Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 46
Jr
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
Kynbótasýning á Landsmóti:
Myndir: Einar Falur
Valdimar Kristinsson
Ber að minnka kröfur
til ungu hrossanna?
_______Hestar
Valdimar Kristinsson
NÚ AÐ afloknu Landsmóti
má búast við að umræður
hefjist manna á milli um kyn-
bótahrossin sem þar komu
fram og dóma sem þau hlutu.
Reikna má með að flestir séu
ánægðir með útkomuna,
áhorfendur jafnt sem eigend-
ur hrossanna, því fullyrða
má að sýningin að þessu sinni
sé sú besta fram að þessu.
Margir hrossræktendur hafa
ástæðu til að gleðjast yfir
góðri framgöngu sinna
hrossa en þó enginn eins og
Sveinn Guðmundsson á Sauð-
árkróki og hans fjölskylda.
Þótt Sveinn hafi oft átt góðu
gengi að fagna á Landsmót-
um er sennilegt að þarna
hafi hann og ræktunarstarf
hans unnið sinnt stærsta sig-
ur. Að vera með efstu stóð-
hesta í fjögra og fimm vetra
flokki, efstu hryssu í heiðurs-
verðlaunum fyrir afkvæmi,
efstu hryssu í fjögra vetra
flokki, eina hryssu í góðum
fyrstu verðlaunum er talandi
dæmi um góðan árangur af
áratuga ræktunarstarfi
Sveins og ósennilegt að þetta
verði leikið eftir af öðrum í
bráð.
Gáski 920 frá Hofstöðum með 8.03.
Afkvæmi hans minna um margt á
föður sinn sem er mjög geðslegur
hestur en enn sem komið er virðast
þau standa honum að baki bæði að
byggingu og reiðhestakostum en
þess ber þó að geta að þau eru flest
frekar ung að árum. I þriðja sæti
varð svo Ófeigur 882 frá Flugu-
mýri með sömu einkunn og Gáski.
Ófeigur er arfhreinn og gefur þar
af leiðandi aðeins bleik- eða móál-
ótt afkvæmi. Reyndar getur skjótt
komið inn í báða litina en þetta
gerði það að verkum að Ófeigs-
hópurinn var mjög samstæður að
sjá. Hvort þessi erfðaeiginleiki telst
kostur eða galli ræðst væntanlega
af því hvort menn hafa smekk fyr-
ir þessum litum eða ekki. En ekki
var annað að sjá en Ófeigur lofi
góðu og má geta þess að undan
honum er hinn kunni gæðingur
Snjall frá Gerðum en hann hlaut í
einkunn 8.23 fyrir hæfileika sem
er óvenju hátt hjá skeiðlausum
hesti.
Hinir þrír hestamir sem þama
komu fram em eins og áður segir
Máni 949 frá Ketilstöðum og Hlyn-
ur 910 frá Hvanneyri en báðir voru
Ófeigur 818 frá Hvanneyri hefur alltaf vakið athygli fyrir vasklega framgöngu og hér fer hann fyrir
afkvæmahóp sínum, knapi er Reynir Aðalsteinsson.
Otur 1050 frá Sauðárkróki sýndi að hann
býr yfir miklum hæfileikum og varð hann
efstur fjögurra vetra hesta. Knapi er Einar
Oder Magnússon.
Rúmar og fallegar hreyfingar hjá Adam
978 frá Meðalfelli, knapi Erling Sigurðsson.
Viðar 979 frá Viðvík efstur sex vetra stóð-
hesta, knapi Páll Bjarki Pálsson.
Ófeignr 818 og Náttfari
776 í heiðursverðlaun
Afkvæmasýningar stóðhesta eru
án efa mikilvægasti hlekkurinn í
kynbótadómum og njóta þar af leið-
•■®andi mestrar athygli. Þeir Ófeigur
818 og Náttfari 776 fóru nú í heið-
ursverðlaun fyrir afkvæmi sín og
má reikna með að þeir hafi lokið
sínum ferli í kynbótasýningum, í
það minnsta hefur ekki tíðkast að
þeir hestar sem hafi náð þessum
lokaáfanga hafi verið endursýndir
til heiðursverðlauna.
Ófeigur hlaut 8.16 sem er 0.01
lægri einkunn en Hrafn 802 frá
Holtsmúla náði á Landsmótinu.
Þessir tveir hestar voru sýndir sex
vetra 1974 og stóðu efstir í sínum
flokki og hefur verið skemmtilegt
að fylgjast með árangri þeirra í
gegnum tíðina. Ófeigur er nú sýnd-
ur í þriðja skiptið með afkvæmum,
•>og hlaut hann fyrstu verðlaun í
bæði skiptin. Á Landsmótinu ’82
var fyrirhugað að reyna með hann
í heiðursverðlaun en tókst ekki og
má rekja ástæðuna til þess hversu
lítið hann var notaður á tímabili.
