Morgunblaðið - 24.07.1986, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
Tsi
bæði skeggrætt um bæjarins gagn
og nauðsynjar og ákvarðanir tekn-
ar. Kristján var liðtækur skák- og
bridsmaður og mikill keppnismaður.
Hann lagði oft leið sína út á „loft",
þ.e.a.s. í félagsheimili taflfélagsins
við Grensásveg. Við áttum margar
góðar stundir saman við skákborð-
ið. Kristján var bæði kappsfullur
og hugmyndaríkur, ekki síst þegar
öll sund virtust lokuð.
Að gefast upp var Kristjáni al-
gjörlega framandi og margan
vinninginn, sem andstæðingur hans
taldi sinn, fékk Kristján á dirfsku
og fijóleika, sem virtist ganga þvert
á hefðbundið stöðumat. Kannski er
það þess konar dirfska og útsjónar-
semi, sem gerði mönnum kleift að
byggja Snæfjallaströnd, nokkuð
sem virðist mótsagnakennt í huga
þess sem býr við hitaveitu á
Reykjavíkursvæðinu.
Kristján hafði góða heilsu fram
til þess er Jósefína lést, en þá fór
frekar að halla undan fæti. Síðustu
árin átti hann erfítt með ýmsar
hreyfíngar og tjáningu í orðum. Var
það þungbært, því hann hafði enn
frá mörgu að segja og vildi einnig
spyija fregna af ástvinum. Þegar
erfíðleikarnir við tjáningu í orðum
urðu honum um megn, þá leitaði
hann á náðir söngsins, það mál
kunni hann til hinstu stundar. Ég
vil þakka Kristjáni okkar góðu
kynni.
Orn Helgason
og var ávallt vel útbúinn til flestra
ferða og það sem á vantaði bætti
hann úr með kunnáttu sinni og
góðu úrræði. Ég hef oft hugsað til
þess að þó hart nær tuttugu ár
væru á milli okkar þá varð maður
sjaldan var við þann aldursmun, þvi
kynslóðabil var ekki til í návist
þessa manns. Hann gat nánast að-
lagast öllum aðstæðum og gaf sér
yngri mönnum ekkert eftir. Þegar
maður lítur til baka þá kemur ýmis-
legt fram í hugann um góðan félaga
og samferðamann eins og Óli var.
Hann hafði gott skopskyn til að
bera og brá oft á leik við okkur,
enda grunnt á stráknum í fari hans.
Hann hafði einnig næmt fegurð-
arskyn og komst oft í nána snert-
ingu við þá náttúrufegurð sem hann
sótti svo mikið í. Kvað oft svo
rammt að þessu að hann gleymdi
bæði stað og stundum þeim tækjum
er hann var að veiða með þá stund-
ina. Við sem nutum samferða Óla
munum oft sakna hans sem góðs
drengs og félaga sem alltaf var
borinn og búinn til að aðstoða og
taka þátt í gleði og sorg annarra.
Far í fírði og ég þakka sam-
verustundimar.
Sólmundur Tr. Einarsson
' W18!.1
mnm
mr'-pF!
m§’m
Á hátíðinni í Rostock lék lúðrasveit verkalýðsins bæði innandyra og úti, á götum og torgum. Rostock er gamall Hansabær við Eystrasalt.
Lúðrasveit Verkalýðsins:
Tónleikar í Tívolí og
fjórðu verðlaun í Rostock
Jónshúsi, 16.
LÚÐRASVEIT verkalýðsins hélt skemmtilega tónleika á stóra
sviðinu í Tívolígarðinum 1G. júli. Voru áheyrendabekkirnir þétt-
skipaðir og undirtektir mjög góðar í blíðviðrinu og sterkjuhita.
Einkum gerði lagasyrpa hljómsveitimar mikla lukku enda frábær-
lega vel útsett af hljómsveitarstjóranum og fjörlega leikin.
Stjórnandi Lúðrasveitar verkalýðsins er Ellert Karlsson en for-
maður hennar er Torfi Karl Antonsson.
Hljómlistarmennimir em nú á
heimleið eftir hljómleikaför í
Austur-Þýzkalandi þar sem lúðra-
sveitin tók þátt í tónlistarhátíðinni
Musikantentreff Ostsee í Rostock.
Hún er hluti af „Rostöcker Som-
mer-festtage“ sem er fjölþætt
listahátíð, þar sem tónlist er leik-
inn, ljóð lesin, íþróttir stundaðar
o.fl. þess háttar. Einnig fer þar
fram sönglagakeppni í „evró-
visjón-stíl“, sem stendur yfir í
þijá daga.
