og hann hefði eitthvað á móti því ég fengi mér nokkrar gulrætur. Hann var enginn ævintýramaður, enginn indíáni. Alltof taminn. En það kom ekkert andskotans bak- arí. Það kom ekki einu sinni þorp. Bara eitt og eitt hús við veginn með matjurtagarði. Ég fékk aldrei neina pásu. Og hann hjólaði langt á undan mér. Loks tókst mér að fá hann til að stoppa með því að þykjast þurfa að pissa. Þá fór ég að út- skýra fyrir honum þetta með hjartað: „Veistu, að hjartað tekur alltaf pásu á milli slaga. Þó það sé ekki nema brot úr sekúndu er það nóg til að hjartað endist heila manns- ævi. Heldurðu að hjartað gæti unnið hvíldarlaust í 90 ár. Nei, mannslíkaminn verður alltaf að fá hvíld inn á milli.“ Þetta hafði engin áhrif á hann. Um leið og ég hafði lokað buxna- klaufínni urðum við að halda áfram. Nokkru seinna, uppi á hæð, uppgötvaði ég að hnakkurinn hafði sigið. Þannig að fætur mínir voru krepptir er ég hjólaði og blóðrásin því ekki eðlileg til fót- anna. Þetta var mjög alvarlegt mál hjá Gústa og nú urðum við að nema staðar á meðan hann gerði við með alls konar skiptilykl- um úr léttmálmi. En ég á veg- kantinum og hámaði í mig hundasúrur. Eftir þetta var ég hressari og við ákváðum að þrauka til næsta bæjar, stimpla okkur inn á far- fuglaheimili og fara að sofa. Hjóla svo heim næsta dag í rólegheitum. Gleyma þessu með Óðinsvé. Loks komum við í lítið þorp. Þar fór Gústi í næstu mjólkurbúð og þambaði heilan lítra af súr- mjólk. Við fundum farfuglaheimili en það var ekkert laust pláss. Fyrir utan var allt fullt af hjól- andi Svíum, stór hluti gamlar kerlingar á hjólum. Þá ætluðum við í sundlaugina á staðnum til að hressa okkur en hún var lokuð. „Af hveiju er þessi andskotans sundlaug lokuð," spurði ég reiður, þar _sem við stóðum við skiltið. „I Danmörku eru sundlaugam- ar alltaf lokaðar á sumrin vegna þess ..." Ég leyfði honum ekki að klára og blótaði öllu því sem danskt er. Eftir að hafa fengið heitan mat og reynt að sofna á hörðum bekkj- um, ákváðum við að þrauka til Korsar. Þá værum við komnir á vesturströnd Sjálands, þar gátum við farið á ströndina og legið í sólinni. Ætluðum ekki að taka feijuna yfir á Fjón. Hættir við það allt. Vildum bara finna stað þar sem við gátum sofíð. Síðan ætlaði hann að senda mig til baka með lest, hjólið og allt. En nú fékk ég það í gegn að við hjóluðum í hálf- tíma í senn og tækjum 5 mínútna hvíld á milli. Á þjóðveginum hittum við Ameríkana. Hann var hlaðinn far- angri og hjólaði á stuttbuxunum einum, kaffíbrúnn. Hann og Gústi röbbuðu saman, hlið við hlið, en ég rembdist við að fylgja þeim eftir og hlusta á samtalið. Hann hafði lagt af stað frá Kaup- mannahöfn þennan sama morgun klukkan 6 og var kominn alla þessa leið. Hann var frá New York og hafði hjólað fram og aft- ur um alla Evrópu, nú var hann að flýta sér til Ámsterdam til að ná flugvél heim. Fætur hans voru stæltir stinnum vöðvum. Ferðalag okkar Gústa var hlægilegt miðað við hans. Við mættum stöðugum straum af hjólreiðafólki sem veif- aði okkur á hinum vegkantinum, eftir farangrinum að dæma var það langferð. Og á veginum blúss- uðu bílar. Svo spítti Kaninn í og Gústi nam staðar: „Hvað,“ sagði ég. „Ætlarðu ekki í pásu?“ sagði hann. „Nei, gleymum því, verum sam- ferða Kananum.“ „Nei. Þú verður að hvíla þig.“ Þetta með hjartað var farið að virka á hann og nú fékk ég axla- nudd. Sundlaugin í Korsor var líka lokuð. „Dönsk sundlaugarmenning er frat, laugamar kosemer alltaf kaldar,“ sagði ég til að spæla Gústa, en þar skjátlaðist mér. Því rétt fyrir hádegi komum við niður á strönd. Þar var steikj- andi sól. Hvítur sandur og öldurn- ar glömpuðu eins og skíra gull. Þegar ég steig berfættur í sandinn brenndi ég mig á iljunum. Og stelpur gengu um bijóstahaldara- lausar. Þetta var ekta sundlaugar- menning. (Framhald síðar.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.