Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 52

Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 Flugskólastýra S AS Birgitta Rydbeck Aðeins ein kona í heiminum er skólastjóri flugskóla hjá stóru flugfélagi, eftir því að best er vit- að. Það er óneitanlega sérstætt að kvenmaður skuli sitja á slíkum skólastjórastól, en það er SAS flug- félagið, sem er svona jafnréttissinn- að. Skólastjórinn, eða öllu heldur skólastýran, heitir Birgitta Rydbeck og skólinn er SAS „flugakademí- an“, þar sem áhafnir félagsins hljóta menntun sína og þjálfun. Þegar Birgitta tók við embættinu blés ekki byrlega fyrir henni, því þá var það hefð að flugskólastjórinn væri karlkyns flugmaður. Og nú var sem sé komin manneskja, sem ekki kunni að fljúga og var kona í þokkabót. Samtök flugmanna báru fram andmæli gegn ráðningu hennar, en Birgitta lét það ekki buga sig. Hún vissi að það þurfti ekki flugmann til að stjóma flugskóla og það hef- ur hún svo sannarlega sýnt hinum vantrúuðu fram á, því hún hefur staðið sig með afbrigðum vel, ef marka má orðróminn innan SAS. Birgitta Rydbeek á sæti í stjóm flugrekstrardeildar SAS þar sem hún var lengi vel eina konan. Fyrir skömmu barst henni liðsauki þegar kynsystir hennar settist í stjómina, en sú hefur yflrumsjón með þjón- ustunni um borð í SAS vélunum. Birgitta segir að starfsandinn verði betri þegar konur og karlar starfl samhliða og bætir við, að á meðan að kvenyfírmennimir séu svona fáir hjá SAS, þá sé minni innbyrðis metingur en ella. „Hvers vegna ekki að reyna hlut- ina, áður en því er slegið föstu að þeir gangi ekki? Ég held nefnilega að maður fari á mis við margt, ef ekki er alltaf stefnt fram á við. Sjálf hóf ég feril minn hjá SAS, sem flugfreyja og samhliða fluginu lagði ég svo stund á viðskiptafræðinám," segir þessi kjamakona. Birgitta segir það krefjast mikils tíma og áhuga að gegna starfí flug- skólastjórans. Samverkamennimir eru 250 talsins og segist hún ekki hafa gert sér í hugarlund að starfíð væri eins krefjandi og erfítt og raun væri. „Konur, og þá einkum vel mennt- aðar konur, eru í áberandi sókn, jafnt innan SAS sem á hinum al- menna vinnumarkaði. Staða konunnar hefur breyst mikið síðustu árin enda eru þær orðnar miklu sjálfstæðari," segir hún. En hvemig skyldi Birgittu ganga að samræma hið krefjandi starf og Qölskyldulífíð? „Ég hef bamapíu í fiillu starfí sem annast syni mína tvo. Annars hefði ég aldrei getað þetta." Við skulum láta þessi orð vera lokaorðin í annars ánægjulegri umfjöllun um hina ungu konu á framabraut, mitt í öilu karlaveidinu, sem flugrekstrardeild SAS annars er. „KONUR eru almennt alltof rag- ar við að sækja fram á starfsvett- vangi,“ segir kjarnakonan Birgitta Rydbeck, sem stýrir flugakademíu skandinavíska flugfélagsins, SAS. Fílsterkur f roskur Ingrid Carlson í hlutverki hins látna listræna prins, Eugen. Myndarmaður, ekki satt? Nei, það er ekki ofsögum sagt að líkamsræktaræðið breiðist nú út eins og eldur i sinu. Menn, jafnt sem málleysingjar gera sér nú æ betur grein fyrir sannleiksgildi málsháttarins: Heilbrigð sái í hraustum líkama. Forsætisráðherra frú á fiölunum segir hann, „en það er greinilegt að hún hefur hæfíleika á þessu sviði," segir ráð- herrann. Ekki hefur Ingrid Carlsson þó hugsað sér að leggja leiklistina frekar fyrir sig. Frægð og frami freista hennar ekki. Hún starfar sem bókasafnsfræðingur í heimabæ sínum Tyresö og segist vera hæstánægð í því starfi „en óneitanlega hefur þetta verið bæði spennandi og skemmtilegt. Aldrei hefði það hvarflað að mér að ég ætti eftir áð spreyta mig á sviðinu," segir Ingrid og hlær. Einhver glöggur áhugaleikari tók eftir því fyrir skömmu að forsætisráðherra- frú Svíþjóðar, Ingrid Carlsson væri sérlega lík þeim myndum sem til væru af Eugen prins, sem m.a. var þekktur fyrir málara- hæfíleika sína. Það tók hann tíma að herða hugann upp í að spyija frúna hvort hann mætti prófa að farða hana upp í karl- mannshlutverk og sjá svo hvort hann hefði ekki rétt fyrir sér. Ingrid Carlson brást vel við þessari bón og viti menn. Er verk- inu var lokið var hún ótrúlega lík hinu látna aðalsmanni. Þar sem áhugaieikhúsið var að setja á svið leikrit þar sem Eugen kemur við sögu, var þess farið á leit við Ingrid að hún tæki hlutverkið að sér. Setn- ingar prinsins í stykkinu eru fáar svo málið var auðsótt. Ingrid klæðir sig því nokkur kvöld í viku í karlmannsföt og kemur fram sem konunglegur listamaður. Hefur hún hlotið mikið lof fyrir leik sinn og látbragð og er bóndi hennar hæstán- ægður með frammistöðu frúarinnar. „Fyrst fannst mér þetta fráleit hugmynd," „Það kom mér svo sannarlega á óvart hversu vel hún hefur staðið sig í hlutverkinu. Hún hefur greinilega hæfileika á þessu sviði,“ segir bóndi Ingridar, Ingvar Carlson. Verið að leggja síðustu hönd á verkið. Ingrid klæðir sig í karl mannsföt nokkur kvöld í viku. fclk I fréttum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.