Vinafélag íslands og Austur-
Þýskalands hafði milligöngu um
ferðina. Stóð mót þetta í 9 daga
og hélt hljómsveitin 10 tónleika,
bæði úti og inni. Þátttakendur
vom 15 hljómsveitir frá 12 lönd-
um, þar á meðal frá öllum
Norðurlöndunum og er ísland nú
með öðm sinni en í fýrra tók
Homaflokkur Kópavogs þátt í
mótinu. Var dvölin í Rostock öll
hin ánægjulegasta að sögn for-
manns kórsins og móttökur
höfðinglegar. Bjuggu íslending-
amir, sem vom 56 talsins, þar
af 42 hljóðfæraleikarar, í íbúðum
og var uppihald kostað af þarlend-
um aðilum og dagpeningar auk
þess greiddir. „Við vissum að við
fengjum frían mat og húsnæði,
en að það yrði veisla upp á hvem
einasta dag áttum við ekki von
á,“ sagði Torfí. Þá höfðu þau túlk,
Hartmúut Mikkelsted, sem talaði
íslensku eins og innfæddur þótt
hann hafí aðeins einu sinni komið
til íslands, í þijár vikur fyrir þrett-
án ámm. Hann er íslenskukennari
í Austur-Þýskalandi.
Efnisskrá Lúðrasveitar verka-
lýðsins var fjölbreytt á tónleikun-
um, bæði íslensk og erlend lög,
þ. á m. Öxar við ána, vikivakar
og ísl. rímnalög. Var sveitin valin
í 4. sæti af 15 manna dómnefnd
en 5 efstu hljómsveitimar fá eftir-
sótta viðurkenningu. Fékk hún
verðlaunin fyrir „alþjóðlega efnis-
skrá“. Alls vom um 1.000 manns
viðstaddir tónlistarhátíðina.
Hér i Danmörku dvaldi hópur-
Myndin Guðmundur Jón AiberUson
Lúðrasveit verkalýðsins lék i Tívolí í Kaupmannahöfn 16. júlí sl.
i blíðskaparveðri og við mjög góðar undirtektir.
inn í 5 daga í sumarhúsunum í
Karlslunde og hélt lúðrasveitin
hljómleika þar suður frá og svo í
Tívolí eins og að ofan greinir.
Áður hefur Lúðrasveit verka-
klýðsins leikið erlendis, er hún tók
þátt í norrænu móti kóra og
hljómsveita í Osló 1977. Vom þar
um 8.000 manns samankomin.
Lúðrasveitin er stofnuð 8. mars
1953 og hefur góðum kröftum á
að skipa. Margt er þar líka af
ungu fólki, sem flest ef ekki allt
hefur öðlast þjálfun og reynslu í
skólahljómsveitum. Vom lúðra-
sveitarmennimir verðugir fulltrú-
ar íslands á eriendri gmnd.
Lúðrasveitinni hafa nú í fram-
haldi af þessari ferð borist
óformleg boð á lúðrasveitamót í
Belgíu og Tékkóslóvakíu, á næsta
ári.
G.L.Ásg.
Morgunblaðið/Úlfur
Kristinn Guðbrandur við nokkur verka sinna á sýningunni i Slunka-
ríki á ísafirði.
ísafjörður:
Kristinn Guð-
brandur Harð-
arson sýnir í
Slunkaríki
ísafirði.
KRISTINN Guðbrandur Harðar-
son opnaði myndlistarsýningu í
Slunkaríki á Isafirði sl. laugar-
dag. Mjög góð aðsókn hefur
verið að sýningunni og ísfirðing-
ar tekið listamanninum vel.
Kristinn sýnir olíumálverk og
grafíkmyndir og eru öll verkin
til sölu.
Kristinn hóf nám í Myndlistar-
og handíðaskólanum árið 1977, en
að loknu námi þar hélt hann til
Haag í Hollandi og dvaldi þar við
nám árin 1977 og 1978. Síðan hef-
ur hann gert víðreist og haldið
sýningar á Ítalíu, í Frakklandi,
Sviss, Svíþjóð og Bandaríkjunum
auk þess sem hann hefur sýnt í
Hollandi og á íslandi. Hann undir-
býr nú aðra málverkasýningu í
Svíþjóð sem opnuð verður f vetur.
Þetta er í annað sinn sem hann
kemur til ísafjarðar, en hann var
þar einnig í fyrra.
Aðspurður sagði hann að sér
líkaði afar vel að dvelja með Vest-
firðingum og andrúmsloftið væri
gott á ísafirði. Hann reynir að ferð-
ast um og skoða áhugaverða staði
á Vestfjarðakjálkanum. Síðasta
sumar fór hann á Homstrandir og
sótti þangað örvun og myndefni í
hrikaleika þess stórbrotna lands-
svæðis. Nú hyggst hann fara í
pílagrímsferð til Bolungarvíkur og
skoða bemskustöðvar föður síns,
sem þar er fæddur.
Sýningunni í Slunkaríki lýkur 31.
júlí nk., en þangað til er opið síðdeg-
is á hveijum degi.
Úlfar
Leiðrétting:
B YKO kaupir á
75 milljónir
SAMNINGUR BYKO og Hagkaups
um kaup á 1600 fermetmm í
Kringlunni hljóðar upp á 75 milljón-
ir króna en ekki rúmlega 60 milljón-
ir, eins og ranghermt var í frétt
blaðsins í gær. Þetta leiðréttist hér
með.