Eftir tvö fjórðungsmót sem haldin
voru ’84 var ljóst að hann næði
heiðursverðlaunum og nú er hann
tölulega séð samkvæmt núverandi
dómskerfi annar besti stóðhestur
landsins.
Náttfari 776 var sýndur í fyrsta
skipti með afkvæmum í fyrra og
hlaut þá góð fyrstu verðlaun. Sem
einstaklingur er Náttfari einn
þekktasti stóðhestur landsins og
hlýtur nú 8.11 í einkunn fyrir tólf
afkvæmi og er það nákvæmlega
sama einkunn og faðir hans Sörli
653 frá Sauðárkróki hlaut þegar
hann fyrstur stóðhesta hlaut heið-
ursverðlaun samkvæmt þá nýju
kerfi.
Öfugt við það sem áður hefur
tíðkast voru ekki samin dómsorð
um afkvæmahrossin á dómsstað svo
ekki er hægt að vitna í þau en í
dómsorðum um afkvæmi Ófeigs frá
’82 segir m.a. að háls sé frekar
grannur og vel settur en fulldjúpur,
herðar langar, bakið lítið sveigt og
lendin öflug en ekki löng. Einnig
segir að Ófeigur sé sá stóðhestur
sem gefí hvað snarpastan vilja allra
afkvæmadæmdra hesta. Svo þá
ættu menn að vita hvert þeir eiga
að leita ef þá vantar viljann.
í dómsorði um afkvæmi Náttfara
frá því í fyrra segir m.a. að þau
séu sviplík, misjöfn að reisn, herðar
í góðu meðallagi, nokkuð djúp um
bijóst, bak beint, lendin löng, brött
og mikil. Um reiðhestakosti segir
að þau séu viljug, brokk og skeið
rúmt og tilþrifamikið en töltið að-
eins bundið.
Dreyri 834 komi í
fyrstu verðlaun
Sex stóðhestar með afkvæmum
kepptu til fyrstu verðlauna og stóð
þeirra efstur Dreyri 834 frá Álfs-
nesi með 8.04. Dreyri var sýndur á
Kaldármelum ’84 með afkvæmum
ásamt flórum öðrum hestum en
ekki náðist samkomulag í dóm-
nefndinni um hvaða stóðhestar ættu
að hljóta fyrstu verðlaun og varð
endirinn sá að Dreyri var settur í
önnur verðlaun ásamt þremur öðr-
um. Með þessum árangri nú má
segja að Dreyri hafi hrist af sér
slyðruorðið og skaut hann aftur
fyrir sig tveimur kunnum hestum
sem hlotið höfðu fyrstu verðlaun
áður, þeim Mána 949 frá Ketilsstöð-
um og Hlyni 910 frá Hvanneyri.
Næstur Dreyra í einkunn varð
þeir sýndir ’84 á sitthvoru fjórð-
ungsmótinu. Hlynur hækkar sig um
0.02 en Máni bætir sig um 0.07.
Sjötti hesturinn var svo Sörli 876
frá Stykkishólmi en hann ásamt
þeim Ófeigi og Gáska kemur fram
í fyrsta skipti með afkvæmum. Sörli
hlaut í einkunn 7.95.
Ekki er óeðlilegt að menn leiði
hugann að hvort einhver af þessum
hestum muni skila sér í heiðursverð-
laun á komandi árum og er sjálfsagt
erfitt um það að spá. Þar spilar inn
í aldur hestanná og vinsældir þeirra.
Máni 949 þótti líklegur sem slíkur
eftir afkvæmasýninguna ’84 á
Fornustekkum þar sem hann kom
mjög vel út með ung afkvæmi frá
aðeins einum bæ, Ketilstöðum.
Dreyri er orðinn nokkuð fullorðinn
en vinsældir hans hafa aukist nokk-
uð eftir íjórðungsmótið á Kaldár-
melum ’84 og nú er það spumingin
hvort þær eigi enn eftir að aukast
eftir sýninguna á Landsmótinu. Þá
virðast þeir Gáski 920 og Ófeigur
882 vera líklegir til að gefa af sér
góð afkvæmi og má búast við að
þeir eigi eftir að bæta einkunn sína
á komandi árum. Annars eru hug-
renningar sem þessar kannski út í
loftið því til stendur að breyta til-
högun á afkvæmadómum þannig
að stuðst verður við tölvuspána svo-
nefndu þegar valin verða hross til
afkvæmasýninga á fjórðungs- og
Landsmótum. Eins og þessi tölvu-
spá er í dag má búast við frábrugð-
inni útkomu því röð stóðhestanna
er ekki í samræmi við þær einkunn-
ir sem þeir hafa fengið í afkvæma-
sýningum á undanfömum árum og
Dreyri 834 frá Álfsnesi hefur nú hrist af sér slyðruorðið og hefur nú hlotið fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi sín. Knapi á Dreyra er
Hólmar Pálsson formaður Hrossaræktarsambands Dalamanna sem á hestinn.